Mynd: Landsvirkjun

Umdeild græn skírteini skila 850 milljónum í hagnað á ári

Upp­runa­á­byrgð raf­orku, eða svokölluð græn skír­teini, hefur verið hampað sem ein af lyk­il­stoð­unum í bar­átt­unni við lofts­lags­breyt­ingar og lastað sem afláts­bréf í lofts­lags­málum.

Græn skír­teini, eða upp­runa­á­byrgð raf­orku, eru afar umdeild. Þeim hefur ýmist verið hampað sem eitt af lyk­il­at­rið­unum í bar­átt­unni við lofts­lags­breyt­ingar eða gagn­rýnd fyrir að vera eins konar afláts­bréf í lofts­lags­málum. Gagn­rýnendur telja að skír­teinin geti skaðað ímynd Íslands erlendis þar sem á bók­haldi raf­orku­reikn­inga komi út eins og Ísland noti kjarn­orku.

Fylgj­endur grænna skír­teina telja þó að það sé aðeins um bók­hald raf­orku að ræða, ekki raun­veru­lega notkun, og að grænu skír­teinin séu Íslandi jákvæð, auk þess sem þau hafi skilað um 850 millj­ónum í hagnað á ári.

Yfir­lýstur til­gangur skír­tein­anna er að hvetja til fram­leiðslu grænnar orku. Fyr­ir­tæki geta keypt græn skír­teini til þess að sýna fram á að þau styðji við upp­bygg­ingu end­ur­nýj­an­legra orku­gjafa. Þar með getur fyr­ir­tæki í Evrópu, þar sem öll orka bland­ast saman inn á sama flutn­ings­netið, það er kola­orka, græn orka og kjarn­orka, keypt grænu skír­teinin til þess að styðja við umhverf­is­vænni orku­fram­leiðslu. Þar með verður fjár­hags­legur hvati til að fram­leiða græna orku sem yfir lengri tíma muni fækka kola- og kjarn­orku­verum og auka fram­leiðslu grænnar orku.

Skírteinin umdeild á Íslandi

Magnús Þór Ásmunds­son, for­stjóri Fjarða­áls sagði í við­tali við RÚV í júní sölu á grænu skír­teinum frá land­inu virka eins og afláts­bréf í lofts­lags­málum. Hann sagði stimp­il­inn um græna orku vera seldan til ann­arra landa sem gæti seinkað úrbótum þar.

„Það má segja að með þessu séu Íslend­ingar að selja erlendum fyr­ir­tækjum afláts­bréf sem gerir þeim kleift að fresta sínum umbótum í lofts­lags­málum. Þetta getur verið ímynd­ar­mál fyrir Ísland og nokkuð sem ég myndi beina til stjórn­valda hvort að við getum verið stolt af því fram­lagi til lofts­lags­mála á heims­vísu,“ sagði Magnús jafn­framt í við­tal­inu.

Stefanía Guðrún Hall­dórs­dóttir, fram­kvæmda­stjóri mark­aðs- og við­skipta­þró­un­ar­sviðs Lands­virkj­unar, sagði í sam­tali við RÚV það vera mis­skiln­ing að sala á upp­runa­á­byrgðum virki eins og afláts­bréf heldur væri mark­miðið með grænu skír­tein­unum að styðja við end­ur­nýj­an­lega orku­vinnslu og það væri jafn mik­il­vægt á Íslandi og í öðrum löndum.

Samkvæmt

skýrslu

um upp­runa­á­byrgðir unna fyrir atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið af Hrafn­hildi Braga­dóttur og Birnu S. Halls­dóttur kaupa mörg fyr­ir­tæki, stofn­anir og ein­stak­lingar upp­runa­á­byrgðir til að styðja við end­ur­nýj­an­lega orku­fram­leiðslu. Til­gang­ur­inn sé oft að bæta ímynd sína og sýna fram á umhverf­is­vit­und og sam­fé­lags­lega ábyrgð. Til að mynda hafi stór­fyr­ir­tækin IKEA, Lego og Google vottað sína fram­leiðslu. Í sumum Evr­ópu­ríkjum séu upp­runa­á­byrgðir eina full­nægj­andi stað­fest­ingin á notkun end­ur­nýj­an­legrar orku.

Sumir gagn­rýnendur telja að með því að nota end­ur­nýj­an­lega orku á Íslandi og kaupa græn skír­teini sé líkt og að borga tvisvar fyrir græna orku. „Þetta er tvennt ólíkt, þau [fyr­ir­tæki] kaupa raf­magn eins og aðrir. Þetta kerfi breytir því aldrei að íslenskt raf­magn er fram­leitt með end­ur­nýj­an­legum orku­gjöfum. Ef þú vilt fá það vottað og geta sannað það að þú kaupir end­ur­nýj­an­lega orku þá gildir sama um grænu skír­teinin og aðrar vott­anir,“ segir Lovísa Árna­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi Samorku, í sam­tali við Kjarnann. „Ef þú séð ekki hag í því þá þarftu ekki að kaupa þetta,“ bætir hún við.

Hreinleikinn söluvara

Á vef Samorku má nálg­ast upp­lýs­ingar um græn skír­teini. Græn skír­teini, eða kerfi upp­runa­á­byrgða, gerir „kaup­endum raf­orku í Evrópu kleift að styðja við vinnslu á end­ur­nýj­an­legri orku.“ Ísland sé jafn­framt hluti af innri mark­aði ESB í gegnum EES-samn­ing­inn og þar af leiðir hluti af kerf­inu fyrr­nefndra. Kerfinu er ætlað „að sporna gegn auknum gróð­ur­húsa­á­hrifum í krafti auk­ins hvata til orku­vinnslu með end­ur­nýj­an­legum orku­gjöfum.“

Upp­runa­á­byrgð­ina geta raf­orku­kaup­endur í Evrópu jafnt sem á Íslandi keypt og fengið vott­aða sem end­ur­nýj­an­lega sam­kvæmt alþjóð­legum staðli. Þar sem nán­ast öll íslensk raf­orka sé fram­leidd með end­ur­nýj­an­legum orku­gjöfum geta íslenskir orku­fram­leið­endur selt grænu skír­teinin.

Lovísa segir grænu skír­teinin vera aþjóð­legt kerfi og krafan um vottun og upp­runa sé að verða hávær­ari. Neyt­endur séu sífellt að vera með­vit­aðri um að umhverf­is­mál og um að fram­leiðsla vara sé sam­fé­lags­lega ábyrg. Hún bendir á að aðrar vott­anir, til að mynda Svan­ur­inn eða Fairtrade, krefj­ist einnig gjalds.

Þetta er tekið upp til að gera þennan hrein­leika að sölu­vöru

Lovísa bendir á að til að mynda séu ýmsar íviln­anir og skatt­lagn­ing, lang­tíma­samn­ingar og fleira sem eigi að reyna að auka hlut end­ur­nýj­an­legrar orku í Evrópu. „Þetta er tekið upp til að gera þennan hrein­leika að sölu­vöru,“ segir hún. Þar með umbuni kerfið fram­leið­endum sem fram­leiði með end­ur­nýj­an­legum hætti.

Gífurlegar fjárhæðir við útgáfu grænna skírteina

Árið 2018 seldi Lands­virkjun græn skír­teini fyrir 600 millj­ónir og nær upp­hæðin í tvo millj­arða sé litið til síð­ast­lið­inna átta ára. Lovísa segir heild­ar­upp­hæð­ina vera mun hærri. „Þetta eru 800 til 850 millj­ónir á ári og verðið er alltaf að hækka. Þetta getur hækkað umtals­vert og mun hækka umtals­vert,“ segir hún. „Græn skír­teini skila miklum ávinn­ingi í háum fjár­hæðum og gjald­eyr­is­tekjum[...]Við fáum mikla fjár­muni úr þessu og erum að gera vel.“

Ásókn í grænu skír­teinin hefur auk­ist und­an­farin ár og er nú nán­ast öll fram­leiðsla frá vott­uðum virkj­unum gefin út sam­kvæmt upp­lýs­ingum á vef Lands­nets.

Heildarfjöldi útgefinna grænna skírteina eftir árum.
Heild­ar­fjöldi útgef­inna grænna skír­teina eftir árum.

„Stór­fyr­ir­tæki eins og Google, Ikea og Sony hafa skuld­bundið sig til að nota ein­ungis græna orku innan ákveð­ins tíma og það er ekki hægt að gera það nema með þessum hætti því þau hafa ekki aðgengi að grænni orku í sínu heima­landi,“ segir Lovísa. Með kerf­inu auk­ist smám saman hluti end­ur­nýj­an­legrar orku í Evrópu og eru grænu skír­teinin einn liður af mörgum.

Stefanía Guðrún Hall­dórs­dóttir, fram­kvæmda­stjóri mark­aðs- og við­skipta­þró­un­ar­sviðs Lands­virkj­unar, bendir á í sam­tali við Kjarnann að í fyrra hafi Lands­virkjun selt fyrir 600 millj­ónir úr landi. „Lands­virkjun seldi græn skír­teini í fyrra fyrir 600 millj­ónir, Lands­virkjun er í eigu rík­is­ins, í eigu íslensku þjóð­ar­innar og ber að hámarka arð­semi auð­lind­anna. Ísland á rétt á þessum greiðslum, svo mikið er víst, vegna þess að við höfum verið að virkja okkar auð­lindir til þess að fram­leiða orku. Nú, meðal ann­ars vegna þessa hvata­kerfis sem er verið að inn­leiða um allan heim, ekki aðeins í Evrópu, er orkan okkar orðin en verð­mæt­ari en áður,“ segir Stefanía.

Þá spyr maður sig hvort það sé ekki sjálf­sagt að þegar Íslend­ingar eru búnir að beisla þessar orku­auð­lindir, nýta þær, er ekki sjálf­sagt að við fáum hærra verð fyrir það inn í okkar þjóð­arbú? Af hverju ættum við að sleppa því?

„Þessi sala er að skila auknum tekjum til íslenskra orku­fyr­ir­tækja. Loksins erum við að fá auknar tekjur og auka­lega greitt fyrir græna þátt­inn í okkar end­ur­nýj­an­legu orku­vinnslu. Við erum ekki bara með sam­keppn­is­hæft raf­orku­verð heldur erum við með for­skot þar sem öll okkar fram­leiðsla er frá end­ur­nýj­an­legum orku­gjöfum,“ segir Stefanía.

„Þá spyr maður sig hvort það sé ekki sjálf­sagt að þegar Íslend­ingar eru búnir að beisla þessar orku­auð­lindir, nýta þær, er ekki sjálf­sagt að við fáum hærra verð fyrir það inn í okkar þjóð­arbú? Af hverju ættum við að sleppa því?“ spyr Stefanía.

Stórnot­endur á Íslandi, til að mynda álverin, hafa hingað til ekki keypt græn skír­teini af íslenskum orku­sölum. „Þar sem stórnot­enda­mark­að­ur­inn kaupir þetta ekki á Íslandi, þá geta orku­fyr­ir­tækin selt 16 tera­vatts­stundir úr landi í grænum skír­teinum,“ segir Stefanía

Þó geta stórnot­endur á Íslandi keypt skír­teinin og styrkt þar með fram­leiðslu grænnar orku ásamt því að geta vottað sína fram­leiðslu sem græna. „Stórnot­endur á Íslandi hafa val um að kaupa græn skír­teini en hafa ekki gert það,“ bætir Stefanía við.

Ekki hægt að velja hvernig orku maður fær þegar stungið er í samband

Stefanía segir orðið „upp­runa­á­byrgð“ geta virkað rugl­andi. „Grænu skír­teinin eru kölluð upp­runa­á­byrgðir sem ruglar fólk stundum en það er ein­fald­lega ekki hægt að vita upp­runa raf­orku sem neyt­andi. Þegar við stingum í sam­band á Íslandi þá vitum við ekki hvort orkan sé upp­runin úr vatns­afli eða jarð­varma, og ef þú stingur í sam­band í Danmörku, þá færðu kola­orku, kjarn­orku, þú færð vatns­afl og vind­orku, óháð upp­runa­landi“ því öll orkan bland­ast saman í dreifi­kerf­inu.

„Þetta er í raun­inni eina leiðin sem hefur verið fundin þar sem hægt er að tengja saman grænar lausnir og raf­orku­fram­leið­enda og áhuga eða ávinn­ing neyt­enda,“ segir hún.

Stefanía segir end­ur­nýj­an­lega orku­gjafa stjórn­ast af nátt­úr­unni sem sé afar flókið. „Það er flókið vegna þess að stundum blæs vind­ur­inn og stundum er logn, stundum eru lónin full, stundum ekki, stundum er sól og stundum er skýjað. Hvernig ætlarðu þá að vera alltaf með til­tæka orku?“ Evrópa hafi áður leyst það með því að kveikja upp í kola­verum þegar orku hafi vantað.

Íslensk fyrirtæki og heimili vannýta tækifærin

Bæði Stefanía og Lovísa benda á að íslensk fyr­ir­tæki á smá­sölu­mark­aði og heim­ili fái græn skír­teini með raf­orku sinni. „Heimili og fyr­ir­tæki fá þetta end­ur­gjalds­laust á Íslandi. Þau mættu nýta sér það að fá það end­ur­gjalds­laust,“ bendir Lovísa á.

„Hver ein­asti garð­yrkju­bóndi ætti að geta sett lím­miða á tómatana sína „gert með 100 pró­sent grænni orku.“ Íslensk fyr­ir­tæki hafi ekki verið að nýta þetta for­skot sem græn skír­tein á heild­sölu­mark­aði gefa þeim. Kannski er það vegna þess að umræðan hefur verið svo­lítið skekkt í þjóð­fé­lag­inu um þetta,“ segir Stefanía.

Íslensk orka á reikningi í Belgíu

Í skýrslu Stjórn­ar­ráðs­ins um upp­runa­á­byrgðir raf­orku í íslensku sam­hengi kemur fram að eft­ir­liti og upp­lýs­inga­gjöf um græn skír­teini mætti skýra betur. Þar kemur fram að sala upp­runa­á­byrgða úr landi geti skaðað ímynd Íslands og þá ímynd að orku­fram­leiðsla lands­ins sé hrein og end­ur­nýj­an­leg. Það sé vegna þess að þegar upp­runa­á­byrgðir vegna fram­leiðslu á end­ur­nýj­an­legri orku eru seldar frá Íslandi til Evrópu þurfi við fram­setn­ingu gagna vegna raf­orku­sölu á Íslandi að taka inn í útreikn­inga hér á landi sam­svar­andi magn af raf­orku sem seld er í Evrópu. Er það gert til að koma í veg fyrir tví­taln­ingu. Þar með verði kjarn­orka og jarð­efna­elds­neyti hluti af fram­setn­ingu á upp­runa raf­orku á Íslandi.

Í skýrsl­unni er jafn­framt bent á að birt­ing upp­lýs­inga af hálfu orku­sala í sam­hengi við upp­runa­á­byrgðir hafi oft verið til­efni til gagn­rýni. Það sé vegna þess að upp­lýs­ingar birt­ast á raf­orku­reikn­ingi sem varða orku­fram­leiðslu í fjar­lægum hlutum Evrópu. Til að mynda hafi íslensk orka birst á reikn­ingi í Belgíu árið 2013 sem hafi vakið furðu margra þar í landi.

Í skýrsl­unni segir enn fremur, til „skýr­ingar hefur kerfi með upp­runa­á­byrgðir verið líkt við banka­kerfi og bent á að neyt­endur séu löngu orðnir vanir hug­mynd­inni um að geta tekið pen­inga út úr hrað­banka hvar sem er í Evrópu óháð því hvar pen­ing­arnir voru settir inn í kerfið. Hið sama ætti að gilda um upp­runa­á­byrgðir. Ógern­ingur sé að rekja raf­eindir í flutn­ings­kerfi raf­orku frá fram­leiðslu­stað þangað til þær ber­ast neyt­endum. Því sé ekk­ert óeðli­legt við að upp­lýs­ingar um eig­in­leika orkunnar séu afhentar á grund­velli sér­stakra samn­inga án þess að þær þurfi að fylgja raf­eind­unum sem þær tengd­ust upp­haf­lega.“

Mynd: úr safni
Mynd: úr safni

Lovísa seg­ist ekki kann­ast við að íslensk raf­orka sé flokkuð sem kjarn­orka vegna þessa kerfis. „Okkur ber skylda til að birta yfir­lit um hvernig raf­orka er fram­leidd í heild sinni í Evrópu, þess vegna kemur kjarn­orka inn á íslenska yfir­litið vegna þess að raf­orka er fram­leidd með kjarn­orku ann­ars staðar í Evrópu,“ segir Lovísa. „Græn skír­teini breyta engu um fram­leiðslu raf­magns á íslandi, þetta er bók­halds­leg sam­setn­ing orkunnar á íslandi.“

Lovísa bendir á að ef grænt skír­teini sé selt til fyr­ir­tækis í öðru landi sem noti raf­orku sem fram­leidd er með kolum þá þurfi að gefa út sam­eig­in­legt bók­hald um orku­notkun fyrir bæði löndin. Íslensk stjórn­völd þurfi að gefa bók­hald út einu sinni á ári til að sýna sam­setn­ingu þeirra landa sem taka þátt á hverju ári. Hún segir einnig að ef inn­lend stór­iðja myndu kaupa íslensku skír­teinin þá myndi kjarn­orka ekki koma inn á reikn­ing­inn.

Við getum við ekki valið úr hvað hentar okkur og ekki þegar kemur að alþjóð­legum lofts­lags­að­gerðum

„Þetta er alþjóð­leg lofts­lags­að­gerð sem Ísland á að taka þátt í. Við eigum ekki að velja hverju við tökum þátt í þó þetta komi skringi­lega út í þessu bók­haldi. Ísland er ein­stakt, það er ekk­ert annað land sem fram­leiðir úr 100 pró­sent úr end­ur­nýj­an­legri raf­orku,“ segir hún. „Ef þau vilja segja það upp­hátt og aug­lýsa það þurfa þau að borga fyrir það[...]Við getum við ekki valið úr hvað hentar okkur og ekki þegar kemur að alþjóð­legum lofts­lags­að­gerðum,“ segir Lovísa.

RE100 fyrirtækin. Þau ætla sér að kaupa græn skírteini fyrir 100 prósent eða meira af allri sinni orkunotkun í grænum skírteinum.
RE100 fyr­ir­tækin. Þau ætla sér að kaupa græn skír­teini fyrir 100 pró­sent eða meira af allri sinni orku­notkun í grænum skír­teinum.

Hver segir að hér verði alltaf endurnýjanleg orka?

„Evr­ópu­sam­bandið hefur lagt áherslu á að fram­leiðsla end­ur­nýj­an­legrar orku í Evrópu auk­ist með því að setja á fót hvata­kerfi eins og græn skír­teini, en einnig með gjald­töku á orku­fram­leiðslu sem mengar,“ segir Stefanía. „Hver segir að hér verði alltaf bara end­ur­nýj­an­leg orka? Af hverju er það endi­lega gefið? Er það ekki rétt að Ísland eigi líka að fá auknar tekjur fyrir sína grænu fram­leiðslu svo við getum alveg örugg­lega haldið henni áfram? Það hjálpar í alþjóð­legu sam­hengi líka,“ segir hún.

Stefanía bendir á að enn fremur sé ekki nóg að ein­ungis kolefn­is­jafna íslenska fram­leiðslu. „Ef við ætlum að minnka losun þá er ekki nóg að kolefn­is­jafna bara á móti. Það er ekki hægt. Þú þarft að raun­veru­lega minnka losun. Að minnka losun þýðir raun­veru­lega að draga úr,“ segir Stefanía.

Hún bendir á að minnka úr losun sé stórt verk­efni sem krefj­ist þess að losun minnki á mörgum víg­stöðvum. „Ef við ætlum að minnka losun um að minnsta kosti 40 pró­sent miðað við 1990 þá verður sú minnkun að koma frá öllum fyr­ir­tækjum, frá fiski­skipa­flot­anum, frá heim­il­unum, sam­göngum og öllu því. Þó svo að álverin lækki sína losun breytir það ekki neinu um hvort að við náum Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu, því þau eru í öðru kerfi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár