Niðurfelling fasteignaskatts fyrir 70 ára og eldri kostar Reykjavíkurborg 579 milljónir króna

Við­bót­ar­út­gjöld Reykja­vík­ur­borgar við nið­ur­fell­ingu fast­eigna­skatts á 70 ára og eldri yrðu 579 millj­ónir króna. Sjálf­stæð­is­menn á lista flokks­ins í borg­inni hafa lofað nið­ur­fell­ingu fast­eigna­skatts á íbúa á þessum aldri í borg­inni.

Við­bót­ar­út­gjöld Reykja­vík­ur­borgar við nið­ur­fell­ingu fast­eigna­skatts á 70 ára og eldri yrðu 579 millj­ónir króna. Þetta er fjár­hæðin sem fæst út ef gert er ráð fyrir að nið­ur­fell­ing skatts­ins eigi aðeins við um það hús­næði sem við­kom­andi býr í. Þetta kemur fram í svari Birgis Björns Sig­ur­jóns­sonar fjár­mála­stjóra borg­ar­innar.

Sjálf­stæð­is­menn á lista flokks­ins í borg­inni hafa lofað nið­ur­fell­ingu fast­eigna­skatts á íbúa á þessum aldri í borg­inni.

Tekjulitlir fá nú þegar afslátt

Sveit­ar­stjórn er nú þegar heim­ilt að lækka eða fella niður fast­eigna­skatt sem tekju­litlum elli- og örorku­líf­eyr­is­þegum er gert að greiða. Fyr­ir­komu­lag borg­ar­innar við útreikn­ing afslátta til lækk­unar fast­eigna­skatts og frá­veitu­gjalds fyrir árið 2018 not­ast við við­mið­un­ar­tekjur ein­stak­lings með tekjur allt að 3.910.000 krónur og hjón með tekjur allt að 5.450.000 krónur. Þær tekjur veita rétt til 100 pró­sent afsláttar af þessum gjöldum. Einnig er hægt að fá bæði 80 og 50 pró­senta lækkun á þessum gjöldum en þá hækka við­mið­un­ar­tekj­urnar.

Áætluð álagn­ing fast­eigna­skatta af íbúð­ar­hús­næði nemur 4.103 millj­ónum króna vegna árs­ins 2018. Áætlaðir afslættir tekju­lágra elli- og örorku­líf­eyr­is­þega nema 489 millj­ónum þannig að nettó­tekjur borg­ar­sjóðs nema þannig 3.614 millj­ónum sem felur í sér 12 pró­sent nettó­á­hrif. Í grunn­á­ætlun 2018 er gert ráð fyrir 6.238 afslátt­ar­þegum alls en 4.516 af þeim eru 70 ára eða eldri.

Afsláttarþegum myndi fjölga um þúsundir

Við­bót­ar­út­gjöld borg­ar­innar vegna nið­ur­fell­ingar fast­eigna­skatts á þennan hóp yrði sem fyrr segir 579 millj­ónir króna og á aðeins við um þá sviðs­mynd að nið­ur­fell­ing skatts­ins eigi aðeins við um það hús­næði sem við­kom­andi býr í.

Með lof­orði sjálf­stæð­is­manna myndi afslátt­ar­þegum fjölga um 4.307 og yrðu þá 10.545. Þar af yrðu 70 ára og eldri 8.823.

Í svari fjár­mála­stjór­ans eru einnig settar fram tölur sem gera ráð fyrir að bæði öllum elli- og örorku­líf­eyr­is­þegum 70 ára og eldri sem og ein­fald­lega öllum 70 ára og eldri sé veittur 100% afsláttur án til­lits til tekna þeirra og ann­arra skil­yrða núver­andi reglna sem gæti þýtt að afsláttur feng­ist af öllum íbúðum í eigu við­kom­andi.

Í fyrri sviðs­mynd­inni þar sem allir elli- og örorku­líf­eyr­is­þegar 70 ára og eldri fá afslátt­inn án til­lits til tekna og ann­arra skil­yrða myndi það fela í sér 659 millj­óna króna við­bót­ar­út­gjöld af hálfu borg­ar­innar. Afslátt­ar­þegum myndi fjölga um 5.199, yrðu 11.437 og þar af 9.175 sem eru 70 ára og eldri.

Í þeirri síð­ari þar sem allir 70 ára og eldri fá afslátt­inn án til­lits til tekna og ann­arra skil­yrða myndi það fela í sér 921 millj­óna króna við­bót­ar­út­gjöld af hálfu borg­ar­innar. Afslátt­ar­þegum myndi fjölga um 7.881, yrðu 14.119 og þar af 12.397 sem eru 70 ára og eldri.

Í máli Eyþórs Arnalds odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík hefur hins vegar komið fram að flokk­ur­inn hafi aðeins átt við það íbú­ar­hús­næði sem við­kom­andi búi í.

Tillagan stríði gegn lögunum

Reglur Reykja­vík­ur­borgar um afslætti á fast­eigna­gjöldum byggja á ákvæðum laga um tekju­stofna sveit­ar­fé­laga en þar segir: Heimilt er sveit­ar­stjórn að lækka eða fella niður fast­eigna­skatt sem tekju­litlum elli- og örorku­líf­eyr­is­þegum er gert að greiða.

Í svari fjár­mála­stjór­ans kemur fram að til­laga Sjálf­stæð­is­flokks­ins stríði gegn þessa heim­ild­ar­á­kvæðis lag­anna.

Sam­göngu­ráðu­neytið birti frétt á vef sínum í síð­ustu viku þar sem fram kom að óheim­ilt sé að veita afslátt með vísan til ákvæð­is­ins, án þess að tekið sé til­lit til tekna þeirra sem hans eiga að njóta. Fastur afsláttur án til­lits til tekna sé því ekki í sam­ræmi við áskilnað ákvæð­is­ins um tekju­lága ein­stak­linga þar sem hann kemur öllum líf­eyr­is­þegum til góða, án til­lits til þess hvaða tekjur þeir hafa.

Vestmannaeyjar til skoðunar vegna brota

Á árinu 2013 ákvað inn­an­rík­is­ráðu­neytið að taka til skoð­unar fram­kvæmd Vest­manna­eyja­bæjar að þessu leyti en þá lá fyrir að bæj­ar­stjórn hafði á árunum 2012 og 2013 fellt niður fast­eigna­gjöld á íbúð­ar­hús­næði í eigu elli­líf­eyr­is­þega, 70 ára og eldri, sem nýtt var af þeim til búsetu, óháð tekjum. Bæj­ar­stjórn Vest­manna­eyja­bæjar sam­þykkti nýjar reglur um afslátt af fast­eigna­gjöldum vegna árins 2015, þar sem afslátt­ur­inn var tekju­tengdur, og taldi ráðu­neytið því ekki til­efni til frek­ari aðgerð.

Samkvæmt upp­lýs­ingum á heima­síðu Vest­manna­eyja­bæjar er afsláttur af fast­eigna­gjöldum hjá tekju­lágum elli- og örorku­líf­eyr­is­þegum enn tekju­tengdur.

Í ljósi þess að fram hafa komið upp­lýs­ingar í fjöl­miðlum um að fram­kvæmd Vest­manna­eyja­bæjar á álagn­ingu fast­eigna­skatts kunni þrátt fyrir þetta að fara gegn ákvæðum lag­anna að þessu leyti, hefur sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytið, sveit­ar­stjórn­ar­laga, ákveðið að kalla eftir upp­lýs­ingum og gögnum frá Vest­manna­eyjabæ varð­andi það hvernig staðið hefur verið að fram­kvæmd þess­ara mála und­an­farin ár. Í fram­haldi af því hyggst ráðu­neytið meta hvort til­efni er til að taka stjórn­sýslu sveit­ar­fé­lags­ins að þessu leyti til form­legrar skoð­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattamál

Mest lesið undanfarið ár