„Ónýta blokkin“ í Þorlákshöfn

Íbúar og hús­fé­lag í fjöl­býl­is­húsi í Þor­láks­höfn und­ir­búa mál­sókn vegna galla og skemmda í íbúðum og sam­eign. Íbúi í hús­inu segir húsið þekkt sem „ónýtu blokk­ina í Þor­láks­höfn“ og skamm­ast sín fyrir að búa þar.

Vatnsleki. Sprungur í veggjum. Sprungur í lofti. Brot í par­k­eti. Brotnar flísar. Ónýt klæðn­ing.

Þetta er aðeins brot af þeim skemmdum og göllum sem íbúar í Sambyggð 14 í Þor­láks­höfn hafa tekið eftir í íbúðum sínum frá því að þau fluttu inn á vor­mán­uðum 2020. Hús­fé­lagið og nokkrir íbúar Sam­byggðar und­ir­búa nú mál­sókn vegna skemmd­anna.

Bygg­ing­ar­að­ili húss­ins hefur lofað bót og betrun en sakar bygg­ing­ar­full­trúa í Ölfusi um vald­níðslu og ein­elti fyrir að tefja úttekt á öðru fjöl­býl­is­húsi, Sambyggð 18, sem fyr­ir­tækið lét byggja. Fyr­ir­tækið sé í fjár­hags­vand­ræðum vegna þess og hefur því ekki getað lag­fært skemmdir í Sambyggð 14.

Fjöl­býl­is­húsið við Sambyggð 14 er með fyrstu hús­unum sem blasa við þegar ekið er inn í Þor­láks­höfn. Húsið var reist sum­arið 2019 og er fyrsta fjöl­býl­is­húsið sem byggt er í Þor­láks­höfn í tutt­ugu ár.

Pró hús ehf. standa að bygg­ingu húss­ins, sem er for­unnið í Rúmeníu. Um nýja nálgun var að ræða hér á landi, burð­ar­virki húss­ins er úr stál­p­rófíl og við kom­una til lands­ins þurfti ein­ungis að skrúfa það saman. Upp­setn­ing húss­ins var í höndum starfs­manna verk­smiðj­unnar í Rúmeníu en eft­ir­lit í höndum íslenskra fag­að­ila. Bygg­ing­ar­kostn­aður var því minni en áður þekkt­ist og voru íbúðir húss­ins, sem allar eru tveggja her­bergja og afhentar með öllum inn­rétt­ingum og tækjum, aug­lýstar til sölu á 14,6- 14,9 millj­ónir króna.

Bæjarstjórinn sannfærður um að blokkin myndi slá í gegn

Í frétta­til­kynn­ingu sem Pró hús sendi frá sér þegar bygg­ing­ar­leyfi lá fyrir kom fram að eig­endur Pró húsa, þar á meðal Jón Valur Smárason, hefðu í nokkur ár leitað leiða til að bjóða upp á góðan raun­hæfan val­kost fyrir íslenskan fast­eigna­markað „þar sem gott verð og gæði fara saman“.

Bygging húss­ins var kynnt í jan­úar 2019. Rætt var við Elliða Vign­is­son, bæj­ar­stjóra í Ölfusi, og Jón Val, eig­anda Pró húsa, í kvöld­fréttum Stöðvar 2. Elliði sagð­ist „alveg viss um að nýja blokkin myndi slá í gegn í Þor­láks­höfn“. Það reynd­ist rétt, að minnsta kosti til að byrja með, og greindu Hafn­ar­fréttir frá miklum áhuga á íbúð­unum í lok jan­úar, svo miklum að biðlistar höfðu mynd­ast hjá Fast­eigna­sölu Suð­ur­lands sem sá um söl­una. Í maí voru allar fimmtán íbúð­irnar seldar og til stóð að afhenda þær um haustið.

Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi, og Jón Valur Smárason, eigandi Pró hús ehf.
Elliði Vign­is­son, bæj­ar­stjóri í Ölfusi, og Jón Valur Smárason, eig­andi Pró hús ehf.

Sá tækifæri í að fjárfesta í ódýrri íbúð í Þorlákshöfn

Ástrós Helga Hilm­ars­dóttir er ein þeirra sem festi kaup á íbúð í Sambyggð 14. Hún var áður búsett í Gauta­borg í Svíþjóð og sá ákveðið tæki­færi í því að fjár­festa í ódýrri íbúð í Þor­láks­höfn. Hún hafði heyrt af íbúð­unum í fjöl­miðlum og minn­ist þess þegar bæj­ar­stjór­inn dásam­aði bygg­ingu blokk­ar­innar.

Ástrós gekk frá kaup­samn­ingi sum­arið 2019 og stefnt var á afhend­ingu í sept­em­ber. Hún sá því fyrir sér að búa hjá föður sínum í stuttan tíma. Þegar leið á haustið var afhend­ingu íbúð­ar­innar ítrekað frestað, um tvær vikur í senn. Vikurnar liðu og beið Ástrós fram í mars 2020 þar til hún fékk íbúð­ina loks afhenda. Þá var húsið síður en svo til­búið að utan en Ástrós ákvað að láta það ekki hafa áhrif, biðin eftir að flytja inn var nú þegar orðin það löng.

Ástrós hafði ein­ungis búið í íbúð­inni í nokkra daga þegar „fyrsta fúskið“ kom í ljós. „Ég var að skúra og rakst í lista í eld­hús­inu sem hafði verið tyllt við inn­rétt­ing­una. Þá kemur í ljós að það vantar parket á hluta eld­húss­ins,“ segir hún í sam­tali við Kjarnann. Þegar Ástrós var ólétt af dóttur sinni varð hún svo fyrir því að skera sig á par­k­et­inu, sem brotnað hafði upp úr. „Þá hugs­aði ég að ég gæti ekki boðið ófæddri dóttur minni upp á þetta.“ Ástrós skipti út öllu par­k­et­inu í íbúð­inni og hafa aðrir íbúar einnig gripið til þess ráðs þar sem brotnað hefur upp úr par­k­et­inu.

„Þá hugsaði ég að ég gæti ekki boðið ófæddri dóttur minni upp á þetta,“ segir Ástrós Helga Hilmarsdóttir um það þegar hún skar sig á parketi í íbúð sinni í Sambyggð.
„Þá hugs­aði ég að ég gæti ekki boðið ófæddri dóttur minni upp á þetta,“ segir Ástrós Helga Hilm­ars­dóttir um það þegar hún skar sig á par­k­eti í íbúð sinni í Sambyggð.

Aðrar skemmdir sem Ástrós hefur orðið vör við í íbúð­inni eru fúgur í flísum sem hafa losnað, sprungur í veggjum og leki, sem sést til að mynda á vatns­pollum í lofti.

Til að byrja með hafði Ástrós sam­skipti við Pró hús ef upp komu skemmdir og var við­mótið ávallt gott. „En ég átt­aði mig fljótt á því að það var ekk­ert að fara að ger­ast,“ segir Ástrós. Hún, ásamt gjald­kera hús­fé­lags­ins, hvöttu íbúa til að fá lög­fræð­ing í málið sem fyrst en ekki varð sam­staða meðal íbúa að fara þá leið, að minnsta kosti ekki strax. Þess í stað voru gerðir samn­ingar við Pró hús sem sneru að end­ur­bótum á ýmsum atriðum sem og frá­gangi á hús­inu að utan sem enn var ólokið. Þeir samn­ingar stóð­ust hins vegar aldrei. „Húsið var aldrei klárað og hann er enn að lofa,“ segir Ástrós og á við Jón Val, eig­anda Pró húsa.

„Ó, býrðu í ónýtu blokkinni?“

Ástrós seg­ist löngu búin að missa trú á því að tjónið verði bætt eða að hún losni ein­hvern tím­ann út úr þeirri stöðu sem hún er. „Ég er föst í pínku­lít­illi íbúð með fjöl­skyld­unni. Mér líður eins og mér sé haldið í gísl­ingu,“ segir Ástrós, sem telur stöð­una von­lausa.

Hún segir engan til­bú­inn að bera ábyrgð og allir vísi hver á annan, hvort sem um er að ræða Pró hús eða bæj­ar­yf­ir­völd. Tæp þrjú ár eru frá því að Ástrós gekk frá kaupum á íbúð­inni síðan þá hefur hún verið reið, pirruð, von­svikin og leið. Kaup sem áttu að vera sniðug reynd­ust síður en svo vera það. Þá segir Ástrós að það komi fyrir að hún hálf skammist sín fyrir að búa þarna. Hún vill helst ekki fá heim­sóknir nema frá sínum allra nán­ustu. „Og ef ég fer í rækt­ina og er að spjalla við fólk úr bænum og segi þeim hvar ég bý fæ ég að heyra: „Ó, býrðu í ónýtu blokk­inni?““

Klæðning á svalalofti og -gólfi hefur molnað og sprungur eru í lofti í nokkrum íbúðum.
Klæðning á svala­lofti og -gólfi hefur molnað og sprungur eru í lofti í nokkrum íbúðum.

Ástrós er komin með eigin lög­mann ásamt því að taka þátt í und­ir­bún­ingi mál­sóknar hús­fé­lags­ins en hún er hæfi­lega bjart­sýn á fram­haldið. „Það er eng­inn sem vill snerta þetta mál,“ segir hún og bætir við: „Það væri í raun betra að rífa húsið en reyna að laga það.“

Kjarninn hafði sam­band við lög­mann hús­fé­lags­ins sem stað­festi að und­ir­bún­ingur að mál­sókn er haf­inn hjá hús­fé­lag­inu. Sem stendur er unnið að ástands­skoðun ásamt sér­fróðum aðila. Næsta skref verður að fá dómskvatt mat á hús­inu. Meðal skemmda sem upp hafa komið og teknar voru til greina við ástands­skoð­un­ina er leki og sprungur í loftum, brot í par­k­eti, leki á bað­her­bergjum og brot í flísum. Ýmsar skemmdir hafa einnig komið upp í sam­eign húss­ins, klæðn­ing á lofti á svölum hefur til að mynda molnað niður, svala­hand­rið ryðgað og bráða­birgða­hand­rið sem sett voru í stað­inn hafa nokkur fokið í óveðri í vetur.

Sakar byggingarfulltrúa um valdníðslu og einelti

Jón Valur Smárason, eig­andi Pró húsa, full­yrðir í sam­tali við Kjarnann að flestir íbúar í Sambyggð 14 séu sáttir, viti stöðu mála og séu rólegir.

„Það er verið að vinna í því að leysa þetta og ég á von að það verði klárað með vor­inu. Þá verður farið í að lag­færa það sem þarf að lag­færa í Sam­byggð­inni. Við ætlum að taka fulla ábyrgð á hús­inu, það hefur aldrei komið neitt annað til,“ segir hann.

Hann við­ur­kennir að eftir bygg­ingu húss­ins hafi ýmis­legt komið í ljós sem betur hefði mátt fara. Helsta ástæða þess að ekki hafi verið farið í lag­fær­ingar á blokk­inni er fjár­skortur fyr­ir­tæk­is­ins og segir Jón Valur að hann stafi fyrst og fremst af því að bygg­ing­ar­full­trúi sveit­ar­fé­lags­ins neiti að fram­kvæma örygg­is­út­tekt á Sambyggð 18, öðru fjöl­býl­is­húsi sem Pró hús eru með í bygg­ingu.

„Þessir erf­ið­leikar gera okkur fjár­þurfi. Við erum búnir að afhenda 14 íbúðir en bygg­ing­ar­full­trúi heldur hús­inu skráðu fok­heltu og frystir þar af leið­andi greiðslur sem við áttum von á að fá síð­asta sumar,“ segir Jón Valur.

Sambyggð 18 er skráð á bygg­ing­ar­stig 4 og telst því fok­helt. Íbúðir voru afhentar síð­asta sumar en bygg­ing­ar­full­trúi Ölfuss gerði athuga­semd síð­asta haust um að stál­virki fjöl­býl­is­húss­ins upp­fylli ekki skil­yrði sam­kvæmt tær­ing­ar­flokki í gild­andi bygg­ing­ar­reglu­gerð. Byggir hann ákvörðun sín meðal ann­ars á 12 athuga­semdum sem verk­fræði­stofa gerði við örygg­is­út­tekt.

Jón Valur kærði ákvörðun bygg­ing­ar­full­trúa til úrskurð­ar­nefndar umhverfis- og auð­linda­mála í sept­em­ber í fyrra. Í kærunni sakar Jón Valur bygg­ing­ar­full­trú­ann um vald­níðslu, ein­elti og brot á reglu­gerðum, sem og brot á með­al­hófs­reglu.

Kærunni var vísað frá þar sem úrskurð­ar­nefndin mat sem svo að ekki væri um stjórn­valds­á­kvörðun að ræða og er Sambyggð 18 enn á bygg­ing­ar­stigi 4. „Það er engan veg­inn ásætt­an­legt að bygg­ing­ar­full­trúi skuli stoppa loka­út­tekt á húsi og segja að hann treysti ekki burð­ar­virki í húsi sem hann er sjálfur búinn að horfa á út um glugg­ann byggj­ast upp, byggða eftir sam­þykktum teikn­ingum og teikn­ingum sem hann hefur sjálfur stimplað. Að mínu viti virð­ist þetta vera hug­ar­burður bygg­ing­ar­full­trúa,“ segir Jón Valur, sem seg­ist þó allur að vilja gerður til að leysa málin með eðli­legum hætti.

„Það er stefnt að því og ég reikna með að það verði með vor­inu, í góðri sátt og sam­vinnu við bygg­ing­ar­full­trúa Þor­láks­hafnar og þá sem þar ráða. En ef bygg­ing­ar­full­trúi „blokkerar“ hvert verk­efni á fætur öðru, stoppar greiðslur, og gerir allt eins erfitt og hægt er, þá geta komið upp vanda­mál,“ segir Jón Valur.

Bærinn ekki aðili að deilum milli kaupenda og seljanda

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem upp koma deilu­mál vegna íbúða­bygg­inga í Þor­láks­höfn. Líkt og Kjarninn greindi frá í febr­úar hefur inn­við­a­ráðu­neyt­inu borist kæra vegna gjald­töku sveit­ar­fé­lags­ins á umsóknum um bygg­inga­lóðir. Úthlut­un­ar­ferlið sjálft var einnig gagn­rýnt fyrir póli­tísk hags­muna­tengsl og er ráðu­neytið hvatt til að taka ferlið til rann­sóknar.

Varðandi fjöl­býl­is­húsin tvö í Sambyggð segir Elliði Vign­is­son, bæj­ar­stjóri í Ölfusi, málin alfarið á borði bygg­ing­ar­full­trúa, sem sé sjálf­stætt stjórn­vald og heyri því ekki fag­lega undir bæj­ar­stjórn.

„Við erum ekki aðilar að sam­skiptum milli fram­kvæmda­að­ila og kaup­enda, enda komum hvergi þar nærri. Okkar hlut­verk í þessu er úthlutun lóða og bygg­ing­ar­eft­ir­lit eins og í öðrum fram­kvæmdum. Það er svo sem mjög leitt ef ein­hverjar deilur eru á milli selj­anda og kaup­enda en að öðru leyti eru þetta bara þessar hefð­bundnu fram­kvæmdir í sveit­ar­fé­lag­inu,“ segir Elliði í sam­tali við Kjarnann.

Aðspurður hvernig bæj­ar­yf­ir­völd geti þá brugð­ist við í málum sem þessum, þar sem íbúar eru aug­ljós­lega mjög ósáttir við ástand íbúða sinna, segir Elliði að stöðugt sé verið að reyna að bæta þjón­ustu við íbúa. „Velferð bæj­ar­búa er það sem við störfum við, en við erum ekki aðilar að deilum milli kaup­enda og selj­anda.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

byggingaframkvæmdir

Mest lesið undanfarið ár