Sumir unnu margfalt í húsnæðislottóinu

Afgreiðsla skýrslu um hvernig Leið­rétt­ingin, nið­ur­færsla verð­tryggðra fast­eigna­veð­lána, skipt­ist á milli fólks mun bíða nýrrar rík­is­stjórnar. Þetta kemur fram í svari fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið. Tæplega fjórtán mán­uðir eru liðnir frá því að tíu stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn lögðu fram beiðni um skýrsl­una, sem átti að skýra frekar hvernig Leið­rétt­ingin dreifð­ist á milli þeirri sem hana fengu. 

Leið­rétt­ingin er aðgerð sem rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks ákvað á ráð­ast í. Aðgerðin sner­ist um að hluti þeirra Íslend­inga sem voru með verð­tryggð hús­næð­is­lán á árunum 2008 og 2009 fengu 80,4 millj­arða króna greidda úr rík­is­sjóði vegna þess að lán þeirra hækk­uðu í kjöl­far verð­bólgu­skots á þeim árum.

Vísitala íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu (rúm­lega 70 pró­sent Leið­rétt­ing­ar­innar fór á Suð­vest­ur­horn lands­ins), sem mælir hækkun á íbúð­ar­verði, hefur hækkað um 66 pró­sent frá árs­lokum 2009. Vísitala neyslu­verðs, sem mælir verð­bólgu, hækk­aði um 13,4 pró­sent upp­hafi hruns­ins haustið 2008 og til loka árs 2009. Frá hruni og fram til dags­ins í dag hefur vísi­talan hækkað um 38,9 pró­sent.

Því er ljóst að íbúða­verð hefur hækkað langt umfram verð­bólgu á þeim tíma sem lið­inn er frá hruni og eig­endur hús­næðis með verð­tryggð lán fengið umtals­verða eigna­myndun umfram verð­bólgu á því tíma­bili. Auk þess hafa láns­kjör batnað umtals­vert á Íslandi, vextir lækkað og aðgangs­hindr­anir til að end­ur­fjár­magna á betri kjörum verið rutt úr vegi. Þetta hefur leitt til þess að eig­endur fast­eigna á Íslandi hafa séð eign sína aukast um mörg hund­ruð millj­arða króna.

Til við­bótar við þá eigna­myndun fékk hluti þeirra 80,4 millj­arða króna úr rík­is­sjóði.

Sáttmáli kynslóðanna

Leið­rétt­ingin var kynnt undir yfir­skrift­inni „Sáttmáli kyn­slóð­anna“ með lúðra­blæstri á fundi leið­toga rík­is­stjórn­ar­innar í Hörpu haustið 2013. Næsta árið voru haldnir tveir slíkir fundir til við­bótar, sá síð­asti í nóv­em­ber 2014.

Á síð­asta fund­inum var farið yfir valin dæmi um hvernig Leið­rétt­ingin átti að virka. Meðal ann­ars var sýnt að 27.193 ein­stak­lingar sem skuld­uðu undir tíu millj­ónum króna fengu nið­ur­fell­ingu á skuldum sínum vegna aðgerð­ar­innar og að 30 pró­sent upp­hæð­ar­innar sem rík­is­sjóður greiddi út hafi varið til hjóna sem áttu meira en 25 millj­ónir króna í eigin fé í hús­næði sínu og ein­stak­linga sem sem áttu meira en ell­efu millj­ónir króna í eigin fé.

Í þeim gögnum sem birt voru á vef fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins sam­hliða kynn­ing­unni voru flestar upp­lýs­ingar hins vegar settar fram með hlut­falls­bilum og ómögu­legt var að sjá út skipt­ingu milli ald­urs-, tekju- og eigna­hópa utan þeirra dæma sem valin voru sér­stak­lega við kynn­ingu á nið­ur­stöðum aðgerð­ar­innar.

Stjórn­ar­and­stöðu­þing­mönnum þóttu þær upp­lýs­ingar sem veittar höfðu verið um skipt­ingu 80,4 millj­arða króna af skattfé á milli hópa ekki nægj­an­legar. Þann 11. nóv­em­ber 2014 lagði Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, fram fyr­ir­spurn á Alþingi í 15 liðum im Leið­rétt­ing­una. Tæpum mán­uði síðar barst svar frá Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Í svar­inu var engum spurn­inga Katrínar svarað efn­is­lega en svörum lofað á vor­þingi 2015 með með fram­lagn­ingu sér­­stakrar skýrslu ráð­herra um aðgerð­ina.

Málið olli nokkru upp­­­námi á Alþingi og svar­aði ráð­herra í kjöl­farið fimm af 15 spurn­ingum Katrínar 29. jan­ú­­ar 2015. Beðið var eftir frek­­ari svörum í fimm mán­uði til við­­bótar og 29. júní 2015 birti fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra svo skýrslu sína um lækkun höf­uð­stóls verð­­tryggðra hús­næð­is­veð­lána. Hún hafði upp­haf­lega átt að birt­ast í des­em­ber 2014 og verið í „loka­frá­gangi“ frá því í maí 2015.

Smá ljósi varpað á skiptingu

Skýrslan varp­aði skýr­ara ljósi á því hvernig Leið­rétt­ingin skipt­ist á milli þeirra sem hana fengu, en svar­aði ekki öllum þeim spurn­ingum sem fram höfðu verið lagðar. Kjarninn þurfti að óska sér­stak­lega eftir tölum sem lágu á bak við skýr­ing­ar­myndir sem birtar voru í skýrsl­unni til að fá geta áttað sig hvernig upp­hæðin skipt­ist á milli fólks eftir aldri, búsetu og tekjum.

Að ein­hverju leyti voru upp­lýs­ing­arnar sem komu fram í skýrsl­unni end­ur­birt­ing á þeim upp­lýs­ingum sem birtar voru í Hörpu í nóv­em­ber 2014. Þar segir að um 94 þús­und ein­stak­lingar hafi átt rétt á að fá nið­ur­felldar verð­tryggðar skuldir vegna verð­bólgu­skots­ins sem varð á Íslandi á árunum 2008 og 2009. Á þeim árum voru um 80 þús­und Íslend­ingar yngri en 18 ára. Ætla má að um 30 pró­sent þeirra barna séu börn „leið­réttra“ Íslend­inga. Því má segja að sá hópur sem hafi verið „leið­rétt­ur“ vegna verð­bólgu­skots eft­ir­hrunsár­anna telji um 117 þús­und manns. Með­al­fjöldi Íslend­inga árið 2008 og 2009 var 317.413 manns. Það þýðir að rúm­lega 200 þús­und Íslend­ingar eru „óleið­rétt­ir“.

Þar kom enn fremur fram að flestir sem sóttu um leið­rétt­ingu voru um eða yfir fimm­tugt. Þannig fengu þeir sem eru yfir 56 ára alls 26,4 millj­arða króna úr rík­is­sjóði vegna aðgerð­ar­innar en þeir sem voru yngri en 35 ára 4,4 millj­arða króna. Rúmlega 70 pró­sent útdeilds fjár­magns fór til íbúa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eða þeirra sem bjuggu á Suð­vest­ur­landi.

Húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað um 65 prósent frá 2010. Það er langt umfram verðbólgu frá hruni, líka þegar tillit er tekið til „leiðrétta“ timabilsins.
Hús­næð­is­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur hækkað um 65 pró­sent frá 2010. Það er langt umfram verð­bólgu frá hruni, líka þegar til­lit er tekið til „leið­rétta“ tima­bils­ins.

Þá stað­festi skýrslan að tekju­hæstir fengu mest út úr Leið­rétt­ing­unni. Alls fékk tekju­hæsti hóp­ur­inn, þar sem heim­il­is­tekjur voru yfir 21,3 millj­ónir króna á ári, 10,4 millj­arða króna. Sá næst­tekju­hæsti fékk 9,4 millj­arða króna. Sam­tals fengu þessir hópar (þar sem mán­að­ar­legar með­al­tekjur voru ann­ars vegar tæp­lega 1,8 millj­ónir króna á mán­uði og hins vegar tæp­lega 1,2 til tæp­lega 1,8 millj­ónir króna á mán­uði) 19,8 millj­arða króna í leið­rétt­ingu. Með­al­upp­hæð leið­rétt­ing­ar­greiðslu var 7,6 pró­sent af árs­tekjum efsta bils­ins. Til sam­an­burðar nam heild­ar­upp­hæð leið­rétt­ingar 62 pró­sentum af árs­tekjum lægsta tekju­bils­ins sem fékk greiðslu vegna Leið­rétt­ing­ar­innar.

Stóreignafólk fékk milljarða í Leiðréttingu

Engar upp­lýs­ingar eru um eigna­stöðu þeirra sem fá leið­rétt­ingu í skýrsl­unni. Þar mátti hins vegar sjá að tæpur þriðj­ungur þeirra heim­ila sem fengu gef­ins fé úr rík­is­sjóði í aðgerð­inni skuld­aði undir tíu millj­ónum króna. Til að setja töl­una í sam­hengi má benda á að með­al­upp­hæð gerðs kaup­samn­ings vegna íbúð­ar­kaupa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu síð­ustu rúmu þrjá mán­uði er 44,6 millj­ónir króna. 

Það eina sem kemur fram um eigna­stöðu þiggj­enda er sú að alls hafi 1.250 manns sem greiddu auð­legð­ar­skatt árið 2013 höf­uð­stólslækk­un. Til að borga auð­legð­ar­skatt, sem nú hefur verið aflagð­ur, þurftu hjón að eiga meira en 100 millj­ónir króna í hreinni eign (ein­stak­lingur þurfi að eiga 75 millj­ónir króna). Alls fékk þessi stór­eign­ar­hóp­ur, sem er um fjórð­ungur allra þeirra sem greiða auð­legð­ar­skatt, 1,5 millj­arð króna vegna Leið­rétt­ing­ar­innar.

Til við­bótar kom fram að þau heim­ili sem skuld­uðu ekki lengur verð­tryggð hús­næð­is­lán, meðal ann­ars vegna þess að þau höfðu borgað þau upp, fengu svo­kall­aðan sér­stakan per­sónu­af­slátt í stað nið­ur­færslu á höf­uð­stól. Alls fékk sá hópur 5,8 millj­arða króna úr rík­is­sjóði. Í reiðu­fé.

Beiðni um frekari skiptingu

Í ljósi þess að skýrsla Bjarna svar­aði ekki nema að hluta til þeim spurn­ingum sem Katrín hafði óskað eftir svörum við lögðu tíu þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar sam­eig­in­lega fram beiðni um nýja skýrslu. Beiðnin var fyrst lögð fram í júní 2015 og svo aftur í októ­ber sama ár. Seinni beiðnin var sam­þykkt 20. októ­ber 2015.

Þing­­menn­irnir tíu fóru meðal ann­­ars fram á að fá að vita hvernig heild­­ar­­upp­­hæð leið­rétt­ing­­ar­inn­­ar, um 80,4 millj­­örðum króna, skipt­ist eftir tekjum á milli allra fram­telj­enda árið 2014, hvort sem þeir nutu lækk­­unar eða ekki og hvernig heild­­ar­­upp­­hæðin dreif­ist á milli allra fram­telj­enda eftir hreinum eign­­um.

Spurn­ing­­arnar fimm sem stjórn­­­ar­and­­stöð­u­­þing­­menn­irnir vilja fá svör við eru eft­ir­far­andi:

  1. Hvernig skipt­ist heild­­ar­­upp­­hæð þeirrar fjár­­hæðar sem varið hefur verið til lækk­­unar verð­­tryggðra fast­­eigna­veð­lána ein­stak­l­inga milli beinnar höf­uð­stólslækk­­unar á fast­­eigna­veð­lánum ein­stak­l­inga og frá­­­drátt­­ar­liða, svo sem fast­­eigna­veð­krafna án veð­­trygg­inga, van­skila og greiðslu­­jöfn­un­­ar­­reikn­inga?
  2. Hverjir eru frá­­­drátt­­ar­lið­irnir og hver er skipt­ingin milli þeirra í krónum talið?
  3. Hvert er heild­­ar­hlut­­fall beinnar höf­uð­stólslækk­­un­­ar, þ.e. lækk­­unar höf­uð­stóls að und­an­­skildum frá­­­drátt­­ar­lið­um, af verð­­tryggðum fast­­eigna­veð­lán­um?
  4. Hvernig dreif­ist heild­­ar­­upp­­hæðin sem varið hefur verið til lækk­­unar verð­­tryggðra hús­næð­is­lána eftir tekjum á milli allra fram­telj­enda árið 2014, hvort sem þeir nutu lækk­­unar eða ekki? Hvert er hlut­­fall heild­­ar­­upp­­hæð­­ar­innar sem skipt­ist niður á tekju­bil hvers tíunda hluta fyrir sig, miðað við eignir á árinu 2014? Hver er fjöldi fram­telj­enda á bak við hvert tekju­bil?
  5. Hvernig dreif­ist heild­­ar­­upp­­hæðin sem varið hefur verið til lækk­­unar verð­­tryggðra hús­næð­is­lána á milli allra fram­telj­enda árið 2014 eftir hreinum eign­um, þ.e. eignum umfram skuld­ir? Hvert er hlut­­fall heild­­ar­­upp­­hæð­­ar­innar sem skipt­ist niður á eigna­bil hvers tíunda hluta fyrir sig, miðað við eignir á árinu 2014? Hver er fjöldi fram­telj­enda á bak við hvert eigna­bil?
Katrín Jakobsdóttir lagði fram beiðni um nýja skýrslu um skiptingu Leiðréttingarinnar fyrir um fjórtán mánuðum síðan.
Katrín Jak­obs­dóttir lagði fram beiðni um nýja skýrslu um skipt­ingu Leið­rétt­ing­ar­innar fyrir um fjórtán mán­uðum síðan.

Síðan eru liðnir tæp­lega fjórtán mán­uðir og ný skýrsla hefur enn ekki borist.

Ekkert gerst

Kjarninn spurð­ist fyrir um afdrif skýrsl­unnar í júní síð­ast­liðnum. Í svörum ráðu­neyt­is­ins kom fram að ekki væri hægt að fá upp­lýs­ingar um hvenær skýrslan yrði til­búin en að hún yrði send Alþingi um leið og það gerð­ist.

Þann 11. októ­ber síð­ast­lið­inn, rétt rúmum tveimur vikum fyrir kosn­ingar, vakti Katrín Jak­obs­dóttir athygli á stöðu skýrslu­gerð­ar­innar á þingi. „Þessar upp­lýs­ingar hljóta að liggja fyrir og hæstv. ráð­herra gerði þá betur í því að skila bara auðu og segja að hann hafi ekki upp­lýs­ing­arnar ef hann hefur þær ekki. Þetta á auð­vitað að vera löngu kom­ið, herra for­seti. Þetta er ekki boð­leg­t,“ sagði Katrín. Hún sagði að henni hefði verið sagt að rekið hafi verið eftir skýrsl­unni í ráðu­neyt­inu. „Ég fer nú að velta því fyrir mér hvernig hæst­virtir ráð­herrar ætla að sinna skyldum sínum gagn­vart þing­inu þegar þeir kom­ast upp með það í heilt ár að svara ekki skýrslu­beiðni frá tíu þing­mönnum úr öllum stjórn­ar­and­stöðu­flokk­un­um.“

Oddný Harð­ar­dóttir, þá for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, tók undir með Katrínu og sagði vinnu­brögðin í mál­inu til hábor­innar skammar, að það skuli drag­ast í heilt ár að bregð­ast við skýrslu­beiðni um stærsta kosn­inga­lof­orð­ið. „Maður spyr sig þá hvort þarna séu spurn­ingar sem hæstv. fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra treysti sér ekki til þess að upp­lýsa um svörin við. Þarna er spurt um tekj­ur, eign­ir, hverjir fengu nið­ur­greiðsl­una. Er það ekki einmitt eins og bent hefur verið á að þarna var ríku fólki rétt rík­isfé og stuðn­ing­ur? Ég leyfi mér að full­yrða að þess vegna sé skýrslan ekki komin fram. Meðan ég fæ ekki aðrar skýr­ingar held ég mig við þessa.“

Einar K. Guð­finns­son, for­seti Alþing­is, sagð­ist þá ætla að kanna hvernig á þessu stæði og hvers vegna skýrslan væri ekki komin til Alþing­is.

Síðan hefur ekk­ert gerst.

Eigið fé fasteignaeigenda hefur tvöfaldast

Á vef Alþingis stendur nú um afdrif skýrsl­unnar að beiðni vegna hennar hafi verið leyfð en að skýrslan hafi ekki borist. Kjarninn beindi fyr­ir­spurn til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins um stöðu skýrsl­unnar og í svari þess, sem barst í dag, kemur fram að afgreiðsla skýrsl­unnar muni bíða nýrrar rík­is­stjórnar.

Það verður því enn nokkur bið á því að almenn­ingur á Íslandi fái nákvæm­lega að vita hvernig 80,4 millj­arðar króna sem greiddir voru út úr rík­is­sjóði skipt­ist niður á lands­menn þrátt fyrir að rúm þrjú ár séu síðan að Leið­rétt­ingin var kynnt í Hörpu.

Þótt langt sé um liðið, og þegar sé búið að greiða út allt féð, þá skipta upp­lýs­ing­arnar um skipt­ingu þess samt sem áður enn miklu máli. Ástæður á íslenskum hús­næð­is­mark­aði eru nefni­lega þannig að verð hefur hækkað gríð­ar­lega á und­an­förnum árum og hindr­unum þeirra sem eru með lágar tekjur, eiga litlar eignir eða eru bara ungir inn á mark­að­inn hefur fjölgað mikið. Visitala íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem mælir hækkun á íbúð­ar­verði, hefur til að mynda hækkað um 48,4 pró­sent frá árs­lokum 2009. Það þýðir að íbúð sem kost­aði 30 millj­ónir króna í lok árs 2009 kostar nú tæp­lega 45 millj­ónir króna og þörf þeirra sem vilja kaupa fyrir eigið fé hefur vaxið úr sex millj­ónum króna í tæp­lega níu millj­ónir króna, sé miðað við 20 pró­sent eig­in­fjár­fram­lag. Íbúða­verð hefur hækkað langt umfram verð­bólgu frá hruni, meðal ann­ars þá verð­bólgu sem Leið­rétt­ingin var greidd út vegna. Þá hafa vaxta­kjör verð­tryggðra lána lækkað til muna – meðal ann­ars með inn­komu líf­eyr­is­sjóða á þann markað – og hindr­unum almenn­ings til að skipta um fjár­mögnun fækkað. Þeir sem fengu leið­rétt en búa enn í verð­tryggðu eign­inni hafa því hagn­ast þrefalt á þró­un­inni hér­lendis á und­an­förnum árum. Virði hús­næðis þeirra hefur hækkað langt umfram verð­bólgu, þeir fengu nið­ur­greiðslu á lánum sínum vegna Leið­rétt­ing­ar­innar og láns­kjör þeirra hafa batnað til muna.

Á sama tíma hefur eft­ir­spurn eftir hús­næði auk­ist mun hraðar en fram­boð, meðal ann­ars vegna auk­ins fjölda ferða­manna. Bygging nýs íbúð­ar­hús­næðis er óra­fjarri því að mæta þeirri miklu eft­ir­spurn sem er eftir hús­næði. Afleið­ingin er meðal ann­ars sú að 42 pró­sent ungs fólks á aldr­inum 20-29 ára á höf­uð­borg­ar­svæð­inu býr nú í for­eldra­húsum. Fyrir tíu árum var þetta hlut­fall ríf­lega 30 pró­sent. Miklu fleiri í þessum ald­urs­hópi búa í for­eldra­húsum á Íslandi en á hinum Norð­ur­lönd­unum. Leigu­verð hefur líka rokið upp. Í síð­asta mán­uði var með­alleigu­verð í Reykja­vík á þriggja her­bergja 77 fer­metra íbúð 170.670 þús­und krónur á mán­uði. Í árs­lok 2011 kost­aði leiga fyrir slíka íbúð 114.884 krónur.

Á meðan að sífellt stærri hópur glímir við óyf­ir­stíg­an­legar aðgangs­hindr­anir inn á hús­næð­is­markað, hvort sem er eignar- eða leigu­markað, verða þeir sem eiga eignir á Íslandi sífellt rík­ari.

Samkvæmt tölum Rík­is­skatt­stjóra var eigið fé lands­manna 2.813 millj­arðar króna í lok árs 2015. Ári áður var það 2.443 millj­arðar króna. Það jókst því um 370 millj­arða króna á árinu 2015. Helsta ástæða þess að eigið fé flestra Íslend­inga hefur auk­ist hratt á síð­ustu árum er gríð­ar­leg hækkun á hús­næð­is­verði. Sú hækkun hefur haft áhrif á alla hópa sam­fé­lags­ins, en þó hlut­falls­lega mest áhrif á þá sem höfðu eign­ast fast­eignir en áttu lítið eða ekk­ert í þeim. Þorri eigna venju­legra íslenskra launa­manna eru enda bundnar í fast­eignum, þegar eign þeirra í líf­eyr­is­sjóðum er und­an­skilin. Frá árinu 2010, þegar fast­eigna­mark­að­ur­inn náði botni sínum eftir hrunið, hefur vísi­tala íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað um 66 pró­sent. 

Á því tíma­bili hefur eigið fé þeirra Íslend­inga sem eiga fast­eignir tvö­fald­ast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár