Prins án konunglegra titla tekur við dásemdum drottningar

Hlut­skipti sona Eng­lands­drottn­ingar heit­innar eru ólík eftir and­lát hennar. Karl er kon­ungur en Andrés tekur við hundum drottn­ingar sem skip­uðu stóran sess í lífi hennar í yfir 80 ár.

Í yfir átta áratugi átti Elísabet Englandsdrottning að minnsta kosti einn, oftast fleiri, corgi-hunda.
Í yfir átta ára­tugi átti Elísabet Eng­lands­drottn­ing að minnsta kosti einn, oft­ast fleiri, corgi-hunda. Mynd: Breska konungsfjölskyldan/Vanity Fair

Hvað verður um hunda drottn­ingar, litlu corgi-hundana sem hún hefur dýrkað og dáð frá því í æsku?

Þessa spurn­ingu mátti heyra oftar en margar aðrar eftir að fregnir bár­ust af and­láti Elísa­betar Eng­lands­drottn­ingar í síð­ustu viku.

Nú liggur fyrir að Andrés prins, annar tveggja sona Elísa­betar og Fil­ippusar, mun taka við hund­unum. Hlut­skipti bræðr­anna við frá­fall drottn­ing­ar­innar er því nokkuð ólíkt. Eldri bróðir hans, Karl, er eins og flestum ætti að vera kunn­ugt, orð­inn Bret­lands­kon­un­ungur, Karl III.

En Andrés mun ekki sjá einn um hundana, síður en svo. Sarah Ferguson, her­toga­ynjan af York, fyrr­ver­andi eig­in­kona Andrésar mun einnig sjá um hunda drottn­ingar, Muick og Sandy, tvo unga corgi-hunda, sem Andrés og dætur hans, Beatrice og Eugenie, færðu Elísa­betu drottn­ingu að gjöf í fyrra.

Drottn­ingin átti einnig Candy, blöndu af corgi og dachshund, „dorgi“, og mun hún að öllum lík­indum fylgja Muick og Sandy. Tegundin varð til fyrir slysni með hjálp frá Pipkin, dacshund sem var í eigu Mar­grétar, yngri systur Elísa­betar. Candy er eini eft­ir­lif­andi dorgi-hund­ur­inn en Candy kom inn í kon­ungs­fjöl­skyld­una árið 2007 ásamt þremur öðrum af sömu teg­und.

Velski corgi á mögulega rætur að rekja til Íslands

Corgi-hund­arnir sem hafa verið í eigu drottn­ingar í gegnum tíð­ina eru af teg­und­inni welsh corgi pembroke og heyra undir fjár- og hjarð­hunda. Velski corgi á sér yfir þús­und ára sögu og sam­kvæmt umfjöllun Hunda­rækt­ar­fé­lags Íslands eru mögu­legir for­feður hans eru íslenski hund­ur­inn og hinn sænski Walhund. Samkvæmt einni þjóð­sögu eiga álfar að hafa notað velska corgi eins og hesta vegna hent­ugrar stærðar þeirra, en corgi þýðir dverg­hundur á velsku.

Andrés og dætur hans, að frum­kvæði móður þeirra, gáfu Elísa­betu drottn­ingu Muick og dorgi-hvolp­inn Fergus síð­asta vor. Vildu þau færa drottn­ing­unni hvolpana til að létta lund­ina á erf­iðum tímum þegar Filippus drottn­inga­maður var á spít­ala. Ef það var ein­hver sem furð­aði sig á dálæti drottn­ing­ar­innar á fer­fætlingum var það einmitt Filippus. „Fjárans hund­arnir. Af hverju áttu svona marga?“ á drottn­inga­mað­ur­inn að hafa sagt, oftar en einu sinni.

Filippus lést í 9. apríl 2021, 99 ára að aldri, en aðeins mán­uði síðar lést Fergus, sem nefndur var í höf­uðið á frænda drottn­ingar í móð­ur­ætt, Fergus Bowes-Lyon, flota­for­ingja í breska hernum sem lét lífið í fyrri heims­styrj­öld­inni. Corgi-hund­ur­inn Fergus var aðeins fimm mán­aða þegar hann kvaddi en talið er að bana­mein hans hafi verið hjarta­galli. Drottn­ingin var sögð miður sín eftir miss­inn og færði Andrés henni hvolp­inn Sandy á 95 ára opin­beran afmæl­is­dag drottn­ing­ar­innar, í júní í fyrra.

Elísabet Englandsdrottning og Filippus prins ásamt börnum sínum, Játvarði, Önnu og Andrési, að ógleymdum corgi-hundi, við Balmoral-kastala sumarið 1960. Andrés mun nú taka við hundum drottningar..
Elísabet Eng­lands­drottn­ing og Filippus prins ásamt börnum sínum, Játvarði, Önnu og Andrési, að ógleymdum corgi-hundi, við Balmoral-kast­ala sum­arið 1960. Andrés mun nú taka við hundum drottn­ingar..

Muick, Sandy, og að öllum lík­indum Candy, munu búa í Royal Lodge í Windsor þar sem Andrés hefur búið frá því að Elísabet drottn­inga­móðir lést árið 2002. Andrés og Sarah skildu fyrir 26 árum en hafa búið saman í Royal Lodge síðan þá. Her­toga­ynjan og drottn­ingin héldu vin­skap eftir skiln­að­inn og héldu áfram reglu­legum göngut­úrum þar sem þær viðr­uðu hundana í Frogmore, í nágrenni Royal Lodge, og spjöll­uðu um dag­inn og veg­inn. Eftir frá­fall hennar sagði Sarah að drottn­ingin hefði verið „stór­kost­leg tengda­móðir og vin­kona“ og að hún muni „sakna hennar meira en orð fá lýst“.

Hundarnir geta haft áhrif á framtíð prinsins innan konungsfjölskyldunnar

Samband hjón­anna fyrr­ver­andi virð­ist vera með ágætum en styr hefur staðið um Andrés prins síð­ustu ár eftir að fregnir bár­ust af vin­skapi prins­ins við barn­a­níð­ing­inn og auð­kýf­ing­inn Jeffrey Epstein. Andrés veitti frétta­skýr­inga­þætt­inum The Newsnight á BBC umdeilt við­tal í nóv­em­ber 2019 þar sem hann þvertók fyrir að hafa brotið kyn­ferð­is­lega á ung­lings­stúlku. Bar hann fyrir sig að vitn­is­burður hennar gæti ekki stað­ist þar sem „hann gæti ekki svitnað“ sökum áfalls sem hann varð fyrir í Falklandseyja-stríð­inu.

Í frá­sögn hennar kom fram að Andrés væri „við­bjóðs­leg­asti dans­ari“ sem hún hafi séð á ævinni og lýsti hún því í Panorama, frétta­skýr­inga­þátt BBC, í des­em­ber 2019 hvernig svita­dropar spýtt­ust í allar átti frá prins­inum. Ung­lings­stúlkan, sem í dag er 39 ára, er Virginia Giuffre. Í við­tal­inu sagði hún Ep­­stein hafa gert hana út til Bret­lands árið 2001 þar sem hún hafi meðal ann­ars verið þvinguð af Epstein til að hafa kyn­­mök við Andrés prins.

Hún kærði prins­inn fyrir að hafa nauðgað henni þrisvar sinnum þegar hún var 17 ára. Í kjöl­far ásakan­anna sagði hann sig frá öllum opin­berum kon­ung­legum skyldum. Í upp­hafi árs til­kynnti kon­ungs­fjöl­skyldan að ákveðið hefði verið að svipta Andrés öllum hertitlum, þrettán tals­ins, auk þess sem hann hætti afskiptum sem vernd­ari ýmissa sam­taka. Þá er hann ekki lengur ávarp­aður sem hans hátign (e. his royal hig­hness).

Mála­ferli stóðu yfir í New York í nokkra mán­uði og fór vörn yfir Andrési fram eins og um almennan borg­ara væri að ræða. Í febr­úar gerðu Andrés og Giuffre sam­komu­lag utan dóm­stóla þar sem málið var látið niður falla. Andrés féllst á greiða ákveðna upp­hæð og við­ur­kenndi að Giuf­fre sé fórn­ar­lamb mis­notk­un­ar. Þá fól sam­komu­lagið einnig í sér að Andrés greiddi ákveðna upp­hæð til góð­gerða­sam­taka Giuf­fre sem standa vörð um fórn­ar­lömb kyn­ferð­is­of­beld­is.

Andrés hefur því staðið að mestu utan kon­ungs­fjöl­skyld­unnar og krafta hans ekki verið óskað í kon­ungs­höll­inni en við and­lát Elísa­betar er hann að nýju orð­inn sýni­legri. Athygli vakti þegar Andrés gekk ásamt systk­inum sínum á eftir lík­kistu drottn­ingar í Edinborg í vik­unni í jakka­fötum á meðan Karl kon­ungur, Anna og Ját­varður voru í her­klæðum. Sami háttur verður hafði á við útför drottn­ingar sem fram fer á mánu­dag, þar sem Andrés hefur afsalað sér öllum hertitlum. Ein und­an­tekn­ing verður gerð þegar systk­inin munu standa vörð um lík­kistu móður sinnar í London þegar Andrési verður heim­ilt að klæð­ast her­bún­ingi.

Andrés prins var ekki í herklæðum, ólíkt systkinum sínum, þegar þau gengu á eftir líkkistu Englandsdrottningar í Skotlandi.
Andrés prins var ekki í her­klæðum, ólíkt systk­inum sínum, þegar þau gengu á eftir lík­kistu Eng­lands­drottn­ingar í Skotlandi.

Hvað sem kon­ung­legum titlum og hertitlum líður eru kon­ung­legir corgi-hundar hluti af lífi Andrésar prins, Söruh Ferguson, fyrr­ver­andi eig­in­konu hans, og dætra.

Hluti af lífi drottningar í nærri 90 ár

En af hverju corgi? Svarið er í raun sára­ein­falt. Þegar Elísabet var sjö ára áttu vinir for­eldra hennar corgi-hund og hana lang­aði í þannig líka. Sú ósk rætt­ist þegar Elísabet var 11 ára þegar faðir hennar, Albert, her­tog­inn af York, sem þá var ekki orð­inn kon­ungur, færði henni og Margréti systur hennar hund­inn Dookie.

Corgi-hundar áttu eftir að fylgja Elísa­betu alla tíð og átti hún yfir þrjá­tíu tals­ins á lífs­leið­inni. Þeir skiptu allir Elísa­betu miklu máli en teng­ing hennar við tík­ina Susan var ein­stök. Á 18 ára afmæl­is­dag Elísa­betar eign­að­ist hún Susan sem fylgdi henni í gegnum margar af stærstu stundum í líf­inu. Hún fylgdi Elísa­betu og Fil­ippusi í brúð­kaups­ferð­ina og var henni til halds og trausts þegar faðir hennar lést og Elísabet varð drottn­ing.

„Ég kveið því alltaf að missa hana,“ rit­aði drottn­ingin í minn­ing­ar­orðum um Susan árið 1959. Susan er grafin í gælu­dýra­kirkju­garð­inum í Sandring­ham, kirkju­garði sem Viktoría drottn­ing kom á fót á 19. öld.

Arfleifð Susan lifði þó áfram en Elísabet eign­að­ist yfir 30 corgi-, eða dorgi-hunda, sem allir voru afkom­endur Susan. Í yfir átta ára­tugi átti hún að minnsta kosti einn, oft­ast fleiri, corgi. Willow var síð­asti afkom­andi Susan sem var í eigu drottn­ingar. Hann gerði garð­inn meðal ann­ars frægan í kynn­ing­ar­mynd­skeiði fyrir Ólymp­íu­leik­ana í London ásamt drottn­ing­unni og James Bond.

Willow kvaddi fyrir fjórum árum og þar með lauk sögu afkom­enda Susan. Elísabet vildi segja skilið við rækt­un­ina þar sem hún vildi ekki skilja eftir unga hunda þegar hún sjálf myndi kveðja. Hún gat þó ekki hugsað sér að vera án hunda og fylgdi Candy henni hvert fót­mál. Sandy og Muick bætt­ust svo við í fyrra en nú segja hund­arnir skilið við Buckinghamhöll, að minnsta kosti um sinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kóngafólk

Mest lesið undanfarið ár