Allt í járnum í Reykjavík

Þótt meiri­hlut­inn í borg­ar­stjórn haldi eins og staðan er í dag þá stendur það mjög tæpt. Lík­leg­ast er að átta borg­ar­full­trúar muni dreifast á sex flokka. Þetta er nið­ur­staða nýj­ustu sæta­spár Kjarnans.

Meiri­hlut­inn í Reykja­vík myndi halda með naum­indum sam­kvæmt nýj­ustu sæta­spákosn­inga­spár Kjarnans og Dr. Baldurs Héð­ins­sonar. Þeir þrír flokkar innan hans sem verða í fram­boði myndu fá tólf borg­ar­full­trúa ef kosið yrði í dag. Síðasti kjörni full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar er þó mjög tæpur inni og lítið þarf til að hann dytti út. Þá væri meiri­hlut­inn, eins og hann er sam­an­settur í dag, fall­inn.

Sæta­spáin er fram­kvæmd þannig að keyrðar eru 100 þús­und sýnd­ar­kosn­ingar miðað við fylgi flokka í kosn­inga­spánni sem birt var 27. apríl síð­ast­lið­inn. Í hverri þeirra er úthlutað 23 borg­ar­full­trúum og þar sem sýnd­ar­kosn­ing­arnar eru allar með inn­byggða óvissu þá getur fylgið í hverri ein­stakri sýnd­ar­kosn­ingu stundum hærra og stundum lægra, þótt með­al­tal kosn­ing­anna allra sé það sama og kom fram í kosn­inga­spánni.

Fylgi framboða í Reykjavík samkvæmt kosningaspánni 27. apríl 2018.
Fylgi fram­boða í Reykja­vík sam­kvæmt kosn­inga­spánni 27. apríl 2018.

Lík­leg­asta nið­ur­staða sæt­ar­spár allra flokka skilar að þessu sinni ein­ungis 21 borg­ar­full­trúum, sem þýðir að síð­ustu tvö sætin eru í mik­illi tví­sýnu og sann­ar­lega í leik fyrir þau fram­boð sem eru nálægt því að krækja í þau. Eins og staðan er nú er lík­leg­ast að þau lendi ann­ars vegar hjá Fram­sókn­ar­flokki og hins vegar hjá Flokki fólks­ins og tryggi hvorum flokki fyrir sig einn borg­ar­full­trúa. Þó er vert að benda á að fylgi þeirra flokka sem mæl­ast með undir tveggja pró­senta fylgi, og flokk­ast því sem „annað“, hefur verið að vaxa hratt und­an­farnar vikur og mælist nú fimm pró­sent.

Verði ofan­greint nið­ur­staða kosn­inga þá myndi Sam­fylk­ingin fá átta borg­ar­full­trúa, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sjö, Píratar og Vinstri græn tvo hvor en Mið­flokk­ur­inn, Viðreisn, Fram­sókn­ar­flokkur og Flokkur fólks­ins einn hvor. Næstu menn inn eru Pawel Bartozek, annar maður á lista Við­reisnar, og Baldur Borg­þórs­son, sem situr í öðru sæti á lista Mið­flokks­ins.

Með meirihluta fulltrúa en minnihluta atkvæða

Líkt og Kjarninn greindi frá á laug­ar­dag þá dalar fylgi meiri­hlut­ans í Reykja­vík örlítið sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spánni. Þeir þrír flokkar sem standa að honum mæl­ast nú með 47,5 pró­sent fylgi en voru með 48,2 pró­sent um miðja síð­ustu viku. Breyt­ingin er þó vart mark­tæk.

Sam­fylk­ingin mælist nú með 29 pró­sent fylgi og yrði áfram stærsti flokk­ur­inn í höf­uð­borg­inni ef kosið yrði í dag. Fylgi hennar hefur verið nokkuð stöðugt und­an­farnar vikur sam­kvæmt spánni, mæld­ist lægst 28,5 pró­sent en hæst 31,1 pró­sent. Vinstri græn mæl­ast með 9,5 pró­sent fylgi og Píratar með níu pró­sent. Báðir flokkar eru að mæl­ast með minnsta fylgi sem þeir hafa mælst með í kosn­inga­spánni frá því í byrjun mars. Sam­an­lagt myndu þessir þrír flokkar fá tólf borg­ar­full­trúa. Allir þrír hafa þegar úti­lokað sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og sumir þeirra við Mið­flokk­inn. Leið­togar sumra þeirra hafa auk þess lýst yfir áhuga á að við­halda meiri­hluta­sam­starf­inu, mögu­lega með aðkomu fleiri flokka, verði það mögu­legt eftir kosn­ing­arnar.

Viðreisn í oddastöðu

Viðreisn mælist með 6,7 pró­sent fylgi. Það myndi lík­leg­ast skila flokknum einum borg­ar­full­trúa þótt að hann sé mjög nálægt því að ná einum til inn.

