Sjálfstæðisflokkur ekki mælst minni frá hruni – Miðjan í andstöðunni nú stærri en stjórnin

Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur ekki mælst lægra frá hruni, sam­an­lagt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna hefur ekki mælst lægra á kjör­tíma­bil­inu og frjáls­lynda miðju­blokkin er nú stærri en rík­is­stjórnin.

Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur ekki mælst lægra í könn­unum MMR eftir banka­hrun. Það mælist nú 19 pró­sent en fyrri botn var 19,5 pró­sent fylgi í jan­úar 2016. Fylgi flokks­ins lækkar umtals­vert milli kann­ana, eða úr 22,1 pró­sent.

Þetta mikla fall í fylgi Sjálf­stæð­is­flokks gerir það að verkum að rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír mæl­ast nú ein­ungis með 37,7 pró­sent sam­an­lagt fylgi. Þeir fengu alls 52,8 pró­sent atkvæða í síð­ustu kosn­ingum haustið 2017 og hafa því tapað tæp­lega þriðj­ungi atkvæða sinna það sem af er kjör­tíma­bili. Mest munar þar um minnk­andi stuðn­ing við Vinstri græna, en tæp­lega 40 pró­sent færri segj­ast ætla að kjósa þann flokk í dag en þá. Hjá Sjálf­stæð­is­flokknum, sem hefur átt í miklum inn­an­flokksá­tökum und­an­farna mán­uði vegna inn­leið­ingar þriðja orku­pakk­ans, hefur kjós­endum fækkað um fjórð­ung frá haustinu 2017 og hjá Fram­sókn­ar­flokknum hefur fylgið dreg­ist saman um rúman fimmt­ung.

Sam­an­lagt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja hefur ekki mælst jafn lágt á kjör­tíma­bil­inu.

Miðflokkurinn setur persónulegt met

Sá flokkur sem hagn­ast mest á þessu er Mið­flokkur Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, en fylgi hans hefur aldrei mælst hærra en nú í könn­unum MMR, eða 14,4 pró­sent.

Árangur Mið­flokks­ins er merki­legur í ljósi þess að flokk­ur­inn hríð­féll í könn­unum eftir Klaust­urs­málið í lok síð­asta árs og mæld­ist með 5,9 pró­sent fylgi í des­em­ber 2018. Síðan þá hefur flokk­ur­inn sett fram harða afstöðu í hverju mál­inu á fætur öðru, nú síð­ast í þriðja orku­pakk­anum. Á meðan að það mál var til umræðu í þing­inu þá skil­aði það Mið­flokknum þó engri fylg­is­aukn­ingu. Hún kom fyrst fram í nýj­ustu könnun MMR, sem birt var í dag, og var fram­kvæmd fram­kvæmd 4. - 17. júlí 2019. Heild­ar­fjöldi svar­enda var 2031 ein­stak­lingur, 18 ára og eldri.

Það fylgi sem fer af Sjálf­stæð­is­flokknum milli júní og júlí­mán­aða virð­ist að mestu rata beint til Mið­flokks­ins.

Þó er vert að benda á að fylgis­tap Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks frá síð­ustu kosn­ingum, 8,5 pró­sentu­stig, er umtals­vert hærra en það sem Mið­flokk­ur­inn hefur bætt við sig frá þeim tíma, sem eru 3,5 pró­sentu­stig. Fimm pró­sentu­stig af stuðn­ingi þeirra flokka, og heil 6,6 pró­sentu­stig af stuðn­ingi Vinstri grænna, hafa ratað annað en til Mið­flokks­ins.

Frjálslynda miðjublokkin með meira fylgi en stjórnin

Það annað er hin svo­kall­aða frjáls­lynda miðja sem skipuð er Pírötum, Sam­fylk­ingu og Viðreisn. Innan þeirra flokka er umtals­vert sam­starf á þingi og leið­togar þeirra hafa lýst yfir vilja til sam­starfs eftir næstu kosn­ingar, enda umtals­verð sam­legð í mörgum málum þeirra á milli.

Fylgi þess­arar blokkar mælist nú 38,1 pró­sent eða meira en sam­an­lagt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja þótt mun­ur­inn sé innan skekkju­marka. Í síð­ustu kosn­ingum fengu þessir þrír flokkar 28 pró­sent atkvæða og því hefur stuðn­ingur við þá auk­ist um 10,1 pró­sentu­stig, eða um 36 pró­sent. Sam­eig­in­legt fylgi Pírata, Sam­fylk­ingar og Við­reisnar hefur hald­ist mjög stöðugt á þessum slóðum þorra kjör­tíma­bils­ins, sér­stak­lega síð­ustu miss­erin, þótt að fylgið flakki aðeins á milli flokk­anna þriggja.

Aðrir flokkar sem kom­ast á blað í könnun MMR myndu ekki koma manni inn á þing að óbreyttu. Þeir eru Flokkur fólks­ins, sem mælist með 4,8 pró­sent fylgi, og Sós­í­alista­flokk­ur­inn sem mælist með 4,3 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár