Mynd: Birgir Þór Harðarson

Svona eru líkur þeirra sem sækjast eftir kjöri í borgarstjórn á að komast inn

Áttundi maður Sam­fylk­ingar er í meiri hættu en sjö­undi maður Sjálf­stæð­is­flokks. Einungis brota­brot úr pró­senti munar á líkum odd­vita Fram­sóknar, sem mælist inni, á að ná kjöri og öðrum manni á lista Vinstri grænna.

Kjarninn og Dr. Baldur Héð­ins­son fram­kvæma kosn­inga­spá í aðdrag­anda hverra kosn­inga. Það hefur verið gert frá því í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum fyrir fjórum árum. Frá sumr­inu 2016 hefur spáin verið keyrð fyrir for­seta­kosn­ing­arnar 2016, þing­kosn­ingar 2016 og 2017 og nú kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar. Líkt og greint var frá fyrr í morgun þá benda mæl­ingar hennar til þess að meiri­hlut­inn í borg­inni sé fall­inn. Það er í fyrsta sinn sem það ger­ist

Samhliða er keyrð sæta­spá. Hún er fram­kvæmd þannig að keyrðar eru 100 þús­und sýnd­ar­kosn­ingar miðað við fylgi flokka í kosn­inga­spánni sem birt var 26. maí,. Í hverri þeirra er úthlutað 23 borg­ar­full­trúum og þar sem sýnd­ar­kosn­ing­arnar eru allar með inn­byggða óvissu þá getur fylgið í hverri ein­stakri sýnd­ar­kosn­ingu stundum hærra og stundum lægra, þótt með­al­tal kosn­ing­anna allra sé það sama og kom fram í kosn­inga­spánni. Fyrr í dag birtum við lík­leg­ustu sæta­skipan borg­ar­full­trúa skipt niður á flokka. Nú birtum við hverjar líkur hvers og eins fram­bjóð­anda í efstu sætum þeirra lista sem mæl­ast lík­legir til að ná inn manni í borg­ar­stjórn eru.

Líkur á sam­an­lögðum fjölda borg­ar­stjórn­ar­full­trúa
Borg­ar­full­trúarBCDFJKMPSV
>=220.000.000.000.000.000.000.000.000.000.00
>=210.000.000.000.000.000.000.000.000.000.00
>=200.000.000.000.000.000.000.000.000.000.00
>=190.000.000.000.000.000.000.000.000.000.00
>=180.000.000.000.000.000.000.000.000.000.00
>=170.000.000.000.000.000.000.000.000.000.00
>=160.000.000.000.000.000.000.000.000.000.00
>=150.000.000.000.000.000.000.000.000.000.00
>=140.000.000.000.000.000.000.000.000.000.00
>=130.000.000.000.000.000.000.000.000.000.00
>=120.000.000.000.000.000.000.000.000.000.00
>=110.000.000.000.000.000.000.000.000.020.00
>=100.000.000.000.000.000.000.000.000.040.00
>=90.000.000.060.000.000.000.000.000.220.00
>=80.000.000.310.000.000.000.000.000.620.00
>=70.000.000.740.000.000.000.000.000.920.00
>=60.000.000.960.000.000.000.000.001.000.00
>=50.000.001.000.000.000.000.000.001.000.00
>=40.000.001.000.000.000.000.000.051.000.00
>=30.000.071.000.000.000.000.030.371.000.08
>=20.040.451.000.050.060.000.320.851.000.48
>=10.480.891.000.520.490.190.820.991.000.90

Rauða strikið í töfl­unni hér að neðan er sláin sem þarf að kom­ast yfir.

Þeir borg­ar­full­trúar sem mæl­ast inni eins og er, alls 23 tals­ins, eru merktir með app­el­sínu­gulum þrí­hyrn­ing. Með því að skoða síð­ast kjörna mann hvers flokks sést til að mynda að Magnús Már Guð­munds­son, átt­undi maður Sam­fylk­ing­ar­innar, á 62 pró­sent líkur á því að ná kjöri. Örn Þórð­ar­son, sjö­undi maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins á hins vegar 74 pró­sent líkur. Sjöundi maður Sjálf­stæð­is­flokks er því örugg­ari inni sam­kvæmt þessu en átt­undi maður Sam­fylk­ingar. Þá á átt­undi maður Sjálf­stæð­is­flokks, Björn Gíslason, 31 pró­sent líkur á því að ná inn, sem eru betri líkur en Ragna Sig­urð­ar­dóttir, níundi maður á lista Sam­fylk­ingar á á því.

Af þeim sem ekki fá sæti í borg­ar­stjórn sam­kvæmt spánni eru Elín Oddný Sig­urð­ar­dóttir (48 pró­sent), sem situr í öðru sæti á lista Vinstri grænna, lík­leg­ust. Líkur hennar á kjöri eru raunar ein­ungis brota­brot úr pró­senti minni en líkur Ingvars Mar Jóns­sonar, odd­vita Fram­sókn­ar­flokks, að ná inn. Sem stendur mælist Ingvar Mar þó inni.

Pawel Bartoszek (45 pró­sent), sem situr í sama sæti á lista Við­reisnar, á líka tölu­verðar líkur á að ná kjöri. Hann er ekki langt frá Sönnu Magda­lenu Mörtu­dóttur, odd­vita Sós­í­alista­flokks Íslands (49 pró­sent).

Þar á eftir koma Alex­andra Briem (37 pró­sent), þriðji maður á lista Pírata, Baldur Borg­þórs­son (32 pró­sent), annar maður á lista Mið­flokks, og áður­nefndur Björn Gíslason (31 pró­sent), sem situr í átt­unda sæti á lista Sjálf­stæð­is­flokks.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2018

Mest lesið undanfarið ár