Viðreisn, sem kynnti áherslur sínar í kosn­inga­bar­átt­unni í síð­ustu viku, virð­ist vera mun nær sitj­andi meiri­hluta en núver­andi minni­hluta og öðrum flokkum sem deila áherslum með honum. Það má t.d. sjá á því að í nýj­ustu könnun Félags­vís­inda­stofn­unar fyrir Morg­un­blaðið kom fram að 53,9 pró­sent kjós­enda Við­reisnar vildu sjá Dag B. Egg­erts­son sem næsta borg­ar­stjóra. Einungis 4,9 pró­sent þeirra vildu fá Eyþór Arnalds í emb­ættið.

Sjálfstæðisflokkurinn nálægt því að ná áttunda manni inn

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er yrði næst stærsti flokkur borg­ar­innar ef kosið yrði í dag. Fylgi hans mælist nú 28 pró­sent sem er við lægri mörk þess sem það hefur mælst í kosn­inga­spánni und­an­farnar vikur. Það myndi tryggja honum sjö borg­ar­full­trúa en afar lítið vantar upp á að sá átt­undi myndi detta í hús. Það gæti breytt póli­tíska lands­lag­inu í Reykja­vík umtals­vert.

Mið­flokk­ur­inn virð­ist ætla að taka við hlut­verki Fram­sókn­ar­flokks­ins í borg­inni og fylgi hans er stöðugt á upp­leið. Í byrjun mars var það 4,2 pró­sent, 10. apríl var það 5,1 pró­sent en er nú 6,6 pró­sent. Það skilar Vigdísi Hauks­dóttur, odd­vita Mið­flokks­ins, nokkuð örugg­lega í borg­ar­stjórn og hún er nálægt því að taka einn sam­herja með sér þangað.

Á sama tíma mælist fylgi Fram­sókn­ar­flokks 3,2 pró­sent og virð­ist nokkuð fast þar, sem lík­leg­ast myndi ekki skila inn manni. Í ljósi þess hversu bar­áttan er mikil um þau tvö sæti sem rað­ast ekki á flokka í sæta­spánni þá er Framsókn lík­leg­astur til að ná öðru þeirra. Þá myndi Ingvar Mar Jónsson ná inn. Kolbrún Bald­urs­dóttir, odd­viti Flokks fólks­ins, er í nán­ast sömu stöðu. Fylgi þess flokks mælist þrjú pró­sent og Kolbrún er lík­leg­ust til að taka hitt órað­aða sætið ef kosið yrði í dag.

Þær kann­anir sem liggja til grund­vallar nýj­ustu kosn­inga­spánni (27. apríl) eru eft­ir­far­andi:

  • Þjóð­ar­púls Gallup 4. apríl (vægi 14,8 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins og fretta­bla­did.is 9. apríl (vægi 15,5 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins og fretta­bla­did.is 25. apríl (vægi 23,3 pró­sent)
  • Þjóð­mála­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 23 - 25. apríl. (vægi 46,5,4 pró­sent)

Hvað er kosn­inga­spá­in?

Fyrir hverjar kosn­ingar um allan heim birta fjöl­miðlar gríð­ar­legt magn af upp­lýs­ingum. Þessar upp­lýs­ingar eru oftar en ekki töl­fræði­legar, byggðar á skoð­ana­könn­unum þar sem fólk hefur verið spurt hvernig það upp­lifir stjórn­málin og hvað það getur ímyndað sér að kjósa. Stjórn­mála­fræð­ingar og fjöl­miðlar kepp­ast svo við að túlka nið­ur­stöð­urnar og veita almenn­ingi enn meiri upp­lýs­ingar um stöð­una í heimi stjórn­mál­anna.

Allar þessar kann­anir og allar mögu­legar túlk­anir á nið­ur­stöðum þeirra kunna að vera rugl­andi fyrir hinn almenna neyt­anda. Einn kannar skoð­anir fólks yfir ákveðið tíma­bil og annar kannar sömu skoð­anir á öðrum tíma og með öðrum aðferðum. Hvor könn­unin er nákvæm­ari? Hverri skal treysta betur? Svarið er oftar en ekki óljóst því vand­inn er að hinn almenni kjós­andi hefur ekki for­sendur til að meta áreið­an­leika hverrar könn­unar.

Þar kemur kosn­inga­spáin til sög­unnar.

Kosn­­inga­­spálíkan Bald­­urs Héð­ins­­sonar miðar að því að setja upp­­lýs­ing­­arnar sem skoð­ana­kann­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­inga. Nið­ur­stöður spálík­ans­ins eru svo birtar hér á Kjarn­anum reglu­lega í aðdrag­anda kosn­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2018

Mest lesið undanfarið ár