„Við stöndum með vestrænum þjóðum“

Lilja Alfreðs­dóttir hefur verið utan­rík­is­ráð­herra í sjö vikur. Hún segir mik­il­vægi Íslands í örygg­is­málum vera að aukast, styður algjör­lega við­skipta­þving­anir gegn Rússum en hefur ekki ákveðið hvort hún muni bjóða sig fram í haust.

Lilja Alfreðs­dóttir varð utan­rík­is­ráð­herra fyrir rétt rúmum sjö vikum síðan. Óhætt er að segja að þau vista­skipti hafi borið brátt að í kjöl­far breyt­inga á rík­is­stjórn Íslands eftir að þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, steig til hliðar vegna Wintris-máls­ins svo­kall­aða. Á þeim tíma sem lið­inn er frá því að Lilja tók við emb­ætt­inu hefur hún farið víða og tekið þátt í mik­il­vægum fundum fyrir Íslands hönd. Enginn tími hefur gef­ist til aðlög­unar.

Hún var rétt komin heim frá Banda­ríkj­unum, þar sem hún fund­aði meðal ann­ars með Barack Obama Banda­ríkja­for­seta, ásamt Sigurði Inga Jóhanns­syni for­sæt­is­ráð­herra og öðrum ráð­herrum af Norð­ur­lönd­unum, þegar tími var kom­inn að fara til Brussel til að sitja sinn fyrsta utan­rík­is­ráð­herra­fund aðild­ar­ríkja Atl­ants­hafs­banda­lags­ins (NATO). Þar sett­ist blaða­maður Kjarnans niður með henni á skrif­stofu fasta­full­trúa Íslands, fór yfir síð­ustu vikur, afstöðu Lilju til lyk­il­mála og fram­tíð­ar­á­form hennar.

Vilja fund við Rússa fyrir leiðtogafundinn í Varsjá

Fundur utan­rík­is­ráð­herr­anna í Brussel er hluti af loka­und­ir­bún­ingi fyrir næsta leið­toga­fund NATO sem fer fram í Varsjá í júlí. Fyrir nokkrum árum síðan var staðan í NATO þannig að fáar beinar öryggisógnir steðj­uðu að aðild­ar­ríkjum þess. Það hefur breyst hratt á und­an­förnum tveimur árum, sér­stak­lega í kjöl­far inn­limunar Rússa á Krím­skag­anum. Lilja var því að stíga inn í mun þyngri umræður en margir fyr­ir­renn­arar hennar hafa þurft að gera á sínum fyrsta fundi á þessum vett­vangi.

Hún segir að sér hafi þótt tvennt standa upp úr. „Í fyrsta lagi inn­ganga Svart­fjalla­lands inn í Atlands­hafs­banda­lagið. Það er tíma­móta­á­kvörðun, þótt hún hafi verið við­búin. Hún sýnir að þetta er þannig ríkja­hópur, sem er mjög eft­ir­sókn­ar­verður enn þann dag í dag. Það eru fleiri ríki sem hafa sýnt áhuga á að ganga í banda­lagið og það sýnir að NATO hefur stað­ist þær áskor­anir sem það hefur staðið frammi fyrir síðan að það var stofnað 30. mars 1949. Mér finnst þetta merki­legt.

Í öðru lagi voru þær örygg­is­á­skor­anir sem banda­lags­ríkin standa frammi fyrir og umræðan um Rússland mjög áhuga­verðar. Það er mik­ill þungi í því. En engu að síður er ríkur vilji allra þeirra sem sitja við borðið að við höldum áfram sam­ræðum við rúss­nesk stjórn­völd. Það er bara það mikið í húfi.

Það kom fram á fund­inum í gær að ríkin sem standa að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu vilja fund í Rúss­lands-NATO ráð­inu fyrir leið­toga­fund­inn í Varsjá í júlí. Mér finnst það mjög brýnt vegna þess að við verðum að halda sam­tal­inu áfram. Þrátt fyrir að það sé ákveðin spenna þá er mik­ill vilji til að tala saman og mýkja þessi sam­skipti. Það tapa nefni­lega allir á þeirri stöðu sem er uppi, bæði NATO-ríkin og Rússland.“

Rússar hafa flogið 105 sinnum í námunda við Ísland á tíu árum

Ísland var hern­að­ar­lega mjög mik­il­vægt á kalda stríðs-árunum. Eftir að því lauk dró hægt og rólega úr því mik­il­vægi og haustið 2006 hurfu síð­ustu banda­rísku her­menn­irnir frá NATO-her­stöð­inni á Mið­nes­heiði. Lilja segir að áhug­inn á Íslandi hafi hins vegar auk­ist sam­hliða þeim vær­ingum sem orðið hafa á und­an­förnum árum vegna aðgerða Rússa. „Land­fræði­leg lega okkar skiptir máli. Rússar eru í námunda við okkur og þeir hafa ítrekað flogið í námunda við loft­helgi okkar á und­an­förnum árum. Alls 105 sinnum frá árinu 2006, en þetta eru að jafn­aði svona þrjú til fjögur skipti á ári. Þeir hafa verið að færa sig nær land­inu en hafa ekki farið inn í loft­rými Íslands. Við finnum fyrir meiri áhuga á okkur vegna þessa í sam­skiptum við Banda­ríkin frá árinu 2014. Það er bein fylgni milli þess að eftir því sem sam­skipti Vest­ur­veld­anna við Rússland fóru að versna fór áhugi Banda­ríkj­anna á okkur að aukast á ný. Sem er nátt­úru­lega lógískt.“

Í fimm ára rík­is­fjár­mála­á­ætlun, sem rík­is­stjórn Íslands kynnti nýverið, er meiri fjár­munum heitið til utan­rík­is­mála. Lilja segir að ekki sé um raunaukn­ingu í utan­rík­is­þjón­ust­unni, t.d. varð­andi rekstur sendi­ráða eða ráðu­neyt­is­ins, að ræða. „Þetta aukna fé er að fara að mestu í tvo mála­flokka. Annars vegar mann­úðar- og flótta­manna­mál og hins vegar öryggis- og varn­ar­mál. Við erum að fjölga fólki hjá NATO um helm­ing og auknir fjár­munir eru líka að fara í rekstur Kefla­vík­ur­stöðv­ar­innar.“

Algjör stuðningur við viðskiptaþvinganir

Eitt beittasta vopn Vest­ur­land­anna, sem mynda NATO, í þeim átökum sem átt hafa sér stað við Rússa á und­an­förnum tveimur árum hafa verið við­skipta­þving­anir sem Evr­ópu­sam­bandið, Banda­ríkin og Kanada hafa beitt Rússland með stuðn­ingi ann­arra ríkja. Eitt þeirra ríkja sem stutt hefur þær við­skipta­þving­anir er Ísland. Allt ætl­aði reyndar um koll að keyra þegar Rússar brugð­ust við stuðn­ingi okkar við þving­an­irnar með því að setja inn­flutn­ings­bann á íslenska mat­vöru, m.a. fisk. Gríð­ar­legur þrýst­ingur skap­að­ist af hendi stærstu útgerð­ar­fé­laga lands­ins, sem áttu fjár­hags­lega hags­muni undir því að geta flutt sér­stak­lega mak­ríl til Rúss­lands, að taka þá við­skipta­legu hags­muni fram yfir það að standa með sam­starfs­þjóðum Íslands til ára­tuga. Gunnar Bragi Sveins­son, þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra, stóð hins vegar fastur fyrir og neit­aði að taka nokk­urt slíkt til álita. Gunnar Bragi sagði síðar í blaða­við­tali að hann hefði aldrei upp­lifað annan eins þrýst­ing út af nokkru máli og varð út af þeirri ákvörðun hans.

Lilja fundaði m.a. með Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóra NATO, á meðan að hún var í Brussel.
Lilja fund­aði m.a. með Jens Stol­ten­berg, fram­kvæmda­stjóra NATO, á meðan að hún var í Brussel.

Aðspurð seg­ist Lilja styðja algjör­lega við­skipta­þving­anir sam­starfs­ríkja okkar gegn Rússum og að það verði ekki nein breyt­ing á þeirri afstöðu hennar né rík­is­stjórnar Íslands. „Við stöndum með vest­rænum þjóðum og okkar banda­lags­ríkjum hvað þessa stefnu varðar. Ég held þó að menn hafi ekki alveg áttað sig á því hvaða hags­munir, miklir eða litlir, voru undir. Eitt sem var gert var að það var ráð­ist í þétta efna­hags­grein­ingu á því hvert nettó tapið væri af þessum aðgerðum, sem sýndi að það var minna en talað hafði verið um. Það kann að vera að þessi umræða blossi aftur upp ef það kemur að því að end­ur­nýja stuðn­ing okkar við við­skipta­þving­an­irnar. En ég sé það ekki ger­ast að Ísland sé ríkið sem brýtur sig frá þess­ari sam­stöðu. Allavega ekki hjá núver­andi rík­is­stjórn. Það er sam­staða um þessa stefnu hjá henni.“

Lilja seg­ist þó vera þeirrar skoð­unar, meðal ann­ars í ljósi þeirrar reynslu sem skap­ast hefur vegna deilna um stuðn­ing Íslands við við­skipta­þving­anir gegn Rússum, að það væri gagn­legt að breyta verk­lagi varð­andi ákvarð­anir sem þessar. „Ég held, og er þegar búin að setja þá vinnu af stað, að það væri gagn­legt þegar Ísland tekur þátt í við­skipta­þving­unum, sem eru ekki almennar eins og þær sem ákveðnar eru á vett­vangi Sam­ein­uðu þjóð­anna, þá væri mögu­lega gott að fara með þær ákvarð­anir í gegnum þingið. Stundum eru svona ákvarð­anir mjög erf­iðar fyrir ákveðin svæði. Við­skipta­bannið sem Rússar settu á okkur kom sér til dæmis mjög illa fyrir Vopna­fjörð og Djúpavog. Ef svona ákvarð­anir fara í gegnum þingið þá verða kannski upp­lýst­ari umræður en þegar þetta er bara sam­þykkt inni í rík­is­stjórn og meiri sátt.“

Má ekki færa þessa rök­semd­ar­færslu yfir á flestar meiri­háttar ákvarð­anir sem við tökum í utan­rík­is­málum, t.d. stuðn­ing við hern­að­ar­að­gerðir?

„Jú. Þetta er meiri vinna, en ég held að hún skili meiri árangri og meiri sátt.“

Svakaleg viðurkenning frá bandarískum stjórnvöldum

Lilja segir að þær vikur sem hún hefur verið ráð­herra hafi verið mjög áhuga­verður tími. „Fund­ur­inn úti í Washington var sér­stak­lega áhuga­verður vegna þess að við vorum þar með hinum Norð­ur­lönd­unum. Það er sér­stakt sam­band milli Banda­ríkj­anna og Norð­ur­land­anna og kannski sér­stak­lega við núver­andi stjórn­völd í Banda­ríkj­unum. Obama er sögu­legur for­seti sem hefur verið að berj­ast fyrir ákveðnum málum sem fyrir löngu hefði verið búið að hrinda í fram­kvæmd á Norð­ur­lönd­unum.

Norð­ur­löndin hafa sín sam­eig­in­legu gildi. Jafnt aðgengi að heil­brigðis- og mennta­kerf­inu, jafn­rétt­is­málin og loft­lags­málin og það er sam­hljómur hjá okkur og þeim stjórn­völdum í Banda­ríkj­unum sem nú ráða þar. Ég held að okkur hafi liðið svo­lítið vel með þessa stefnu­mörkun sem fylgt hefur verið á Norð­ur­lönd­unum síð­ustu 50 árin eftir þessa fundi og líka með að heyra þessa svaka­legu við­ur­kenn­ingu sem við fengum hjá banda­rískum stjórn­völdum. Að þau sjái og við­ur­kenni að þetta séu ríki sem standi mjög fram­ar­lega á flestum sviðum. Mér fannst þetta mjög gott fyrir okkur, gott fyrir Norð­ur­löndin og gott fyrir umræð­una. Að sjá hvar við stöndum og hverju við höfum áorkað.“

Ekki búin að ákveða hvort hún fari fram

Hvað áttu við með því að þetta sé gott fyrir umræð­una, og af hverju held­urðu að umræðan sé eins og hún sé?

„Ég er búin að hugsa mjög mikið um þessa íslensku umræðu og er alltaf að finna nýjar og nýjar kenn­ingar í sam­bandi við hana. Ég held að það sem gerð­ist í fjár­mála­á­fall­inu hafi komið mjög mörgum á óvart. Ísland hafði verið í stöðugri fram­þróun og fólki fund­ist síð­ustu fimm ár hafa verið betri en fimm árin á undan. Þannig hafði það nán­ast verið frá heima­stjórn­ar­tím­anum. Það tap­að­ist ákveðið traust í hrun­inu sem við erum að reyna að vinna upp. Og það tekur bara tíma. Ég held að þetta sé ekki ósvipað því sem gerð­ist þegar Norð­ur­löndin lentu í sinni krísu í byrjun tíunda ára­tug­ar­ins. Þess vegna er mjög nauð­syn­legt að við vöndum okkur ofboðs­lega mikið og höfum mikið gagn­sæi í því sem við gerum. Við þurfum að leggja mikla áherslu á það að vera stöðugt að upp­lýsa og taka þá umræð­una um af hverju við erum að gera það sem við erum að gera.“

John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sat fund kollega sinna í Brussel sem fram fór í liðinni viku. Mynd: NATO
John Kerry, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, sat fund kollega sinna í Brussel sem fram fór í lið­inni viku. Mynd: NATO

Í ljósi þess að Lilja hefur hugsað svona mikið um þessi mál liggur bein­ast við að spyrja hana hvort það þýði að hún ætli sér að taka áfram þátt í stjórn­málum þegar þessu kjör­tíma­bili lýkur í haust, en hún er sem stendur utan­þings­ráð­herra? Það myndi þá þýða fram­boð og kosn­ingar á kom­andi mán­uðum. Sú ákvörðun liggur þó ekki fyrir. „Ég er stöðugt að hugsa um þetta. En ég hef ekki tekið ákvörðun. Mér hefur alltaf liðið mjög vel í Seðla­bank­anum [þar sem hún starfar alla jafna á skrif­stofu banka­stjóra]. Ég ætla að leyfa mér að taka ákvörðun um þetta áfram­hald þegar það fer að gerj­ast innan Fram­sókn­ar­flokks­ins hvenær menn þurfa að melda sig inn fyrir fram­boð. En ég er ekki komin lengra en það, ef ég á að vera alveg hrein­skilin. Það verður mið­stjórn­ar­fundur 4. júní sem verður áhuga­verður. Ég mun fylgj­ast grannt með því og sé þá hvernig landið liggur og hvernig horf­urnar eru. Svo tek ég ákvörðun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár