Afmælisbarn dagsins: Karl Marx

Í dag eru liðin 200 ár frá fæð­ingu Karl Marx. Hver er arf­leifð eins umdeildasta heim­spek­ings síð­ari ára?

Karl Marx.
Karl Marx. Mynd: Wikipedia Commons

Fáir fræði­menn hafa verið jafn­á­hrifa­miklir á Vest­ur­löndum og Karl Marx. Hversu við­eig­andi eru kenn­ingar hans í dag, einni og hálfri öld eftir að þær litu fyrst dags­ins ljós?

„Eitruð“ gjöf

Í smá­borg­inni Trier í Suður-Þýska­landi var blásið til mik­illa hátíð­ar­halda í dag. Ástæða þeirra er 200 ára afmæli heim­spek­ings­ins Karl Marx, fræg­asta íbúa borg­ar­innar, sem fædd­ist þar þann 5. maí árið 1818. Í til­efni dags­ins hefur borgin einnig fengið að gjöf 5,5 metra háa brons­styttu af fræði­mann­inum frá kín­verskum stjórn­völdum sem virð­ing­ar­vott við fram­lög Marx til komm­ún­íska hug­mynda­fræði alþýðu­lýð­veld­is­ins.

Brons­styttan nýja og jafn­vel hátíð­ar­höldin sjálf eru ekki óum­deild, en mörg sam­tök hafa harð­lega gagn­rýnt hvers kyns dýrkun á hug­mynda­fræði sem ein­ræð­is­ríki hafa byggt til­veru sína á. Ulrich Delius, for­maður mann­rétt­inda­sam­tak­anna GfBV, kall­aði stytt­una „eitr­aða,“ bæði vegna þess hver lægi að baki henni og vegna hug­mynda­fræð­innar sem hún stæði fyrir.

Algjörlega rétt?

Trier er ekki eini stað­ur­inn þar sem fæð­ingu Marx var fagnað, en fjölda­margir við­burðir voru einnig skipu­lagðir, t.d. á Englandi og í Argent­ínu. Þar að auki var tvegga aldar afmæli heim­spek­ings­ins þýska fagnað ræki­lega í Kína í gær, en þar sagði for­seti lands­ins, Xi Jinping, komm­ún­ista­flokk­inn halda sér við hug­mynda­fræði Marx þar sem hún væri „algjör­lega rétt.“

En hvaða kenn­ingar eru þetta og hversu réttar telj­ast þær í dag? Hefur þessi hug­mynda­fræði fyrst og fremst leitt til stofn­unar ein­ræð­is­ríkja líkt og Kína eða má einnig sjá áhrif hennar í menn­ingu og stjórn­kerfi frjálsra lýð­ræð­is­ríkja í Evrópu? Umræddar spurn­ingar hafa verið bit­bein fræði-og stjórn­mála­manna síð­ustu ára­tug­ina, en þær virð­ast enn vera jafn­við­eig­andi í dag og þær voru fyrir hund­rað árum síðan.

Marxismi

Meg­in­inn­tak hug­mynda­fræði Marx, eða Marxisma, liggur í gagn­rýni á hinu kap­ít­al­íska stjórn­kerfi þar sem hægt sé að græða pen­inga með því eina skil­yrði að maður eigi pen­inga. Eina leiðin sem fjár­magns­eig­endur ná að græða sé með arðráni frá laun­þegum, sem sjá um að skapa öll verð­mæti í sam­fé­lag­inu. Þannig safn­ast pen­ingar og fjár­magn á æ færri hendur, á meðan verka­fólki er haldið í skefjum með launum sem ráð­ast á sam­keppn­is­mark­aði.

Stikla úr nýrri mynd um æskuár Marx.

Þessar kenn­ingar lagði Marx fram um miðja 19. öld á Englandi, þar sem iðn­bylt­ingin var í hámarki og stór­eigna­menn græddu á tá og fingri á meðan meiri­hluti verka­manna bjuggu við ömur­legar aðstæður. Reyndar spáði Marx því að slíkt kerfi væri ósjálf­bært og að hrun kap­ít­al­ism­ans væri yfir­vof­andi. Sam­fé­lags­breyt­ing gegn ráð­andi valda­stéttum væri óhjá­kvæmi­leg og sam­kvæmt honum gæti slíkt aðeins gerst með bylt­ingu.

Afleiðingar Marxisma

Í nafni þess­arar kenn­ingar hafa fjöl­margar bylt­ingar átt sér stað á síð­ustu 150 árum, með mis­jöfnum afleið­ingum. Þekktastar eru þær sem háðar voru undir merkjum komm­ún­ista, en margar þeirra end­uðu illa, til að mynda upp­reisnir Bol­sé­víka í Rúss­landi árið 1917 og komm­ún­ista í Kína árið 1949. Báðar upp­reisn­irnar leiddu til ára­tuga ógn­ar­stjórnar og kost­uðu millj­ónir manns­lífa.

Hvers vegna er þá Marxisma enn fagnað ef afleið­ingar upp­reisna sem háðar voru í hans nafni eru svona hörmu­legar? Svarið við því virð­ist ekki liggja í ein­ræð­is­stjórn­unum sjálfum, heldur í þeim straum­hvörfum sem Marx olli á sviði heim­spek­innar, félags­fræð­innar og hag­fræð­innar.

Samkvæmt sagn­fræð­ingnum Jane Hump­hries og rit­höf­und­inum Richard Seymor liggja höf­uð­fram­lög Marx í grein­ingum hans á því hvernig kap­ít­al­ismi mótar þjóð­fé­lagið allt og hvers vegna átök væru nauð­syn­leg til þess að breyta valda­kerfum. Sömu­leiðis segir Ottó Másson, heim­spek­ingur, ógn­ar­stjórnir Sov­ét­ríkj­anna og Kína ganga þvert á það sem Marx hafði í hyggju.

Í nýlegri skoð­ana­grein í New York Times er tekið í sama streng: Marxismi hefur hjálpað til við að útskýra kerf­is­bundna kúgun sem fund­ist hefur víða í sam­fé­lagi manna. Þannig eru nýlegar bylt­ingar, líkt og #MeToo og Black Lives Matter, sprottnar upp úr sama hug­mynda­fræði­lega brunni og bylt­ingar komm­ún­ista fyrr á 20. öld en ná jafn­framt að knýja fram jákvæðar sam­fé­lags­breyt­ingar.

Áhrif Karl Marx gætir því víða um allan heim, tveimur öldum eftir fæð­ingu hans. Þótt spá hans um yfir­vof­andi hrun kap­ít­al­ism­ans hafi ekki gengið upp hafa aðrir hlutar kenn­ingar hans náð að koma sér fyrir í nútíma­sam­fé­lagi. Hvort hug­mynda­fræði hans telst „algjör­lega rétt“ er hins vegar umdeild­ari spurn­ing.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár