Fjárlögin á mannamáli

Fjárlög rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur vegna árs­ins 2019 voru kynnt í vik­unni. Þau segja til um hvernig þjóð­ar­heim­ilið er rekið. Í hvað erum við að eyða, hverjir borga mest fyrir það og þau nýju verk­efni sem verið er að ráð­ast í.

Hverjir fá mest?

Fram­lög til heil­brigð­is­mála verða aukin um 12,6 millj­arða króna á árinu 2019 en þar vega þyngst fram­kvæmdir við nýjan Lands­spít­ala. Alls er áætlað að 7,2 millj­arðar króna fari í þær á árinu. Alls munu 230,2 millj­arðar króna fara til mála­flokks­ins, sem er sá dýr­asti á for­ræði rík­is­ins.

Þá stendur til að auka fram­lög til félags-, hús­næð­is- og trygg­inga­mála um 13,3 millj­arða króna og í hann fara 216,7 millj­arðar króna.

Fjár­fest­ingar í innviðum verða aukna meðal ann­ars með 5,5 millj­arða króna aukn­ingu til sam­göngu­mála vegna tíma­bund­ins átaks í sam­göngu­málum á árunum 2019-2021 sem fjár­magnað verður með tíma­bundnum umfram­arð­greiðslum fjár­mála­fyr­ir­tækja líkt og boðað var í gild­andi fjár­­­mála­­á­ætl­un. Gert er ráð fyrir að fram­lög til sam­göngu- og fjar­skipta­­mála verði aukin um níu pró­sent á árinu 2019 en fram­lög til mála­flokks­ins verða ríf­lega 43,6 millj­arðar króna.

Hver borgar fyrir tekjur ríkissjóðs?

Heild­ar­tekjur rík­is­sjóðs verða 891,7 millj­arðar króna. End­ur­metin áætlun vegna árs­ins 2018 reiknar með að þær verði 839,6 millj­arðar króna í ár og því aukast tekjur rík­is­sjóðs um 52,1 millj­arða króna á næsta ári.

Skatt­tekjur aukast um 42,8 millj­arða króna á milli ára og verða alls 700 millj­arðar króna. Þær eru eðli­lega stærsti tekju­stofn rík­is­sjóðs. Þar af borga íbúar lands­ins 195,4 millj­arða króna í tekju­skatt og stað­greiðslu. Það umtals­vert meira en áætlað er að slík skatt­lagn­ing skili í kass­ann á árinu 2018, þegar tekjur rík­is­sjóðs af henni á að nema 179 millj­örðum króna. Lands­menn borga því 16,4 millj­örðum krónum meira í tekju­skatta á næsta ári en þeir munu gera í ár.

Til við­bótar borgum við auð­vitað virð­is­auka­skatt af flestu. Hann skilar rík­is­sjóði 255,3 millj­örðum króna á næsta ári sem er 15,8 millj­örðum króna meira en í ár.

Fyrirtækin

Tekju­skattur sem leggst á lög­að­ila, fyr­ir­tæki og félög lands­ins, eykst að nýju eftir að hafa dreg­ist saman í fyrra. Hann er nú áætl­aður 75,5 millj­arðar króna eða um tveimur millj­örðum króna meiri en árið 2018.

Þá munu tekjur rík­is­sjóðs vegna trygg­inga­gjalds aukast um 3,5 millj­arða króna, og verða 100,8 millj­arðar króna, á næsta ári þrátt fyrir að trygg­inga­gjaldið eigi að lækka um 0,25 pró­sentu­stig um kom­andi ára­mót.

Þrátt fyrir að búið sé að lofa því að lækka bankaskattinn þá sést þess ekki merki á fjárlögum næsta árs.
Þrátt fyrir að búið sé að lofa því að lækka banka­skatt­inn þá sést þess ekki merki á fjár­lögum næsta árs.

Bankar lands­ins borga líka sinn skerf, til við­bótar við hefð­bundna skatt­greiðslur, í gegnum hinn svo­kall­aða banka­skatt. Hann er 0,376 pró­sent og leggst á heild­ar­skuldir fjár­mála­fyr­ir­tækja sem hafa heim­ild til að taka við inn­lánum. Þessi sér­staki skattur var fyrst lagður á árið 2010. Hann á að skila nán­ast sömu krónu­tölu og hann gerir í ár, eða um 9,1 millj­arði króna. Rík­is­stjórnin hefur lofað að lækka banka­skatt­inn í 0,145 pró­sent „á næstu árum“. Slík breyt­ing myndi valda því að tekjur rík­is­sjóðs myndu skerð­ast um 5,7 millj­arða króna á ári. En þar sem ríkið á tvo af stóru bönk­unum þremur er auð­vitað að hluta um til­færslu á milli vasa að ræða.

Svo eru það auð­vitað blessuð útgerð­ar­fyr­ir­tækin. Þau borga rík­is­sjóði sér­stök veiði­gjöld umfram aðra skatta fyrir afnot af fisk­veiði­auð­lind­inni. Sumum finnst gjöldin allt of há en ansi mörgum finnst þau hafa verið of lág.

Samkvæmt fjár­lögum árs­ins 2018 áttu þau að vera tíu millj­arðar króna í ár en end­ur­met­inni áætlun segir að þau verði sjö millj­arðar. Gert er ráð fyrir sömu upp­hæð á næsta ári, en nýtt frum­varp, sem á að færa við­mið­un­arár gjald­tök­unnar nær í tíma, verður lagt fram í haust.

Þeir sem eiga mikið af peningum

Um tvö þús­und fram­telj­endur afla að jafn­aði tæp­lega helm­ings allra fjár­magnstekna á Íslandi. Um er að ræða, að minnsta kosti að hluta, rík­asta eitt pró­sent lands­ins sem á nægi­lega mikið af við­bót­ar­pen­ingum sem það getur látið vinna fyrir sig til að skapa tekjur.

Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur hækk­aði fjár­magnstekju­skatt um síð­ustu ára­mót, úr 20 í 22 pró­sent. For­sæt­is­ráð­herra sagði við það til­efni að þessi hækkun væri liður í því að gera skatt­kerfið rétt­lát­ara.

Þessi hækkun skilar þó ekki mik­illi tekju­aukn­ingu fyrir rík­is­sjóð. Fjár­magns­eig­endur munu borga 36,9 millj­arða króna í slíkan skatt í ár en 1,1 millj­arði krónum meira á því næsta.

Bifreiðareigendur, drykkjufólk og þeir sem enn reykja

Bif­reið­ar­eig­endur, sem eru sumir hverjir enn að jafna sig á þeim tíð­indum að bannað verði að kaupa bensín- og dísil­bíla hér­lendis innan rúm­lega ell­efu ára, halda áfram að greiða háa við­bót­ar­skatta fyrir málm­fák­ana sína. Alls eru áætl­aðar tekjur rík­is­sjóðs vegna elds­neyt­is­gjalda 31,2 millj­arðar króna á næsta ári. Olíu­gjaldið hækkar til dæmis úr 11,4 millj­örðum króna í 12,1 millj­arð króna og bens­ín­gjald verður 13,2 pró­sent. Á síð­ustu árum hefur þó svo­kallað kolefn­is­gjald, sem er lagt á jarð­efna­elds­neyti og jarð­gas, hækkað mest. Frá 2017 hefur það hækkað um 3,2 millj­arða króna, en vert er að taka fram að það hækkar lítið á næsta ári, eða um rúmar 300 millj­ónir króna.

Svo er það þeir sem fá sér í glas og þeir sem nota tóbak. Álögur á það fólk hækka enn og aftur. Bæði áfengis- og tóbaks­gjöld verði hækkuð 2,5 pró­sent um kom­andi ára­mót.

Allir sem flytja inn eða fram­leiða áfengi hér á landi til sölu eða vinnslu ber að greiða áfeng­is­gjald. Einnig þeir sem flytja áfengi með sér eða fá það sent erlendis frá, til eigin nota. Áfeng­is­gjald er greitt af neyslu­hæfu áfengi sem í er meira en 2.25 pró­sent af vín­anda að rúm­máli. Þessu gjaldi er velt út í verð­lag og því hækkar það útsölu­verð til neyt­enda. Tekjur rík­is­sjóðs vegna áfeng­is­gjalds voru 18,6 millj­arðar króna árið 2018 en verða, sam­kvæmt fjár­lög­um, 19,8 millj­arðar króna í ár.

Tóbaks­gjaldið mun hins vegar skila um 100 millj­ónum færri krónum á kom­andi ári en það gerði á þessu, þrátt fyrir að það sé hækkað. Það þýðir að tóbaksneysla sé að drag­ast saman í land­inu.

Óreglulegu tekjurnar

Ríkið hefur alls­konar aðrar tekjur en skatta. Þar ber auð­vitað hæst arð­greiðslur frá fyr­ir­tækjum sem ríkið á, sér­stak­lega bönk­unum og Lands­virkjun. Slíkar arð­greiðslur skila 25,9 millj­örðum króna í rík­is­kass­ann á næsta ári.

Ríkið mun líka inn­heimta 11,2 millj­arða króna í vaxta­tekjur og 33,5 millj­arða króna vegna sölu á vöru og þjón­ustu. Inni í þeirri sölu eru til að mynda inn­rit­un­ar­gjöld í háskóla og fram­halds­skóla, sala á vega­bréfum og öku­skír­teinum og greidd gjöld vegna þing­lýs­inga, svo dæmi séu tekin.

Þá fær ríkið um 2,5 millj­arða króna vegna sekta og skaða­bóta, um 1,9 millj­arða vega sölu á eignum og stöð­ug­leika­fram­lög vegna föllnu bank­anna munu nema 19,5 millj­örðum króna á næsta ári.

Persónuafsláttur hækkar örlítið umfram verðlagsbreytingar, og skilar rúmum 500 kalli á mánuði í vasa hvers íslensks skattgreiðenda sem fullnýtir hann.
Per­sónu­af­sláttur hækkar örlítið umfram verð­lags­breyt­ingar, og skilar rúmum 500 kalli á mán­uði í vasa hvers íslensks skatt­greið­enda sem full­nýtir hann.

Hvað er nýtt?

Á meðal þeirra breyt­inga sem boð­aðar eru í frum­varp­inu eru hækkun á per­sónu­af­slætti um eitt pró­sentu­stig umfram lög­bundna 12 mán­aða hækkun vísi­tölu og að hækkun þrepa­marka efra skatt­þreps verði miðuð við vísi­tölu neyslu­verðs. Þetta á að stuðla að því að jafn­ræði milli ólíkra tekju­hópa gagn­vart skatt­kerf­inu verði meira og skatt­greiðslur almenn­ings lækka um 1,7 millj­arða króna. Í raun­veru­leik­anum þýðir þetta þó að per­sónu­af­sláttur hækkar um 535 krónur á mán­uði umfram lög­bundna vísi­tölu­hækkun. Fyrir það er hægt að fá 82 pró­sent af sex tommu báti dags­ins á Subway, sem í dag er tún­fisk­bátur.

Þá á að hækka barna­bætur um 1,6 millj­arða króna frá gild­andi fjár­lögum í 12,1 millj­arð króna sem er 16 pró­sent hækkun milli ára. Auk þess er gert ráð fyrir nýju þrepi skerð­ingar á á barna­bótum sem er ætlað að tryggja að hækk­unin skili sér fyrst og fremst til lág­tekju- og lægri milli­tekju­hópa. Þetta er aðgerð til að mæta þeirri stað­reynd að milli áranna 2013 og 2016 fækk­aði þeim sem fengu barna­bætur um 12 þús­und.

Vaxta­bætur verða einnig hækk­aðar um 13 pró­sent frá áætlun um umfang þeirra á þessu ári, en lækka frá því sem gert ráð fyrir í fjár­lögum 2018. Alls munu 3,4 millj­arðar króna fara í slíkar bætur. Fjöldi þeirra sem fá vaxta­bætur hefur hrunið á und­an­förnum árum vegna hækk­unar á hús­næð­is­verði. Þeim fjöl­skyldum sem eiga rétt á þeim fækk­aði um 30 þús­und milli áranna 2010 og 2016. Á árinu 2010 fengu alls 56.600 fjöl­skyldur slíkar bætur og heild­ar­um­fang þeirra var 12 millj­arðar króna, eða næstum fjórum sinnum meira en það er áætlað í fjár­lögum fyrir árið 2019. Vert er þó að taka fram að 2010 var verið að greiða sér­staka vaxta­nið­ur­greiðslu sem var 0,6 pró­sent af skuldum íbúð­ar­hús­næðis til eigin nota, en þó að hámarki 200 þús­und krónur fyrir ein­stak­linga og 300 þús­und fyrir hjón eða sam­búð­ar­fólk. Þetta var gert vegna sér­stakra aðstæðna í kjöl­far hruns­ins.

Trygg­inga­gjaldið verður lækkað í byrjun næsta árs um 0,25 pró­sent og aftur um sömu pró­sentu­tölu í árs­byrjun 2020. Sam­an­lagt munu þessi tvö lækk­un­ar­skref skila 9,3 pró­sent lækkun á gjald­inu. Tekjur rík­is­sjóðs af trygg­inga­gjaldi aukast hins vegar á milli ára.

Þá stendur til að kaupa nýjar þyrlur fyrir Land­helg­is­gæsl­una, byggja upp Hús íslensk­unnar, sem nú er hola, og selja fiðlu í eigu Sin­fón­íu­hljóm­sveit­ar­innar sem er sér­stak­lega hönnuð fyrir hand­stóra. Andvirði þeirrar sölu á að renna í að kaupa hent­ugra hljóð­færi.

Hvernig er rekstur ríkissjóð?

Hann er með ágætum og reiknað er með að rík­is­sjóður verði rek­inn með 29 millj­arða króna afgangi á kom­andi ári. Tekjur hans hafa aldrei verið hærri, 892 millj­arðar króna, en útgjöldin hafa auð­vitað heldur aldrei verið meiri, eða 862 millj­arðar króna. Útgjöldin aukast um 55 millj­arða króna á milli ára en tekj­urnar um 52 millj­arða króna.

Skuldir rík­is­sjóðs hafa lækkað hratt síð­ustu ár. Á sex ára tíma­bili hafa þær lækkað um sam­tals 658 millj­arða króna. Þar skiptir mestu greiðslur frá slita­búum föllnu bank­anna vegna stöð­ug­leika­samn­ing­anna sem und­ir­rit­aðir voru árið 2015. Þetta þýðir að vaxta­gjöld rík­is­sjóðs hafa lækkað skart og eru áætluð 59,4 millj­arðar króna á næsta ári. Til sam­an­burðar voru vaxta­gjöld árið 2014 75,5 millj­arðar króna, sam­kvæmt fjár­laga­frum­varpi þess árs.

Þegar skuld­irnar voru sem mest­ar, árið 2011, voru þær 86 pró­sent af lands­fram­leiðslu en verða 31 pró­sent í lok árs 2018. Frá miðju ári 2017 til miðs árs 2018 lækk­uðu skuldir rík­is­sjóðs um 88 millj­arða króna en það sam­svarar því að skuldir hafi lækkað um 10 millj­ónir á klukku­stund á tíma­bil­inu.

Skuldir rík­is­sjóðs munu fara undir við­mið fjár­mála­reglna laga um opin­ber fjár­mál í fyrsta sinn á næsta ári og útlit er fyrir að vaxta­gjöld verði um 26 millj­örðum krónum lægri á næsta ári en þau voru árið 2011.

Til við­bótar við almenna skulda­nið­ur­greiðslu hefur rík­is­sjóður greitt háar fjár­hæðir inn á ófjár­magn­aðar líf­eyr­is­skuld­bind­ingar.

Hag­vöxtur á Íslandi hefur auð­vitað verið gríð­ar­legur á und­an­förnum árum og sam­felldur frá árinu 2011. Mestur var hann 2016 þegar hann var 7,4 pró­sent. Í ár er hann áætl­aður 2,9 pró­sent og verður á svip­uðum nótum næstu tvö ár sam­kvæmt spám.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjárlagafrumvarp

Mest lesið undanfarið ár