Mynd: Ellert Grétarsson

Vilja breyta fólkvangi í virkjanasvæði

Í Krýsuvík er mikil nátt­úru­feg­urð sem dregur að sér fjölda fólks til útvistar og nátt­úru­skoð­unar. Krýsuvík er innan Reykja­nes­fólk­vangs, sem stofn­aður var form­lega með frið­lýs­ingu árið 1974. Vin­sæl­asti áning­ar­stað­ur­inn í Krýsuvík er hvera­svæðið í Seltúni en á und­an­förnum árum hefur umferð ferða­manna þangað auk­ist gríð­ar­lega. Hætt er við að svæðið missi aðdrátt­ar­afl sitt verði það virkjað eins og HS Orka hefur í hyggju.

Fjögur háhita­svæði innan Reykja­nes­fólk­vangs eru í sigt­inu undir hugs­an­legar virkj­anir með til­heyr­andi nátt­úru­spjöllum. Seltún, Aust­urengjar og Sandfell hafa öll verið flokkuð í orku­nýt­ing­ar­flokk sam­kvæmt drögum að 3ja áfanga ramma­á­ætl­unar. Einungis Trölla­dyngja er eftir í bið­flokki. Trölla­dyngja og Aust­urengja­hver fóru í bið­flokk. HS Orka er í við­ræðum við bæj­ar­yf­ir­völd í Hafn­ar­firði um fyr­ir­hugað virkj­ana­svæði við Seltún. Þeir hjá HS Orku eru reyndar hættir að tala um virkj­ana­svæði – núna heita þau „auð­linda­garðar“  því það kann að láta betur í eyrum almenn­ings.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár