Musk segist hafa fengið grænt ljós fyrir lengstu lestargöng í heimi

Frum­kvöð­ull­inn Elon Musk sagði á dög­unum hafa fengið sam­þykki ráða­manna í Washington til að bora hrað­lest­ar­göng til New York.

Úr tilkynningarmyndbandi Boring Company.
Úr til­kynn­ing­ar­mynd­bandi Boring Company. Mynd: Boring Company

Elon Musk, stofn­andi SpaceX og Tesla Motors, sagð­ist hafa fengið „munn­legt sam­þykki“ frá rík­is­stjórn Banda­ríkj­anna til þess að byggja hrað­lest­ar­göng milli New York og Washington D.C. Þetta kom fram á vef Bloomberg í gær.

Atburð­ar­rás verk­efn­is­ins er, eins og mörg önnur verk­efni hans, með ólík­indum. Snemma morg­uns í des­em­ber í fyrra skrif­aði Musk Twitter-færslu um að hann væri orð­inn brjál­aður á umferð­inni í Banda­ríkj­unum og hefði í hyggju að búa til risa­bor. Þótt færslan virt­ist ekki hafa verið skrifuð af mik­illi alvöru virt­ist Musk ætla að fram­fylgja áætlun sinni og stuttu seinna stofn­aði hann bor­fyr­ir­tækið sitt, The Boring Company. 

Verk­efnið virð­ist ganga ágæt­lega, en í maí gaf The Boring Company út kynn­ing­ar­mynd­band fyrir verk­efnið, sem sjá má fyrir ofan frétt­ina. Samkvæmt því mun heilt umferð­ar­net verða byggt neð­an­jarðar þar sem seg­uls­leðar ferja bíla milli staða á 200 kíló­metra hraða. Sama mánuð hóf fyr­ir­tækið svo að bora til­rauna­göng í Kali­forníu, en fyrsti leggur verk­efn­is­ins klárað­ist svo 28. Júní.

[adspot]

Víða um Banda­ríkin vill Musk hins vegar bora sér­stök göng fyrir hrað­lest, sem hann kallar Hyperloop. Hug­myndin um Hyperloop kom fyrst fram í skýrslu sem Elon birti árið 2013, en sam­kvæmt henni myndi lestin svífa áfram á seg­ul­magni og yrði keyrð í loft­tæmdum göngum. Í fyrra lét hann svo byggja Hyperloop-braut nálægt SpaceX höf­uð­stöðvum sínum í Kali­forníu til þess að prófa áfram mis­mun­andi útfærslur af lest­inni. 

Í apríl setti Musk fram ell­efu til­lögur að Hyperloop-göngum víðs vegar um landið, en meðal þeirra er 29 mín­útna ferð milli New York og Washington og 15 mín­útna ferð milli Seattle og Portland. Á mið­viku­dag­inn í síð­ustu viku fór svo fram fyrsti reynslu­akstur Hyperloop-lest­ar­innar, en sjá má mynd­band af honum hér að ofan. Prufan tók rétt yfir fimm sek­úndur, en á þeim tíma náði seg­ul­lestin 112 kíló­metra hraða .

Í fyrra­dag birti Musk svo Twitter-færslu þar sem hann sagð­ist hafa fengið munn­legt sam­þykki frá rík­is­stjórn Banda­ríkj­anna um að bora göng fyrir Hyperloop lest­ina sína milli New York og Washington D.C. Samkvæmt færsl­unni mun lestin fara 354 kíló­metra leið milli borg­anna tveggja á innan við hálf­tíma.

[links]Frétta­veitur hafa lýst yfir efa­semdum á það hvort munn­lega sam­þykkið sé mik­il­vægur áfangi. Það feli ekki í sér neinar skuld­bind­ingar að hálfu rík­is­ins og bor­fyr­ir­tæki Musk virð­ist ekki vera í stakk búið til þess að fara í stór­tækar aðgerðir á næst­unni. Frétta­maður BBC svar­aði Twitter-færslu Musk: „Munnlegt? Hljómar of snemmt til að til­kynna.. nema að þú sért að safna stuðn­ingi fyrir verk­efnið?“ Við því svar­aði Musk: „Allur stuðn­ingur væri vel þeg­inn!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

musk

Mest lesið undanfarið ár