Mynd: EPA

Leita lífs og svara

Það er talað um slys. En á sama tíma liggur fyrir að spenna milli Ísraela og Hezbollah-skæru­liða hefur auk­ist að und­an­förnu. Eit­ur­gufur og ryk liggur enn yfir borg­inni – París Mið­aust­ur­landa – og lífs er leitað í rúst­unum sem og svara við því sem gerð­ist.

Í borg­inni sem oft var kölluð París Mið­aust­ur­landa, hafa svo margar árásir verið gerðar, svo margar sprengjur verið sprengdar, að þegar jörð tók að skjálfa í gær, sveppa­ský að mynd­ast og hljóð­himnur og rúður á stóru svæði að springa, voru fyrstu við­brögð margra eðli­lega: Hver ber ábyrgð á þess­ari árás?

Enn liggur svarið ekki að fullu fyrir en talið er hins vegar að í þetta skiptið hafi skæru­liðar eða hryðju­verka­menn hvergi komið nærri heldur hafi neisti kom­ist að gríð­ar­legu magni sprengju­efna sem geymt var ólög­lega í vöru­skemmu við höfn­ina í Beirút. Í borg­inni sem á sér yfir 5.000 ára sögu og er því ein sú elsta í heimi. Ef þetta reyn­ist raunin átti sér í gær stað eitt mann­skæð­asta iðn­að­ar­slys í stór­borg sem um getur. Að minnsta kosti 100 eru látnir og þús­undir slas­aðar. Svo margir meidd­ust að fjöl­mörgum hefur þurft að vísa frá yfir­fullum sjúkra­hús­unum. Tvö sjúkra­hús skemmd­ust mikið og fréttir herma að þar hafi sjúk­lingar og starfs­fólk lát­ist. Engu að síður hafi læknar og hjúkr­un­ar­fræð­ingar streymt út á götur til að hlúa að slös­uðum.

Útlit er fyrir að tala lát­inna eigi eftir að hækka og það jafn­vel umtals­vert. Sjón­ar­vottar segj­ast hafa séð fólk liggja í hrönnum undir braki bygg­inga sem hrundu – jafn­vel í tölu­verðri fjar­lægð frá upp­tökum spreng­ing­ar­innar sem var svo öflug að högg­bylgja gekk yfir stórt svæði og eyði­lagði allt sem í vegi hennar varð.

Ófriður fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs hefur svo oft ratað í fréttir á Íslandi líkt og ann­ars staðar í heim­inum síð­ustu ára­tugi að saga og feg­urð höf­uð­borgar Líbanon, Beirút, og það lit­skrúð­uga mann­líf sem þar hefur þrif­ist í aldir og fengið að blómstra á frið­ar­tímum, er lík­lega ekki það sem fyrst kemur upp í huga Íslend­inga þegar fréttir ber­ast nú þaðan af kröft­ugri og eyði­leggj­andi spreng­ingu.

Þessi fyrrum franska nýlenda, þar sem austrið og vestrið mæt­ast í menn­ingu, tísku og listum, varð til þess að Beirút hlaut gælu­nafnið París Mið­aust­ur­landa. Þar hafa hefðir og nýir straumar bland­ast í gegnum aldir og ára­tugi og þegar stríð­andi fylk­ingar hafa lagt niður vopn hefur áköf sköpun vaknað af krafti. Borg­ar­búar hafa enda ítrekað þurft að byggja upp aftur – bæði bygg­ingar og sál sam­fé­lags­ins og þannig reynt að græða sárin sem mann­skæð átök hafa valdið.

Í fyrstu frétt Breska rík­is­út­varps­ins í gær af spreng­ing­unni í Beirút, sem skelfi­leg mynd­bönd höfðu þegar birst af á sam­fé­lags­miðlum, var í annarri máls­grein minnt á að á föstu­dag verður kveð­inn upp dómur yfir fjórum með­limum Hezbollah sem ákærðir eru fyrir að bera ábyrgð á bíl­sprengju sem varð for­sæt­is­ráð­herra Líbanon, Rafik al-Hariri, að bana árið 2005. Spennustigið í borg­inni var því mikið. Og þegar gríð­ar­leg spreng­ingin varð tengdu hana margir – meðal ann­ars fjöl­miðlar – við rétt­ar­höldin yfir fjór­menn­ing­unum.

Enn loga eldar í Beirút. Enn er verið að grafa fólk – lif­andi og liðið – út úr rústum húsa.

En hvað gerð­ist eig­in­lega?

Gríðarlegur kraftur myndaðist í sprengingunni.
Gríð­ar­legur kraftur mynd­að­ist í spreng­ing­unni.

Það sem fram hefur komið í fréttum er í stórum dráttum þetta:

Í vöru­skemmum við höfn­ina í Beirút var geymt gríð­ar­mikið magn af eld­fimu efni, ammón­íumnítrati, sem aðal­lega er notað í áburð en hefur einnig verið notað til sprengju­gerðar. Talið er að um 2.700 tonn efn­is­ins hafi verið geymd þar allt frá árinu 2014, þrátt fyrir að hafn­ar­yf­ir­völd hafi ítrekað varað vð hætt­unni sem af því staf­aði.

Í gær­kvöldi varð fyrst minni spreng­ing og eldur kvikn­aði út frá henni. Sú síð­ari var mun kraft­meiri og sveppa­ský, líkt og fólk hefur séð á myndum af kjarn­orku­spreng­ingu, mynd­að­ist og steig hátt upp í lofti. Svo mynd­að­ist gríð­ar­lega kraft­mikil högg­bylgja sem fór yfir alla borg­ina. Þegar kviknar í sprengi­efni eins og ammón­íumnítrat losna gös sem þenj­ast hratt út. Högg­bylgjan sem þau skapa er því veggur af þéttu lofti. Bylgjan fer á marg­földum hljóð­hraða en þar sem borg­ar­lands­lagið, með alls konar bygg­ingum af öllum stærðum og gerðum, verður á vegi hennar, getur hún breytt um stefnu og ýmist hægist á henni eða hrað­inn eykst. Hún fer því ekki jafnt yfir allt eins og hægur vindur. Þetta verður til þess að sumar bygg­ingar eyði­leggj­ast en aðrar ekki.

Spreng­ingin var svo öflug að hún fannst á eyj­unni Kýpur sem er í um 250 kíló­metra fjar­lægð. Bílar þeytt­ust upp í loftið, járna­brak úr húsum var snúið eins og leir og við­skipta­hverfi borg­ar­innar skemmd­ist og ein­angr­að­ist vegna braks. Hið róm­aða hverfi veit­inga­húsa, bara og skemmti­staða við sjó­inn er einnig stór­skemmt.

Hafnarsvæðið eins og það lítur út eftir spreninguna.
Hafn­ar­svæðið eins og það lítur út eftir spren­ing­una.

Þó að yfir­völd í Líbanon telji á þess­ari stundu að um slys hafi verið að ræða segja þau að ein­hverjir verði dregnir til ábyrgðar.

„Ég lofa ykkur því að þessar ham­farir munu ekki líða hjá án þess að ein­hver verði dreg­inn til ábyrgðar. Þeir sem bera ábyrgð munu þurfa að gjalda þess,“ sagði Hassan Diab, for­sæt­is­ráð­herra Líbanons í gær. „Stað­reyndir um hina hættu­legu vöru­skemmu, sem hefur verið þarna síðan 2014, verða dregnar fram í dags­ljósið.“

Þau hug­renn­inga­tengsl sem sköp­uð­ust við spreng­ing­una í gær, á milli skæru­liða­árása og spreng­inga, eiga sér einnig skýr­ingu í því að spenna milli Ísraels og Hezbollah hefur verið að aukast á ný síð­ustu miss­eri. Hezbollah-liðar eru sagðir hafa yfir bygg­ingum við höfn­ina að ráða og banda­rísk yfir­völd hafa lengi sakað þá um að nota þá aðstöðu til að smygla vopnum til lands­ins. Spreng­ingar urðu einnig í vopna­búrum sjíta-skæru­liða í Írak á síð­asta ári. Írösk stjórn­völd hafa sakað Ísraela um að bera ábyrgð á þeim. Einnig hafa orðið spreng­ingar á hern­að­ar­lega mik­il­vægum svæðum í Íran og í Washington Post kemur fram að írönsk stjórn­völd saki Ísraela einnig um að standa að baki þeim.

Bæði stjórn­völd í Ísrael og Hezbollah hafa vottað samúð sína vegna spreng­ing­anna í Beirút. Hvorki Ísrael né Hezbollah hafa skellt skuld­inni á ein­hvern. En Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, lá ekki á skoð­unum sínum og sagði að spreng­ingin væri „hræði­leg árás“ og að yfir­menn hers­ins virt­ust telja að þarna hefði „ein­hvers konar sprengja sprungið“. Yfirmenn hers­ins hafa hins vegar gefið út opin­ber­lega að þeir hafi ekki gert mat á því hvað gerð­ist.

Litla Líbanon, landið fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs sem tók á móti fleiri sýr­lenskum flótta­mönnum en nokkuð annað ríki heims fyrir utan Tyrkland, glímdi við efna­hags­þreng­ingar áður en eyði­legg­ingin og mann­fallið mikla varð í gær. Þar hefur til­fellum af COVID-19 farið fjölg­andi síð­ustu vikur. Sjúkra­húsin voru því undir miklu álagi fyrir. Í gær bætt­ist svo ofan á allt saman raf­magns­leysi í borg­inni og fjar­skipta­sam­band hefur verið slæmt síð­ustu klukku­stund­irnar.

Fjöldi fólks hefur misst heim­ili sín. Eit­ur­gufur eru enn í and­rúms­loft­inu. „Við þurfum að koma þeim slös­uðu á sjúkra­hús,“ sagði heil­brigð­is­ráð­herr­ann við frétta­menn í morgun. „En það er alvar­legur skortur á öllu.“

Starfs­menn Rauða kross­ins, sem er fyr­ir­ferða­mik­ill í hjálp­ar­starfi í land­inu, hafa reynt að gera allt hvað þeir geta til að aðstoða þá sem á þurfa að halda. „Við höfum orðið vitni að gríð­ar­legum ham­förum,“ sagði George Kettani, yfir­maður Rauða kross­ins í Líbanon, í morgun. „Fórn­ar­lömbin eru um allt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár