Mynd: EPA

Lúxusfrí á lystiskipi breyttist í margra vikna martröð

„Því miður þá eru fjórir far­þegar okkar látnir,“ heyr­ist skip­stjór­inn segja í hátal­ara­kerfi skips­ins. „Einn í nótt, tveir í gær og einn fyrir nokkrum dögum.“ Farþegar sitja hljóðir, lok­aðir inni í klefum sínum. Það er far­sótt um borð.

Þegar skemmti­ferða­skipið Zaandam lagði úr höfn frá Buenos Aires í Argent­ínu þann 7. mars voru far­þeg­arnir 1.200 fullir eft­ir­vænt­ingar. Fyrir höndum var tveggja vikna ferð með­fram strand­lengju Suður-Ameríku – alla leið til syðsta odda álf­unnar. Ein­hverjir kunna þó að hafa verið óró­legir. Á þessum tíma­punkti hafði kór­ónu­veiran breiðst út til margra landa og Kína, þar sem hún átti upp­tök sín, gripið til harðra aðgerða til að reyna að stöðva útbreiðsl­una. Það virt­ist þó ekki hafa stöðvað veiruna.

Sumir höfðu ætlað að hætta við ferð­ina, fá end­ur­greitt. En það hafði reynst þrautin þyngri. Annað skipa­fé­lag hafði reyndar sagt sínum far­þegum að núna væri einmitt rétti tím­inn til að ferð­ast um á skemmti­ferða­skipi á suð­lægum slóðum; veiran þyldi nefni­lega illa hita.

En lík­lega viku áhyggj­urnar úr hugum far­þeg­anna um borð í Zaandam þegar siglt var af stað og þeir kynntu sér þæg­indin og þjón­ust­una um borð: Margir veit­inga­staðir og barir. Sól­stólar á hverju þil­fari. Brosmilt fólk úr rúm­lega 580 manna áhöfn á þönum um allt skip til að gera ferð­ina sem þægi­leg­asta. Þar var líka sjúkra­stofur að finna, lækna og hjúkr­un­ar­fræð­inga. Allt var eins og best var á kosið.

En fríið átti fljótt eftir að breyt­ast í hreina martröð. Faraldur COVID-19 braust út um borð, margir veikt­ust og fjórir far­þegar lét­ust. Ferðin varð tæpar fjórar vikur af hel­víti; skipið fékk hvergi að koma til hafnar og þurfti að taka á móti vistum og sjúkra­gögnum í skjóli nætur. Stóran hluta tím­ans voru far­þegar í sótt­kví í klefum sínum og fengu sjaldan upp­lýs­ingar um stöð­una hverju sinni.

„Hversu margir til við­bótar þurfa að deyja um borð í þessu skipi á meðan það bíður eftir aðstoð?“ sagði Andrea Anderson, 62 ára far­þegi, er rík­is­stjóri Flórída dró það að svara því hvort að skipið mætti koma þangað. Anderson dvaldi í tíu daga inni í litlum klefa ásamt eig­in­manni sínum. Hún segir það hafa tekið veru­lega á.

Zaandam er í eigu skipafélagsins Holland America. Það var tæpar fjórar vikur á sjó og fékk hvergi að leggja að bryggju.
Zaandam er í eigu skipa­fé­lags­ins Holland America. Það var tæpar fjórar vikur á sjó og fékk hvergi að leggja að bryggju.

Ferðalag Zaandam, sem er í eigu skipa­fé­lags­ins Holland America, átti eftir að leiða í ljós að þegar heims­far­aldur geisar og líf eru í hættu þá hugsar hver um sig.

Aðeins fjórum dögum eftir að Zaandam lagði úr höfn lýsti Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin yfir heims­far­aldri kór­ónu­veirunnar. Skipa­fé­lagið Holland America ákvað að koma öllum sínum skipum í höfn. En um leið og heims­far­aldri hafði verið lýst yfir tóku mörg ríki við sér, settu á ferða­bönn og lok­uðu landa­mærum sínum. Það gerðu ríkin í Suður-Ameríku hvert af öðru, m.a. Chile. Svo er skipið nálg­að­ist höfn­ina í Valparaíso barst til­kynn­ing: Þangað mátti það ekki koma.

Ákveðið var að sigla norður með strönd­inni og reyna að kom­ast að landi í öðrum ríkjum. En allt kom fyrir ekki. Alls staðar var skip­stjór­anum neitað.

Farið var að bera á veik­indum meðal bæði far­þega og áhafn­ar­innar. Og þörfin á frek­ari sjúkra­gögnum jókst sífellt. Er skipið var fyrir utan Ekvador var farið í leyni­lega aðgerð að nóttu til og vistir og bún­aður fluttur um borð í skipið með þyrlu frá landi.

Stefnan var tekin á Flórída en til að kom­ast þangað þurfti að fara í gegnum Panama­skurð­inn.

Farþegum var fyr­ir­skipað að halda til í klefum sínum til að reyna að draga úr útbreiðsl­unni um borð. Klef­arnir voru margir hverjir litlir, glugga­lausir og loft­ræst­ing og nátt­úru­leg birta því lítil sem engin. Enda dvelja far­þegar skemmti­ferða­skipa alla jafna lítið í klefum sínum nema yfir blánótt­ina.

Ein­hverjir úr áhöfn­inni náðu bata en fleiri far­þegar, aðal­lega þeir sem eldri voru, fóru að finna fyrir flensu­líkum ein­kennum.

Einn dag­inn, er skipið var statt utan Panama, flutti skip­stjór­inn til­kynn­ingu í hátal­ara­kerf­inu. „Því miður þá eru fjórir far­þegar okkar látnir,“ sagði hann. „Einn í nótt, tveir í gær og einn fyrir nokkrum dögum. Við erum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að sýna ást­vinum þeirra stuðn­ing á þessum erf­iðu tímum.“

Hann sagði í sömu til­kynn­ingu að tekin hefðu verið sýni af nokkrum far­þegum og að tveir hefðu greinst með COVID-19.

Ótti greip um sig meðal margra far­þeg­anna og ekki síður ást­vina þeirra í landi sem fylgd­ust með fréttum af mál­inu í fjöl­miðlum.

Annað skip til aðstoðar

Skipa­fé­lagið ákvað þegar þarna var komið sögu að stefna öðru skipi sínu, Rott­er­dam, til móts við Zaandam. Það hafði legið við bryggju í Mexíkó og eftir þriggja daga sigl­ingu var það, með rúm­lega 600 manna áhöfn, komið að hlið Zaandam. Þá kom önnur til­kynn­ing frá skip­stjór­anum, ekki minna ógn­vekj­andi fyrir marga en sú fyrri: „Við byrjum á því í dag að færa lít­inn hóp gesta yfir í Rott­er­dam,“ sagði hann. Fyrst áttu allir að gang­ast undir heilsu­fars­skoðun því það átti aðeins að leyfa heil­brigðum far­þegum að yfir­gefa hið sýkta skip. Um 800 manns voru að end­ingu flutt um borð í Rott­er­dam.

Strandgæslan í Panama fylgdist með Zaandam úti fyrir ströndum landsins.
Strand­gæslan í Panama fylgd­ist með Zaandam úti fyrir ströndum lands­ins.

Eftir að ljóst var að skipið fengi hvergi að koma í höfn í Suður-Ameríku, og efa­semdir höfðu vaknað um að rík­is­stjóri Flórída myndi heim­ila því að koma, gerð­ust far­þeg­arnir óró­legir. Og þegar stjórn­völd í Panama bönn­uðu skip­inu að sigla í gegnum Panama­skurð­inn greip ótti um sig.

Einn far­þeg­anna sendi breska blað­inu Guardian skila­boð um að hann hefði verið inni í klefa sínum í marga daga. Mat­ar­bakkar væru settir fyrir utan dyrnar þrisvar á dag. Í fyrstu var boðið upp á eina heita mál­tíð dag­lega en það átti eftir að breyt­ast.

Laura Gabaroni Huergo, sem einnig var far­þegi í skip­inu, greindi frá því á Facebook að eng­inn vissi hvað nú tæki við. „Við erum að bíða og vona að yfir­völd geri hið rétta, bæði fyrir þá sem eru veikir og okkur hin.“

Skiptu um skoðun

Yfirvöld í Panama sögðu í yfir­lýs­ingu að þau gætu ekki heim­ilað ferðir skipa þar sem grunur væri um COVID-smit um Panama­skurð­inn því senda þyrfti full­trúa yfir­valda um borð. Í land­inu höfðu þá greinst tæp­lega 800 smit og fjórtán höfðu lát­ist.

Fyrir rúmri viku skiptu þau þó um skoðun og gerðu und­an­þágu frá bann­inu af „mann­úð­ar­á­stæðum“. Zaandam sigldi um skurð­inn og hélt för sinni til Fort Lauder­dale í Flórída áfram.

Yfirvöld þar voru hins vegar langt í frá spennt fyrir því að taka á móti skip­inu. Þau sögð­ust eiga nóg með sitt, margir væru veikir og sjúkra­hús að fyll­ast af sjúk­lingum.

Rík­is­stjór­inn Ron DeSantis var mót­fall­inn því að fá skipið að landi í Flórída. Hann taldi áhætt­una of mikla. Það þurfti for­seta lands­ins, Donald Trump, til að fá hann til að skipta um skoðun. Og þá stað­reynd að hann frétti að margir sem voru um borð voru Banda­ríkja­menn og um fimm­tíu voru frá hans ríki.

Á laug­ar­dag­inn komu svo bæði Zaandam og Rott­er­dam til hafnar í Fort Lauder­dale. Þeir sem ekki voru sýktir og höfðu engin ein­kenni sýnt fengu að fara frá borði og til síns heima þar sem þeir dvelja nú í sótt­kví. Aðrir verða í sótt­kví í skip­inu þar til þeim batnar.

Rúmlega tíu far­þegar voru fluttir veikir á sjúkra­hús.

Farþegar um borð í Zaandam að bíða eftir að komast í land í Flórída.
Farþegar um borð í Zaandam að bíða eftir að kom­ast í land í Flórída.

En fleiri skemmti­ferða­skip, með sam­tals um tíu þús­und far­þega inn­an­borðs, eru í sömu stöðu víðs vegar um heim­inn. Af þessu hefur Dean Tran­talis, borg­ar­stjóri í Fort Lauder­dale, áhyggjur. „Við höfum engar upp­lýs­ingar um ástand far­þeg­anna [í hinum skip­unum]. Þetta eru ekki síð­ustu skipin [sem vilja koma til hafnar í borg­inni]. Það eru fleiri skip þarna úti, svo að við erum enn í þess­ari klemmu.“

Í þess­ari viku höfn­uðu yfir­völd í Fort Lauder­dale beiðni skemmti­ferða­skips­ins Coral Princess að koma þar til hafnar. Skipið end­aði á því að fara til Miami. Einn hafði þá dáið um borð og margir veikst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár