Reikna má með því að stór hluti bíla sem komu nýir á götuna á árunum 2015-2021 verði enn í bílaflota landsmanna árið 2030.
Reikna má með því að stór hluti bíla sem komu nýir á göt­una á árunum 2015-2021 verði enn í bíla­flota lands­manna árið 2030. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Bara pláss fyrir 10-30 þúsund nýja jarðefnaeldsneytisbíla í flotann

Einungis um 130 þús­und fólks­bílar sem ganga fyrir jarð­efna­elds­neyti mega vera á göt­unni árið 2030, ef mark­mið um sam­drátt í losun frá vega­sam­göngum eiga að ganga eftir. Yfir hund­rað þús­und bruna­bílar hafa komið nýir á göt­una und­an­farin sex ár.

Ef Ísland ætlar að ná þeim mark­miðum í loft­lags­málum sem sett voru á sein­asta kjör­tíma­bili er svig­rúmið fyrir nýja bensín- og dísel­bíla á götum lands­ins orðið „ofboðs­lega lítið“, segir Sigurður Ingi Frið­leifs­son, sviðs­stjóri lofts­lags­mála, orku­skipta og nýsköp­unar hjá Orku­stofnun.

Samkvæmt útreikn­ingum hans mega ein­göngu á bil­inu 10 til 30 þús­und bílar sem ganga fyrir jarð­efna­elds­neyti bæt­ast við fólks­bíla­flot­ann ef það á að takast að standa við fram­settar áætl­anir um sam­drátt í losun frá vega­sam­göngum árið 2030.

Sigurður Ingi tal­aði um að plássið væri orðið lítið í við­tali í Morg­un­vakt­inni á Rás 1 í síð­ustu viku, en nefndi þar engar tölur. Hann segir í sam­tali við Kjarnann að hann hafi viljað tala var­lega um þessi mál. Raun­veru­leik­inn í þessu sé þó sá að hver ein­asti nýskráði bensín- eða dísel­bíll sé „nán­ast yfir­skot á skuld­bind­ingar okkar“ í lofts­lags­málum.

Búið að lýsa yfir enn háleitari loftslagsmarkmiðum

Frá því að Sigurður Ingi gerði útreikn­inga sína hafa stjórn­völd sett sér enn háleit­ari mark­mið áður um sam­drátt í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, eða sjálf­stætt mark­mið um 55 pró­sent sam­drátt í losun árið 2030 m.v. árið 2005, sam­kvæmt nýjum stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur. Ekki er búið að útfæra hvernig þeim mark­miðum skal náð.

Það má því segja að svig­rúmið fyrir nýskrán­ingar jarð­efna­elds­neyt­is­bíla sé að öllum lík­indum orðið enn minna en Sigurður gerir ráð fyrir, nema til standi hjá stjórn­völdum að ná mark­miðum sínum um sam­drátt í losun á annan hátt en að horfa til vega­sam­gangna. Það er þó vand­séð að það verði, enda eru vega­sam­göngur stærsti ein­staki los­un­ar­þáttur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á ábyrgð Íslands.

Það sem Sigurður Ingi er að miða við í útreikn­ingum sínum er það að losun frá vega­sam­göngum á Íslandi verði búin að drag­ast saman um 21 pró­sent frá við­mið­un­ar­ár­inu 2005 árið 2030, eða niður í 615 þús­und tonn af CO2, en það er mark­mið stjórn­valda sam­kvæmt aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum.

Samkvæmt aðgerðaáætlun í loftslagsmálum er ráðgert að losun frá vegasamgöngum verði 21 prósenti lægri árið 2030 en hún var árið 2005.
Samkvæmt aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum er ráð­gert að losun frá vega­sam­göngum verði 21 pró­senti lægri árið 2030 en hún var árið 2005.

Til þess að þetta tak­mark náist mega jarð­efna­elds­neyt­is­bíl­arnir í fólks­bíla­flota lands­ins ein­ungis vera um 120 þús­und tals­ins árið 2030, sam­kvæmt útreikn­ingum Sigurðar Inga, sem nálg­ast má á vef Orku­set­urs. Af þeim 250 þús­und fólks­bílum sem hann gerir ráð fyrir að verði í umferð þyrftu 130 þús­und að vera bílar sem ganga ein­göngu fyrir raf­magni, vetni eða metan.

Þær for­sendur sem Sigurður Ingi lagði til grund­vallar útreikn­ing­unum voru þær að fjöldi öku­tækja á Íslandi myndi aukast um 10 pró­sent, sem hann segir „örugg­lega var­lega áætlað“, auk þess sem hann gerir ráð fyrir að elds­neyt­isnýtni þeirra bíla sem ganga fyrir jarð­efna­elds­neyti muni batna um 10 pró­sent. Hann tekur tengilt­vinn­bíla inn í útreikn­ing­ana sem hálfan raf­bíl og hálfan jarð­efna­elds­neyt­is­bíl.

Rúmlega hundrað þúsund jarðefnaeldsneytisbílar á götuna frá 2015

Þá gerir hann ráð fyrir því að líf­tími bíla á göt­unum séu á bil­inu 10-15 ár, sem þýðir að við erum þegar byrjuð að ganga veru­lega á þann kvóta jarð­efna­elds­neyt­is­bíla sem má vera á göt­unum árið 2030 ef orku­skiptin eiga að ganga upp.

„Bara bensín- og dísel­bílar skráðir frá 2018 og þar til í dag eru um 52 þús­und og ofan í það kemur svo að jarð­efna­elds­neyt­is­bílar skráðir á árunum 2015-2018 eru líka í kringum 50 þús­und,“ segir Sigurður Ingi við Kjarnann.

Hér sjást útreikningar Sigurðar Inga, þar sem settur er saman bílafloti fyrir árið 2030 sem myndi ná markmiðum stjórnvalda um samdrátt.
Hér sjást útreikn­ingar Sigurðar Inga, þar sem settur er saman bíla­floti fyrir árið 2030 sem myndi ná mark­miðum stjórn­valda um sam­drátt.

Reikna má með að stór hluti þess­ara bíla verði enn á göt­unum árið 2030, og líka ein­hver fjöldi bíla sem nýskráðir voru fyrir árið 2015. „Þá erum við bara með eitt­hvað á bil­inu 10-30 þús­und nýskrán­ingar eftir,“ segir Sigurður Ingi, sem er í þessu dæmi bara að tala um flokk fólks­bíla, hvar nýskrán­ingar hrein­orku­bíla hafa verið flestar til þessa.

Útreikn­ingar hans taka einnig til hóp­bif­reiða, sendi­bif­reiða og vöru­bif­reiða í bíla­flota lands­manna og segir Sigurður Ingi að ef það „klikki“ að koma hrein­orku­bílum inn í þá flota í því magni sem þurfi til sé rýmið fyrir nýskrán­ingar fólks­bíla sem ganga fyrir bens­íni eða dísil enn minna en hann gerir ráð fyrir.

Tengiltvinnbílar búnir að vera góð brú

Í fjár­laga­vinn­unni sem fram fór á Alþingi fyrir ára­mót var tekin ákvörðun um að láta nið­ur­greiðslur hins opin­bera vegna kaupa á nýjum tengilt­vinn­bílum renna sitt skeið, sem þýðir að búast má við að fimmt­án­þús­undasta og þar með síð­asta tengilt­vinn­bif­reiðin með afslætti af vöru­gjöldum verði seld á vor­mán­uðum.

Þrír hags­muna­að­ilar í íslenska bíla­geir­anum; Bíl­greina­sam­bandið, sem hefur bíla­um­boð innan sinna vébanda, Samtök versl­unar og þjón­ustu, þar sem stærstu olíu­fé­lög Íslands eru á meðal félaga og Samtök ferða­þjón­ust­unnar, sem gæta hags­muna bíla­leiga, risu upp á aft­ur­lapp­irnar vegna þessa áforma og rit­uðu sam­eig­in­legar umsagnir til Alþingis þar sem því var haldið fram að ekki væri tíma­bært hætta nið­ur­greiðslu tengilt­vinn­bíla – það væri lík­legt til að hægja á orku­skipt­unum og auka hlut­deild meira meng­andi bíla í nýskrán­ingum.

Sigurður Ingi segir að hann hafi ekki miklar áhyggjur af þeirri ákvörðun Alþingis, það sé ef til vill eðli­legt að trappa niður nið­ur­greiðslur á tengilt­vinn­bílum nú þegar það sé orðið mögu­legt.

„Úrval af hreinum raf­bílum er betra og þetta eru betri bílar, for­sendur fyrir fleiri að fara alla leið eru orðnar betri. En hins vegar hafa þeir virkað mjög vel sem brú, til þess að fá fleiri til þess að stökkva á snúr­una og taka skref, eitt­hvað skref í stað­inn fyrir ekk­ert skref,“ segir Sigurður Ingi og bætir við að hann sé „ekk­ert rosa­lega hræddur“ við að nið­ur­greiðsla tengilt­vinn­bíla fjari út þar sem að þró­unin í Evrópu og víðar hafi verið á þá leið að þeir séu að gefa eftir gagn­vart hreinu raf­bíl­unum, sem áfram verða nið­ur­greiddir til að stuðla að orku­skiptum í sam­göngum.

„Úrvalið af þeim er að verða svo gott og margar útgáfur, að þeir sem haf verið að taka þetta hálfa skref [og kaupa tengilt­vinn­bíl] eru að sýna vilja til að taka skrefið og ef þeir fá svo séns­inn á að taka skrefið alla leið munu þeir gera það og hefðu gert það ef bílar sem hent­uðu þörfum hvers og eins hefðu verið til,“ segir Sigurður Ingi.

Í umræð­unni um tengilt­vinn­bíla er stundum rætt um að erfitt sé að áætla raun­losun þess­ara bíla í dag­legri notkun, en rann­sóknir hafa sumar gefið til kynna að heilt yfir lín­una losi þeir umtals­vert meira magn gróð­ur­húsa­loft­teg­unda en opin­berar los­un­ar­tölur gefa til kynna, þar sem allur gangur sé á því hvort bíl­arnir séu hlaðnir raf­magni eða ekki.

Sigurður Ingi segir að sumar rann­sóknir á þessu hafi verið bjag­aðar, til dæmis ein frá Bret­landi sem tók til margra fyr­ir­tækja­bíla, sem eðli máls­ins sam­kvæmt eru nýttir á annan hátt en einka­bílar fólks. Hann segir að miðað við bens­ín­verð á Íslandi þurfi að „vera eitt­hvað sér­stakt í gangi“ til að eig­endur tengilt­vinn­bíla nýti sér það ekki að geta ekið tugi kíló­metra á hreinu raf­magni.

Til skoðunar að lengja í ívilnunum fyrir rafmagnsbíla

Samkvæmt tölum sem birtar voru í nýlegri sam­an­tekt fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins um orku­skipti fólks­bíla­flot­ans hafa íviln­anir vegna tengilt­vinn­bíla alls numið 12,4 millj­örðum íslenskra króna frá því að byrjað var að veita afslátt af virð­is­auka­skatti vegna þeirra árið 2012, þar af 3,8 millj­örðum bara í fyrra.

Á sama tíma er búið að veita 11 millj­arða króna skatta­af­slætti vegna kaupa á hreinum raf­bílum, þar af um 5 millj­arða króna á síð­asta ári. Þá bera hrein­orku­bílar engin vöru­gjöld, sem einnig lækkar mark­aðs­verð þess­ara bíla.

Í áður­nefndri sam­an­tekt ráðu­neyt­is­ins fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins frá 6. jan­úar segir að ráðu­neytið hafi þegar haf­ist handa við að skoða mögu­leik­ann á því að auka við þann kvóta raf­magns­bíla sem verði nið­ur­greiddir, í ljósi mark­miða stjórn­valda um orku­skipti í sam­göngum og aðgerða­á­ætl­unar stjórn­valda í lofts­lags­málum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár