
„Kúnnarnir bara koma ekki“
Langri sögu Nytjamarkaðar Samhjálpar er lokið. Flutningur markaðarins upp í Breiðholt varð á endanum einn af banabitum hans. Verkefnastjóri nytjamarkaðarins segist hafa talið það sóknarfæri að flytja í hverfi þar sem fólk hafi gjarnan minna á milli handanna en aðsóknin hafi verið afar dræm.






































