Mynd: Pexels

Alda athugasemda við veg um „einn fegursta stað á jarðríki“

Áform um að leggja hring­veg­inn milli þorps og strandar við Vík í Mýrdal mun vega beint að hags­munum sam­fé­lags­ins sem ferða­manna­staðar, að mati tveggja sér­fræð­inga í ferða­málum.

Ég tel að lagn­ing þjóð­vegar milli fjöru og þorps sé afar slæmur kostur og að hér sé um hreint skemmd­ar­verk að ræða með til­heyr­andi sjón­mengun og nátt­úru­spjöllum,“ skrifar Pétur J. Geirsson arki­tekt.

„Nú er árið 2021, við ættum að vera búin að læra að lifa í sátt og sam­lyndi við nátt­úr­una. Við viljum öll góðar sam­göngur. Bætum þær með nátt­úr­una, dýrin og fólk í huga,“ skrifar Vigdís Eva Stein­þórs­dóttir.

„Gjör­sam­lega galin hug­mynd þar sem verið er að skemma stór­kost­lega fjöru og umhverfi. Einhver mestu nátt­úru­spjöll í sögu lands­ins ef það verður farið í þessar fram­kvæmdir,“ skrifar Ívar Björns­son.

„Það verður ekki skilið að hið opin­ber láti hafa sig í svona ósvinnu, gróf spjöll ein­stakrar nátt­úru og sögu­legs umhverfis auk hrika­legrar sóunar á almannafé,“ skrifar Hjalti Þórisson.

„Ég vona svo inni­lega, af öllu hjarta, að breyt­ing verði á þessum fram­kvæmd­arplönum og ein helsta og fal­leg­asta nátt­úruperla Íslands fái ennþá að lifa. Þetta er ekki aft­ur­kræft,“ skrifar Erna Guðný Ara­dóttir.

„Í guð­anna bænum ekki láta slík nátt­úru­spjöll eiga sér stað. Fjaran og allt nærum­hverfi hennar er raun­veru­lega einn feg­ursti staður á jarð­ríki,“ skrifar Helgi Hrafn Jónsson.

„Ég á margar minn­ingar um að ganga með pabba mínum lít­inn stíg með­fram hinu græna og til­komu­mikla Reyn­is­fjalli, fram­hjá gömlum kofum úr torfi niður á fjör­una. Þar var leikið sér í svörtum sand­inum, horft á lundana og dáðst að hinum ein­stöku Reyn­is­dröngum. Ég get varla lýst harm­inum í hjarta mínu yfir þessum áætl­unum,“ skrifar Ólöf Helga Adolfs­dóttir.

Um þrjú hund­ruð ábend­ingar og athuga­semdir frá ein­stak­lingum bár­ust Vega­gerð­inni við drög að til­lögu að mats­á­ætlun varð­andi færslu hring­veg­ar­ins um Mýrdal. Innan við tíu þeirra eru frá fólki sem styður þann val­kost að færa veg­inn niður að sjónum og í gegnum göng í Reyn­is­fjalli líkt og sveit­ar­stjórn stefnir að sam­kvæmt aðal­skipu­lagi. Þetta er einnig sú leið sem Vega­gerðin hefur sett á odd­inn þó fjallað sé um aðrar veg­línur í drög­unum, m.a. þá að betrumbæta núver­andi veg, taka af honum helstu beygjur og brött­ustu brekkur og breyta vegstæði að hluta.

Í inn­gangi skýrslu­drag­anna segir: „Áformað er að færa hring­veg um Mýrdal. Í stað þess að veg­ur­inn liggi um Gatna­brún og í gegnum þétt­býlið á Vík er stefnt að því að færa veg­inn þannig að hann liggi suður fyrir Geita­fjall, með­fram Dyr­hóla­ósi og í gegnum Reyn­is­fjall í jarð­göngum sunn­ar­lega í fjall­inu. Vegurinn myndi svo liggja sunnan við Vík og tengj­ast núver­andi vegi austan við byggð­ina.“

Drög að mats­á­ætlun eru fyrsti fasi í umhverf­is­mats­ferli fram­kvæmdar. Brugðist verður við umsögnum og athuga­semdum í næsta skrefi, til­lögu að mats­á­ætlun sem send verður til Skipu­lags­stofn­unar til aug­lýs­ingar.

Í drög­unum, sem lágu frammi til kynn­ingar í des­em­ber og fram í byrjun febr­úar, kemur fram að ráð sé gert fyrir kynn­ingu á mats­skýrslu, einu síð­asta skrefi ferl­is­ins, þegar í haust og að álit Skipu­lags­stofn­unar á henni liggi fyrir í mars á næsta ári. Þá er reiknað með að fram­kvæmdir hefj­ist síðla það ár, þ.e. 2022.

Í umhverf­is­mati fram­kvæmda er á nokkrum stigum gert ráð fyrir athuga­semdum frá stofn­unum, sam­tökum og almenn­ingi. Oft­sinnis hefur verið gagn­rýnt að þær komi fram of seint í ferl­inu, þegar búið er að verja miklum fjár­munum til und­ir­bún­ings. Fram­kvæmda­leyfi í mats­skyldum fram­kvæmdum er þó aldrei gefið út fyrr en að álit Skipu­lags­stofn­unar liggur fyrir.

Í drögum að matsáætlun Vegagerðarinnar er fjallað um nokkra valkosti við legu vegarins.
Í drögum að mats­á­ætlun Vega­gerð­ar­innar er fjallað um nokkra val­kosti við legu veg­ar­ins.

Í þessu til­viki er staðan önnur. Hundruð manna auk stofn­ana og sam­taka gera athuga­semdir og koma með marg­vís­legar ábend­ingar til fram­kvæmda­að­il­ans. Fjöldann má að ein­hverju rekja til þess að Vega­gerðin opn­aði vefsjá um verk­efnið þar sem hægt var að senda inn athuga­semdir og nýttu margir sér þá leið.

Þetta telja margir sem senda inn ábend­ingar til mik­illa bóta, þ.e. hversu auð­velt er að koma á fram­færi skoð­unum sínum á hinni áform­uðu fram­kvæmd. Tölu­verður fjöldi útlend­inga, ýmist fólk sem hingað hefur komið og jafn­vel heim­sótt þær slóðir sem yrðu innan fram­kvæmda­svæð­is­ins, eða fólk sem hefur dálæti á Íslandi eða nátt­úr­unni yfir­leitt, sendi inn athuga­semdir. Nokkrar þeirra eru sam­hljóma en aðrar ítar­legri og byggðar á per­sónu­legum kynnum fólks af Mýrdal og næsta nágrenni.

Margir land­eig­endur á svæð­inu setja fram gagn­rýni á hug­mynd­ina en sumir eru henni fylgj­andi. Ferða­þjón­ustu­bændur, sum­ar­húsa­eig­endur og annað fólk sem á ættir að rekja til svæð­is­ins beina fjölda ábend­inga og athuga­semda til Vega­gerð­ar­innar. Ljóst er að margir hafa sterkar taugar til Mýr­dals­ins. „Að sitja í fjör­unni með barna­börnum að leik, hlaup­andi frjáls um strönd­ina og byggja sand­kast­ala og hoppa fram af mel­gres­inu og kút­velt­ast niður í fjöru væri ein­fald­lega ekki í boði lengur,“ skrifar Stein­grímur Jón Þórð­ar­son. „Ef þarna ætti að koma þjóð­vegur útúr Reyn­is­fjalli þvert yfir þessa para­dís væri verið að eyði­leggja allt sem teng­ist þess­ari upp­lifun, hún væri ein­fald­lega ónýt að öllu leyti.“

Sumir benda á aðra kosti, aðra mögu­leika, hættu á skriðu­föllum, bæði grjót­hruni og snjó­flóðum, og leggja jafn­vel til að veg­ur­inn verði lagður í stokk í gegnum Vík­ur­þorp eða á hæstu hæðum núver­andi vegar til að ná mark­miðum um umferð­ar­ör­yggi. Aðrir leggja áherslu á að hugað verði að hinu ein­staka dýra­lífi sem þarna er að finna sem og háu vernd­ar­gildi svæð­is­ins. Minnt er á að sá ára­tugur sem við stöndum á er til­eink­aður end­ur­heimt vist­kerfa hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum.

Gráti næst

Margir hafa lagt mikla vinnu í athuga­semd­irnar. Birta ljós­myndir og teikn­ingar og vitna í heim­ildir. Rifja upp ævin­týra­lega tíma úr bernsku eða horfa til fram­tíðar og kom­andi kyn­slóða. Kristján Helgi Olsen Ævarsson segir til­hugs­un­ina um færslu veg­ar­ins svo hrylli­lega að hann sé gráti næst. „Fjöl­skylda mín hefur átt lítið hús í Vík í hátt í heila öld, eða síðan langafi minn byggði það. Húsið stendur rétt við hlíðar Reyn­is­fjalls og er með nálæg­ustu húsum við fjör­una. Mikið inni­lega vona ég að betri lausn verði fundin á mál­inu.“

Aðrir koma sér beint að kjarna máls­ins í styttri athuga­semdum. „Að grafa göng undir Reyn­is­fjall og færa veg­inn sunnar og í gegnum Vík­ur­fjöru er nú meiri vit­leysan hjá ykkur,“ skrifar Hákon J. Helgason. „Hættið þessu rugli,“ skrifar annar.

Horft út yfir Dyrhólaós. Nokkrir valkostir, auk skipulagslínu sveitarfélagsins, gera ráð fyrir veginum við eða í ósnum.
Horft út yfir Dyr­hólaós. Nokkrir val­kostir, auk skipu­lags­línu sveit­ar­fé­lags­ins, gera ráð fyrir veg­inum við eða í ósnum.

Ógæfu­spor, umhverf­isslys, glapræði, van­virð­ing, ábyrgð­ar­leysi. Þetta eru meðal þeirra orða sem eru notuð um fyr­ir­ætl­an­irnar. Hug­myndin er einnig sögð hættu­leg, óskyn­sam­leg og óþörf. Einn kallar hana „óskapnað“. Talað er um „aðför­ina að Mýr­dalnum“ og bent á að núver­andi vegur geti vart talist fjall­vegur á íslenskan mæli­kvarða. Frekar ætti að huga að brýnni sam­göngu­verk­efnum. „Vegurinn norðan Geita­fjalls er mest í um 60 metra hæð,“ benda þrír land­eig­endur í Mýrdal á í sinni athuga­semd. „Það er svipað og hæð Öskju­hlíðar. Að sama skapi liggur Hring­veg­ur­inn um Skeifna­dal milli Reyn­is­fjalls og Höttu í 120 metra hæð, sem er sama hæð og Hörðukór í Kópavogi liggur í.“

Fólk hefur einnig áhyggjur af hljóð­mengun, ljós­mengun, hraða, sand­foki, hvass­viðri, land­broti og sjón­mengun. „Þetta mun hafa gríð­ar­leg áhrif á ásýnd Víkur, og vinna gegn því sem laðar fólk að staðnum í dag,“ skrifa Guðrún Pét­urs­dóttir, stjórn­ar­for­maður Rann­sókn­ar­mið­stöðvar ferða­mála og Anna Dóra Sæþórs­dóttir, pró­fessor í ferða­mála­fræði og deild­ar­for­seti líf- og umhverf­is­vís­inda­deildar Háskóla Íslands. „Við viljum vekja athygli á því að áform um að leggja hring­veg­inn milli þorps og strandar við Vík í Mýrdal mun vega beint að hags­munum sam­fé­lags­ins sem ferða­manna­staðar.“

Eigendur helm­ings hlutar í tveimur jörðum í Mýr­dalnum eru í hópi þeirra sem vilja nýja veg­línu því sú gamla sé „bara til þess að sprengja sam­fé­lagið – burt­fluttir gegn heima­mönnum“.

Helgi Eysteins­son er á annarri skoðun og telur hug­myndir um nýjan veg einmitt hafa valdið klofn­ingi í sam­fé­lag­inu.

Gamli vegurinn og hinn nýi kljúfa jarðir

Birna Pét­urs­dóttir, fjár­bóndi á Giljum, segir núver­andi veg kljúfa bæði beitar- og rækt­ar­land sitt og skapa stór­hættu fyrir veg­far­endur og bændur. Því styðji hún áform um færslu hans. Fjöl­skyldan eigi jörð sem nái fram í Dyr­hólaós. Það myndi að hennar mati „ekki skemma neitt landið“ að fara með veg­inn yfir ósinn.

Annar bóndi, Jakobína Elsa Ragn­ars­dóttir á bænum Görðum, segir nýja veg­inn hins vegar munu skipta hennar jörð í tvennt. Hún hefur áhyggjur af sjón­rænum áhrifum nýs vegar og telur að hann myndi eyði­leggja nátt­úrupara­dís og hafa nei­kvæð áhrif á fugla­lífið.

Gunnar Gunn­ars­son telur fram­kvæmd­ina þarfa og löngu tíma­bæra. En hann seg­ist líka skilja að málið sé mörgum „við­kvæmt við­fangs vegna nátt­úru­fars“ og að það sé ástæða þess að „alda athuga­semda sem mæla fram­kvæmd­inni í mót“ hafi risið. Hann leggur til að á þeim köflum veg­ar­ins sem kunna að reyn­ast við­kvæmir fyrir fugla og mann­líf verði komið fyrir „sterkum hraða­tak­mörk­unum“.

Dyrhólaósinn er áfangastaður tuga fuglategunda á ýmsum tímum árs.
Dyr­hóla­ós­inn er áfanga­staður tuga fugla­teg­unda á ýmsum tímum árs.

„Ég hef búið í Vík í ell­efu ár og ætla mér að búa þar til fram­tíðar,“ skrifar Kristina Hajnikova sem telur að færsla veg­ar­ins myndi hafa „gríð­ar­lega“ nei­kvæð áhrif. „Sem mann­eskja af erlendum upp­runa get ég ekki lagt nógu mikla áherslu á hversu ein­stök nátt­úra Íslands er miðað við ann­ars staðar í Evrópu.“

Þórir Kjart­ans­son, annar íbúi í Vík, telur að umhverf­is­á­hrifin af því að færa veg­inn yrðu „sára­lítil“ og bendir á að hinar dýr­mætu sjáv­ar­leirur sem fólki sé tíð­rætt um séu mjög oft á kafi í vatni og á mörk­unum að geta kall­ast sjáv­ar­leirur. Hann getur þess í athuga­semd sinni að hann sé fugla­ljós­mynd­ari og hafi fylgst með fugla­lífi í Mýrdal í marga ára­tugi. „Áhrif á vot­lendi eru nán­ast engin þar sem mest allt gras­lendi í vegstæð­inu hefur verið grafið og þurrkað fyrir ára­tugum.“

Jóhann Óli Hilm­ars­son, þekktur fugla­ljós­mynd­ari og fugla­fræð­ingur, er á önd­verðum meiði. Í athuga­semd sinni rifjar hann upp rann­sókn sem hann gerði á fugla­lífi í Dyr­hóla­ósi árið 2013 og bendir á, líkt og fleiri, að „snyrti­lega“ hafi verið „skautað fram­hjá“ henni í drögum Vega­gerð­ar­innar að mats­á­ætlun fram­kvæmd­ar­innar. Rannsókn hans bendir m.a. til að veg­ar­stæði með bökkum óss­ins gæti haft var­an­leg og skað­leg áhrif á fugla­líf.

Álftir á Dyrhólaósi. Reynisdrangar í baksýn.
Álftir á Dyr­hóla­ósi. Reyn­is­drangar í bak­sýn.

Guð­mundur Ágúst Sæmunds­son skrifar í sinni athuga­semd að hann sé almennt á því að heima­fólk eigi að hafa sem mest um mál síns svæðis að segja „en ef van­inn hefur blindað fólki sýn á sér­stöðu þess sem í kringum það er þá verða utan­að­kom­andi að hafa ráð til að afstýra umhverf­isslysum.“ Hann spyr einnig spurn­inga á borð við hvernig tryggja eigi umferð­ar­ör­yggi þar sem fyr­ir­hugað er að göngin opn­ist „í miðri nátt­úrupara­dís“ – á „miðju úti­vist­ar­svæði“ og seg­ist vona að yfir­völdum beri gæfu til að „afstýra þeim nátt­úru­spjöllum sem fyr­ir­huguð eru“.

Pétur J. Geirsson arki­tekt segir hin fyr­ir­hug­uðu áform hafa valdið ugg hjá mörgum og ekki að ósekju. Fjaran og þorpið séu sam­stæð heild sem yrði rofin með lagn­ingu þjóð­vegar. Hann seg­ist almennt hlynntur fram­kvæmdum en þó geti hann „engan veg­inn“ stutt þau áform að færa veg­inn að strönd­inni. Það sé van­hugsað og yrði „hreint skemmd­ar­verk“. Hann geti ekki „setið hljóður hjá“.

Mynd sem Pétur Geirsson arkitekt lætur fylgja athugasemd sinni og sýnir að hans sögn í grófum dráttum stærð og staðsetningu gangnamunnanna samkvæmt skiplagslínu og valkosti 1b, ásamt vegstæðum sem tengjast þessum jarðgöngum.
Mynd sem Pétur Geirsson arki­tekt lætur fylgja athuga­semd sinni og sýnir að hans sögn í grófum dráttum stærð og stað­setn­ingu gangna­munn­anna sam­kvæmt skiplags­línu og val­kosti 1b, ásamt vegstæðum sem tengj­ast þessum jarð­göngum.

Steinþór Vig­fús­son og Margrét Harð­ar­dóttir skrifa að aðdrag­andi þess að veg­lína með sjónum og í jarð­göngum var sett á aðal­skipu­lag hafi verið „herfi­legt dæmi um mis­beit­ingu“ skipu­lags­valds. Þau rifja upp að flestir umsagn­ar­að­ilar, m.a. Umhverf­is­stofnun, hafi verið á móti þeirri veg­línu. „Hópur fólks í Mýrdal ein­setti sér að koma þess­ari umdeildu veg­línu inn í aðal­skipu­lag hvað sem það kost­aði og sama hvað eða hver þyrfti undan að láta á þeirri leið.“

Vigdís Eva Stein­þórs­dóttir segir að taka þurfi til­lit til fólks sem búi í hinum eig­in­lega Mýrdal, „ekki bara fólks­ins í Vík. Ég hvet Vega­gerð­ina til að skoða þær leiðir sem raska minnst nátt­úru og friði í sam­fé­lag­inu.“

Björn Georg Björns­son bendir líkt og fleiri á að Vík­ur­fjara hafi á sínum tíma verið valin ein af feg­urstu fjörum heims í tíma­rit­inu National Geographic. „Ferða­menn koma til þess að sjá og hlusta á brimið – ekki bílagný,“ skrifar Elín Tóm­as­dóttir.

Sigrún Sæv­ars­dóttir Griffiths, sem á ættir að rekja til svæð­is­ins og hefur dvalið þar árlega frá unga aldri, seg­ist aldrei hafa tekið áformum um færslu veg­ar­ins alvar­lega þar sem hún hélt „að hér hlyti að vera um grín að ræða“. Hún seg­ist ekki trúa því að Vega­gerðin ætli sér að fara í þessi „óaft­ur­kræfu umhverf­is­spjöll“ og að hún eigi mjög erfitt með að trúa að ekki séu til ein­fald­ari, nátt­úru­vænni og langtum kostn­að­ar­minni mögu­leikar. „Mér þykir þessi til­laga alger firra!“

„Mér er tregt um tungu að hræra er ég legg fram mót­mæli vegna fyr­ir­hug­aðra ganga gegnum Reyn­is­fjall,“ skrifar Guðrún Björk Tóm­as­dóttir. „Þetta geri ég í nafni for­feðra minna sem bjuggu í Reyn­is­hólum frá 1865 og í nafni afkom­enda minna. Að gera hrað­braut á þessu sögu­lega svæði þar sem Sveinn Pálsson, nátt­úru­fræð­ingur og læknir alls Suð­ur­lands á sér hvílu­stað – að ekki sé talað um Bað­stofu­helli þar sem Jón Stein­gríms­son bjó fyrst – er gróft skemmd­ar­verk og særir marga.“ Hún bendir einnig á kostn­að­inn og segir verk­efnið „óráðsíu af allra verstu gerð“ Guðrún mót­mælir áformunum og „yfir­gangi gagn­vart grand­vöru fólki sem elskar þetta svæði sem ekki er bara þjóð­ar­ger­semi heldur á heims­mæli­kvarða“.

Teitur Hjalta­son segir að nú gef­ist frá­bært tæki­færi til þess að „eyði­leggja ekki“ ein­hverja mögn­uð­ustu nátt­úruperlu lands­ins.

Úlfur Alex­ander Ein­ars­son telur víst að kom­andi kyn­slóðir myndu vilja koma í veg fyrir „þetta slys“ sem færsla veg­ar­ins yrði. „Fram­tíðin er að fylgj­ast með og mun ekki fyr­ir­gefa svona lagað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár