Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki mælst lægra á þessu ári

Framsókn mælist ekki lengur með mann inni og Viðreisn myndu nú ná tveimur inn. Met­fjöldi fram­boða virð­ist fyrst og síð­ast hafa nei­kvæð áhrif á fylgi íhalds­sam­ari flokka en treysta stöðu meiri­hlut­ans í borg­inni. Þetta kemur fram í nýj­ustu kosn­inga­spánni.

Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík mælist 26,2 pró­sent í nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Dr. Baldurs Héð­ins­sonar. Það er lægsta fylgi sem flokk­ur­inn hefur mælst með frá því að fram­kvæmd spár­innar hófst í byrjun mars. Þá mæld­ist fylgi flokks­ins 31 pró­sent. Fylgið hefur alls minnkað um 2,1 pró­sentu­stig frá kosn­inga­spánni sem gerð var 25. apríl. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er nú ekki langt frá kjör­fylgi sínu, en hann fékk 25,7 pró­sent atkvæða í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2014. Það var lang­versta útkoma flokks­ins í höf­uð­borg­inni frá upp­hafi og í fyrsta sinn sem hann fékk undir 30 pró­sent atkvæða. Raunar var það ein­ungis í annað sinn í sög­unni sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk ekki yfir 40 pró­sent atkvæða í Reykja­vík. Hitt skiptið var árið 2010.

Fylgi framboða í Reykjavík samkvæmt kosningaspánni 8. maí 2018.
Fylgi fram­boða í Reykja­vík sam­kvæmt kosn­inga­spánni 8. maí 2018.

Sú mikla end­ur­nýjun sem varð á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins, en ein­ungis einn sitj­andi borg­ar­full­trúi er í efstu sætum hans, virð­ist því ekki hafa náð þeim árangri sem von­ast var til í Valhöll, að minnsta kosti enn sem komið er. Kosið verður 26. maí næst­kom­andi og því eru 18 dagar til kosn­inga.

Framsókn ekki lengur með mann inni

Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins, sem eru með svip­aðar áherslur og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn í mörgum málum, sér­stak­lega í skipu­lags- og sam­göngu­málum, myndu fá sitt hvorn borg­ar­full­trú­ann ef kosið yrði í dag. Fulltrúi Flokks fólks­ins, Kolbrún Bald­urs­dóttir, er þó næsti maður til að detta út miðað við núver­andi stöðu, enda mælist fylgi flokks­ins ein­ungis 2,9 pró­sent. Þau tíð­indi hafa hins vegar orðið að nú mælist Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn ekki lengur með mann inni. Fylgi hans er nú 2,6 pró­sent sem er það lægsta sem flokk­ur­inn hefur mælst með í kosn­inga­spánni. Framsókn er eini flokk­ur­inn sem á full­trúa á Alþingi sem myndi ekki ná manni inn í borg­ar­stjórn ef kosið yrði í dag.

Sá maður sem verið hefur hjá Framsókn í und­an­förnum spár flyst nú yfir til Við­reisnar. Það þýðir að Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir myndi taka Pawel Bartozcek með sér inn í borg­ar­stjórn. Miðað við þær áherslur Við­reisnar sem kynntar hafa verið þá ætti helst að vera sam­starfs­grund­völlur við sitj­andi meiri­hluta.

Meirihlutinn heldur

Það er þó ekki víst að sá meiri­hluti þurfi neitt á Viðreisn að halda. Samkvæmt nýj­ustu spánni verður Sam­fylk­ingin áfram stærsti flokk­ur­inn í Reykja­vík. Fylgi hennar mælist nú 29 pró­sent og hefur lítið sveifl­ast í þeim kosn­inga­spám sem gerðar hafa verið á þessu ári. Sam­fylk­ingin fékk 31,9 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2014 og odd­viti hennar, Dagur B. Egg­erts­son, er sitj­andi borg­ar­stjóri.

Píratar og Vinstri græn, sem mynda meiri­hluta með Sam­fylk­ingu og Bjartri fram­tíð, mæl­ast hnífjafnir með 9,6 pró­sent atkvæða. Björt fram­tíð er, sem kunn­ugt er, ekki í fram­boði. Sam­an­lagt fylgi þeirra þriggja flokka sem mynda meiri­hlut­ann og sækj­ast eftir áfram­hald­andi umboði, er nú 48,2 pró­sent. Það myndi skila þeim 12 borg­ar­full­trúum og meiri­hlut­inn myndi því halda.

Ef Viðreisn myndi bæt­ast við, og taka þar með sæti Bjartrar fram­tíðar í meiri­hlut­anum, myndi skipt­ing borg­ar­full­trúa milli meiri­hluta og minni­hluta verða 14-9.

Fleiri framboð bitna á íhaldssamari flokkum

Alls skil­uðu 16 fram­boð inn gildum fram­boðs­listum þegar frestur til slíks rann út á laug­ar­dag. Fram­boðin hafa vita­skuld aldrei verið fleiri. Eins og staðan er í dag segj­ast 8,9 pró­sent kjós­enda að þeir myndu kjósa flokka sem ekki myndu ná inn manni. Það hlut­fall var 1,5 pró­sent í kosn­inga­spánni 5. apríl og hefur því sexfald­ast.

Þar munar mest um að Framsókn mælist ekki lengur með mann inni en fylgi þess flokks er nú, líkt og áður sagði, 2,6 pró­sent.

Aðrir flokkar í fram­boði eru Alþýðu­fylk­ingin, Sós­í­alista­flokk­ur­inn, Höf­uð­borg­ar­list­inn, Karla­list­inn, Kvenna­hreyf­ingin, Frels­is­flokk­ur­inn, Íslenska þjóð­fylk­ingin og Borgin okkar. Allir mæl­ast þessir flokkar með undir 2,5 pró­sent fylgi og því eru þeir flokk­aðir sem „aðrir“ í spánni.

Sætaspáin breytt

Samhliða því að spá fyrir fylgi flokk­anna sem eru í fram­boði fram­kvæmir Kjarninn og Dr. Baldur Héð­ins­son sæta­spá. Hún er fram­kvæmd þannig að keyrðar eru 100 þús­und sýnd­ar­kosn­ingar miðað við fylgi flokka í kosn­inga­spánni sem birt var 8. maí síð­ast­lið­inn. Í hverri þeirra er úthlutað 23 borg­ar­full­trúum og þar sem sýnd­ar­kosn­ing­arnar eru allar með inn­byggða óvissu þá getur fylgið í hverri ein­stakri sýnd­ar­kosn­ingu stundum hærra og stundum lægra, þótt með­al­tal kosn­ing­anna allra sé það sama og kom fram í kosn­inga­spánni.

Eins og staðan er í dag myndu borg­ar­full­trú­arnir skipt­ast með eft­ir­far­andi hætti:

  • Sam­fylk­ing myndi fá átta borg­ar­full­trúa
  • Sjálf­stæð­is­flokkur myndi fá sjö borg­ar­full­trúa
  • Píratar myndu fá tvo borg­ar­full­trúa
  • Vinstri græn myndu fá tvo borg­ar­full­trúa
  • Viðreisn myndi fá tvo borg­ar­full­trúa
  • Mið­flokk­ur­inn myndi fá einn borg­ar­full­trúa
  • Flokkur fólks­ins myndi fá einn borg­ar­full­trúa

Þær kann­anir sem liggja til grund­vallar nýj­ustu kosn­inga­spánni (8. maí) eru eft­ir­far­andi:

  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins 24. apríl (16,1 pró­sent)
  • Þjóð­mála­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 23. – 25. apríl (32,3 pró­sent)
  • Þjóð­ar­púls Gallup 4 apríl – 3. maí (25,9 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins 7. maí (25,7 pró­sent)

Hvað er kosn­inga­spá­in?

Fyrir hverjar kosn­ingar um allan heim birta fjöl­miðlar gríð­ar­legt magn af upp­lýs­ingum. Þessar upp­lýs­ingar eru oftar en ekki töl­fræði­legar, byggðar á skoð­ana­könn­unum þar sem fólk hefur verið spurt hvernig það upp­lifir stjórn­málin og hvað það getur ímyndað sér að kjósa. Stjórn­mála­fræð­ingar og fjöl­miðlar kepp­ast svo við að túlka nið­ur­stöð­urnar og veita almenn­ingi enn meiri upp­lýs­ingar um stöð­una í heimi stjórn­mál­anna.

Allar þessar kann­anir og allar mögu­legar túlk­anir á nið­ur­stöðum þeirra kunna að vera rugl­andi fyrir hinn almenna neyt­anda. Einn kannar skoð­anir fólks yfir ákveðið tíma­bil og annar kannar sömu skoð­anir á öðrum tíma og með öðrum aðferðum. Hvor könn­unin er nákvæm­ari? Hverri skal treysta betur? Svarið er oftar en ekki óljóst því vand­inn er að hinn almenni kjós­andi hefur ekki for­sendur til að meta áreið­an­leika hverrar könn­unar.

Þar kemur kosn­inga­spáin til sög­unnar.

Kosn­­inga­­spálíkan Bald­­urs Héð­ins­­sonar miðar að því að setja upp­­lýs­ing­­arnar sem skoð­ana­kann­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­inga. Nið­ur­stöður spálík­ans­ins eru svo birtar hér á Kjarn­anum reglu­lega í aðdrag­anda kosn­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2018

Mest lesið undanfarið ár