Mesta endurkoma í stuðningi við ríkisstjórn frá upphafi mælinga

Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur hefur bætt við sig 11,2 pró­sentu­stigum í stuðn­ingi frá því í lok febr­úar. Það er mesta stökk upp á við í stuðn­ingi sem rík­is­stjórn hefur tekið. Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir njóta þess þó ekki í fylgi.

Rík­is­stjórn hefur aldrei áður bætt við sig jafn miklum stuðn­ingi milli mán­aða og sú sem nú situr, frá því að Gallup hóf að mæla stuðn­ing við rík­is­stjórnin sér­stak­lega um miðjan síð­asta ára­tug. Stökkið milli mán­aða er 11,2 pró­sentu­stig.

Það sem gerð­ist á þessum eina mán­uði sem leið milli kann­ana Gallup, sem birt­ust ann­ars vegar 29. febr­úar og 30. mars hins vegar, er veiran sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum.

Skyndi­lega var hinn hefð­bundni póli­tíski veru­leiki, og það dæg­ur­þras sem fylgir hans áherslum, aflagður. Allt fór að snú­ast um tvennt: ann­ars vegar bar­átt­una við þá heil­brigð­isvá sem veiran hefur valdið og hins vegar efna­hags­legar afleið­ingar þess stríðs sem stendur yfir, sem hefur meðal ann­ars lokað öllum helstu útflutn­ings­mörk­uðum Íslands um ófyr­ir­séðan tíma og stöðvað með öllu komu ferða­manna til lands­ins.

Tekið var ákvörðun um það 19. mars síð­ast­lið­inn að Alþingi myndi ein­ungis fjalla um mál tengd COVID-19 í 32 daga. Með því var fyrri starfs­á­ætlun tekin úr sam­bandi.

Flest málin hafa snú­ist um efna­hags­að­gerðir. Þar ber að nefnda svo­kall­aðar hluta­bætur fyrir starfs­fólk fyr­ir­tækja sem hafa ekki lengur efni á að borga þeim, greiðslur launa til þeirra sem eru í sótt­kví, hinn svo­kall­aða band­orm laga­breyt­inga vegna efna­hags­að­gerða sem gripið verður til vegna ástands­ins og fjár­auka­lög til að fjár­magna þær aðgerðir. 

Stukku upp um átta prósentustig eftir fjölmiðlalögin

Á þeim tólf árum, frá 1995 til 2007, sem rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks sat að völdum, lengst af undir for­sæti Davíðs Odds­sonar en síðan Halldórs Ásgríms­sonar og Geirs H. Haarde, mæld­ist stuðn­ingur við hann lægstur 38 pró­sent í júlí 2004. Þá hafði Ólafur Ragnar Gríms­son, þáver­andi for­seti Íslands, nýverið hafnað því að stað­festa umdeild fjöl­miðla­lög sem Alþingi hafði sam­þykkt, og sam­fé­lagið lék á reiði­skjálfi. Það var í fyrsta sem for­seti neit­aði að stað­festa lög sem sam­þykkt höfðu verið á Alþingi.

Rík­is­stjórnin var þó fljót að ná sér og í næsta mán­uði á eftir hafði stuðn­ing­ur­inn við hana auk­ist um átta pró­sentu­stig. Það tók hana hins vegar tvo mán­uði að ná þeim kipp sem núver­andi rík­is­stjórn er að upp­lifa.

Góðærisstjórnin sem lifði ekki af hrunið

Rík­is­stjórn Geirs H. Haarde, sem sam­an­stóð af Sjálf­stæð­is­flokki og Sam­fylk­ingu, tók við völdum vorið 2007. Vin­sældir þeirrar rík­is­stjórnar voru for­dæma­lausar og í fyrstu mæl­ingu eftir að hún var mynduð sögð­ust 83 pró­sent lands­manna styðja hana. 

Síðan kom hrunið og sá stuðn­ingur féll eins og steinn. Sam­kvæmt Gallup var stuðn­ing­ur­inn kom­inn niður í 26 pró­sent í jan­úar 2009, þegar rík­is­stjórnin hrökkl­að­ist frá völdum í kjöl­far fjölda­mót­mæla.

Sú rík­is­stjórn náði því aldrei á líf­tíma sínum að bæta við sig meira en tveimur pró­sentu­stigum milli kann­ana.

Icesave botninn

Rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur tók við völdum 1. febr­úar 2009 sem minni­hluta­stjórn Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna, varin af Fram­sókn­ar­flokkn­um. Rík­is­stjórn­ar­flokk­unum gekk vel í kosn­ing­unum 2009, fengu hreinan meiri­hluta saman og héldu áfram að starfa sam­an. Þegar rík­is­stjórn Jóhönnu tók við völdum studdu 65 pró­sent lands­manna hana.

Hún varð fljót­lega afar óvin­sæl og þar spil­aði eitt mál stærri rullu en nokkur önn­ur, Icesave. Í októ­ber 2010 stóð bar­áttan um það má sem hæst. Og þá fór stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina niður í 30 pró­sent hjá Gallup. Hún náði að bæta við sig sex pró­sentu­stigum í stuðn­ingi í nóv­em­ber það ár sem reynd­ist á end­anum stærsta ein­staka stuðn­ings­stökk sem hún tók.

Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon leiddu ríkisstjórnina sem tók við völdum á Íslandi eftir bankahrunið.
Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir og Stein­grímur J. Sig­fús­son leiddu rík­is­stjórn­ina sem tók við völdum á Íslandi eftir banka­hrunið.

Botninum var þó ekki enn náð hjá Jóhönnu­stjórn­inni. Í mars 2012 studdu ein­ungis 28,4 pró­sent lands­manna hana og þegar hún fékk sína síð­ustu mæl­ingu, áður en stjórnin missti völdin í kosn­ing­unum 2013, mæld­ist stuðn­ingur við hana 34 pró­sent.

Wintris og Panamaskjölin

Við tók rík­is­stjórn Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar, sem í voru Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn. Í upp­hafi var stuðn­ingur við hana 62,4 pró­sent. Það tók þá rík­is­stjórn tvö ár að fara fyrir neðan 31 pró­sent í stuðn­ings­mæl­ingum Gallup. Í kjöl­farið náði hún mesta stökki sem rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs upp­lifði nokkru sinni þegar stuðn­ingur við hana jókst um 5,1 pró­sentu­stig milli mán­aða.

Sumarið 2016 kom svo Wintris-­máls­ins og öll hin Panama­skjölin, sem varð til þess að Sig­mundur Davíð sagði af sér.

Stærstu mótmæli Íslandssögunnar fóru fram í kjölfar opinberunnar á Panamaskjölunum.
Stærstu mót­mæli Íslands­sög­unnar fóru fram í kjöl­far opin­ber­unnar á Panama­skjöl­unum.

Rík­is­stjórn flokk­anna tveggja hélt nokkurn vegin sjó í stuðn­ingi eftir að Sig­urður Ingi Jóhanns­son tók við sem for­sæt­is­ráð­herra, en hann sat sem slíkur fram að kosn­ing­unum í októ­ber 2016. Stuðn­ingur við ríkis­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks end­aði í 37,3 pró­sent hjá Gallup.

Óvinsælasta og skammlífasta stjórnin

Eftir langt og strangt til­raun­ar­ferli til að mynda rík­is­stjórn varð loks úr að Sjálf­stæð­is­flokkur, Viðreisn og Björt fram­tíð mynd­uðu stjórn sem tók við völdum 11. jan­úar 2017. Hún var með minni­hluta atkvæða á bak­við sig, eða 46,7 pró­sent, og ein­ungis eins manns meiri­hluta. Hún var líka afar óvin­sæl frá byrjun og eina rík­is­stjórnin sem hefur hafið starfs­tíma sinn með minna stuðn­ing minna en helm­ings lands­manna (43,6 pró­sent) frá því að Gallup hóf slíkar mæl­ingar.

Sá litli stuðn­ingur reynd­ist líka vera hápunkt­ur­inn í stuðn­ingi við rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar, sem náði mest að bæta við sig rúmu pró­sentu­stigi milli kann­ana. Um miðjan sept­em­ber 2017 sprakk sú rík­is­stjórn vegna upp­reist æru-máls­ins. Rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar varð fyrir vikið skamm­lífasta sam­steypu­stjórn lýð­veld­is­sög­unnar og boðað var til nýrra kosn­inga í októ­ber það ár.

Óvenjuleg stjórn sem hægt og rólega tapaði stuðningi...þar til nú

Úr þeim spratt hin óvenju­lega rík­is­stjórn Katrín Jak­obs­dóttur, sem sam­anstendur af þremur flokkum frá vinstri, yfir miðj­una og til hægri í hinu hefð­bundna póli­tíska lit­rófi. Flokk­arnir þrír, Vinstri græn, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn eiga það þó sam­eig­in­legt að vera allir með nokkuð sterka íhalds­taug og vilja ekki hrófla mikið við lyk­il­kerfum í íslensku sam­fé­lagi sem styr hefur staðið um, svo sem sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­kerf­unum.

Rík­is­stjórnin naut gríð­ar­legs stuðn­ings í byrjun eftir að hún var mynduð, en í des­em­ber 2017 sögð­ust 74,1 pró­sent lands­manna styðja hana. Sú sam­staða var hins vegar skamm­vinn og ári síðar, í jóla­mán­uð­inum 2018 var stuðn­ing­ur­inn kom­inn niður í 44,8 pró­sent í könn­unum Gallup. Tæplega 30 pró­sentu­stig af stuðn­ingi höfðu horfið á einu ári. Eina rík­is­stjórnin sem hefur tapað meira fylgi en það á einu ári var rík­is­stjórn Geirs H. Haarde, sem missti 46 pró­sentu­stig milli nóv­em­ber 2007 og sama mán­aðar 2008. Í milli­tíð­inni gerð­ist vita­skuld banka­hrunið.

Í byrjun þessa árs var stuðn­ingur við rík­is­stjórn Katrínar enn þannig að minni­hluta lands­manna, eða 46,5 pró­sent, studdi hana. Síðan skeði útbreiðsla veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum og allt breyt­ist á svip­stundu.

Rík­is­stjórnin hefur notið góðs af þess­ari stöðu. Ef miðað er við þró­un­ina milli könn­unar Gallup sem birt var í lok febr­úar, og seinni könn­unar fyr­ir­tæk­is­ins sem miðar við 30. mars, þá hefur stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina auk­ist um 11,2 pró­sentu­stig og mælist nú 59,4 pró­sent. Allir rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir bæta líka við sig fylgi, sam­an­lagt fjórum pró­sentu­stigum. Sam­an­lagt er fylgi þeirra nú 44,9 pró­sent. Allir flokk­arnir þrír eru þó enn að mæl­ast undir kjör­fylgi, en sam­an­lagt fengu þeir 52,9 pró­sent þá. Því myndu rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir fá átta pró­sentu­stigum minna ef kosið yrði í dag en þegar síð­ast var talið upp úr kjör­köss­unum.

Óvissa um næstu kosningar

Ekki er alveg ljóst hvenær kosið verður næst, að öðru leyti en að þær kosn­ingar fara fram á næsta ári. Síðustu tvær kosn­ingar hafa farið fram í októ­ber en sögu­lega er hefðin sú að kjósa að vori svo ný rík­is­stjórn geti lagt fram fjár­laga­frum­varp að hausti.

Deildar mein­ingar hafa verið um það á meðal stjórn­mála­flokk­anna hvenær það ætti að kjósa á næst. Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir vilja allir kjósa að vori og ekk­ert afger­andi hefur heyrst frá Vinstri grænum né Fram­sókn­ar­flokknum um hvar vilji þeirra standi.

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, var hins vegar nokkuð afdrátt­ar­laus um að hann vilji að kosið verði að hausti í við­tali við Silfrið í febr­úar síð­ast­liðnum, áður en að COVID-19 far­ald­ur­inn skall af fullum þunga á Ísland. „Ef ég á að segja hug minn allan þá segi ég; það kostar blóð, svita og tár að kom­ast til valda. Af hverju í ó­sköp­unum ætti maður að gefa það frá sér hálfu ári áður en að lög segja til­ um?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár