Mynd: Sýn

Kaupin á fjölmiðlunum sem fóru alls ekki eins og lagt var upp með

Sýn birti árs­reikn­ing sinn í gær. Félagið ætl­aði að auka rekstr­ar­hagnað sinn umtals­vert með kaupum á ljós­vaka­miðlum 365 miðla í lok árs 2017. Nið­ur­staðan er allt önnur og nú hafa þrír stjórn­endur verið látnir fara á stuttum tíma.

„Uppgjör fjórða fjórð­ungs markar þau tíma­mót að sam­einað fyr­ir­tæki hefur lokið heilu rekstr­ar­ári. Rekstr­ar­á­ætl­anir sem lágu til grund­vallar hafa ekki gengið eftir af ýmsum orsökum eins og end­ur­spegl­ast í lækkun á útgefnum horfum. Samspil margra þátta leiðir til veik­ari rekst­urs en búist var við: Í fyrsta lagi hafa krefj­andi ytri aðstæður með óvissu í efna­hags­líf­inu haft áhrif á sjón­varps­á­skriftir og aug­lýs­inga­sölu. Í öðru lagi hefur kostn­aður við nýja starf­semi verið nokkuð hærri en búist var við auk þess sem kostn­að­ar­hækk­anir voru umtals­verðar vegna veik­ingar íslensku krón­unnar á fjórða fjórð­ungi árs­ins. Í þriðja lagi ollu hnökrar í tengslum við yfir­færslu við­skipta­vina um mitt ár álagi á þjón­ustu­ver á sama tíma og sam­keppnin á mark­aðnum var mikil. Þetta sam­spil skap­aði brott­fall, auk­inn sölu­kostnað og lækkun með­al­tekna á við­skipta­vini á fjórða fjórð­ungi.“

Þetta eru var haft eftir Stefáni Sig­urðs­syni, for­stjóra Sýnar, í til­kynn­ingu til kaup­hallar þegar árs­reikn­ingur félags­ins var birtur í gær. Til­kynn­ingin birt­ist í frétta­kerfi kaup­hall­ar­innar klukkan 20:51:26. Rúmum tveimur mín­útum síðar, klukkan 20:53.37, birt­ist önnur til­kynn­ing þar um að Stefán hefði náð sam­komu­lagi við stjórn Sýnar um að láta af störfum. Stefán er þriðji stjórn­andi Sýnar sem hefur verið lát­inn fara á þessu ári. Í byrjun árs voru tveir aðrir reknir, þar á meðal Björn Víglunds­son, sem var yfir miðlum félags­ins. Hans hlut­verk hafði sér­stak­lega verið að leiða sam­þætt­ingu fjöl­miðla­hluta Sýnar við aðrar ein­ingar Fjar­skipta og vinna að vöru­þróun.

Stjórn Sýnar hefur falið Heiðari Guð­jóns­syni, stjórn­ar­for­manni félags­ins sem á átta pró­sent hlut í því, að ann­ast í auknum mæli skipu­lag félags­ins og gæta þess að rekstur þess sé í réttu og góðu horfi fram að ráðn­ingu nýs for­stjóra. Stærstu eig­endur Sýnar eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir. Sex slíkir eiga sam­tals 45,5 pró­sent hlut.

Ljósvakamiðlar keyptir á milljarða

Sýn varð til þegar Fjar­skipti, móð­ur­fé­lag Vodafone á Íslandi, breytti nafni sínu á aðal­fundi sínum í mars í fyrra. Nokkrum mán­uðum áður, nánar til­tekið í des­em­ber 2017, höfðu Fjar­skipti sam­einað fjöl­miðla­starf­semi inn í rekstur félags­ins sem fól í sér meðal ann­ars Stöð 2, Stöð2 Sport, Vísi, Bylgj­una, FM957 og Xið 977. Miðlana höfðu Fjar­skipti keypt af 365 miðlum. Nafna­breyt­ingin var fram­kvæmd svo að heitið væri meira lýsandi fyrir starf­semi hins sam­ein­aða félags.

365 miðlar fengu greitt fyrir með 10,92 pró­sent hlut í Sýn, tæp­lega 1,6 millj­arði króna í reiðufé auk þess sem Sýn tók yfir 4,6 millj­arða króna af vaxta­ber­andi skuldum. Eigendur 365 miðla, sem eru félög tengd Ingi­björgu Pálma­dóttur, seldu eign­ar­hlut­inn sinn í Sýn í októ­ber í fyrra á tvo millj­arða króna. Því má segja að þeir hafi fengið um 3,6 millj­arða króna í reiðufé út úr söl­unni auk þess sem Sýn tók yfir 4,6 millj­arða króna af skuldum 365 miðla. Sam­an­lagt er kaup­verðið sam­kvæmt því um 8,2 millj­arðar króna.

Í til­kynn­ingu sem send var til kaup­hallar 30. nóv­em­ber 2017, dag­inn áður en Sýn fékk ljós­vaka­miðl­anna afhenta, sagði að „velta sam­ein­aðs félags mun nema um 22 millj­örðum króna og skila um 5 millj­örðum króna í EBITDA hagnað þegar sam­legð­ar­á­hrif eru að fullu komin fram eftir 12-18 mán­uði.“

Áætlun um tekjur stóðst í fyrra. Tekjur voru tæp­lega 22 millj­arðar króna. En EBITDA-hagn­aður (rekstr­ar­hagn­aður fyrir fjár­magns­kostn­að, skatta og afskrift­ir) var 3,2 millj­arðar króna, sem var tölu­vert frá því mark­miði sem átti að ná með sam­legð­ar­á­hrif­unum. Og ein­ungis fjórum pró­sentum hærri en árið áður, þegar ekki var búið að sam­þætta ljós­vaka­miðl­anna inn í rekst­ur­inn. Það þýðir að rekstr­ar­hagn­að­ur­inn jókst nær ekk­ert við það að kaupa þá.

Hagnaður árs­ins var 473 millj­ónir króna. Enginn arður verður greiddur út, enda afkoman langt undir vænt­ingum.

Kostnaður hærri og enski boltinn að fara

Það lá raunar fyrir og þannig myndi fara. Allur kostn­aður við það að taka yfir fjöl­miðl­anna reynd­ist hærri en lagt var upp með. Dag­skrár­kostn­aður reynd­ist hærri, aug­lýs­inga­sala og sala sjón­varps­á­skrifta lægri og annar kostn­aður vegna sam­þætt­ingu varð meiri. Sýn sendi tvær afkomu­við­var­anir frá sér á síð­ustu mán­uðum árs­ins 2018 og hækk­aði verð á sjón­varps- og fjar­skipta­þjón­ustu félags­ins um allt að 30 pró­sent um mán­aða­mótin nóv­em­ber/des­em­ber.

Staðan var erfið allt árið. Alls lækk­aði mark­aðsvirði þess um 38,3 pró­sent á síð­asta ári, meira en í nokkru öðru skráðu félagi. Frá því að hinir keyptu ljós­vaka­miðlar voru afhentir Sýn hefur mark­aðsvirðið lækkað um tæp 41 pró­sent, úr 19,3 millj­örðum króna í 11,5 millj­arða króna. Kaupin hafa því kostað hlut­hafa 7,8 millj­arða króna í töp­uðu mark­aðsvirði.

Enn ein blóð­takan varð þegar Síminn tryggði sér rétt­inn af sýn­ingu á enska bolt­anum frá og með næsta keppn­is­tíma­bili. Í sam­runa­skrá vegna kaupa á miðlum 365, sem var óvart birt á vef Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins með trún­að­ar­upp­lýs­ingum vorið 2017, kom fram að um þrjú þús­und áskrif­endur væru að Sport­pakka Stöðvar 2 og tæp­lega 1.400 manns með Risa­pakk­ann, sem inni­heldur einnig íþrótta­stöðv­arnar. Hluti þess­ara áskrif­enda gæti verið í hættu þegar enski bolt­inn er ekki lengur í boði innan hennar. Í nýlegri grein­ingu Arion banka á Sýn er áætlað að um fimm þús­und við­skipta­vinir gætu farið frá félag­inu sam­hliða því að það missir enska bolt­ann. Út frá þeim for­sendum spáði grein­ingin fyrir um tekju­sam­drátt hjá Sýn á árinu 2020.

Óvissa vegna efnis frá Fréttablaðinu

Fleiri áhættu­þættir eru til staðar. Í tengslum við kaupin á ljós­vaka­miðl­unum var líka gerður sam­­starfs­­samn­ingur milli 365 miðlar og Sýnar. Í honum fólst að efni Frétta­­­blaðs­ins, sem var einnig í eigu 365 miðla en var ekki hluti af kaup­un­um, ætti áfram birt­­­ast á Vísi.is í 44 mán­uði eftir að kaupin ganga í gegn. Það þýddi að Vísir.is myndi geta birt allt efni Frétta­­­blaðs­ins að morgni í tæp fjögur ár þrátt fyrir að fjöl­mið­l­­­arnir verði ekki lengur í eigu sama aðila.

Þegar sam­run­inn var sam­þykktur af Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu með skil­yrðum kom fram að eft­ir­litið hefði talið að gild­is­tími þessa samn­ings væri of lang­ur. Eftir við­ræður eft­ir­lits­ins við Sýn þá var ákveðið að stytta gild­is­tím­ann. Ekki hafa feng­ist upp­lýs­ingar um hversu mik­ið en ljóst er að hann mun renna út í nán­ustu fram­tíð. Ef Vísir, sem er í harðri sam­keppni við mbl.is um að vera mest lesni vefur lands­ins, ætlar að halda umfangi sínu í birtu efni þarf þá að auka umtals­vert við kostnað við rekstur vefs­ins til að bæta upp fyrir það efni sem mun ekki lengur birt­ast þar þegar samn­ingnum lýkur.

Í sátt sem Sýn gerði við Sam­keppn­is­eft­ir­litið vegna kaupana þá skuld­batt félagið sig til að halda áfram rekstri þeirra fjöl­miðla sem voru and­lag kaupanna næstu þrjú ár. Í því fólst meðal ann­ars áfram­hald­andi rekstur frétta­stofu Stöðvar 2 og Bylgj­unnar eða sam­bæri­legra frétta­stofa. Þessi skuld­bind­ing var þó ekki án fyr­ir­vara. Í sátt­inni segir að félagið geti „gert breyt­ingar á fram­boði frétta eða fram­leiðslu íslensks efnis vegna veru­legra utan­að­kom­andi nei­kvæðra breyt­inga á mark­aðs­að­stæðum.“

Breyttar uppgjörsaðferðir hækka EBITDA

Í frétta­til­kynn­ingu vegna árs­reikn­ings Sýnar sem send var út í gær kom fram að EBITDA horfur, miðað við óbreyttar aðstæður, fyrir þetta ár séu á bil­inu 3,2 til 3,7 millj­arðar króna. Þær hafa væri end­ur­skoð­aðar til lækk­unar um 440 millj­ónir króna.

En Sýn ætlar hins vegar að vera með EBITDA hagnað upp á 6 til 6,5 millj­arða króna á þessu ári. Þeim árangri ætlar félagið að ná með breyttri reikn­ings­skila­að­ferð við með­höndlun sýn­ing­ar­rétta, sem verður ný færður á óefn­is­legar eignir og bætir EBITDA-horfur um 2,2 millj­arða króna til hækk­unar, og inn­leið­ingu á reikn­ings­skila­staðl­inum IFRS 16, sem hækkar EBITDA-horfur um 550 millj­ónir króna. Hvorug aðgerðir er þó til komin vegna bæt­ingu í rekstri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið undanfarið ár