8% líkur á meirihluta Vinstri grænna og Samfylkingar

Þing­sæta­spáin reiknar líkur á því hvaða meiri­hluta verður hægt að mynda að loknum kosn­ingum. Vinstri­st­jórn er lík­legri en hægri stjórn.

Það eru átta pró­sent líkur á því að Vinstri græn og Sam­fylk­ingin geti saman stjórnað meiri­hluta þing­manna að kosn­ingum loknum, miðað við þing­sæta­spá kosn­inga­spár­innar. Ef Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er til að starfa með þessum tveimur flokkum eru lík­urnar 33 pró­sent á að flokk­arnir geti myndað meiri­hluta.

Líkur á sam­an­lögðum þing­manna­fjölda
ÞingmennDMDFMACDBDBDMBDFMBDSMBSVBPSVPSVPVDVSV
>=380.000.000.000.000.000.010.150.030.320.090.000.130.00
>=370.000.000.000.000.000.020.210.050.410.130.000.180.00
>=360.000.000.000.000.000.040.280.080.510.190.000.240.01
>=350.000.010.000.000.010.060.350.120.600.260.000.320.02
>=340.000.020.000.000.010.100.440.180.680.340.000.400.03
>=330.000.030.000.000.020.150.530.250.760.430.010.500.05
>=320.000.040.000.000.050.210.630.330.820.520.020.590.08
>=310.010.070.000.000.070.280.710.420.880.610.030.690.12
>=300.010.110.010.000.110.360.790.510.920.700.050.770.18
>=290.020.160.010.010.170.450.850.600.950.780.090.840.25
>=280.040.220.010.010.230.540.890.690.970.850.130.890.33
>=270.070.290.030.030.310.630.930.760.980.890.200.930.43
>=260.110.380.040.050.400.710.960.830.990.930.280.960.53
>=250.160.470.070.080.490.790.970.890.990.960.370.980.63
>=240.230.570.110.120.580.850.980.921.000.980.480.990.73
>=230.310.660.160.180.670.900.990.951.000.990.581.000.81
>=220.410.740.220.250.760.930.990.971.000.990.681.000.87
>=210.520.810.300.340.830.961.000.981.001.000.771.000.91
>=200.620.870.400.440.880.981.000.991.001.000.841.000.95
>=190.720.910.490.550.920.991.001.001.001.000.891.000.97

Líkur á að sam­an­lagður þing­manna­fjöldi fram­boðs­lista nái meiri­hluta á þingi. Til að fá eins manns meiril­huta á Alþingi þarf sam­an­lagður fjöldi að vera 32 þing­menn. Rauða strikið í töfl­unni hér að neðan er sláin sem þarf að kom­ast yfir.

Kosn­inga­spáin er unnin af Baldri Héð­ins­syni í sam­starfi við Kjarnann. Í kosn­inga­spánni eru fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­anir á fylgi fram­boða í Alþing­is­kosn­ingum vegnar og nið­ur­stöður þeirra lagðar saman til þess að fá sem skýrasta mynd af þróun stuðn­ings við stjórn­mála­öfl.

Nýjasta kosn­inga­spáin var gerð laug­ar­dags­morg­un­inn 14. októ­ber. Þar sést að stuðn­ingur við Vinstri græna er nú 25,2 pró­sent, stuðn­ingur við Sjálf­stæð­is­flokk­inn er 22,5 pró­sent og stuðn­ingur við Sam­fylk­ing­una er 13 pró­sent.

Sam­fylk­ingin hefur aldrei mælst svo vin­sæl í kosn­inga­spánni fyrir fram­boð til Alþingis. Fyrsta kosn­inga­spáin fyrir Alþing­is­kosn­ingar var gerð 20. jan­úar 2016. Það eitt og sér eykur lík­urnar á því að Vinstri græn og Sam­fylk­ingin geti myndað rík­is­stjórn að loknum kosn­ingum.

Nánar má lesa um aðferða­fræð­ina á bak við gerð kosn­inga­spár­innar og þing­sæta­spár­innar hér á vefnum, kjarn­inn.is/kosn­inga­spá. Einnig má lesa um nið­ur­stöðu kosn­inga­spár­innar á vefnum kosn­inga­spá.is

Píratar mæl­ast nú með 9,5 pró­sent stuðn­ing í kosn­inga­spánni. Lík­leg­ast er að með slíkan stuðn­ing á lands­vísu fái Píratar sex þing­menn. Vinstri flokk­arnir og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn gætu þess vegna rennt hýru auga til Pírata. Við það eitt að setja Pírata með í jöfn­una verða lík­urnar á því að sam­an­lagðir þing­flokkar Fram­sóknar (B), Pírata (P), Sam­fylk­ing­ar­innar (S) og Vinstri grænna (V) geti myndað meiri­hluta eftir kosn­ingar 82 pró­sent.

Flóknara að mynda stjórn til hægri

Erfiðara gæti reynst að mynda rík­is­stjórn þar sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn verður burða­rás­inn. Sú þeir flokkar sem stóðu að rík­is­stjórn­inni sem sat á kjör­tíma­bil­inu eiga enga mögu­leika á að mynda meiri­hluta á þingi að kosn­ingum loknum miðað við kosn­inga­spána.

Þing­sæta­spáin er unn­inn þannig að fram­kvæmdar eru 100.000 sýnd­ar­kosn­ingar þar sem nið­ur­stöður kosn­inga­spár­innar eru hafðar sem lík­leg­asta nið­ur­staða kosn­inga. Vikmörk og skekkja, auk sögu­legs mis­ræmis í fylgi milli kjör­dæma eru höfð til hlið­sjónar til þess að skil­greina dreif­ingu atkvæða. Í engum af þessum 100.000 sýnd­ar­kosn­ingum fengu Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, Viðreisn og Björt fram­tíð nógu marga þing­menn til þess að mynda meiri­hluta.

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, mun þess vegna þurfa að leita á náðir ann­arra flokka ef hann vill mynda rík­is­stjórn að loknum kosn­ingum. Ef hann vill mynda stjórn til hægri gæti Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn boðið Mið­flokknum og Flokki fólks­ins upp í dans. Líkurnar á því að þessir þrír flokkar geti myndað meiri­hluta á þing­inu eftir kosn­ingar er fjögur pró­sent.

Ef Bjarna tekst að sætta Sigmund Davíð Gunn­laugs­son á að taka þátt í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi með Fram­sókn­ar­flokknum gætu Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Mið­flokk­ur­inn hugs­an­lega myndað meiri­hluta á þing­inu. Líkurnar á því að það verði mögu­legt eru fimm pró­sent.

Nánar má lesa í nýj­ustu kosn­inga­spána í kosn­inga­mið­stöð Kjarnans eða á vefnum kosn­inga­spá.is.

Þær kann­anir sem liggja til grund­vallar nýj­ustu kosn­inga­spánni eru eft­ir­far­andi:

  • Þjóð­mála­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 9. – 12. októ­ber (vægi 27,7%)
  • Þjóð­ar­púls Gallup 29. sept­em­ber – 12 októ­ber. (vægi 30,5%)
  • Skoð­ana­könnun MMR 6. – 11. októ­ber (vægi 22,0%)
  • Skoð­ana­kann­anir Frétta­blaðs­ins, Stöðvar 2 og Vísis 2-3. okt og 10. okt (vægi 19,8%)
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár