Mynd: Wikimedia

25 ára Reykjanesbær stendur betur en nokkru sinni fyrr

Reykja­nes­bær var fyrir nokkrum árum skuld­settasta sveit­ar­fé­lag lands­ins og skuldir þess námu um 250 pró­sent af reglu­legum tekjum þess. Á örfáum árum hefur orðið mikil við­snún­ingur.

Reykja­nes­bær varð til fyrir nákvæm­lega ald­ar­fjórð­ungi síðan, 11. júní 1994, þegar bæj­ar­fé­lögin Keflavík, Njarðvík og Hafnir sam­ein­uð­ust undir því nafni. Sveit­ar­fé­lagið er í dag fjórða stærsta sveit­ar­fé­lag lands­ins með 19.020 íbúa, eftir að hafa nýverið tekið fram úr Akureyri sem lengi hefur vermt það sæti. Íbúar höf­uð­staðar Norð­ur­lands voru, sam­kvæmt tölum Hagstofu Íslands, 18.950 í lok mars síð­ast­lið­ins.

Ferðalag þessa sveit­ar­fé­lags síð­ustu 25 árin hefur verið mikil rús­sí­ban­areið. Stórir vinnu­staðir hafa lokað með til­heyr­andi búsifjum, til­raunir til við­bragðs mis­tek­ist hrapa­lega, end­ur­reisn átt sér stað og henni hafa fylgt ýmis konar ný vanda­mál.

Þá vakti nafna­breyt­ingin sjálf upp hörð við­brögð hjá hluta íbúa, sem skil­greina sig margir hverjir enn sem Kefl­vík­inga, Njarð­vík­inga eða Hafn­ar­búa. Tón­list­ar­mað­ur­inn Rúnar Júl­í­us­son heit­inn, einn ást­sæl­asti sonur Kefla­víkur, hót­aði því meðal ann­ars að flytja úr sveit­ar­fé­lag­inu ef breyt­ingin gengi í gegn. Af því varð þó ekki og hann bjó þar til ævi­loka.

Herinn fór og tilraunir mistókust

Það hafa skipst á skin og skúrir í Reykja­nesbæ frá því að sveit­ar­fé­lagið varð til, sér­stak­lega á síð­ustu árum. Árið 2006 hvarf Banda­ríkja­her frá land­inu og þar með lok­aði stærsti vinnu­staður þess sem tryggði Reykja­nesbæ auk þess marg­hátt­aðar tekjur.

Til að bregð­ast við þeirri stöðu hófu stjórn­mála­menn, meðal ann­ars í bæj­ar­stjórn Reykja­nes­bæj­ar, að beita sér fyrir upp­bygg­ingu iðn­að­ar­svæðis í Helgu­vík. Sam­hliða gekkst Reykja­­nes­­bær í ábyrgð fyrir millj­­arða króna ­upp­­­bygg­ingu hafnar á svæð­inu. Hug­myndin var sú að höfnin myndi síðar skila sveit­ar­fé­lag­inu miklum tekjum þegar stór­iðju­fyr­ir­tæki hæfu starf­semi sína þar. Þá var lagt í átak við að fjölda íbúum sveit­ar­fé­lags­ins með ódýrum lóða­út­deil­ingum.

Íbúum í Reykja­nesbæ fjölg­aði um 30 pró­sent á árunum 2005 til 2009. Það var líka ákveðið að selja allar verð­mæt­ustu eignir sveit­ar­fé­lags­ins, þar á meðal eign­ar­hlut­inn í HS Orku. Á þessu tíma­bili, 2003 til 2014, skil­aði var A-hluti Reykja­nes­bæjar rek­inn í tapi öll árin utan eins, það var árið 2010.

Gripið til neyðaraðgerða

Sam­an­dregið þá fór áætl­unin um við­bragð við brott­hvarfi hers­ins ekki eins og lagt var upp með. Þess í stað end­aði Reykja­nes­bær sem eitt skuld­­settasta sveit­­ar­­fé­lag lands­ins og rekstur þess árum saman var afleitur. Á tíma­bil­inu 2003 til 2014 var A-hluti Reykja­­nes­bæjar rek­inn í tapi öll árin utan eins, það var árið 2010.

Vegna þessa þurfti sveit­ar­fé­lagið meðal ann­ars að leggja auknar skatt­byrðar á íbúa sína.

Þessi staða varð meðal ann­ars til þess að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn missti hreinan meiri­hluta sinn í kosn­ing­unum 2014. Nýr meiri­hluti Sam­fylk­ingar, Beinnar leiðar og Frjáls afls tók við og réð Kjartan Már Kjart­ans­son sem bæj­ar­stjóra.

Kjartan Már Kjartansson tók við sem bæjarstjóri 2014.
Kjartan Már Kjart­ans­son tók við sem bæj­ar­stjóri 2014.

Verk­efnið sem sveit­ar­fé­lagið stóð frammi fyrir á þessum tíma var gríð­ar­lega umfangs­mikið. Reykja­nes­bær var skuld­settasta sveit­ar­fé­lag lands­ins. Skuldir þess voru tæp­lega 41 millj­arður króna í lok árs 2014, eða rúm­lega 250 pró­sent af reglu­legum tekjum sveit­ar­fé­lags­ins en sam­kvæmt sveit­ar­stjórn­ar­lögum sem tóku gildi árið 2012 var leyfi­legt skulda­hlut­fall að hámarki 150 pró­sent. Skulda­staða Reykja­nes­bæjar var því bein­leiðis í and­stöðu við lög.

Fjár­fest­ing­arnar sem ráð­ist hafði verið í skil­uðu mun minna til baka er vonir stóðu til um. Skuldir vegna hafn­ar­upp­bygg­ing­ar­innar voru orðar 7,5 millj­arðar króna árið 2015. Margir þeirra sem fengu lóðir í sveit­ar­fé­lag­inu stóðu ekki undir þeirri skuld­bind­ingu og Íbúða­lána­sjóður tók yfir húsin þeirra. Alls voru rúm­lega 40 pró­sent allra eigna sem Íbúða­lána­sjóður hélt á árið 2015 á Suð­ur­nesj­um. Á því ári voru 17 pró­sent íbúa á svæð­inu í alvar­legum van­skilum sem var hæsta hlut­fall van­skila á land­inu. Lang­tíma­at­vinnu­leysi var líka mikið vanda­mál í sveit­ar­fé­lag­inu.

Ráðist í „Sóknina“

Til að bregð­ast við þessu var ráð­ist í aðgerð­ar­á­ætlun til átta ára, sem kall­að­ist „Sóknin“. Helst mark­mið hennar var að ná skulda­hlut­fall­inu niður fyrir 150 pró­sent fyrir árið 2021. Í þessu átaki fólst að íbúar þurftu að bera auknar burðar. Lagt var auka­á­lag ofan á hámarks­út­svar, fast­eigna­skattar hækk­aðir, föst yfir­vinna bæj­ar­starfs­manna lögð af, öku­tækja­styrkir aflagðir, fagsviðum fækkað og ýmsum milli­stjórn­endum sagt upp störfum.

Í hálkunni milli jóla og nýárs 2014 var íbúum boðið að koma og sækja sand til að dreifa á stétt­ina hjá sér. Það voru ekki til bæj­ar­starfs­menn til að sinna því við­viki.

Í febr­úar 2015 skrif­aði nýr bæj­ar­stjóri, Kjartan Már, grein þar sem hann lýsti veru­leik­anum sem blasti við. Þar sagði meðal ann­ars: „Fjár­hags­staða Reykja­nes­bæjar er graf alvar­leg. Sú stað­reynd hefur legið fyrir um nokk­urt skeið. Samt eru ótrú­lega margir sem halda ennþá að þetta sé bara póli­tískur skolla­leikur með það að mark­miði að láta stöð­una líta verr út en hún raun­veru­lega er. Það er fjarri lagi.[...]Samt hitti ég fólk af og til sem heldur hinu gagn­stæða fram og trúir því að þetta sé allt í plati. „Var nú nauð­syn­legt að hækka útsvar­ið? Var nauð­syn­legt að hækka fast­eigna­skatt­inn?

Var nauð­syn­legt að draga saman og hag­ræða í rekstri? Var nú nauð­syn­legt að segja upp fastri yfir­vinnu? Var nú nauð­syn­legt að segja upp föstum akst­ur­styrkj­um? Var nauð­syn­legt að fækka fag­svið­um? Var nú nauð­syn­legt að segja upp öllum fram­kvæmda­stjór­un­um? Var nú nauð­syn­legt að gera samn­ing við inn­an­rík­is­ráðu­neyt­ið? Var nú nauð­syn­legt að …….“ Öllum spurn­ingum í þessum dúr er bara hægt að svara á einn veg; „Já, það var bráð­nauð­syn­legt að taka þessar ákvarð­anir þótt erf­iðar væru.“

Kjartan sagði enn­fremur að komið sé að ögur­stundu og það hafi ein­fald­lega ekki verið hægt að bíða lengur og sjá hvort ástandið myndi lag­ast. Það þurfi að grípa til aðgerða og það hafi veirð gert. Skuldir Reykja­nes­bæjar séu allt of háar og að það þurfi að greiða þær niður.„Það gerum við ekki nema með því að eiga rekstr­ar­af­gang á hverju ári sem nota má til þess að greiða niður skuldir og því þurfum við að halda gríð­ar­lega vel á spil­unum á næstu 8 árum að minnsta kosti. Allir sem halda öðru fram eru í afneitun og á villi­göt­u­m.“

Ný uppbygging

Á þessum tíma var þó lífs­mark í atvinnu­upp­bygg­ingu á svæð­inu. Til­raunir til að byggja álver í Helguvík reynd­ust með öllu óraun­hæfur og hafa verið sleggnar af. Þá fór upp­bygg­ing kís­il­vera í Helguvík illa og mik­ill þrýst­ingur er á það meðal íbúa að slík fái ein­fald­lega ekki a starfa á svæð­inu. En gagn­ver voru risin, líf­tækni­fyr­ir­tæki voru með starf­semi í píp­unum og svo var auð­vitað að eiga sér stað for­dæma­laus vöxtur í ferða­þjón­ustu þar sem Kefla­vík­ur­flug­völlur lék lyk­il­hlut­verk.

Næstu ár voru sveit­ar­fé­lag­inu góð. Atvinnu­leysið nán­ast hvarf, íbúum sveit­ar­fé­lags­ins fjölg­aði mest allra á land­inu, fast­eigna­verð hækk­aði gríð­ar­lega og tekjur sveit­ar­fé­lags­ins juk­ust skarpt. Störfin sem urðu til voru flest tengd ferða­þjón­ustu, enda fjölg­aði ferða­mönnum úr hálfri milljón í 2,3 millj­ónir á sjö árum.

Á sama tíma­bili fjölg­aði íbúum sveit­ar­fé­lags­ins mjög hratt. Um mitt ár 2011, þegar ástandið var nokkuð hart í Reykja­nesbæ, bjuggu þar 13.990 manns. Þar af voru 1.230 erlendir rík­is­borg­arar. Í lok mars síð­ast­lið­ins voru íbúar sveit­ar­fé­lags­ins orðnir 19.020 og hafði þar með fjölgað um 5.030 á nokkrum árum. Alls var 93 pró­sent aukn­ing­ar­innar til­komin vegna fjölg­unar á erlendum rík­is­borg­urum sveit­ar­fé­lags­ins. Þeir voru 8,8 pró­sent íbúa þess 2011 en 24,5 pró­sent þeirra í lok mars síð­ast­lið­ins.

Þegar síð­asti árs­reikn­ingur Reykja­nes­bæjar var afgreiddur í bæj­ar­stjórn í maí 20198 var nið­ur­staða hans sú besta sem sést hefur í sögu sveit­ar­fé­lags­ins. Skulda­við­mið sam­stæðu sveit­ar­fé­lags­ins var komin niður í 137,29 pró­sent, og þar með undir lög­boðið 150 pró­sent við­mið.

Fá milljarða vegna sölu á HS Orku

Reykja­nes­bær fékk síðan enn einar gleði­frétt­irnar stuttu síðar, þegar gengið var frá sölu á hlut Fjár­fest­ing­ar­sjóðs­ins ORK í HS Orku til félags í eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða.

Í ágúst 2012 seldi Reykja­nes­bær nefni­lega skulda­bréf sem sveit­ar­fé­lagið eign­að­ist við sölu á hlut þess í HS Orku til Geysis Green Energy. Kaup­and­inn var áður­nefndur sjóður, ORK, sem rek­inn var af Virðingu, sem síðar gekk í gegnum nokkrar sam­ein­ingar og er nú hluti af Kviku banka. Sjóð­ur­inn var fjár­magn­aður af líf­eyr­is­sjóðum og fag­fjár­festum.

Heim­ildir Kjarnans herma að kaup­verðið hafi verið 8,8 millj­arðar króna. Reykja­nes­bær á rétt á því að fá rúm­lega fjóra millj­arða króna til við­bótar við það sem sveit­ar­fé­lagið fékk þegar það seldi skulda­bréfið upp­haf­lega. Þeim verður öllum ráð­stafað til nið­ur­greiðslu skulda.

Fall WOW air hefur mikil áhrif

Það hafa þó einnig teikn­ast upp nýjar áskor­anir. Við fall WOW air í lok mars sagði bæj­ar­ráð Reykja­nes­bæjar ljóst að áfallið muni hafa mikil sam­fé­lags­leg áhrif til skamms tíma. Það sé einkum vegna þess hversu mik­ill fjöldi íbúa hafi starfað hjá WOW air eða í fyr­ir­tækjum sem veitti WOW air bæði beina og óbeina þjón­ustu.

Í mars 2019 voru 709 manns atvinnu­lausir í Reykja­nesbæ, eða 6,7 pró­sent, miðað við 330 manns í mars 2018, eða 3,1 pró­sent, miðað við tölur Vinnu­mála­stofn­unar. Fjöldinn nær þó ekki fjölda atvinnu­lausra árið 2011 þegar 1190 manns voru atvinnu­lausir í Reykja­nesbæ.

Mun fleiri karlar eru atvinnu­lausir en konur, eða 421 karl á móti 288 konum og flestir þeirra eru á aldr­inum 25-29 ára. Flestir atvinnu­lausra í Reykja­nesbæ hafa grunn­skóla sem hæstu menntun, eða 371 manns, þar á eftir koma háskóla­mennt­aðir eða 127 manns. Flestir atvinnu­lausra eru íslenskir rík­is­borg­arar, það er 319 manns, en Pól­verjar koma fast á eftir með 287 manns.

En við blasir að staða hins 25 ára gamla sveit­ar­fé­lags er betri nú en nokkru sinni í sögu þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sveitarfélag

Mest lesið undanfarið ár