Mynd: Stjórnarskrárfélagið

Stjórnarskrárdraugurinn vakinn með öflugri undirskriftarsöfnun og peningum úr fortíðinni

Á árinu sem er að líða safn­aði hópur alls rúm­lega 43 þús­und und­ir­skriftum til stuðn­ings nýju stjórn­ar­skránni. Hópnum tókst að vekja athygli á sér með ýmsum hætti, meðal ann­ars vel heppn­uðu veggjakroti.

Nýja stjórn­ar­skráin er orðin næstum ára­tuga­gömul. Saga hennar hófst haustið 2009 og henni átti að ljúka í októ­ber 2012, með ráð­gef­andi þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Þannig fór þó ekki.

Þótt nið­ur­staða atkvæða­greiðsl­unnar hafi sú að 64,2 pró­sent þeirra sem tóku þátt hafi sagt já við því að til­lögur svo­kall­aðs stjórn­laga­ráðs yrðu lagðar til grund­vallar að frum­varpi að nýrri stjórn­ar­skrá þá er stjórn­ar­skráin enn alveg eins og hún var þennan dag í októ­ber 2012.

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis tók frum­varpið svo til með­ferðar, gerði á því breyt­ingar og lagði fram á þing­inu. Þar tókst ekki að koma því í gegn fyrir kosn­ing­arnar 2013 og þannig hafa mál staðið síðan þá.

Ferli í átt frá nýrri stjórnarskrár

Þótt fyr­ir­ferða­mik­ill og hávær hópur fólks sem vill nýju stjórn­ar­skránna hafi haldið uppi linnu­lausri bar­áttu fyrir henni alla tíð síðan þá hefur lítið þok­ast.

Í stjórn­ar­sátt­mála þeirrar óvenju­legu rík­is­stjórnar sem nú situr að völdum – skipuð flokkum frá vinstri, yfir miðju og til hægri – kom fram að rík­is­stjórnin myndi „halda áfram heild­ar­end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar í þverpóli­tísku sam­starfi með aðkomu þjóð­ar­innar og nýta meðal ann­ars til þess aðferðir almenn­ings­sam­ráðs.“

Þeirri vinnu er nú lokið og hyggst Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra leggja fram frum­vörp um nokkrar breyt­ingar á stjórn­ar­skrá á yfir­stand­andi þingi, en sem venju­legur þing­maður.

Þeim sem vilja umfangs­miklar breyt­ingar á stjórn­ar­skránni þykir ekki mikið til þeirra áforma koma. Það sást til að mynda á því að alls 15 þing­menn Sam­fylk­ingar, Pírata, Flokks fólks­ins og tveir utan flokka lögðu fram eigið frum­varp til stjórn­skip­un­ar­laga á Alþingi sem byggir á til­lögum stjórn­laga­ráðs að nýrri stjórn­ar­skrá, en með þeim breyt­ingum sem stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd gerði á því 2013.

Það frum­varp á enga mögu­leika að verða sam­þykkt. Um tákn­ræna fram­lögn var að ræða.

Söfnuðu 74 prósent fleiri undirskriftum en stefnt var að

Helst and­stæð­ingar stjórn­ar­skrár­breyt­inga töldu að sig­ur­inn væri unnin í þessu máli. Með hverju árinu yrði erf­ið­ara að vekja draug nýju stjórn­ar­skrár­innar af því dái sem hann hafði verið í frá vor­inu 2013. Von bráðar mætti taka tækin sem héldu í honum veiku lífi úr sam­bandi og nýja stjórn­ar­skráin yrði öll um ókomna tíð.

Við þær aðstæður, og þá stemmn­ingu, réð­ust Samtök kvenna um nýja stjórn­ar­skrá, í sam­vinnu við Stjórn­ar­skrár­fé­lag Íslands, í það verk­efni sum­arið 2020 að safna und­ir­skriftum til að hvetja Alþingi til að klára sam­þykkt nýju stjórn­ar­skrár­innar.

