Mynd: samsett

Nær enginn munur á fylgi Sósíalistaflokks og Flokks fólksins en bara annar nær inn

Engar breyt­ingar eru á skipt­ingu borg­ar­full­trúa á milli kosn­inga­spáa. Sam­fylk­ingin heldur áfram að bæta lít­il­lega við sig og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn þok­ast upp á við í fyrsta sinn í nokkrar vikur.

Engar breyt­ingar eru á skipt­ingu borg­ar­full­trúa milli flokka frá síð­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Dr. Baldurs Héð­ins­sonar. Átta flokkar mæl­ast enn með mann inni og þeir flokkar sem sitja í meiri­hluta í dag og eru í fram­boði mæl­ast enn með tólf borg­ar­full­trúa. Þar með myndi meiri­hlut­inn halda ef kosið yrði í dag.

Sam­fylk­ingin mælist sem fyrr stærsti flokk­ur­inn í höf­uð­borg­inni, líkt og hún hefur verið frá því í lok mars, með 31,8 pró­sent fylgi. Það myndi skila henni átta borg­ar­full­trúum og sá níundi er ekki langt frá því að ná inn líka.

Fylgi Sam­fylk­ingar hefur verið að aukast hægt og rólega á und­an­förnum vikum. Í byrjun maí var það til að mynda 28,3 pró­sent en hefur hækkað í hverri spá sem gerð hefur verið síðan þá. Fylgið nú er nán­ast það sama og það var í kosn­ing­unum 2014, þegar Sam­fylk­ingin fékk 31,9 pró­sent atkvæða.

Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks tekur stökk upp á við í nýj­ustu spánni eftir að hafa dalað í hverri ein­ustu spá frá því í lok apríl. Nú mælist það 26 pró­sent sem myndi skila sjö borg­ar­full­trúum. Sá síð­asti inn er þó valtur í sessi og lítið þyrfti út af að bregða til að borg­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks yrði sex.

Þessir tveir flokkar, Sam­fylk­ing og Sjálf­stæð­is­flokkur, eru í sér­flokki í borg­inni. Alls 57,6 pró­sent kjós­enda ætla að kjósa þá og miðað við núver­andi stöðu myndu þeir fá 65 pró­sent borg­ar­full­trúa. Nær öruggt er að annar hvor odd­vita flokk­anna, Dagur B. Egg­erts­son eða Eyþór Arnalds, verði borg­ar­stjóri í Reykja­vík eftir kosn­ing­arnar á morgun.

Framsókn sækir á

Af þeim fram­boðum sem mæl­ast með minna fylgi hafa Píratar og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn verið að styrkja stöðu sína mest á síð­ustu dögum. Píratar mæl­ast nú með 9,7 pró­sent fylgi og eru mun nær því að ná inn þriðja manni sínum en að tapa öðrum þeirra sem nú mæl­ast inni. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er einn þeirra flokka sem hefur verið með í kringum þriggja pró­senta fylgi sem mælist stundum inni í spám Kjarnans og stundum ekki. Frá 17. maí hefur flokk­ur­inn hins vegar bætt við sig 0,6 pró­sentu­stigum og mælist með 3,5 pró­sent fylgi. Það ætti að skila Ingvari Mar Jónssyni í borg­ar­stjórn.

Sós­í­alista­flokk­ur­inn hefur einnig verið að ná eft­ir­tekt­ar­verðum árangri og Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, odd­viti hans, er sem stendur inni. Miðað við nýj­ustu kosn­inga­spánna er fylgi Sós­í­alista­flokks­ins og Flokks fólks­ins það sama, eða 3,2 pró­sent. Það myndi því ekki muna nema hand­fylli atkvæða á því að Kolbrún Bald­urs­dóttir, odd­viti Flokks fólks­ins, myndi fella Sönnu Magda­lenu út.

Fjárlægur draumur um fjóra

Vinstri græn halda áfram að falla í fylgi. Það mælist nú 7,3 pró­sent, sem er heilu pró­sentu­stigi minna en flokk­ur­inn fékk 2014. Sem stendur rétt dugar það til að ná inn tveimur mönnum en flokk­ur­inn er mun nær því að tapa öðrum þeirra en að ná inn þriðja mann­inum. Þessi staða er athygl­is­verð í ljósi þess að fyrir tveimur mán­uðum síðan mæld­ist fylgi Vinstri grænna í kosn­inga­spánni 12,2 pró­sent.

Viðreisn hefur einnig verið að dala og virð­ist geta kvatt þann draum að ná öðrum manni síns lista, Pawel Bartoszek, inn í borg­ar­stjórn nema að miklar breyt­ingar eigi sér stað næsta sól­ar­hring­inn. Fylgi flokks­ins, sem er 5,9 pró­sent, er nú í fyrsta sinn undir sex pró­sentum frá því í byrjun mars. Hæst mæld­ist það 7,6 pró­sent þann 10. apríl.

Mið­flokk­ur­inn, með Vigdísi Hauks­dóttur í vík­inga­ham í far­ar­broddi, er einnig að missa flugið. Frá 8. maí hefur flokk­ur­inn misst 1,2 pró­sentu­stig og mælist nú með 5,5 pró­sent fylgi. Draumur Vigdísar um að ná fjórum mönnum inn virð­ist því mjög fjar­lægur eins og stendur.

Eins og staðan er í dag myndu borg­ar­full­trú­arnir skipt­ast með eft­ir­far­andi hætti:

  • Sam­fylk­ing myndi fá átta borg­ar­full­trúa
  • Sjálf­stæð­is­flokkur myndi fá sjö borg­ar­full­trúa
  • Píratar myndu fá tvo borg­ar­full­trúa
  • Vinstri græn myndu fá tvo borg­ar­full­trúa
  • Mið­flokkur myndi fá einn borg­ar­full­trúa
  • Viðreisn myndi fá einn borg­ar­full­trúa
  • Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn myndi fá einn borg­ar­full­trúa
  • Sós­í­alista­flokkur Íslands myndi fá einn borg­ar­full­trúa

Þær kann­anir sem liggja til grund­vallar nýj­ustu kosn­inga­spánni (25. maí) eru eft­ir­far­andi:

  • Gallup fyrir Við­skipta­blaðið 2. – 14. maí (22,4 pró­sent)
  • Þjóð­mála­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 17. – 21. maí (37,6 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins 23. - 24. maí (40,0 pró­sent)

Hvað er kosn­inga­spá­in?

Fyrir hverjar kosn­ingar um allan heim birta fjöl­miðlar gríð­ar­legt magn af upp­lýs­ingum. Þessar upp­lýs­ingar eru oftar en ekki töl­fræði­legar, byggðar á skoð­ana­könn­unum þar sem fólk hefur verið spurt hvernig það upp­lifir stjórn­málin og hvað það getur ímyndað sér að kjósa. Stjórn­mála­fræð­ingar og fjöl­miðlar kepp­ast svo við að túlka nið­ur­stöð­urnar og veita almenn­ingi enn meiri upp­lýs­ingar um stöð­una í heimi stjórn­mál­anna.

Allar þessar kann­anir og allar mögu­legar túlk­anir á nið­ur­stöðum þeirra kunna að vera rugl­andi fyrir hinn almenna neyt­anda. Einn kannar skoð­anir fólks yfir ákveðið tíma­bil og annar kannar sömu skoð­anir á öðrum tíma og með öðrum aðferðum. Hvor könn­unin er nákvæm­ari? Hverri skal treysta betur? Svarið er oftar en ekki óljóst því vand­inn er að hinn almenni kjós­andi hefur ekki for­sendur til að meta áreið­an­leika hverrar könn­unar.

Þar kemur kosn­inga­spáin til sög­unnar.

Kosn­­inga­­spálíkan Bald­­urs Héð­ins­­sonar miðar að því að setja upp­­lýs­ing­­arnar sem skoð­ana­kann­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­inga. Nið­ur­stöður spálík­ans­ins eru svo birtar hér á Kjarn­anum reglu­lega í aðdrag­anda kosn­inga.

Síðasta kosn­inga­spáin fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar mun verða birt á morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2018

Mest lesið undanfarið ár