Þriðji dagur Katrínar í stjórnarráðinu

Katrín Jak­obs­dóttir fékk lyklana að stjórn­ar­ráð­inu á föstu­degi, á þriðju­deg­inum fékk Auður Jóns­dóttir rit­höf­undur að elta hana í nýju starfi og spyrja spurn­inga; annan dag fyrstu vik­unnar í stjórn­ar­ráð­inu.

Fyrsti fundur dags­ins á sér stað á skrif­stofu for­sæt­is­ráð­herra um klukkan níu. Þar hittir for­sæt­is­ráð­herra aðstoð­ar­menn sína, Lísu Krist­jáns­dóttur og Bergþóru Bene­dikts­dóttur. Þær þurfa að átta sig á nýjum starfs­vett­vangi, skipu­leggja fundi og aukin sam­skipti við fjöl­miðla.

Þær hefja fund­inn á að fara yfir við­tals­beiðnir, hvort Katrín hafi tíma til að skrifa nokkur orð fyrir Við­skipta­blaðið og tala við erlenda blaða­menn sem hafa fal­ast eftir síma­við­tali. Katrín beinir svo tal­inu að sam­fé­lags­miðl­unum og veltir upp spurn­ing­unni hvernig sé best að eiga í sam­skiptum við fólk í gegnum þá. Því næst tala þær um að tak­marka ferða­kostnað og fækka þátt­tak­endum í ferðum. Þá eru nefndir fjórir sið­fræð­ingar sem ætl­unin er að kalla til fundar um siða­reglur, jafn­framt þarf að ræða þjóðar­ör­ygg­is­mál og loks halda fund með full­trúum frá verka­lýðs­hreyf­ing­unni.

Að síð­ustu er farið laus­lega yfir fundi, spjallað um sam­starfs­verk­efni flokk­anna um #

Metoo

og farið yfir hvað eigi að gefa af sagn­fræði­tíma­ritum og ljóða­bókum á gömlu skrif­stof­unni niðri á þingi.

Ég fæ að lauma spurn­ingum að Katrínu yfir dag­inn og þar sem hún situr þarna á sínum fyrsta morg­un­fundi með aðstoð­ar­mönnum á þess­ari forn­frægu skrif­stofu er ekki úr vegi að spyrja um valdið.

Hvernig upp­lifir for­sæt­is­ráð­herra valdið, nú þegar talað er um að þú hafir játað þig sigr­aða fyrir Sjálf­stæð­is­flokknum og þar með auð­vald­inu?

„Ein­hverjir hafa túlkað það þannig. Ég fer inn í þetta rík­is­stjórn­ar­sam­starf full af sjálfs­trausti með sýn mína og minnar hreyf­ingar. Þetta er ekki sam­ein­ing ólíkra flokka heldur sam­starf ólíkra flokka þar sem eng­inn játar sig sigr­aðan eða hrósar sigri. Heldur snýst þetta um, í huga mínum, að við tökum höndum saman um til­tekin verk­efni og vinnum að því að dýpka skiln­ing á milli mjög ólíkra stjórn­mála­flokka um þau mál sem er mjög mik­ill ágrein­ingur um,“ segir hún.

En hvar liggur valdið í sam­fé­lag­inu?

„Valdið í sam­fé­lag­inu liggur alls ekki bara hjá stjórn­mála­mönnum. Það liggur í meira mæli hjá almenn­ingi en áður, held ég. Með til­komu sam­fé­lags­miðla og ýmsu öðru hefur almenn­ingur meira dag­skrár­vald en áður. Valdið liggur líka í miklum mæli hjá pen­inga­öfl­unum í sam­fé­lag­inu. Og ýmsum öðrum öflum sem eru kannski ekki eins mikið á yfir­borð­inu og það vald sem liggur hjá stjórn­mála­mönnum. Mér finnst mik­il­vægt að við ræðum það hvar valdið liggur og það með opin­skárri hætti en við gerum. Af því að fólk er vant að benda á stjórn­málin sem einu upp­sprettu valds­ins. En það er ekki þannig. Það á að vera þannig að valdið komi frá almenn­ingi og fari þaðan, í umboði hans, til stjórn­mála­manna. En upp­sprettur valds­ins eru margar, eins og til dæmis pen­inga­öflin og ýmsir straumar sem geta komið að utan.“, botnar hún en útskýrir að for­sæt­is­ráð­herra hafi vald til að setja mál á dag­skrá og nálg­ast þau með öðrum hætti en gert hafi verið.

„Mér finnst það mesta áskor­unin. Hvernig við umgöng­umst vald. Að valdið sé eitt­hvað sem við eigum ekki rétt á, heldur séum með í umboði og fyrir hönd almenn­ings. Þetta er tíma­bundin ráð­stöfun almenn­ings á vald­inu.“

Aðstoðarmennirnir Bergþóra og Lísa við störf.
Aðstoð­ar­menn­irnir Bergþóra og Lísa við störf.

Þörf fyrir hræðilega brandara

Í lok fundar seg­ist Katrín vera aum í mag­anum. Gunnar, eig­in­maður hennar, hafi eldað sér­valið kjöt í gær­kvöldi eftir nokkrar vikur af rist­uðu brauði sökum anna. En kjötið lyktaði illa og þar sem Katrín er ekki eins klígju­gjörn og mak­inn lét hún sig hafa að smakka kjötið sem reynd­ist vera þránað. Í þétt skip­aðri dag­skrá dags­ins gefst þó ekki tími fyrir maga­verki. En hún gleðst þegar talið bein­ist að steina­safn­inu hennar, nær sam­stundis í veskið og leggur steina, sem kona nokkur gaf henni nýlega, á fund­ar­borðið. Aðstoð­ar­menn­irnir dást að stein­unum og þegar Ragn­hildur Arn­ljóts­dóttir ráðu­neyt­is­stjóri stígur inn með gögn dregst hún líka að kæti þeirra yfir stein­unum.

Hvað kætir þig mest í nýju starfi? spyr ég Katrínu.

„Það sem gleður mig er stuðn­ingur frá ótrú­leg­asta fólki. Að fólk sjái ástæðu til að leggja lykkju á leið sína til að segja eitt­hvað fal­legt. En það sem kætir mig er að mér finnst fyndið á köflum að vera for­sæt­is­ráð­herra því ég er ekki mjög form­leg. Og stundum finnst mér þetta svo­lítið eins og leik­rit. Allir eru auð­vitað bara fólk! En stundum er eins og fólk hverfi inn í hlut­verk svo það koma and­ar­tök þegar ég hugsa í þessu nýja starfi hvort ég hafi skilið mig eftir hérna frammi, hvort ég sé orðin heil­mynd í nýju hlut­verki. Ég hef aldrei verið góður leik­ari, aldrei getað leikið neitt nema sjálfa mig. Ég var alltaf bara ég í prinsessu­bún­ingi eða bónda­konu­bún­ingi í skóla­leik­rit­unum. Það reyn­ist mér erfitt að skilja sjálfa mig eftir. Þessi þörf – fyrir að segja hræði­legan brand­ara á vit­lausum tíma – verður alltaf til staðar.“

En hvað er kvíð­væn­leg­ast í nýju starfi?

Katrín seg­ist engu kvíða en af því að hún hafi áður setið í rík­is­stjórn og verið á Alþingi í tíu ár sé hún með­vituð um að alls­konar hlutir geti komið upp sem sé erfitt og flókið að leysa.

„Maður ræður því ekki hvað ger­ist. Stjórn­mála­fer­ill minn hefur ekki verið þannig að ég hafi tekið ákvörðun um nokkurn skap­aðan hlut. Ég byrj­aði vorið 2007 á þingi og hefði aldrei trúað því þá að haustið 2008 myndi ég sitja á neyð­ar­fundi í Seðla­bank­anum, nýkomin úr fæð­ing­ar­or­lofi, í fjar­veru Stein­gríms. Að ég yrði komin í rík­is­stjórn nokkrum mán­uðum síðar var ekki fyr­ir­sjá­an­legt. Svo hélt ég að sú rík­is­stjórn myndi lið­ast í sundur en hún kláraði kjör­tíma­bilið. Eina sem ég veit er að ég veit ekk­ert hvað mun ger­ast og þess vegna er gott að ég er með nátt­úru­lega núvit­und, ég kvíði sjaldan neinu. Ég vil bara leggja mig fram um að gera mitt besta. Þá breytir engu hvort ég kvíði hlut­unum eða ekki,“ segir Katrín lúm­skt meyr.

Steinarnir hennar Katrínar.
Stein­arnir hennar Katrínar.

Orð hennar fá mig til að hugsa aftur til árs­ins 2011. Þá var Katrín mennta­mála­ráð­herra á tímum mik­illa hrær­inga, svo greind­ist mamma hennar með krabba­mein og lést þremur mán­uðum síðar; við and­lát hennar var yngsti sonur Katrínar aðeins sex mán­aða – en hún á þrjá unga drengi. Ég man eftir að hafa undr­ast styrk­inn sem hún sýndi þá, þessi fín­gerði nagli sem sumum finnst hlæja of oft. En pabba sinn hafði hún misst fimmtán árum áður. Þetta er þó hvorki stund né staður til að mæra hana, áleitnar spurn­ingar eins og þessi bíða svara:

Treystir þú því að Bjarni Ben taki stjórn­málin fram yfir við­skipta­hags­muni og að hann sé nægi­lega með­vit­aður um óheppi­lega hags­muna­á­rekstra?

„Við höfum rætt þessi mál og ræddum þau í okkar sam­tali í kringum stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður“, svarar hún ákveðin. „Ég ætla að treysta því að allir aðilar séu með­vit­aðir um að það skipti mjög miklu máli að það séu ekki opnar dyr milli við­skipta­hags­muna og stjórn­mála.“

Bókmenntir í stjórnarráðinu

Meðan kon­urnar klára fund­inn tylli ég mér frammi hjá Vali Jóhanni Ólafs­syni vakt­stjóra sem spyr hvort ég hafi séð Morðið í stjórn­ar­ráð­inu. Reyndar ekki en ég hugsa mér gott til glóð­ar­innar og við veltum fyrir okkur hvort Davíð Oddsson sé hugs­an­lega Stella Blóm­kvist, hann hafi víst setið

fram­eftir

við skriftir hér. Valur hall­ast að því að Davíð sé Stella, en Katrín heldur ekki þegar hún stígur fram og seg­ist hafa grennsl­ast fyrir um það á bók­mennta­ráð­stefnu í Frakk­landi, fasið gefur til kynna að hún viti meira en við. Ef ein­hver er í aðstöðu til að kom­ast að því hver Stella er hlýtur það að vera for­sæt­is­ráð­herra sér­hæfður í saka­mála­sögum.

Og ég spyr: Ef þú værir ein á eyði­eyju í mánuð, hvort mynd­irðu þá taka með þér heild­ar­safn Arnaldar Ind­riða­sonar eða öll leik­verk Harolds Pinter?

„Ég myndi taka Harold Pinter því ég á eftir að lesa heild­ar­verkið, ég hef lesið nokkur verk en ekki allt.“

Af hverju ertu svona hrifin af Pinter?

„Ég elska Pinter. Mér finnst hann segja mér eitt­hvað um sjálfa mig – eða þau verk sem ég hef lesið eða séð. Hversu dap­urt er það? En ég segi þetta af ást og virð­ingu fyrir Arnaldi sem hefur verið aðal­efni­við­ur­inn í fræðum mínum. En það er svo mik­il­vægt að vera alltaf að lesa eitt­hvað nýtt, eins og það sem ég á eftir að lesa eftir Pinter.“

Hvernig trygg­irðu gagn­sæi og upp­lýs­inga­miðlun í rík­is­stjórn þinni?

„Gagnsæi út frá Pinter!“ hváir Katrín.

„Já, því hann er temmi­lega óræður,“ segi ég og við flissum áður en hún svarar að það sé nauð­syn­legt að vera með­vituð um breyttar kröfur sam­fé­lags­ins um gagn­sæi og upp­lýs­ingar. „Hluti af því felst í fram­kvæmd­inni; vinnu­lagi okkar og því að við verðum að vera dug­leg að tala við fjöl­miðla En svo eru líka ákveðnir þættir sem við munum vinna á kjör­tíma­bil­inu sem er ætlað að tryggja betur þessi mál í heild sinni. Ég nefni til dæmis frum­varp um vernd upp­ljóstr­ara – sem eru umbætur. Þar er líka talað um að bæta skatta­legt umhverfi fjöl­miðla, og þar er ætl­unin að skoða t.d. virð­is­auka­skatt­inn.“

Vaktstjórinn og fróðleiksbrunnurinn Valur ásamt skrafhreifum bílstjórum og höfundi greinarinnar.
Vakt­stjór­inn og fróð­leiks­brunn­ur­inn Valur ásamt skraf­hreifum bíl­stjórum og höf­undi grein­ar­innar.

Kókakóla-karlarnir

Klukkan hálf tíu er rík­is­stjórn­ar­fundur í her­bergi þar sem áður voru geymdir sér­stakir stór­glæpa­menn þegar stjórn­ar­ráðið var hegn­ing­ar­hús. Nú á að ganga frá helstu fjár­laga­til­lögum og ráð­herr­arnir tín­ast inn en ég bíð með aðstoð­ar­mönn­unum sem ræða um

ýmis

konar end­ur­skipu­lagn­ingu og nauð­syn þess að búa til tíma­skipu­lag. Í stjórn­ar­ráð­inu er ósköp heim­il­is­legt, verið að bar­dúsa í eld­húsi uppi og úti í horni rabba bíl­stjór­arnir um dag­inn og veg­inn.

Ég skoða myndir af gömlum rík­is­stjórnum, eins kóka­kóla-rík­is­stjórn­inni (1942-1944) sem er kölluð svo af því að Björn Ólafsson, þáver­andi fjár­mála­ráð­herra, gat farið til Ameríku þar sem hann fékk umboðið fyrir kók – útskýrir Valur. Hann segir mér líka að nú þurfi að færa myndir aðeins til svo það megi koma fyrir fleiri rík­is­stjórnum.

„

Með þessu ættu að kom­ast fyrir átta í við­bót,

“

segir hann.

„

Það ætti von­andi að duga í tutt­ugu ár!

“

Vali telst til að rík­is­stjórn­irnar séu orðnar fjöru­tíu og fimm. Þarna eru myndir af tutt­ugu og sex for­sæt­is­ráð­herrum, aðeins einn þeirra er kona: Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir. Myndin af henni minnir mig á femínista-spurn­ing­arnar í kven­vesk­inu svo strax að rík­is­stjórn­ar­fund­inum loknum spyr ég Katrínu:

Hvað hef­urðu að segja um lífseiga til­gátu um að Stein­grímur J. stjórni VG í gegnum þig?

Hún er röng,“ segir Katrín.

Nú voru uppi hug­myndir um stofnun kvenna­fram­boðs stuttu fyrir kosn­ingar – fannst þér það fem­inísk aðgerð?

„Femín­ism­inn er margs­konar, og ég held að það sé óvar­legt að halda að allir femínistar hagi sér eins, ekki frekar en sós­í­alistar. Kvenna­fram­boð er auð­vitað femínísk aðgerð. En ýmsar aðrar aðgerðir eru líka femínískar.“

Stundum má heyra fólk velta sér upp úr klæða­burði, fasi eða háttum þínum, hvað finnst þér um slíkt?

„Ég veit ekki hvað mér á að finn­ast um þetta, ég hef oft verið spurð að því hvað mér finn­ist um að konur séu meira umtal­aðar fyrir klæða­burð og hátta­lag. Auðvitað eiga þær ekki að vera það frekar en karlar. En ég – bara eins og allar konur sem hafa talað opin­skátt um þetta nýlega – hef fengið minn skerf af því. Það hafa allir skoðun á manni. Það er bara þannig.“

Upplifir þú stundum að gagn­rýni á þig slys­ist til að verða kynjuð?

„Já, umræða um mig er mjög oft kynjuð. Samanber að ég veit ekki hversu oft ég heyrði í þessum stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum að ég ætti ekki að láta karla plata mig, nán­ast eins og ég sé greind­ar­skert af því að ég er kona. Þetta er auð­vitað mjög kynjuð umræða og hún hefur komið úr ótrú­legum áttum.“

Notalegur forseti

Næst liggur leiðin niður í Alþing­is­hús þegar Katrín er búin að ræða við frétta­menn í and­dyr­inu. Þær Bergþóra aðstoð­ar­maður skipu­leggja við­töl meðan við þrömmum niður í Alþing­is­hús þar sem mér er plantað niður í mötu­neytið meðan þær fara á þing­flokks­fund þangað sem Katrín fær síð­bú­inn hádeg­is­mat­inn inn á bakka.

Frétta­hauk­ur­inn Heimir Már borðar mér til sam­lætis og rifjar upp tutt­ugu ára gam­alt slúður úr þing­inu, svo safa­ríkt að ég tek ekki eftir því að ég hef gleymst í mötu­neyt­inu fyrr en bíl­stjóri nokkur birt­ist og vísar mér inn í gljá­andi svartan bíl og við keyrum af stað í

óvissu­ferð

sem endar við for­seta­skrif­stof­una. Þar bíðum við meðan Katrín fundar með for­set­anum og röbbum um sam­fé­lags­miðl­ana, reiði í sam­fé­lag­inu síðan í hrun­inu og hættu­lega ör

stjórna­skipti

. Þegar Katrín kemur loks inn í bíl­inn spyr ég hvernig hafi verið í kaff­inu hjá for­set­anum.

„

Alltaf gott að hitta Guðna,

“

segir hún ein­læg. „Hann er svo nota­legur.

“

Út um rúðuna á ráðherrabílnum. Mynd: Mynd. Auður Jónsdóttir
Út um rúð­una á ráð­herra­bílnum. Mynd: Mynd. Auður Jóns­dóttir

Ég get mér til að þau hafi verið að ræða fjár­laga­til­lögur nýju rík­is­stjórn­ar­innar og spyr: Hver er útópía rík­is­stjórnar þinnar?

Katrín segir útóp­í­una vera þá að ná ein­hverjum árangri með aukna sam­vinnu í stjórn­málum án þess að afsláttur sé gef­inn af mál­efna­legri umræðu á Alþingi. „Það má ekki rugla því saman, mál­efna­legri gagn­rýni og átökum átak­anna vegna. Og ég held að við getum gert miklu betur í því að ná sam­stöðu um mál. En mig dreymir líka um að við náum mark­verðum árangri í mála­flokkum sem skipta gríð­ar­legu máli. Eins og lofts­lags­málum og jafn­rétt­is­málum, líka þeim sem lúta að kyn­bundnu ofbeldi og kyn­ferð­is­of­beldi. Ég vona líka að við náum að nýta þessa efna­hags­legu hag­sæld, sem við höfum notið, til að byggja upp grunn­stoðir sam­fé­lags­ins.“

Ein á vaktinni

Katrín svarar fjöl­miðlum meðan við keyrum, sím­tölin halda áfram á skrif­stof­unni. Hún svarar öllum beint og flettir upp í möppum með heyrn­ar­tólin á sér. Ég velti því fyrir mér hvort það sé snið­ugt fyrir hana að hafa engan milli­lið, hún fær ekki minnsta ráð­rúm til að hugsa svörin og áreitið er stöðugt. Fyrrum aðstoð­ar­maður hennar sagði mér að fólk hefði haft óvenju mik­inn aðgang að henni sem mennta­mála­ráð­herra.

Mun fólk hafa jafn greiðan aðgang að henni sem for­sæt­is­ráð­herra?

„Það verður að koma í ljós en ég mun áfram leggja mig fram um að reyna að svara en ég finn það strax á fyrstu dög­unum að ég hef ekki undan við að svara. En bið fólk að virða það að það eru 24 tímar í sól­ar­hringnum hjá mér eins og öðrum.“

Ég þarf að víkja þegar Sigríður Andersen stígur skyndi­lega inn. Frammi bíða sjón­varps­frétta­menn eftir við­tali, blaða­ljós­mynd­ari frá Frétta­blað­inu er jafn­framt mættur og fleiri erindi hrann­ast upp meðan aðstoð­ar­menn­irnir kvarta yfir að hafa aðeins náð nokkrum mín­útum með for­sæt­is­ráð­herra síðan á fimmtu­dag­inn, hún sé svo marg­bókuð.
Þegar Sigríður Andersen fer er komið að fjöl­miðla­fólk­inu. Að því loknu tylli ég mér í volgt sæti Sigríðar, horfi á Katrínu hring­snú­ast í nokkrum síma­við­tölum í við­bót og spyr síðan:

Hvernig svararðu stuðn­ings­fólki VG sem hefur viljað sjá breyt­ingar í dóms­mála­ráðu­neyt­inu og bætta stöðu flótta­fólks?

„Í fyrsta lagi er það þannig að flokk­arnir gera sínar til­lögur um ráð­herra,“ segir hún hraðmælt og fær sér sæti. En við munum vinna að því að bæta stöðu flótta­fólks, það kemur fram í stjórn­ar­sátt­mál­anum.“ Mig langar að spyrja frekar út í þessi mál, sem hefði mátt útskýra betur í stjórn­ar­sátt­mál­anum, en ofur jákvæð skoð­ana­könnun var að ber­ast í hús og hún á nóg með alla þá sem þurfa að ná tali af henni á fyrstu dög­unum í emb­ætti. Síminn hringir við­stöðu­laust svo ég kveð í bili – og skil hana eftir eina á vakt­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Vinstrigræn

Mest lesið undanfarið ár