Mark­miðið var að safna að minnsta kostið 25 þús­und und­ir­skriftum. Þegar und­ir­skrift­irnar voru afhentar Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra og öðrum full­trúum stjórn­mála­flokka þann 20. októ­ber, þegar átta ár voru liðin upp á dag frá því að þjóð­ar­at­kvæða­greiðslan hafði farið fram, höfðu 43.423 skrifað undir. Verk­efnið hafði skilað því að Samtökum kvenna um nýja stjórn­ar­skrá tókst að ná í 74 pró­sent fleiri und­ir­skriftir en upp­haf­lega var stefnt að.

Ein fyrirsvarsmanna átaksins er Katrín Oddsdóttir, lögmaður og aðgerðarsinni.
Ein fyr­ir­svars­manna átaks­ins er Katrín Odds­dóttir, lög­maður og aðgerð­ar­sinni.

Samhliða tókst að end­ur­vekja umræðu um það ferli sem félagið, og þeir sem að því standa, hafa barist fyrir að verði við­ur­kennt sem hið rétta til að smíða nýjan sam­fé­lags­sátt­mála. Það er ferli sem hófst með tveimur Þjóð­fundum, sem haldnir voru 2009 og 2010, leiddi til kosn­inga til stjórn­laga­þings og síðar til skip­unar stjórn­laga­ráðs eftir að kosn­ingin á stjórn­laga­þingið var dæmd ólög­mæt og þess frum­varps um inni­hald nýrrar stjórn­ar­skrár sem hin ráð­gef­andi þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla fór svo fram um 20. októ­ber 2012.

Þrjár milljónir frá einum aðila

Hópurinn sem stóð að und­ir­skrifta­söfn­un­inni vann allt starf sitt í sjálf­boða­vinnu. Til þess að ná nægj­an­legri athygli þá þurfti fjár­muni til að kosta birt­ingu á efni frá félag­inu í fjöl­miðlum og á sam­fé­lags­miðlum þar sem vakin yrði athygli á söfn­un­inni.

Þess vegna var farið að safna.

Fjár­öfl­unin var með ýmsum hætti. Mest áhersla var lögð á fram­lög frá ein­stak­lingum, fram­lög vegna sölu bóka og vegna sölu á töskum og bolum. Fyrstu fram­lögin komu inn á reikn­ing Stjórn­ar­skrár­fé­lags­ins í byrjun maí 2020 og í lok októ­ber höfðu alls safn­ast 4.415.184 krónur.

Flest fram­lögin komu frá ein­stak­lingum. Kjarninn fékk aðgengi að yfir­liti yfir þau og þar sást að uppi­staðan eru örfram­lög. Flestir ein­stak­lingar gefa nokkur þús­und krónur. Samtals nema ofan­greind fram­lög rúm­lega 1,4 milljón króna.

Þá stóðu eftir þrjár millj­ónir króna sem Stjórn­ar­skrár­fé­lag­inu tókst að safna. Þær komu frá einum aðila.

Mauraþúfan sem safnaði milljónum

Í aðdrag­anda fyrri Þjóð­fund­ar­ins, sem hald­inn var 2009, var mynd­aður und­ir­bún­ings­hópur ein­stak­linga með afar ólíkan bak­grunn. Þessi hópur taldi sig eiga það sam­eig­in­legt að hafa talað fyrir skipu­lagðri sam­eig­in­legri umræðu og hug­mynda­vinnu meðal þjóð­ar­innar til þess að finna bestu leið­ina til fram­fara við nýjar aðstæður. Hópurinn kall­aði sig Maura­þúf­una með vísan til þess sem á ensku hefur verið kallað „Collective Intelligence“. Þegar sam­tökin voru form­lega stofnuð, í sept­em­ber 2009, sagði í til­kynn­ingu til fyr­ir­tækja­skrár að til­gangur þeirra væri „að halda Þjóðfund og fylgja honum eftir.“

Um var að ræða hóp sem var nokkuð flæð­andi að stærð. Um tíma kom starf­aði tón­list­ar­konan Björk Guð­munds­dóttir með honum. Um tíma Guðfinna Bjarna­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Og um tíma var Ólafur Steph­en­sen, fyrr­ver­andi rit­stjóri bæði Frétta­blaðs­ins og Morg­un­blaðs­ins og núver­andi fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda, á meðal þeirra sem sagðir voru til­heyra hópnum á heima­síðu Þjóð­fund­ar­ins.

Kjarninn í Maura­þúf­unni voru þó þeir níu ein­stak­lingar sem skip­uðu stjórn sam­tak­anna. Og skipa hana enn sam­kvæmt þeim gögnum sem aðgengi­leg eru í fyr­ir­tækja­skrá.

Á meðal þeirra voru núver­andi heil­brigð­is­ráð­herra Svandís Svav­ars­dóttir, Halla Tóm­as­dóttir sem síðar fór í for­seta­fram­boð og frum­kvöð­ull­inn Guðjón Már Guð­jóns­son, oft­ast kenndur við OZ. Aðrir með­limir voru Bjarni Snæbjörn Jónsson, Gunnar Jón­atans­son, Haukur Ingi Jónasson, María Ell­ing­sen, Þorgils Völ­und­ar­son og Lárus Ýmir Ósk­ars­son, sem var kjör­inn for­maður stjórnar.

Þjóðfundurinn sem fram fór árið 2009.
Þjóð­fund­ur­inn sem fram fór árið 2009.

Fjöl­margir aðilar, ein­stak­lingar, fyr­ir­tæki, stofn­anir og félaga­sam­tök lögðu til fé svo að Þjóð­fund­ur­inn yrði að veru­leika. Útlagður kostn­aður við funda­haldið var áætl­aður um 27 millj­ónum króna á end­anum. Rík­is­stjórn, Reykja­vík­ur­borg og ríf­lega 70 fyr­ir­tæki, sveit­ar­fé­lög, félaga­sam­tök, stofn­anir og ein­stak­lingar voru í hópi stuðn­ings­að­ila. Þar af lagði rík­is­stjórn Íslands til sjö millj­ónir króna úr rík­is­sjóði og Reykja­vík­ur­borg lán­aði Laug­ar­dals­höll­ina undir fund­inn.

Einn laun­aður starfs­maður var við verkið, verk­efn­is­stjór­inn, Kristín Erna Arn­ar­dóttir. Hún var ráðin tíma­bundið og laun hennar greidd af þeim frjálsu fram­lögum, sem verk­efnið hafði fengið.

Þegar Þjóð­fund­ar­verk­efn­inu lauk voru enn til fjár­munir. Samkvæmt því sem kom fram á styrkt­ar­síðu verk­efn­is­ins átti að setja það fé sem eftir sat í „kostnað við eft­ir­fylgni við Þjóð­fund­inn“.

Féð var sett inn á banka­reikn­ing hjá Spari­sjóði Suður-Þing­ey­inga og þar lá það fram á sum­arið 2020. Þegar stjórn Maura­þúf­unnar, sem hafði þá ekki hist árum saman, barst beiðni um styrk.

Beint framhald af Þjóðfundinum 2009

Sú beiðni kom frá stjórn Stjórn­ar­skrár­fé­lags­ins. Í henni sitja Katrín Odds­dóttir for­maður, Sigurður Hr. Sig­urðs­son rit­ari og Kristín Erna Arn­ar­dóttir gjald­keri, sem hafði starfað við Þjóð­fund­inn 2009 sem verk­efna­stjóri.

Með beiðn­inni fylgdi áætlun um fram­kvæmd og kostnað verk­efn­is­ins. Í henni var meðal ann­ars farið yfir hvernig tíma­lína þess yrði frá miðjum júlí­mán­uði og fram að 20. októ­ber, þegar und­ir­skriftir yrðu afhentar. Samkvæmt kostn­að­ar­á­ætlun átti verk­efnið að kosta um 3,3 millj­ónir króna. Þorri þess kostn­aðar féll til vegna birt­inga á aug­lýs­ingum.

Stjórn Maura­þúf­unnar sam­þykkti beiðn­ina. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans þá setti eng­inn í stjórn sam­tak­anna sig á móti því að fjár­mun­unum sem legið höfðu á banka­reikn­ingi norður í landi í öll þessi ár yrði ráð­stafað með þessum hætti.

Þann 15. sept­em­ber síð­ast­lið­inn voru þrjár millj­ónir króna milli­færðar inn á reikn­ing Stjórn­ar­skrár­fé­lags­ins.

Það er ekki hægt að þvo burt skilaboð sem eiga erindi

Kjarninn óskaði eftir því að fá að sjá yfir­lit yfir útgjöld vegna und­ir­skrifta­söfn­unar félags­ins, og fékk það. Í þeim gögnum sést að kostn­aður alls var rúm­lega 16 pró­sent undir áætlun. Heild­ar­kostn­aður var tæp­lega 2,8 millj­ónir króna. Nær allur kostn­aður var vegna birt­ingar á aug­lýs­ingum í fjöl­miðlum og á sam­fé­lags­miðlum, líkt og lagt hafði verið upp með í kostn­að­ar­á­ætlun. Kostn­aður við það átak sem vakti einna mesta athygli á verk­efn­inu, þegar veggur sem þegar var þak­inn veggjakroti var mál­aður með orð­unum „Hvar er nýja stjórn­ar­skráin?“, var sára­lít­ill. Máln­ingin kost­aði 168 þús­und krónur og pizzur fyrir mál­ar­anna 22 þús­und krónur.

Sjálf­boða­liðar á vegum verk­efn­is­ins höfðu vikum saman verið að koma skila­boðum þess fyrir á öðrum svæðum í höf­uð­borg­inni þar sem að veggjakrot var þegar til staðar. En í októ­ber var ákveðið að mála stórt vegg­lista­verk á vegg við bíla­stæði milli Sölv­hóls­vegar og Skúla­götu, við hlið atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins. Sú aðgerð var þó ekki á vegum Samtaka kvenna um nýja stjórn­ar­skrá né Stjórn­ar­skrár­fé­lags­ins, heldur stóð Narfi Þor­steins­son og skilta­málun hans fyrir henni.

Tveimur dögum eftir að verkið var full­klárað lét rekstr­ar­fé­lag stjórn­ar­ráðs­ins háþrýsti­þvo skila­boðin í burtu, eftir að ábend­ing hafði borist frá ráðu­neyt­inu. það var í fyrsta sinn sem að vegg­ur­inn, sem hefur verið úta­t­aður í veggjakroti árum saman, var þrif­inn. Annar veggur við hlið hans sem er líka þak­inn vegg­list, en inni­heldur ekki póli­tísk skila­boð, fékk að standa óáreittur.

Vegglistaverkið sem var háþrýstiþvegið af.
Vegg­lista­verkið sem var háþrýsti­þvegið af.

Ákvörðun stjórn­ar­ráðs­ins að þrífa skila­boðin í burtu var það besta sem gat gerst fyrir und­ir­skrifta­söfn­un­ina. Athæfið varð frétt á öllum miðlum lands­ins og það rataði í umræður í þing­sal þar sem Jón Þór Ólafs­son, þing­maður Pírata, sagði meðal ann­ars: „Það er tákn­rænt að þegar stjórn­völd kom­ast ekki lengur upp með það að sópa nýju stjórn­ar­skránni undir teppið þá bein­línis háþrýsti ­þvo þau burt sann­leik­ann um van­virð­ingu þeirra við þjóð­ar­vilj­ann.“

Í kjöl­farið réðst Stjórn­ar­skrár­fé­lagið í að mála vegg­lista­verkið á annan vegg, skammt frá þeim sem hafði verið þrif­inn. Það verk stendur enn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2020

Pistill

Sandra B. Franks

Far­ald­ur­inn yfir­skyggði allt

Á við­burða­ríku ári sem nú er liðið yfir­skyggði Covid-19 far­ald­ur­inn allt annað. Hann reyndi veru­lega á starfs­þrek heil­brigð­is­starfs­manna og ekki síst okkur sjúkra­liða. Mörg okkar voru í fram­lín­unni. Aðrir sjúkra­liðar stóðu vakt­ina í störfum sem ekki voru síður mik­il­væg. Ég er mjög stolt af því hve frá­bær­lega sjúkra­liða­stéttin hefur staðið sig í Covid far­aldr­inum. Hann hefur svo sann­ar­lega beint athygl­inni...

Mest lesið undanfarið ár