Hæfi ráðherra ekki sérstaklega metið í tengslum við aðgerðapakkana

Ekki hefur þótt til­efni innan ráðu­neyt­anna til að meta sér­stak­lega hæfi ráð­herra í þeim aðgerðum sem stjórn­völd hafa gripið til vegna COVID-19 far­ald­urs­ins.

Ekki hafa komið upp álita­efni varð­andi hags­muna­tengsl eða hæfi ráð­herr­anna ell­efu í sam­bandi við aðgerða­pakka rík­is­stjórn­ar­innar vegna COVID-19 far­ald­urs­ins. Þetta kemur fram í svörum ráðu­neyt­anna við fyr­ir­spurnum Kjarnans. Spurt var hvort sér­stakt hags­muna­mat hefði farið fram vegna aðgerð­anna.

Rík­­is­­stjórnin kynnti fyrsta aðgerða­­pakk­ann í Hörpu þann 21. mars síð­ast­lið­inn. Heild­­ar­á­hrif þeirra voru sögð vera 230 millj­­arðar króna en beinu nýju fram­lögin vegna hans voru lík­­­ast til um þriðj­ungur þeirrar upp­­hæð­­ar. Sumt þar voru verk­efni sem þegar lágu fyr­ir, til dæmis í fjár­­­fest­ingu, önnur mið­uðu að því að fella niður gjöld sem væru hvort eð er ekki að fara að skila sér nema að litlu leyti, eins og afnám gist­in­átt­­ar­skatts, og sum voru ein­fald­­lega tekju­öfl­un­­ar­­leiðir fyrir rík­­is­­sjóð, eins og það að heim­ila úttekt á sér­­­eign­­ar­­sparn­aði sem yrði þá skatt­lagður sam­hliða.

Stóru beinu aðgerð­­irnar sner­ust um hina svoköll­uðu hluta­­bóta­­leið, frestun opin­berra gjald­daga, auk­innar fyr­ir­greiðslu fyrir fyr­ir­tæki hjá banka við­kom­andi og því að ráð­­ast í fjár­­­fest­ing­­ar­átak, aðal­­­lega í hefð­bundnum innviðum sem útheima margar vinn­u­­manna­hend­­ur.

Með brú­ar­lán­um mun ríkið gang­ast í ábyrgð fyr­ir helm­ingi banka­lána til fyr­ir­tækja sem hafa orðið fyr­ir að minnsta kosti 40 pró­sent tekju­falli vegna áhrifa far­ald­urs­ins. Áætlað var að heild­ar­lána­fjár­hæð yrði um 70 millj­arðar króna og því rík­is­ábyrgð af 35 millj­örðum. Gerðu stjórn­völd ráð fyr­ir að allt að helm­ing­ur lána myndi ekki end­ur­greið­ast, sem hefði í för með sér að 17,5 millj­arða króna kostn­aður félli á ríkið.

Alþingi sam­þykkti níu dögum síðar sex þing­mál sem hljóð­uðu upp á tæp­lega 26 millj­arða króna aðgerðir rík­is­stjórn­ar­inn­ar vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. All­ar breyt­inga­til­lög­ur stjórn­ar­and­stöð­unn­ar voru felld­ar.

Mánuður leið og þann 21. apríl kynnti rík­is­stjórnin aðgerða­pakka 2.0. Í honum var boðað að lok­un­ar­styrkir yrðu greiddir til fyr­ir­tækja sem þyrftu að loka vegna lög­boðs stjórn­valda í tengslum við bar­átt­una við útbreiðslu COVID-19, einka­reknir fjöl­miðlar myndu fá hund­ruð millj­ónir króna í sér­tæka styrki og fram­línu­starfs­menn myndu skipta með sér bón­us­greiðslu upp á einn millj­arð króna fyrir þeirra fram­lag í bar­átt­unni sem nú stendur yfir.

Ráðist yrði í marg­hátt­aðar aðgerðir til að mæta stöðu náms­manna, meðal ann­ars með sum­ar­námi og sum­ar­störfum, og í aðgerðir til að styðja við nýsköpun og sprota­starf­semi.

Stjórn­völd mátu heild­ar­um­fang aðgerð­anna nálægt 60 millj­örðum króna.

Rík­is­stjórnin kynnti þriðja aðgerða­pakk­ann þann 28. apríl eða viku síðar. Hann var hugs­aður til að mæta vanda þeirra fyr­ir­tækja sem hafa orðið fyrir miklu tekju­tapi vegna far­ald­urs­ins og var sér­stak­lega horft til ferða­þjón­ust­unnar. Búast má við að aðgerð­irnar kosti á bil­inu 40 til 60 millj­arða króna.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra

Ekki þörf á sérstöku hagsmunamati

Í svari for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins kemur fram að engin álita­efni hafi komið upp um hags­muna­tengsl eða hæfi Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra í aðkomu að und­ir­bún­ingi þess­ara aðgerða.

„Stjórn­sýslu­lög mæla fyrir að ráð­herrar komi ekki að málum þar sem þeir eigi veru­legra hags­muna að gæta og sam­kvæmt siða­reglum skulu þeir gæta þess að forða árekstrum milli almanna­hags­muna ann­ars vegar og fjár­hags­legra eða per­sónu­legra hags­muna eða fjöl­skyldu og gæta þess að per­sónu­leg tengsl hafi ekki áhrif á störf þeirra. Slíkt mat er því ávallt í gangi,“ segir í svar­inu.

Samkvæmt fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu er ekki þörf á sér­stöku hags­muna­mati í tengslum við almennar aðgerðir sem byggja á lögum sem Alþingi setur. Þá er bent á að hags­munir alþing­is­manna séu skráðir í sér­stakri hags­muna­skrá. Samkvæmt henni hefur Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra enga fjár­hags­lega hags­muni sem regl­urnar taka til.

Í svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins kemur fram það sama og hjá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu að ekki sé þörf á sér­stöku hags­muna­mati í tengslum við almennar aðgerðir sem byggja á lögum sem Alþingi setur. Opinber skrán­ing hags­muna­tengsla ráð­herra, eins og ann­arra þing­manna, sé á vef Alþingis í sér­stakri hags­muna­skrá. Samkvæmt stjórn­sýslu­lögum beri starfs­mönnum að gæta að hæfi sínu og vekja athygli á því, eftir atvikum við næsta yfir­mann, verði þeir að segja sig frá máli vegna hæfis. Ekki hafi komið upp sér­stök álita­efni um hags­muna­tengsl eða hæfi ein­stakra starfs­manna við und­ir­bún­ing aðgerð­ar­pakka rík­is­stjórn­ar­innar.

Í hags­muna­skrá Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­rík­is­ráð­herra eru trún­að­ar­störf ráð­herr­ans það eina sem er til­tekið en hann er for­maður veiði­fé­lags Tungufljóts og vara­for­maður AECR sem eru alþjóð­leg sam­tök stjórn­mála­flokka sem aðhyll­ast Evrópu- og alþjóða­sam­starf sem og hug­myndir um ein­stak­lings­frelsi, þing­ræði og virð­ingu fyrir full­veldi þjóð­ríkja.

Bjarni Benediktsson, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Ásmundur Einar Daðason.
Bjarni Bene­dikts­son, Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir, Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir og Ásmundur Einar Daðason.

Um starfsmenn ráðuneytanna gilda stjórnsýslulög

Samkvæmt dóms­mála­ráðu­neyt­inu byggir aðgerða­pakk­inn á lögum um almennar aðgerðir frá Alþingi og því sé hann ekki háður sér­stöku hags­muna­mati. Hags­munir alþing­is­manna og þar með ráð­herra sé skráður í sér­staka hags­muna­skrá. Um starfs­menn ráðu­neyt­is­ins gildi stjórn­sýslu­lög. Samkvæmt hag­munda­skrá hefur Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra enga fjár­hags­lega hags­muni sem regl­urnar taka til.

Þá kemur fram hjá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu að hæfi ein­stakra starfs­manna í stjórn­sýsl­unni sé sam­kvæmt stjórn­sýslu­lögum. Samkvæmt lög­unum beri starfs­mönnum sjálfum að gæta að hæfi sínu og vekja athygli á því, eftir atvikum við næsta yfir­mann, verði þeir að segja sig frá máli vegna hæfis. „Engin slík álita­mál hafa komið upp varð­andi starfs­fólk heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins. Sama máli gegnir um heil­brigð­is­ráð­herra en mat á hæfi ráð­herra byggir einnig á þeirri meg­in­reglu að ráð­herra gæti sjálfur að hæfi sínu.“ Fram kemur í hags­muna­skrá þing­manna að Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hafi enga fjár­hags­lega hags­muni sem regl­urnar taka til.

Samkvæmt sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­inu mæla hæf­is­reglur stjórn­sýslu­réttar fyrir um að ráð­herrum sé almennt óheim­ilt að koma að með­ferð mála þar sem þeir eiga sér­stakra og veru­legra hags­muna að gæta. Hver og einn ráð­herra gæti sjálfur að hæfi sínu en ef vafa­mál koma upp láti ráð­herrar vita af hugs­an­legum hags­muna­á­rekstrum og feli starfs­fólki ráðu­neyt­is­ins að setja stað­gengil í sinn stað. Þá fjalli siða­reglur ráð­herra um það sama, meðal ann­ars um að ráð­herra skuli forð­ast árekstra á milli almanna­hags­muna og eigin hags­muna.

„Hvað varðar þau mál sem fyr­ir­spurnin lýtur að þá er aðgerðum rík­is­stjórn­ar­innar ætlað að hafa almenn og víð­tæk áhrif. Aðgerð­irnar eru vel kynntar á opin­berum vett­vangi og um þær fjallað víða meðal ann­ars við þing­lega með­ferð. Ekki hafa komið upp sér­stök álita­efni um hags­muna­tengsl eða hæfi ráð­herra eða ein­stakra starfs­manna ráðu­neyt­is­ins við und­ir­bún­ing aðgerð­ar­pakka rík­is­stjórn­ar­innar.“

Samgöngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytið vekur jafn­framt athygli á að opin­ber skrán­ing hags­muna­tengsla ráð­herra, eins og ann­arra þing­manna, sé á vef Alþingis. Þar kemur fram Sigurður Ingi Jóhanns­son sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra eigi hlut sem nemur 25 pró­sent eða meira af hlutafé eða stofnfé í Dýra­lækna­þjón­ustu Suð­ur­lands ehf. og Hita­veitu Syðra-Lang­holts ehf.. Hann sitji jafn­framt að skóla­nefnd Mennta­skól­ans að Laug­ar­vatni og sé full­trúi Hruna­manna­hrepps í stjórn Heilsu­þorp Flúðir ehf..

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Sigurður Ingi Jóhannsson, Svandís Svavarsdóttir, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Katrín Jakobsdóttir.
Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir, Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, Sigurður Ingi Jóhanns­son, Svandís Svav­ars­dóttir, Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir og Katrín Jak­obs­dóttir.

Ekki komið upp álitaefni um hagsmunatengsl eða hæfi

Í svari frá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu kemur fram fyrir hönd ráð­herr­anna beggja, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra og ferða­mála, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, að opin­ber skrán­ing hags­muna­tengsla ráð­herra, eins og ann­arra þing­manna, sé á vef Alþingis. Um hæfi ein­stakra starfs­manna í stjórn­sýsl­unni fari sam­kvæmt stjórn­sýslu­lögum og beri starfs­mönnum að gæta að hæfi sínu og vekja athygli á því, eftir atvikum við næsta yfir­mann, verði þeir að segja sig frá máli vegna hæfis.

„Ekki hafa komið upp sér­stök álita­efni um hags­muna­tengsl eða hæfi ein­stakra starfs­manna við und­ir­bún­ing aðgerð­ar­pakka rík­is­stjórn­ar­innar í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu,“ segir í svar­inu. Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, hefur sam­kvæmt hags­muna­skránni enga fjár­hags­lega hags­muni sem regl­urnar taka til. Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra til­tekur að hann hafi verið háseti á mak­ríl­veiðum í ágúst 2010 og í júlí 2012 um borð í Vilhelm Þor­steins­syni EA 11. Útgerðin hafi verið Samherji hf..

Svarið frá mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu er stutt og laggott en í því segir að mat á hæfi ráð­herra sé hluti af hefð­bundnu verk­lagi. Það eigi jafnt við um COVID-19 mál sem önnur. Fram kemur í hags­muna­skrán­ingu þing­manna að Lilja Dögg Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra hafi farið í launa­laust leyfi sem aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri hjá Seðla­banka Íslands.

Í svari félags­mála­ráðu­neyt­is­ins er sam­kvæmt bæði stjórn­sýslu­lögum og siða­reglum ráð­herra almennt óheim­ilt að koma að með­ferð mála þar sem þeir eiga sér­staka og veru­legra hags­muna að gæta. Það hafi ekki komið upp sér­stök álita­efni um hags­muna­tengsl eða hæfi ein­stakra starfs­manna eða ráð­herra í félags­mála­ráðu­neyt­inu við und­ir­bún­ing aðgerð­ar­pakka rík­is­stjórn­ar­innar. Samkvæmt hags­muna­skrán­ing­unni hefur Ásmundur Einar Daðason félags- og barna­mála­ráð­herra enga fjár­hags­lega hags­muni sem regl­urnar taka til.

Hjá umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­inu kemur fram að sam­kvæmt siða­reglum ráð­herra skuli ráð­herra forð­ast árekstra milli almanna­hags­muna ann­ars vegar og fjár­hags­legra eða per­sónu­legra hags­muna sinna eða fjöl­skyldu sinnar hins vegar. Þá fari um hæfi ein­stakra starfs­manna í stjórn­sýsl­unni sam­kvæmt stjórn­sýslu­lögum og skuli ráð­herra sjálfur gæta að hæfi sínu.

„Hvorki hafa komið upp álita­efni um hags­muna­tengsl eða hæfi umhverfis- og auð­linda­ráð­herra né ein­stakra starfs­manna ráðu­neyt­is­ins við und­ir­bún­ing aðgerð­ar­pakka rík­is­stjórn­ar­innar, enda um almennar aðgerðir að ræða sem Alþingi hefur sam­þykkt. Eins og fram kemur á vef Alþingis hefur Guð­mundur Ingi Guð­brands­son enga fjár­hags­lega hags­muni sem reglur um skrán­ingu fjár­hags­legra hags­muna þing­manna taka til,“ segir í svari frá umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár