Geðsjúkdómar geri fólk ekki sjálfkrafa að vanhæfum foreldrum

Fjöldi danskra ein­stak­linga og para sem sótt hefur um frjó­sem­is­með­fer hefur verið neitað um hana vegna geð­rænna vanda­mála sem þó eru ekki lengur talin hafa áhrif á hæfni þeirra sem for­eldra. Sér­fræð­ingar segja hæfn­is­matið ófull­nægj­andi og kalla eftir brey

Í Danmörku geta for­eldrar verið dæmdir óhæfir jafn­vel áður en þeir eign­ast börn. Svona hefst umfjöllun danska rík­is­út­varps­ins um fimm danska ein­stak­linga og pör sem fengið hafa neitun um frjó­sem­is­með­ferð vegna sögu um geð­ræn vanda­mál for­eldr­anna.

Frá árinu 2011 hafa í Danmörku verið í gildi lög sem kveða á um að meta skuli hæfni fólks til for­eldra­hlut­verks­ins áður en það fær sam­þykki fyrir frjó­sem­is­með­ferð. Lögin voru sett í kjöl­far þess að par, sem kynnst hafði á geð­sjúkra­húsi, gekkst undir slíka með­ferð en reynd­ust svo óhæf til að sinna barn­inu, sem tekið var af því fimm vikum eftir fæð­ingu. Flestir eru hlynntir því að ein­hvers konar mat fari fram en margir telja fram­kvæmd­ina eins og hún er í dag ófull­nægj­andi.

Ferlið er þannig að heil­brigð­is­stofn­anir sem fram­kvæma frjó­sem­is­með­ferðir geta, ef þær telja til­efni til, vísað umsækj­endum í sér­stakt hæfn­is­mat þar sem umsækj­endur þurfa að skrifa undir leyfi þess efnis að mats­að­ili fái aðgang að öllum sjúkra­skýrslum sem og upp­lýs­ingum sem ríki og sveit­ar­fé­lög, svo sem úr félags­þjón­ustu, hefur á skrá um ein­stak­ling­inn. Mat þetta er svo ávallt fram­kvæmt af lög­fræð­ingum í Suður-Danmörku, alveg sama hvar sótt hefur verið um frjó­sem­is­með­ferð­ina.

Eitt barn samþykkt, annað ekki

Lög­fræð­ingar þessir taka svo ákvörðun um hæfni umsækj­end­anna til for­eldra­hlut­verks­ins út frá gögn­unum, og gögn­unum ein­göngu. Þetta er það sem helst hefur verið gagn­rýnt, en dæmi eru um að heim­il­is­læknar, geð­læknar og félags­ráð­gjafar umsækj­end­anna sem um ræðir hafi allir metið það svo að þeir væru hæfir til for­eldra­hlut­verks­ins, en að lög­fræð­ingar jafn­vel hund­ruð kíló­metra í burtu hafi neitað umsókn þeirra vegna gagna á pappír.

Lögfræðingar í Suður-Danmörku meta hæfni allra umsækjenda um frjósemisaðgerðir, án þess að hafa hitt þá.
Lög­fræð­ingar í Suður-Danmörku meta hæfni allra umsækj­enda um frjó­sem­is­að­gerðir, án þess að hafa hitt þá.

Danska rík­is­út­varpið setti sig í sam­band við fimm ein­stak­linga og fjöl­skyldur sem neitað hefur verið um frjó­sem­is­með­ferð vegna slíks hæfn­is­mats. Ein af áhrifa­rík­ustu sög­unum höfðu Karen og Pernille að segja. Karen komst fyrst á skrá hjá dönskum geð­heil­brigð­is­yf­ir­völdum ell­efu ára gömul og hefur tvisvar verið lögð inn á geð­sjúkra­hús á full­orð­ins­árum og var í kjöl­farið greind með vægan geð­klofa. Karen er öryrki vegna geð­sjúk­dóms­ins þrátt fyrir að honum sé haldið í skefjum með lyfjum.

Karen og Pernille lang­aði að stofna fjöl­skyldu og gengu fyrst úr skugga um að heim­il­is­læknir, geð­læknir og félags­ráð­gjafi Karenar teldu hana til­búna í for­eldra­hlut­verkið, sem þeir og gerðu. Þegar á hólm­inn var komið fengu þær hins vegar synjun vegna mats lög­fræð­ing­anna í Suður-Danmörku, sem töldu Karen ekki hæfa í for­eldra­hlut­verkið. Synjunin barst í mars 2018, en parið áfrýj­aði ákvörð­un­inni sem var svo snúið við í októ­ber sama ár. Rúmu ári síðar fædd­ist Elie, sem nú er tveggja ára gömul heil­brigð og lífs­glöð stúlka.

For­eldra­hlut­verkið gengur vel, að mati Karenar og Pernille, og langar þær í fleiri börn. En þó að umsókn þeirra til frjó­sem­is­með­ferðar hafi einu sinni verið sam­þykkt gilti hún aðeins fyrir eitt barn, og þurfti parið því að sækja um aftur. Ferlið var það sama, nú með nýjum upp­lýs­ingum úr sjúkra- og félags­skrám Karenar, sem sýna að ástand hennar sé stöðugt. Hins vegar kemur þar fram að vegna sjúk­dóms­ins þurfi hún sér­stak­lega mikla hvíld, en frá klukkan ell­efu til fjögur á dag­inn dregur hún sig í hlé til að hlaða batt­er­íin. Af þessum ástæðum töldu mats­menn­irnir ekki að Karen væri hæf til þess að eign­ast annað barn.

Kalla eftir heildstæðu mati

Karen og Pernille furða sig á nið­ur­stöð­unni og að ekk­ert til­lit sé tekið til þess hve vel hefur gengið að ala upp Elie. Karen segir hvíld­ina sem hún tekur hafa mjög tak­mörkuð áhrif á upp­eldið, enda fari hún fram á meðan Pern­iller er í vinn­unni og Elie á leik­skól­anum. Þegar fjöl­skyldan komi heim sé hún til­búin að taka á móti þeim og taka fullan þátt í upp­eld­inu.

Karen og Pernille fá ekki að eignast annað barn í bráð.
Karen og Pernille fá ekki að eign­ast annað barn í bráð.

Sér­fræð­ingar eru sam­mála því að það mat sem fram fari í dag sé engan veg­inn nógu heild­stætt. Flestir eru sam­mála því að ein­hverjar kröfur eigi að setja þeim sem sækja um frjó­sem­is­með­ferðir, enda eigi sam­fé­lagið ekki að aðstoða óhæft fólk við að koma börnum í heim­inn. Hins vegar þurfi að gæta sann­girni og ekki megi ala á gam­al­dags for­dómum gegn geð­sjúk­dómum.

Meðal þess sem sér­fræð­ingar vísa í í þessum efnum er að í málum for­eldra sem þegar eigi börn fari fram heild­rænt mat á hæfni þeirra til að sjá um barnið, sem taki sál­fræð­ing heilan mánuð í fullu starfi og fer meðal ann­ars fram með heim­il­is­heim­sóknum, við­tölum og sál­rænum prófum.

Karen von­ast eftir því að dönsk yfir­völd breyti um stefnu í mála­flokknum. Þangað til finnur hún fyrir auk­inni pressu í tengslum við ummönnun Elie og ótt­ast að koma ekki með réttu græjurnar á leik­skól­ann eða segja ekki réttu hlut­ina, eða mæta með skítugt hár, þannig að ein­hver sjái hana og hugsi að hún sé van­hæf móðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár