Mynd: EPA

Trump heldur fyrsta fundinn á slóðum fjöldamorðs

Donald Trump heldur í dag sinn fyrsta kosn­inga­fund frá því að far­aldur kór­ónu­veirunnar braust út. Fund­ur­inn fer fram í borg sem á sér blóð­uga for­tíð er farið hefur hljótt í að verða heila öld.

Hann hefur boðað til kosn­inga­fundar í íþrótta­höll og boðið þangað tæp­lega 20 þús­und manns á tímum far­sóttar. Hann hefur boðað til kosn­inga­fundar í borg þar sem framið var fjöldamorð á svörtu fólki við upp­haf þriðja ára­tugar síð­ustu aldar. Hann hefur boðað til fund­ar­ins á sama tíma og enda­loka þræla­halds í Banda­ríkj­unum er minnst í flestum ríkjum lands­ins.

Hann er Donald Trump. Borgin er Tulsa í Oklahoma-ríki. Fjöldamorðið, sem í ára­tugi var talað um sem „kynn­þátta­ó­eirðir“, hófst að kvöldi 31. maí árið 1921. Um ódæðið, sem er eitt það mann­skæð­asta í sögu ofbeldis gegn svörtum í Banda­ríkj­unum, hefur ekki verið mikið fjallað í sögu­bókum og fjöl­miðlum.

Þar til nú. Er Donald Trump, sem sæk­ist eftir end­ur­kjöri sem for­seti Banda­ríkj­anna, ákveður að halda sinn fyrsta kosn­inga­fund frá því að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hófst, aðeins nokkrum götum frá þeim stað þar sem um 300 manns voru drepin á aðeins átján klukku­tímum.

Það er ekki aðeins ótt­inn við að upp blossi hópsmit á fund­ar­staðnum sem hefur gert vart við sig heldur einnig við að fund­ur­inn eigi eftir að magna enn frekar upp spennu í sam­fé­lag­inu sem þegar hefur verið mikil eftir morðið á George Floyd.

En ákvörðun for­set­ans hefur einnig blásið lífi í kröfur um rétt­læti vegna fjöldamorðs­ins sem framið var í hinu blóm­lega Greenwood-hverfi sem oft var kallað „svarta Wall Street“.

Eftir fyrri heims­styrj­öld­ina, þegar aðskiln­að­ar­stefna var enn við lýði víðs­vegar um Banda­ríkin, óx sam­tökum hvítra þjóð­ern­is­sinna, m.a. Ku Klux Klan, fiskur um hrygg á ný. Árásir á svarta og skemmd­ar­verk á eigum þeirra voru tíðar. Við upp­haf þriðja ára­tugar síð­ustu aldar ein­kennd­ist borgin Tulsa af upp­gangi vegna olíu­gróða. Þar bjuggu yfir hund­rað þús­und manns. Aðskiln­aður ríkti og flestir svartir íbúar borg­ar­innar, um 10 þús­und tals­ins, bjuggu í Greenwood og þar stund­uðu margir þeirra blóm­leg við­skipti í hag­kerfi sem var nær lokað vegna aðskiln­að­ar­ins.

Í lyftunni

Þann 30. maí árið 1921 var svartur piltur á tán­ings­aldri, Dick Rowland, í vinn­unni í mið­borg Tulsa en þurfti að fara á sal­ernið í öðru húsi þar sem vinnu­veit­andi hans hafði ekki kló­sett fyrir svarta líkt og reglur gerðu ráð fyrir. Hann fór því í Drexel-bygg­ing­una og þar inn í lyftu. Lyftu­vörð­ur­inn Sarah Page, sem var einnig ung­lingur en hvít á hör­und, er sögð hafa sakað Rowland um áreitni í lyft­unni. Sumar fréttir þess tíma segja að hún hafi sakað hann um kyn­ferð­is­of­beldi og slógu fjöl­miðlar því upp á for­síðu. Lög­reglan var kölluð til og að morgni 31. maí hand­tók hún Rowland.

Fréttin sem varð til þess að múgurinn fór að dómshúsinu.
Fréttin sem varð til þess að múg­ur­inn fór að dóms­hús­inu.

Um kvöldið hafði múgur hvítra manna safn­ast saman fyrir utan dóms­húsið þar sem Rowland var í haldi. Krafðist fólkið þess að lög­reglu­stjór­inn afhenti pilt­inn. Því var neitað og vegna æsings­ins úti fyrir gættu margir lög­reglu­menn Rowlands á efstu hæð húss­ins. Seinna um kvöldið mætti hópur svartra manna á vett­vang í þeim til­gangi að bjóða aðstoð við að gæta ung­lings­pilts­ins. Lög­reglan vís­aði þeim hins vegar frá. Síðar um kvöldið kom hóp­ur­inn aftur að dóms­hús­inu þar sem enn var ótt­ast að æstur múg­ur­inn myndi ná til Rowlands og taka hann af lífi án dóms og laga.

Fyrir slíku voru mörg for­dæmi.

Svörtu menn­irnir voru innan við hund­rað. Heim­ildir herma að hinir hvítu hafi verið um 1.500. Í báðum hópum voru vopn­aðir menn. Skotum var hleypt af og ringul­reið ríkti. Ekki leið á löngu þar til þeir svörtu hörf­uðu inn í hverfið sitt, Greenwood.

Sú saga var á kreiki um kvöldið að svartir íbúar Tulsa ætl­uðu sér að safna liði frá nágranna­borgum og bæjum. Við­brögðin voru eftir því. Næstu klukku­stund­irnar komu margir hópar hvítra inn í hverfið. Þeir höfðu m.a. fengið vopn hjá yfir­völdum. Þar gengu þeir ber­serks­gang og frömdu fjöl­mörg ofbeld­is­verk.

Forsíða Tulsa World í kjölfar ódæðisverkanna.
Forsíða Tulsa World í kjöl­far ódæð­is­verk­anna.

Í dögun þann 1. júní höfðu þús­undir hvítra streymt inn í Greenwood. Þeir rændu versl­anir og heim­ili og brenndu bygg­ingar á stóru svæði. Slökkvi­liðs­menn sem komu á vett­vang greindu síðar frá því að þeim hafi verið hótað og byssum miðað á þá svo þeir urðu frá að hverfa.

Í nýlegri skýrslu sem unnin var af Rauða kross­inum kemur fram að kveikt hafi verið í 1.256 húsum og 215 til við­bótar voru rænd. Meðal þeirra bygg­inga sem voru eyði­lagðar voru skrif­stofur tveggja dag­blaða, skóli, bóka­safn, spít­ali, kirkjur og hótel. Heim­ildir benda til þess að flug­vélum hafi verið flogið yfir svæðið og úr þeim skotið og jafn­vel sprengjum varpað.

Þjóð­varð­lið var hvatt á vett­vang en er það kom var upp­þotið að mestu yfir­staðið. Um 6.000 manns voru hneppt í varð­hald í búðum sem komið var upp í sam­komu­húsum.

Seinna þann 1. júní hafði lög­reglan tekið ákvörðun um að ákæra ekki Dick Rowland. Lík­leg­ast þótti að hann hefði hrasað eða stigið á fót lyftu­varð­ar­ins Page. Honum var sleppt úr haldi, hann yfir­gaf Tulsa og hermt er að hann hafi aldrei snúið þangað aftur.

Lík á götu í Greenwood-hverfinu.
Lík á götu í Greenwood-hverf­inu.

Fyrsta opin­bera talan um mann­fallið var 36. Þar af hefðu tíu hvítir fallið. Þetta var mikið van­mat og mögu­lega vilj­andi blekk­ing. Í dag er talið að allt að 300 hafi fallið, aðal­lega svartir.

Fjöldamorðið í Tulsa var hvorki upp­haf né endir ofbeldis gegn svörtum í Oklahoma-ríki. Þar átti enn eftir að herða á aðskiln­aði og styrkur Ku Klux Klan óx á sama tíma. Þó að kveikj­una megi rekja til máls Dicks Rowlands var það ekki síður fyr­ir­litn­ing hvítra á batn­andi lífs­kjörum svartra í Greenwood sem var orsök upp­þots­ins.

Í ára­tugi var fjöldamorðs­ins vart minnst. Engar minn­ing­ar­at­hafnir voru haldnar og í raun var atvikið vís­vit­andi þaggað niður opin­ber­lega.

Tulsa Tribune, dag­blaðið sem að morgni 31. maí 1921 sló því upp á for­síðu að svartur piltur hefði beitt hvíta stúlku kyn­ferð­is­of­beldi, fjar­lægði for­síð­una úr gagna­söfnum sínum. Er sagn­fræð­ingar ætl­uðu að kynna sér gögn borg­ar­yf­ir­valda og lög­regl­unnar um málið kom í ljós að þau var hvergi að finna. Haugur af myndum sem lög­reglan hafði viðað að sér á sínum tíma var sömu­leiðis gufaður upp.

Það var ekki fyrr en á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar, fimm­tíu árum eftir atburð­ina, að fræði­menn fóru að graf­ast fyrir um hvað í raun og veru hafði gerst. Árið 1996 var í fyrsta skipti haldin opin­ber minn­ing­ar­at­höfn um fórn­ar­lömbin og minn­ing­ar­reitur í Greenwood afhjúp­aður. Þetta sama ár var sett á lagg­irnar rann­sókn­ar­nefnd á vegum Oklahoma-ríkis til að fara í saumana á mál­inu. Átti nefndin, sam­kvæmt skip­un­ar­bréfi, að rann­saka „kyn­þátta­á­tökin í Tulsa“ eins og atburð­ur­inn var þá ætíð kall­aður. Fjórum árum síðar skil­aði nefndin skýrslu og í henni kom fram að á bil­inu 100-300 manns hefðu fallið og að yfir átta þús­und hefðu misst heim­ili sín á þeim átján klukku­stundum sem árásin stóð yfir. Frá árinu 2000 hefur skólum í Oklahoma verið upp­álagt að fræða nem­endur um atburð­ina og árið 2004 var öllum skólum lands­ins gert að gera það. Í dag er talað um fjöldamorðið í Tulsa – ekki kyn­þátta­á­tökin.

Greenwood brennur morguninn eftir ódæðið.
Greenwood brennur morg­un­inn eftir ódæðið.

COVID-19, sjúk­dóm­ur­inn sem kór­ónu­veiran veldur, er útbreiddur í Tulsa. Ný til­felli í Tulsa-sýslu voru í gær hvergi fleiri hlut­falls­lega í öllu Oklahoma-ríki. Far­ald­ur­inn er enn í hámarki á þessum slóðum. Heil­brigð­is­yf­ir­völd í borg­inni hafa þess vegna biðlað til for­set­ans að fresta kosn­inga­fund­inum. Á þá bón hefur ekki verið hlustað. Hins vegar munu allir þeir sem mæta á kosn­inga­fund­inn skrifa undir skjal og stað­festa að þeir fari ekki í mál við kosn­ingateymi Trumps smit­ist þeir á fund­inum.

Trump og stuðn­ings­menn hans munu í dag standa á þeim slóðum þar sem fjöldamorðið var framið. Allt umhverfis íþrótta­höll­ina þar sem for­set­inn mun flytja ræðu og fá lófa­klapp, áttu hræði­legir atburðir sér stað. Þar er m.a. að finna ómerktar grafir. Þar voru svartir hund­eltir af hvítum æstum múg fyrir 99 árum, drepnir og líkin flutt í haugum í burtu áður en fjölda­grafir voru teknar. Sumum þeirra skol­aði upp að árbökkum dag­ana á eftir.

Enginn var, hvorki fyrr né síðar, ákærður fyrir ofbeld­is­verkin. Enginn hefur, hvorki fyrr né síðar, verið dreg­inn til ábyrgðar. Ekki einu sinni borg­ar­yf­ir­völd sem sannað þykir að hafi afhent múgnum vopn og litið svo undan á meðan blóðsút­hell­ing­arnar áttu sér stað.

En þetta kann að breyt­ast. Á næsta ári verður öld liðin frá fjöldamorð­inu. Og borg­ar­yf­ir­völd eru farin, að minnsta kosti að ein­hverju leyti, að horfast í augu við for­tíð­ina. Rann­sókn­ar­hópur hefur verið settur á stofn sem á að finna grafir fórn­ar­lambanna og reyna að bera kennsl á þau. Þetta verk­efni átti að hefj­ast fyrir nokkru en hefur frest­ast vegna far­ald­urs­ins.

Kevin Stitt, repúblikani og rík­is­stjóri Oklahoma, hefur boðið Trump í skoð­un­ar­ferð um Greenwood áður en að kosn­inga­fund­ur­inn hefst. Það hefur lagst illa í marga íbú­ana. Er mót­mæli brut­ust út eftir morðið á George Floyd í Minn­ea­polis vildi hann senda her­inn á vett­vang. Hann hefur svo ekki bein­línis tekið undir kröfur minni­hluta­hópa í land­inu frá því hann varð for­seti.

Mótmæli vegna valdníðslu lögreglunnar gagnvart svörtum standa enn í Bandaríkjunum.
Mótmæli vegna vald­níðslu lög­regl­unnar gagn­vart svörtum standa enn í Banda­ríkj­unum.

Það er ólík­legt að til­viljun hafi ráðið því að Trump heldur sinn fyrsta kosn­inga­fund í hund­rað daga í Tulsa þar sem hund­rað ár verða senn liðin frá blóð­baði. Hann hefur áður valið sér svið á stöðum sem vakið hafa sam­bæri­leg hug­hrif. Í kosn­inga­bar­átt­unni árið 2016 hélt hann fund í Milwaukee stuttu eftir að lög­reglu­maður hafði skotið svartan mann í bakið með þeim afleið­ingum að hann lést. Í kjöl­farið var mót­mælt harð­lega. „Ofbeldið, óeirð­irnar og eyði­legg­ingin sem hafa átt sér stað í Milwaukee er árás á rétt allra borg­ara til að búa við öryggi og til að búa við frið,“ sagði Trump af þessu til­efni, skammt frá þeim stað þar sem skotárásin var gerð. 

„Við höfum áhyggjur af öllum þessu fólki sem er að koma til rík­is­ins og einnig af þeim sem verður fylgt inn í sam­fé­lagið okkar til að heim­sækja menn­ing­ar­mið­stöð­ina í Greenwood. Það er eins og að bjóða þeim heim til okkar,“ hefur BBC eftir Therese Adunis. Afi hennar og amma lifðu ódæðin í Tulsa af og faðir hennar fædd­ist nokkrum mán­uðum eftir þau.

For­stöðu­maður menn­ing­ar­mið­stöðv­ar­innar, Mechelle Brown, segir að Greenwood og nágrenni sé heil­agur staður í hugum margra. Brown átti einnig sæti í rann­sókn­ar­nefnd­inni sem skil­aði skýrslu sinni um fjöldamorðin árið 2001. „Það er móðgun að [Trump] sé að koma hingað. Sér­stak­lega til staðar þar sem mögu­lega má finna fjölda­grafir og þar sem svartir flúðu á hlaupum til að reyna að bjarga lífi sínu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár