Mynd: Borghildur ásamt börnunum þremur, Sóleyju Önnu sjö ára og tvíburunum Kára Kjartani og Birnu Björk, fjögurra ára.

Í fjarkennslu með fjögurra ára tvíbura á hliðarlínunni

Nemendur Borg­hildar Sverr­is­dóttur í Flens­borg­ar­skóla hafa staðið sig ótrú­lega vel í fjar­námi síð­ustu vikna, sumir jafn­vel betur en áður. En það á ekki við um alla og því hefur Borg­hildur lagt áherslu á að halda vel utan um við­kvæm­ustu nem­end­urna.

Ég var að mæta í skól­ann í fyrsta skipti frá því að sam­komu­bann var sett á,“ segir Borg­hildur Sverr­is­dóttir, kenn­ari við Flens­borg­ar­skóla. Það má heyra gleði í rödd hennar. Það var góð til­finn­ing að koma aftur í skóla­húsið, jafn­vel þó að þar hafi hún hitt fáa fyrir og aðeins kenn­ara. „Ég hlakka mikið til að hitta nem­end­urna aftur í haust.“

Borg­hildur kennir sál­fræði og upp­eld­is­fræði og hefur auk þess umsjón með hópi nem­enda. Hún segir mik­il­vægi umsjón­ar­kenn­ara hafa komið glögg­lega í ljós við þær aðstæður sem sköp­uð­ust í skóla­starf­inu í vetur vegna far­ald­urs­ins.

„Það hefur alltaf verið lögð mikil áhersla á að halda vel utan um nem­endur í Flens­borg­ar­skóla á meðan þeir eru enn börn að lögum eða til átján ára ald­urs,“ segir hún. Hluti af því felst í því að aðstoða þau við námið en ekki síður að styðja við þau í þeim nýju aðstæðum sem fram­halds­skól­inn er. „Í far­aldr­inum höfum við skipu­lega verið í sam­bandi við þau bæði sím­leiðis og í gegnum tölvu­póst til að heyra hvernig þeim líður og hvetja þau áfram í nám­inu. Þetta hefur verið stærra hlut­verk hjá okkur eftir að þetta ástand skall á.“

Borg­hildi hefur tek­ist ágæt­lega að halda utan um nem­enda­hóp­inn sinn síð­ustu vikur. Hún hefur hringt í alla og suma nokkrum sinnum. „Ég reyndi að halda þeim við efnið og hvetja áfram. Þeir eru flestir að standa sig ótrú­lega vel, jafn­vel betur en áður. Sumir tala um að þeim finn­ist þetta fyr­ir­komu­lag á nám­inu vera betra.“

En það á ekki við um alla. Margir sem glíma til dæmis við kvíða eða eru með athygl­is­brest eiga til dæmis erf­ið­ara með að koma sér að verki en áður. Utan­um­hald skóla­stof­unnar og við­vera kenn­ar­ans öllum stundum er sú rútína sem þeir þarfn­ast. „Við höfum þurft að halda betur utan um þennan hóp en áður,“ segir Borg­hildur og bendir á að þar hafi náms­ráð­gjafar skól­ans einnig komið sterkir inn. Að styðja við við­kvæm­ustu nem­end­urnar hafi verið lyk­il­at­riði í því að almennt hafi allt gengið vel í skóla­starf­inu því það eru þeir sem eiga á mestri hættu að líða illa við svona aðstæður og detta úr skóla.

Hvað námið varðar hafa nem­endur Borg­hildar staðið sig mjög vel „en þeim finnst þetta skrítið. Þeim finnst þetta ein­mana­legt. Þau tala um að þeim þyki ömur­legt að vera ekki í skól­anum og hitta ekki vini sína. Og finnst leið­in­legt að vera oft og mikið ein.“

Borghildur við borstofuborðið heima að vinna. Börnin þrjú ekki langt undan.
Borg­hildur við bor­stofu­borðið heima að vinna. Börnin þrjú ekki langt undan.

Borg­hildur hóf að kenna við Flens­borg­ar­skóla, skól­ann sem hún sjálf gekk í á sínum tíma, árið 2016. Hún lagði stund á heim­speki er hún hóf háskóla­nám sitt en útskrif­að­ist með BA-próf úr sál­fræði og fjöl­miðla­fræði. Að því loknu vann hún lengst af sem einka­þjálf­ari, skrif­aði pistla um heilsu og veitti ráð­gjöf. Árið 2013 tók hún nýja stefnu, fór í nám á ný og tók meist­ara­próf í mennt­un­ar­fræði til kennslu­rétt­inda við Háskól­ann á Akureyri.

Skóla­árið hófst með hefð­bundnum hætti í Flens­borg­ar­skóla síð­asta haust. Og þó að fregnir hafi tekið að ber­ast af nýrri veiru í Kína upp úr ára­mótum héldu allir ró sinni. „Okkur óraði auð­vitað ekki fyrir því sem átti eftir að ger­ast frekar en öðrum,“ segir Borg­hildur.

Eitthvað lá í loftinu

Um hálfum mán­uði áður en sam­komu­bannið var sett á fann Borg­hildur að eitt­hvað lá í loft­inu. Breyt­inga væri að vænta. „Það töl­uðu margir um að þetta væri ekki spurn­ing um ef heldur þegar. En þá vissum við ekk­ert hvernig þetta myndi ger­ast, hvort við þyrftum öll að fara heim eins og síðar kom á dag­inn. Við vorum því öll í lausu lofti og létum bara hvern dag líða. En svo kom þetta bara allt í einu. Og við þurftum að taka upp nýja tækni og finna nýjar lausnir. Þannig að þetta skall svo­lítið á og við settum í annan gír.“

Borg­hildur líkt og aðrir kenn­arar fór heim að vinna og nem­end­urnir sömu­leiðis. Reynt var að vinna úr upp­kominni stöðu sem best en á ýmsa veggi átti eftir að hlaupa. „Ég reyndi frá upp­hafi hvað ég gat að ein­beita mér að því að halda utan um minn nem­enda­hóp.“

Stóru spurn­ing­arnar fólust hins vegar í því hvernig hægt væri að nota tækn­ina sem best til að koma náms­efn­inu til skila. Hvaða leiðir ætti að fara, hvaða for­rit að nota, hvernig fram­kvæma átti próf og þar fram eftir göt­unum. „Við vorum að henda okkur út í djúpu laug­ina í því sam­bandi.“

Á einni viku var allt sett af stað og ýmis bún­aður og for­rit reynd. „Per­sónu­lega fór ég of geyst í þetta. Ég fann að ég réð ekki almenni­lega við allt það sem ég stefndi að. Ég var svo­lítið synd­andi án þess að kunna fylli­lega að synda,“ rifjar hún upp. „Fyrstu vik­una var ég bara að reyna að halda mér á floti.“

Það var ekki nóg með að gjör­bylta þurfti kennslu­háttum heldur varð að taka til­lit til þess að aðstæður heima fyrir voru sömu­leiðis breyttar. „Ég er með þrjú ung börn heima, fjög­urra ára tví­bura og sjö ára stelpu. Tví­burarnir voru í leik­skól­anum annan hvern dag og sú elsta í skól­anum og frí­stund í um tvo tíma á dag. Við þessar aðstæður ætl­aði ég mér að skila 100 pró­sent vinnu. En þetta gekk ein­fald­lega ekki upp.“

Stjórn­endur Flens­borg­ar­skóla höfðu fullan skiln­ing á því að aðstæður kenn­ara heima fyrir væru mis­jafnar og vildu að þeir sniðu sér stakk eftir vexti. „En maður hefur metnað og vill gera það besta fyrir nem­endur sína. Maður vill ekki að þetta bitni á neinu heldur halda dampi í kennsl­unni.“

Nemendurnir stóðu sig að sögn Borghildar langflestir mjög vel í fjarnáminu.
Nem­end­urnir stóðu sig að sögn Borg­hildar lang­flestir mjög vel í fjar­nám­inu.

Um tíu dögum eftir að fjar­kennslan hófst þurfti Borg­hildur að taka nokkur skref til baka til að ná betur utan um aðstæð­urnar. Þá voru nem­endur einnig farnir að tala um það að álagið væri full mikið og að margir kenn­arar væru að senda þeim of mikið og stór verk­efni. „Þannig að við kenn­arar og nem­endur þurftum að tala betur saman og fundum svo ein­hvers konar jafn­vægi á fyrstu tveimur vik­unum.“

Þeir nem­endur sem Borg­hildur hefur verið í sam­skiptum við segja að þegar jafn­vægi hafi feng­ist hafi þeim flestum gengið vel í sínu námi og álagið orðið við­ráð­an­legt.

Borg­hildur segir að það kæmi sér ekki á óvart ef brott­fall úr fram­halds­skóla­námi yrði meira þessa önn­ina en að jafn­aði. Hún veit ekki til þess að sú sé staðan í Flens­borg en ef brott­fall yrði lítið „yrðu það vissu­lega frá­bærar fréttir“.

Ekki í lausu lofti

Áður en til sam­komu­banns kom höfðu kenn­arar í Flens­borg­ar­skóla fengið ráð­gjöf um fjar­kennslu frá kennslu­fræð­ingi. Hann kynnti fyrir þeim for­rit og tækni­búnað sem gæti nýst við kennsl­una. „Við vorum því ekki í lausu lofti þegar þetta skall svo á þó að það hafi eng­inn tími gef­ist til und­ir­bún­ings að ráði. Og ég held að allir hafi sann­ar­lega reynt að gera sitt besta.“

Borg­hildur fór þá leið að fylgja stunda­skrá sinna nem­enda að nokkru leyti. Þegar þeir áttu að vera í kennslu­stund sendi hún þeim verk­efni og glærur sem hún hafði talað inn á. Á þessum til­teknum tímum var hún svo alltaf til staðar fyrir þau við tölv­una ef þau þyrftu á aðstoð hennar að halda. Svo var hún reglu­lega með fjar­kennslu­stundir í beinni þar sem hún ræddi við nem­end­urna, fór yfir verk­efni og und­ir­bjó þá fyrir próf. „Mér fannst nem­end­urnir taka því almennt ótrú­lega vel að fara úr stað­námi í fjar­nám. Þeir voru dug­legir að spyrja og senda okkur pósta.“

Sumum finnst þægi­legt að geta unnið á sínum hraða og á sínum tíma og hafa því notið sveigj­an­leika fjar­kennsl­unnar. Einnig segir Borg­hildur að nem­endum hafi verið sýndur meiri skiln­ingur en áður hvað varðar verk­efna­skil og rýmri tími gef­inn í þeim efnum. Ekki hafi verið slegið almennt af náms­kröfum en ákveðnar til­slak­anir verið gerðar. „Við vildum auð­vitað draga úr brott­falli. Það var númer, eitt tvö og þrjú í okkar áherslum. Að halda nem­endum inni, hvetja þau áfram og gefa þeim sveigj­an­leika.“

Borg­hildur vonar að hún þurfi ekki að halda margar fjar­kennslu­stundir til við­bótar í fram­tíð­inni. Samveran í skóla­stof­unni sé dýr­mæt. En hún ætlar að nýta sér áfram raf­rænar lausnir við verk­efna­vinnu og próf. „Við kenn­arar höfum allir þjálfast í því að nýta okkur tækn­ina. Við þurfum alltaf að til­einka okkur nýja hluti í því sam­bandi og að því leyti hefur þetta ástand gefið okkur eitt­hvað.“

Öll próf rafræn

Síðustu daga hafa nem­endur Flens­borg­ar­skól­ans verið að taka vor­prófin. Þau eru öll raf­ræn þessa önn­ina. Borg­hildur sendi sínum nem­endum prófin í gegnum netið og svo gátu þau leitað til hennar á meðan þau voru að vinna það. Mörg hafi nýtt sér það, hringt og sent pósta með fyr­ir­spurnum. „Það er mjög gott að þau létu þetta ekki stoppa sig og mjög gott að heyra í þeim.“

Allir þurftu að læra mikið og á stuttum tíma síð­ustu vikur. Sumir, eins og Borg­hildur, fóru kannski eilítið of bratt af stað í vinnu sinni í breyttum aðstæðum en fundu svo jafn­vægið. „Þetta hefur verið skraut­legur tími,“ segir hún og hlær dátt. „Það tók kenn­ara og nem­endur líka tíma að koma sér upp rútínu heima.“

Kári Kjartan sýnir mömmu sinni stafi sem hann hefur skrifað. Allir að vinna heima.
Kári Kjartan sýnir mömmu sinni stafi sem hann hefur skrifað. Allir að vinna heima.

Stundum hafi hún vakið nem­endur sína er hún hringdi í þá um hádeg­is­bil. Alltaf brýni hún fyrir þeim öllum hversu mik­il­væg rútína er í námi og vinnu; að fara á fætur, borða góðan morg­un­mat og sinna svo verk­efnum dags­ins. „Maður var svo­lítið mamma þeirra líka,“ segir hún og heldur áfram að hlæja.

Heima fyrir hafi hún svo sjálf verið að berj­ast við að halda góðri rútínu hjá öllum og nota þá glugga sem gáfust til að sinna vinn­unni inni á milli. Sjö ára dóttir hennar var stutt í skól­anum á hverjum degi og var svo með heil­mikið heima­nám alla daga. Og tví­burarnir bara í leik­skól­anum annan hvern dag. „Maðurinn minn þurfti stundum að taka frí frá sinni vinnu svo að þetta gengi allt upp. Þá fór þetta alveg að ganga vel. En það eru auð­vitað allir í svip­aðri stöðu og ég er ekk­ert frá­brugðin öðrum.“

Hlakkar til að hitta nemendur

Borg­hildur er bjart­sýn að eðl­is­fari. Hún ótt­ast ekki að hið und­ar­lega ástand sem nem­endur hafa þurft að búa við síð­ustu vikur muni hafa lang­tíma áhrif á þeirra líðan eða nám. „Ég hef trú á því að við komum aftur í skól­ann í haust, kannski ekki eins og ekk­ert hafi í skorist, en höldum áfram okkar starfi, bæði nem­endur og kenn­arar. Ég hlakka til. Það er alltaf betra að vera í beinum sam­skiptum við fólk, halda kennslu­stund. Þess vegna er ég nú kenn­ari. Annars hefði ég bara valið mér eitt­hvað starf fyrir framan tölvu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár