Skálað í kampavíni fyrir „hættulegum rökvillum“

Svokölluð Great Barr­ington-yfir­lýs­ing, um mark­vissa vernd við­kvæmra hópa á meðan að veiran fengi að breið­ast út á meðal hraustra, hefur verið til umræðu víða að und­an­förnu. Í bréfi sem birt­ist í Lancet er nálg­unin sögð byggja á „hættu­legri rökvillu“.

Á blaða­manna­fundi hjá Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni (WHO) á mánu­dags­kvöld, 12. októ­ber, ræddi Tedros Adhanom Ghebr­eyesus fram­kvæmda­stjóri stofn­un­ar­innar þær hug­myndir um hjarð­ó­næmi sem hafa verið nokkuð fyr­ir­ferða­miklar í umræð­unni að und­an­förnu. Í stuttu máli var svarið: „Þetta er ekki val­mögu­leiki.“

„Að leyfa hættu­legri veiru sem við höfum ekki fullan skiln­ing á leika lausum hala er ein­fald­lega sið­laust,“ sagði Tedros og bætti síðan við að vís­indin væru slíkum hug­myndum ekki hlið­holl. Hann minnti á að það er margt óljóst varð­andi ónæmi gegn kór­ónu­veirunni og enn væri lítið vitað um lang­tíma­á­hrif sýk­ingar á ein­stak­linga.

Einnig sagði hann að talið væri að innan við 10 pró­sent fólks í flestum ríkjum hefðu smit­ast og því væri yfir­gnæf­andi meiri­hluti enn mót­tæki­legur fyrir veirunni. „Að láta veiruna ber­ast óhindrað þýðir því að við værum að leyfa ónauð­syn­legar sýk­ingar, þján­ingar og dauða,“ sagði Tedros.

Hug­myndir um að leyfa veirunni að ganga í gegnum sam­fé­lög, en þó verja við­kvæma hópa sér­stak­lega og ná fram hjarð­ó­næmi, hafa verið áber­andi í umræð­unni und­an­farnar vikur. Þetta eru jað­ar­hug­myndir í heimi far­alds­fræð­anna en hafa þó fengið tölu­vert vægi í almennri umræðu, núna þegar veiru­þreytu gætir víða.

Umræðan varð hávær­ari eftir fund sem fram fór í litlum skíðabæ í Massachusetts í Banda­ríkj­unum fyrstu helgi mán­að­ar­ins. Hann var á vegum hug­veit­unnar American Institute for Economic Research (AIER) og þar komu saman ýmsir fræði­menn á sviði bæði heil­brigð­is­mála og hag­fræði og ræddu heim­far­aldur COVID-19 í áheyrn blaða­manna sem fengu boð á fund­inn.

Helsta afurð þessa fundar varð yfir­lýs­ing þriggja nafn­tog­aðra vís­inda­manna um nýja stefnu­mörkun í sótt­varn­ar­að­gerðum, sem kennd er við skíða­bæ­inn sjálfan, Great Barr­ington.

Scott Atlas, sem leiðir kórónuveiruteymi Hvíta hússins, hefur tekið undir nálgunina sem felst í Great Barrington-yfirlýsingunni.
Scott Atlas, sem leiðir kór­ónu­veiruteymi Hvíta húss­ins, hefur tekið undir nálg­un­ina sem felst í Great Barr­ington-yfir­lýs­ing­unni.

Yfir­lýs­ingin var sett saman af þeim Sunetru Gupta við Oxford-háskóla, Martin Kull­dorff við Harvard-háskóla og Jay Bhattacharya við Stanford-háskóla. Þríeykið skál­aði saman í kampa­víni eftir und­ir­rit­un­ina og fékk síðan boð um að mæta í Hvíta húsið til þess að hitta ráða­menn í Trump-stjórn­inni dag­inn eftir.

Eðlilegt líf fyrir þá sem eru ekki í áhættuhópum

Í stuttu máli þá gengur yfir­lýs­ingin út á að víkja þurfi frá þeirri bæl­ing­ar­stefnu sem flest ríki hafa beitt til þess að reyna að hemja útbreiðslu kór­ónu­veirunnar, þar sem hún sé að valda meiri skaða en hún kemur í veg fyrir.

Bæl­ing­ar­stefnan felst í að tak­marka sam­neyti fólks og þar með smit­leiðir með boðum og bönnum þegar veiran er til staðar í sam­fé­lögum í miklum mæli. Í Great Barr­ington-yfir­lýs­ing­unni segir að þessi stefna muni valda óaft­ur­kræfum skaða á fjár­hag og lang­tíma heilsu fólks og bitni verst og mest á tekju­lægra fólki og þeim sem yngri eru.

Lagt er til að í stað bæl­ing­ar­stefn­unnar, sem gildi um sam­fé­lagið allt, verði ráð­ist í „mark­vissa vörn“ á við­kvæmum hópum. Þeir sem eru ekki í áhættu­hópum ættu hins vegar „sam­stundis að fá leyfi til þess að lifa eðli­legu lífi á ný“. Leyfa ætti veirunni að breið­ast út í þeirra hópi, þrátt fyrir að fólk ætti áfram að huga að hand­þvotti og halda sig heima þegar það væri veikt. Hjarð­ó­næmi myndi þannig nást á end­anum.

Flestir helstu fjöl­miðlar heims hafa sagt frá Great Barr­ington-yfir­lýs­ing­unni og efni hennar hefur smit­ast inn í sam­fé­lags­um­ræð­una víða, meðal ann­ars hér á Íslandi. Boð­skap­ur­inn hefur verið end­u­r­óm­aður í leið­ara­skrifum útbreiddasta dag­blaðs lands­ins og fleiri skoð­ana­greinum í fjöl­miðlum.

Það hefur þó ekki alltaf fylgt sög­unni – og raunar sjaldn­ast – að hug­veitan sem hafði veg og vanda að fund­inum hefur afger­andi hug­mynda­fræði­lega sýn. „AIER sér fyrir sér heim þar sem sam­fé­lög eru skipu­lögð sam­kvæmt lög­málum ósvik­ins frelsis – þar sem hlut­verk stjórn­valda er skarp­lega afmarkað við úthlutun almanna­gæða og ein­stak­lingar geta blómstrað á frjálsum mark­aði og í frjálsu sam­fé­lagi,“ segir í lýs­ingu hug­veit­unnar á sjálfri sér.

Einnig hefur verið greint frá því að AIER hefur fengið fjár­hags­legan stuðn­ing frá Charles Koch-stofn­un­inni. Charles er annar hinna þekktu Koch-bræðra, millj­arða­mær­inga sem hafa á und­an­förnum ára­tugum látið mikið fé renna til rann­sókna þar sem efast er um lofts­lags­breyt­ingar eða lítið gert út áhrifum þeirra, þvert á almennan sam­hljóm í vís­inda­sam­fé­lag­inu um hið gagn­stæða. Slíkum sjón­ar­miðum hefur verið hampað í skýrslum AIER um lofts­lags­mál.

En það þýðir ekki að vísa efn­is­legu inn­taki Great Barr­ington-yfir­lýs­ing­ar­innar á bug á þeim grunni, enda ekk­ert sem gefur til kynna að vís­inda­menn­irnir þrír og aðrir sem styðja við yfir­lýs­ing­una séu að tala gegn betri vit­und í þágu ein­hverra sér­stakra hags­muna, þó að vissu­lega hafi því verið velt upp í umræð­unni hvers vegna virt vís­inda­fólk á borð við höf­unda yfir­lýs­ing­ar­innar vill tengja skila­boð sín hug­veitu sem hefur jafn skýra hug­mynda­fræði­lega afstöðu og AIER.

John Snow-minnisblaðið

Yfir­lýs­ingin hefur fengið yfir sig ýmsa efn­is­legra gagn­rýni frá sér­fræð­ingum sem telja hana ekki stand­ast. Sú gagn­rýni er ágæt­lega sam­an­dregin í annarri lækna­yf­ir­lýs­ingu, John Snow-minn­is­blað­inu, sem birt­ist fyrst í lækn­is­fræði­rit­inu Lancet mið­viku­dag­inn 14. októ­ber. Þau sem að henni standa segj­ast vera að end­ur­spegla vís­inda­lega sam­hljóm­inn um hvernig skuli nálg­ast veiruna.

Þar er hjarð­ó­næm­is­leiðin sem lögð er til í Great Barr­ington-yfir­lýs­ing­unni sögð „hættu­leg rökvilla, óstudd vís­inda­legum sönn­un­ar­gögnum“ og að allar áætl­anir um að takast á við far­ald­ur­inn með því að treysta á hjarð­ó­næmi vegna nátt­úru­legra sýk­inga séu gall­aðar.

Bent er á að óheft útbreiðsla veirunnar á meðal yngra fólks hafi í för með sér hættu á mik­illi sjúk­dóms­byrði og dauðs­föllum þvert á sam­fé­lagið. Til við­bótar kostn­að­inum sem mældur er í manns­lífum myndi þessi leið hafa áhrif á vinnu­aflið sem heild og keyra getu heil­brigð­is­kerfa til þess að veita hefð­bundna bráða­þjón­ustu og aðra þjón­ustu í kaf.

Einnig er bent á að það eru engin sönn­un­ar­gögn fyrir því að ónæmi gegn COVID-19 eftir sýk­ingu sé var­an­legt og að land­læg útbreiðsla sem yrði afleið­ing dvín­andi ónæmis myndi ógna við­kvæmum hópum til fram­tíðar. Hjarð­ó­næm­is­leiðin myndi þannig ekki stöðva COVID-19 far­ald­ur­inn, heldur leiða af sér síendu­tekna far­aldra, „rétt eins og raunin var með marga smit­sjúk­dóma áður en bólu­setn­ing kom til sög­unnar.“

Þá segir að flókið sé að skil­greina þá við­kvæmu hópa sem eigi að vernda sér­stak­lega á meðan að veirunni yrði leyft að grass­era og bent á að við­kvæmt fólk geti verið allt að 30 pró­sent af heildar­í­búa­fjöld­anum á ákveðnum svæðum. „Langvar­andi ein­angrun stórs hluta mann­fjöld­ans er nær ómögu­leg í fram­kvæmd og afar sið­laus,“ og því bætt við að sér­stakar aðgerðir til að vernda við­kvæma hópa séu nauð­syn­legar, en verði að takast í hendur við marg­þættar aðgerðir sem ná yfir sam­fé­lagið allt.

Við höfum ekki efni á trufl­unum sem grafa undan árang­urs­ríku við­bragði, það er bráð­nauð­syn­legt að við grípum til aðgerða án tafar á grund­velli vís­inda­legra sönn­un­ar­gagna.

Í John Snow-minn­is­blað­inu eru ríki heims hvött til þess að grípa til marg­þættra aðgerða til þess að takast á við far­ald­ur­inn og lag­færa kerfin sem notuð eru til smitrakn­ingar. Þá þurfi ekki að grípa til þess að skella öllu í lás. Bent er á ríki á borð við Japan, Víetnam og Nýja-Sjáland, svo ein­hver séu nefnd, hafi sýnt fram á að öfl­ugt lýð­heilsu­svar geti stemmt stigu við útbreiðslu og leyft líf­inu að nálg­ast það sem eðli­legt er.

„Við höfum ekki efni á trufl­unum sem grafa undan árang­urs­ríku við­bragði, það er bráð­nauð­syn­legt að við grípum til aðgerða án tafar á grund­velli vís­inda­legra sönn­un­ar­gagna,“ segja sér­fræð­ing­arnir að baki John Snow-minn­is­blað­inu.

Þríeykið rýkur inn á ritvöllinn

Þau Alma D. Möller, Víðir Reyn­is­son og Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir ræða einnig um hjarð­ó­næm­is­hug­myndir í aðsendri grein sem birt­ist í Frétta­blað­inu í dag, 15. októ­ber. Það er þeirra mat að fórn­ar­kostn­aður við að fara leið hjarð­ó­næmis verði „allt of hár“ og setja upp reikn­ings­dæmi.



„Smit­stuð­ull veirunnar er tal­inn vera 2,5-6. Ef hann er 2,5 þurfa 60% þjóð­ar­innar að smit­ast til að ná hjarð­ó­næmi, ef smit­stuð­ull er 6, þá 83%. Ef 60% þjóð­ar­innar (219.000 manns) sýkj­ast þá gætu 7.000 ein­stak­lingar þurft inn­lögn á sjúkra­hús, um 1.750 inn­lögn á gjör­gæslu­deild og 660 lát­ist, miðað við hlut­falls­tölur frá fyrstu bylgju. Ef veiran fengi að ganga nokkuð óáreitt er aug­ljóst að heil­brigð­is­kerfið myndi engan veg­inn ráða við fjöld­ann og að þessar tölur yrðu mun hærri. Í nýju, finnsku spálík­ani er gert ráð fyrir 88 þús­undum smita næstu tvo og hálfan mánuð hér­lendis, ef engar sótt­varna­að­gerðir væru í gangi og myndu allt að 3.000 ein­stak­lingar grein­ast dag­lega seinni hluta nóv­em­ber,“ skrifa þau Alma, Víðir og Þórólfur.

Þau ræða Great Barr­ington-yfir­lýs­ing­una sér­stak­lega í grein sinni og segja vert að nefna að lík­lega séu aldr­aðir og áhættu­hópar sem þyrftu að halda sig alveg til hlés minnst fimmt­ungur Íslend­inga, 20 pró­sent, laus­lega áætlað.

Víðir, Þórólfur og Alma segja fórnarkostnaðinn við hjarðónæmisleiðina of háan.
Víðir, Þórólfur og Alma segja fórn­ar­kostn­að­inn við hjarð­ó­næm­is­leið­ina of háan.
Mik­il­vægt er að þjóðin standi áfram saman, þá mun okkur farn­ast best. Í ákalli um sam­stöðu felst þó ekki krafa um gagn­rýn­is­lausa umræðu, þvert á móti er mik­il­vægt að mis­mun­andi sjón­ar­miðum sé velt upp þegar um er að ræða tak­mark­anir á borg­ara­legum rétt­indum.

„Óumdeilt þykir að harðar sótt­varna­að­gerðir geta verið skað­legar og því hefur verið áhersla á að hafa sótt­varna­að­gerðir sem mildastar hér­lendis. Þannig var lífið í land­inu með næsta eðli­legum hætti áður en þriðja bylgjan hófst og grípa þurfti til hertra aðgerða til þess að fletja kúr­f­una vegna álags á heil­brigð­is­kerfið. Það er vís­bend­ing um að leið Great Barr­ington-hóps­ins kunni að vera nán­ast ófram­kvæm­an­leg, ef vilji er til þess að halda innviðum heil­brigð­is­kerf­is­ins starf­andi,“ skrifar þrí­eykið.

Þau segja nauð­syn­legt að áfram verði unnið sam­kvæmt bestu þekk­ingu og reynslu og að áherslan verði áfram á ein­stak­lings­bundnar sótt­varnir, vernd áhættu­hópa, vand­aða og sam­ræmda upp­lýs­inga­miðlun og snörp við­brögð þegar smit koma upp; snemm­grein­ingu, ein­angrun, smitrakn­ingu og sótt­kví ásamt sem minnst íþyngj­andi, stað­bundnum aðgerðum eins og þarf.

„Mik­il­vægt er að þjóðin standi áfram saman, þá mun okkur farn­ast best. Í ákalli um sam­stöðu felst þó ekki krafa um gagn­rýn­is­lausa umræðu, þvert á móti er mik­il­vægt að mis­mun­andi sjón­ar­miðum sé velt upp þegar um er að ræða tak­mark­anir á borg­ara­legum rétt­indum. Bann­fær­ing gagn­rýn­is­radda er aðeins til þess fallin að sundra þeirri dýr­mætu ein­ingu sem við þörfn­umst á þessum ein­stæðu og erf­iðu tímum. Það er okkar bjarg­fasta skoðun að yfir­vegun og sam­staða er besta sótt­vörnin,“ skrifar þrí­eykið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár