
Vestfirsk verslunarferð
Það hafði lítil sem engin áhrif á matarinnkaup Ísfirðinga þótt rafmagnslaust yrði síðdegis á fimmtudag fyrir viku. Rafmagnstruflanir og jafnvel rafmagnsleysi er ekki eitthvað sem Vestfirðingar kippa sér sérstaklega upp við. Þúsundir lítra af olíu eru brenndir árlega til að bæta upp fyrir óstöðugt rafmagn.



























