Stærsti samruni fjölmiðlunar og fjarskipta í Íslandssögunni

Eignir 365 miðla hafa staðið öðrum fjöl­miðla- og fjar­skipta­fyr­ir­tækjum til boða á meðan að verið var að ganga frá samn­ingum við Fjar­skipti, móð­ur­fé­lag Vodafone, um kaup á þeim.

Þrátt fyrir að til­kynnt hafi verið um sölu á ljós­vaka- og fjar­skipta­hluta 365 miðla til Fjar­skipta, móð­ur­fé­lags Vodafone á Íslandi, síð­sum­ars 2016 hefur gengið erf­ið­lega að klára hana. Í des­em­ber var til­kynnt um að verð­mið­inn hefði verið lækk­aður um 1,2 millj­arða króna og þegar end­an­legur kaup­samn­ingur var kynntur í gær kom í ljós að frétta­vefnum Vísi.is og frétta­stofu ljós­vaka­miðla 365 hafði verið bætt við kaupin á loka­metr­unum.

Á fjár­festa­kynn­ingu sem Fjar­skipti héldu í gær kom fram að kaup­verðið er sett fram á verð­bili. Á neðri og efri mörkum þess munar 150 millj­ónum króna og er það háð afkomu hins keypta á árinu 2017 hvort verður ofan á. Fjár­festar túlk­uðu þetta á þann veg að svo stutt væri síðan að Vísi var bætt í pakk­ann að ekki hafi gef­ist almenn­ingur tími til að átta sig á hvert raun­veru­legt verð­mæti vefs­ins væri.

Við­mæl­endur Kjarnans innan fjar­skipta- og fjöl­miðla­geirans segja þó að því fari fjarri að aug­ljóst væri að samn­ingar myndu nást. 365-megin var mál­inu stýrt af Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni, fyrr­ver­andi aðal­eig­anda fyr­ir­tæk­is­ins og eig­in­manns núver­andi aðal­eig­anda, Ingi­bjargar Pálma­dóttur. Það eru allir sem rætt er við, hvort sem það er innan 365 miðla eða hjá við­semj­endum fyr­ir­tæk­is­ins, að Jón Ásgeir stýrir því sem skugga­stjórn­andi, þótt hann sé ekki á neinu skipu­riti. Sú staða opin­ber­að­ist ágæt­lega í gær þegar kaup Fjar­skipta voru kynnt á starfs­manna­fundi í mötu­neyti 365 miðla. Þar sá Jón Ásgeir um að kynna söl­una fyrir starfs­mönn­unum.

Viðræður við aðra

Á þeim tíma sem lið­inn er frá því að upp­haf­lega var til­kynnt um áform Fjar­skipta um að kaupa hluta af starf­semi 365 miðla hefur Jón Ásgeir, og aðrir sem koma að stjórnun 365, líka reynt að selja fyr­ir­tækið, sér­stak­lega valda hluta þess, til ann­arra aðila. Þannig sást oft til Jóns Ásgeirs funda með helstu stjórn­endum Símans á und­an­förnum mán­uðum í höf­uð­stöðvum fjar­skipt­ar­is­ans.

Heim­ildir Kjarnans herma að þar hafi Símanum bæði verið boðið að kaupa ákveðnar eignir út úr 365 auk þess sem verið var að semja um skuldir 365 við Símans, sem eru til­komnar vegna veittrar fjar­skipta­þjón­ustu og aðgengis að sjón­varps­dreifi­kerfi Símans. Á end­anum varð ekk­ert úr því að Síminn reyndi með form­legum hætti að kaupa neitt af eignum 365.

Heim­ildir Kjarnans herma einnig að Árvakri, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins, hafi verið boðið að kaupa útvarps­svið 365 miðla, en þær umleit­anir skil­uðu heldur ekki neinum árangri.

Arion banki þrýsti mjög á kaupin

Helsti drif­kraft­ur­inn á bak við sölu á hluta af 365 til Fjar­skipta er Arion banki. Bankinn end­ur­fjár­magn­aði skuldir 365, nokkuð óvænt, haustið 2015. Áður hafði fyr­ir­tækið verið í banka­við­skiptum við Lands­bank­ann. Við þá breyt­ingu juk­ust lang­tíma­skuldir 365 miðla úr 3,6 millj­örðum króna í 4,8 millj­arða króna.

Rekstur 365 hefur hins vegar ekki verið að ganga neitt frá­bær­lega. 365 miðlar töp­uðu 1,4 millj­arði króna á árinu 2014 og ef það hefði fært skatta­skuld sem það hefur þegar verið dæmt til að greiða í rekstr­ar­reikn­ing 2015 hefði tapið verið 350 millj­ónir króna það árið. Alls skuld­aði fyr­ir­tækið um tíu millj­arða króna í lok þess árs, en af þeirri tölu voru áður­nefndir 4,8 millj­arðar króna vaxta­ber­andi lang­tíma­skuldir . Restin var í formi við­skipta- og skamm­tíma­skulda (um fjórir millj­arðar króna), skamm­tíma­skuldir upp rúm­lega 400 millj­ónir króna og fyrir fram inn­heimtar tekjur upp á rúm­lega 700 millj­ónir króna. Í sam­komu­lag­inu við Fjar­skipti eru yfir­teknar við­skipta­skuldir upp á 1.550 millj­ónir króna en við­skipta­kröfur verða skildar eftir hjá selj­anda við afhend­ingu.

Sævar Freyr Þráinsson tilkynnti í gær að hann væri hættur sem forstjóri hjá 365 miðlum og tekur við starfi bæjarstjóra á Akranesi. Innan 365 er sterklega búist við því að ekki verði pláss fyrir alla starfsmenn fyrirtækisins þegar flutningur þess yfir til Fjarskipta verður yfirstaðinn.
Sævar Freyr Þrá­ins­son til­kynnti í gær að hann væri hættur sem for­stjóri hjá 365 miðlum og tekur við starfi bæj­ar­stjóra á Akranesi. Innan 365 er sterk­lega búist við því að ekki verði pláss fyrir alla starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins þegar flutn­ingur þess yfir til Fjar­skipta verður yfir­stað­inn.


Samkvæmt árs­reikn­ingi 365 fyrir árið 2015 áttu end­ur­greiðslur af end­ur­fjár­mögn­uðu lán­unum sem feng­ust hjá Arion banka að hefj­ast fyrir alvöru í ár, á árinu 2017. Þá átti 365 að greiða bank­anum 396 millj­ónir króna. Miðað við rekstur 365 á und­an­förnum árum hefði orðið erfitt að mæta þeim gjald­daga.

Hvernig fyrirtæki verður 365 miðlar nú?

Fjar­skipti er að kaupa alla fjar­skipta­þjón­ustu sem 365 veitir. Mark­aðs­hlut­deild hennar í far­síma­þjón­ustu er 3,7 pró­sent og í inter­net­þjón­ustu 11,8 pró­sent. Auk þess fara allar sjón­varps- og útvarps­stöðvar 365 miðla yfir til Fjar­skipta. Þar á meðal eru Stöð 2, allar íþrótt­ar­ásir, Bylgjan, FM957 og X-ið. Auk þess var ákveðið á loka­sprett­inum, líkt og áður sagði, að frétta­vef­ur­inn Vísir.is og frétta­stofa ljós­vaka­miðla myndi fylgja með í kaup­unum.

Á fjár­festa­kynn­ing­unni sem haldin var í gær kom fram að aðilar hafi „samið um miðlun frétta­efnis og sam­starf sín á milli í kjöl­far við­skipta.“ Í þessu felst aðal­lega að efni úr Frétta­blað­inu heldur áfram að birt­ast á Vísi, á grunni gerðs þjón­ustu­samn­ings.

Eft­ir­lits­stofn­anir eiga eftir að segja skoðun sína á slíku sam­starfi. Á kynn­ing­unni kom einnig fram að Frétta­blað­inu, sem verður skilið eitt eftir í 365 miðlum með tíma­rit­inu Glamour, má stofna eigin vef­síðu en tak­mark­anir eru á því hvað Frétta­blaðið má gera á þeirri síðu, sam­kvæmt sam­komu­lagi milli aðila.

Þar kom hins vegar ekki fram hvernig frétta­stofu 365 miðla verði skipt upp. Eins og staðan er í dag er einn aðal­rit­stjóri, Kristín Þor­steins­dóttir, yfir henni allri og hún rekin sem ein ein­ing. Fleiri hafa fljót­andi hlut­verk innan fyr­ir­tæk­is­ins sem snertir fleiri en einn teg­und miðla.

Helstu tekjurnar frá áskriftum að sjónvarpsstöðvum

Í fjár­festa­kynn­ing­unni kemur einnig fram að tekjur þeirra ein­inga sem keyptar verða af 365 hafi verið 8,5 millj­arðar króna á árinu 2016. Þar af voru fjar­skipta­tekjur 1,7 millj­arðar króna og aug­lýs­inga­tekjur voru tæp­lega 1,8 millj­arðar króna. Uppi­staðan í tekju­flæð­inu voru áskrifta­tekjur sjón­varps. Þær voru 58 pró­sent allra tekna, eða tæpir fimm millj­arðar króna.

Það eru fá við­skipta­módel sem eiga meira undir högg að sækja en sala á dýrum áskriftum að sjón­varps­stöðvum, líkt og Stöð 2 og tengdar stöðvar hafa byggt rekstur sinn upp á. Pakkar sem inni­halda Stöð 2, og eru til sölu hjá 365, kosta til að mynda frá 9.900 krónum á mán­uði upp í 22.990 krónur á mán­uði. Mán­að­ar­á­skrift að efn­isveit­unni Netflix kostar til sam­an­burðar undir eitt þús­und krónum.

Það var enda til­tekið sem einn helst áhættu­þátt­ur­inn í við­skipt­unum að við­skipta­vinum í áskrift­ar­sjón­varpi muni fækka með auk­inni sam­keppni frá erlendum efn­isveitum. Þeim við­skipta­vinum hefur nú þegar fækkað mjög á und­an­förnum árum og erfitt að sjá hvernig hægt verður að halda við­skipta­vinum í því að borga marg­falt meira fyrir aðgang að efni sem hægt er að mestu að nálg­ast á mun ódýr­ari hátt ann­ars staðar.

Stefán Sig­urðs­son, for­stjóri Vodafone, sagði í Kast­ljósi í gær að félagið hefði mikla reynslu af því að byggja upp áskrift­ar­þjón­ustu eftir að hafa farið í gegnum þann fasa með sölu á Play-þjón­ust­unni á und­an­förnum miss­erum. Nú séu við­skipta­vinir hennar um tíu þús­und. Það er hins vegar mun ódýr­ara að kaupa Play-þjón­ustu Vodafone en að kaupa þá sjón­varps­þjón­ustu sem 365 hefur boðið upp á. Verðið fyrir Play-pakka er á bil­inu 2.490 til 3.990 krónur á mán­uði.

Frábær samningur fyrir stærstu eigendur 365

Það eru flestir við­mæl­endur Kjarnans á því að salan á eign­unum til Fjar­skipta sé frá­bær fyrir eig­endur 365 miðla. Þeir sitja eftir með litlar skuldir, um einn og hálfan millj­arð króna í reiðufé, halda Frétta­blað­inu og fá 10,9 pró­sent hlut í Fjar­skiptum sem gerir þá að einum af stærstu hlut­höf­unum í félag­inu.

Félög í eigu Ingibjargar Pálmadóttur eru stærstu eigendur 365. Þau verða mjög stórir eigendur í Fjarskiptum gangi kaupin eftir. Auk þess verður fjárhagsstaða 365 miðla mjög góð.
Félög í eigu Ingi­bjargar Pálma­dóttur eru stærstu eig­endur 365. Þau verða mjög stórir eig­endur í Fjar­skiptum gangi kaupin eftir. Auk þess verður fjár­hags­staða 365 miðla mjög góð.

En það þarf ekki að þýða að kaupin séu endi­lega slæm fyrir Fjar­skipti. Það er mikil sam­legð fólgin í kaup­unum sem er metin á um 1,1 millj­arða króna á ári þegar hún er að fullu komin fram. Miðað við það ættu kaupin að borga sig upp á nokkrum árum fyrir Fjar­skipti.

Þar af er sparn­aður í tækni­málum met­inn á 600 millj­ónir króna á ári. Um er að ræða sam­legð sem myndi ekki koma fram hjá neinum öðrum kaup­anda en fjar­skipta­fyr­ir­tæki og því ekki margir aðilar sem myndu ná fram þeirri sam­legð aðrir en Vodafone. Líklega bara Síminn. Sam­legðin felst í því að 365, sem á ekki eigin fjar­skipta­kerfi, hættir að kaupa þjón­ustu af Símanum og fer inn á kerfi Vodafone sem er þegar til staðar.

Þorri þeirrar sam­legðar sem á að ná til við­bótar er vegna lægri rekstr­ar­kostn­aðar. Lægri kostn­aður þýðir vana­lega færra starfs­fólk, enda stærsti kostn­aður þjón­ustu­fyr­ir­tæki vana­lega launa­kostn­aður. Auk þess eykst velta Fjar­skipta til muna við kaupin og verður 22 millj­arðar króna. Þá er áætluð EBITDA (hagn­aður fyrir afskriftir, fjár­magns­kostnað og skatta) sam­ein­aðs félags, þegar sam­legð er að fullu komin fram, um fimm millj­arðar króna.

Þótt að búið sé að ganga frá kaup­samn­ingi þá er ekki þar með sagt að kaupin séu frá­gengin. Sam­keppn­is­eft­ir­litið á enn eftir að segja sína skoðun á þeim og í fjár­festa­kynn­ingu Fjar­skipta kom fram að einn helsti áhættu­þáttur við­skipt­anna væri sá að eft­ir­litið banni eða setji kaup­unum íþyngj­andi skil­yrði. Það á því enn margt eftir að ger­ast áður en þessi stærsti sam­runi fjar­skipta og fjöl­miðl­unar í Íslands­sög­unni fær að eiga sér stað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjarskiptamál

Mest lesið undanfarið ár