
Fóru á rafmagnshjólastólum í átt að glóandi hrauninu
Andri Valgeirsson og Hallgrímur Eymundsson lögðu af stað í ferðalag í átt að eldgosinu við Litla-Hrút á rafmagnshjólastólum um síðustu helgi. Ferðin gekk stóráfallalaust fyrir sig, þó þeir hafi kastast aðeins til í stólunum vegna torfærs landslags og hleðslan á rafhlöðum stólanna hafi klárast á bakaleiðinni. Andri kallar eftir því að aðgengi að íslenskum náttúruperlum verði bætt, svo fólk sem notast við hjólastól geti fengið að sjá landið eins og gangandi fólk.
























































