Metútgjöld, skattalækkanir og niðurgreiðsla skulda

Barna- og vaxta­bætur munu ekk­ert hækka á næsta ári frá því sem áður hafði verið ákveðið. Sama er að segja um fæð­ing­ar­or­lofs­greiðslur. Aukin fram­lög eru fyrst og fremst til heil­brigðis- og mennta­mála. Kjarninn rýnir í fjár­laga­frum­varp nýrrar rík­is­stjórnar.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, kynnti fyrsta fjár­laga­frum­varp nýrrar rík­is­stjórnar í morgun. Frum­varpið verður lagt fram á Alþingi á morgun og í kjöl­farið mun fara fram fyrsta umræða um það.

Hvað er nýtt?

Nýja rík­is­stjórnin ætlar að eyða 15 millj­örðum krónum meira en til stóð að eyða í fjár­laga­frum­varp­inu sem Benedikt Jóhann­es­son, þáver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, lagði fram í sept­em­ber. Að hluta til koma þeir pen­ingar til vegna þess að svig­rúm til eyðslu er meira en áður var áætlað, vegna þess að tekjur rík­is­sjóðs verða sex millj­örðum krónum hærri en talið var að þær yrðu í sept­em­ber. Alls eiga inn­heimtar tekjur að verða 840 millj­arðar króna sem er það mesta sem ríkið hefur nokkru sinni haft í tekjur á einu ári. Áætlaðar tekjur 2017 eru 39 millj­örðum krónum lægri.

Þetta mun þýða það að afgangur af fjár­lögum verður 35 millj­arðar króna og verður þeim pen­ingum vænt­an­lega ráð­stafað í nið­ur­greiðslu skulda hins opin­bera. Í fjár­laga­frum­varpi Bene­dikts var stefnt að því að afgang­ur­inn yrði 44 millj­arðar króna.

Hvaðan kemur þetta viðbótarfé?

Það kemur fyrst og síð­ast til vegna þess að á Íslandi er for­dæma­laus góð staða í efna­hags­málum. Afgangur af við­skipta­jöfn­uði við útlönd á síð­asta árs­fjórð­ungi var til að mynda 68 millj­arðar króna sem er næst­mesti afgangur sem mælst hefur frá árinu 1995. Metið á þriðji árs­fjórð­ungur 2016. Við­skipta­af­gangur, sú tala sem stendur eftir þegar tekjur af vörum og þjón­ustu hefur verið dregin frá kostn­aði þjóð­ar­bús­ins af kaupum á vörum og þjón­ustu, hefur nú verið jákvæður í fjórtán árs­fjórð­unga í röð, eða frá árs­byrjun 2014.

Til sam­an­burðar má minna á að þjóð­ar­búið íslenska var tekið með nær sam­felldum við­skipta­halla í ára­tugi fram til árs­ins 2012. Þannig að það er góð­æri, sér­stak­lega vegna feiki­legs vaxtar í ferða­þjón­ustu á örfáum árum. Og það skilar sér í sífellt hærri tekjum rík­is­sjóðs.

Það höfðu margir hægri­menn miklar áhyggjur af því að skattar myndu rjúka upp ef Vinstri græn og „Skatta-Kata“ kæmust í rík­is­stjórn. Þær áhyggjur virð­ast vera óþarfar, að minnsta kosti ef byggt er á fjár­laga­frum­varp­inu. Eina stóra skatta­breyt­ingin sem ráð­ist er í er hækkun á fjár­magnstekju­skatti úr 20 pró­sentum í 22 pró­sent en með fylgir fyr­ir­vari um að skatt­stofn fjár­magnstekna verði tekin til end­ur­skoð­unar. „með það fyrir augum að raun­veru­legur ávinn­ingur af fjár­magni verði skatt­lagður og alþjóð­legur sam­an­burður verður um leið auð­veld­ari.“ Sér­fræð­ingar sem Kjarninn hefur rætt við telja lík­legt að þessi breyt­ing, sem felur í sér að raun­á­vöxtun verður skatt­lögð í stað nafn­á­vöxt­unar, muni fela í sér umtals­verða lækkun á skatt­stofni ansi margra. Hækkunin á að skila 1,6 millj­örðum króna á árinu 2018.

Eru þá skattalækkanir í pípunum?

Já, miklu frekar. Í frum­varp­inu segir: „Ný rík­is­stjórn stefnir að því að halda áfram að draga úr álögum, gera skatt­heimtu sann­gjarn­ari og tryggja skil­virkt skatt­eft­ir­lit. Rík­is­stjórnin hyggst leggja áherslu á lækkun tekju­skatts í neðra skatt­þrepi á kjör­tíma­bil­inu, en umfang og tíma­setn­ingar ráð­ast af fram­vindu samn­inga á vinnu­mark­aði. Þá er það einnig for­gangs­mál á kjör­tíma­bil­inu að lækka trygg­inga­gjald.“

Þá verður und­an­þága umhverf­is­vænni bif­reiða, s.s. raf­magns- og tengilt­vinn­bif­reiða, frá virð­is­auka­skatti fram­lengd og kolefn­is­gjald verður hækkað um 50 pró­sent í stað 100 pró­sent eins og gert var ráð fyrir í fjár­mála­á­ætlun fyrir árin 2018–2022. Fallið er frá fyrri áformum um tekju­öflun sam­hliða jöfnun olíu­gjalds við bens­ín­gjald og hægt verður á afnámi íviln­unar vöru­gjalds af bíla­leigu­bílum. Og þá er auð­vitað hætt við að hækka virð­is­auka­skatt á ferða­þjón­ustu.

Mesta aukningin er á framlögum til heilbrigðismála.
Mesta aukn­ingin er á fram­lögum til heil­brigð­is­mála.

Ýmsar aðrar skatta­breyt­ingar koma til skoð­unar á fyrsta starfs­ári nýrrar rík­is­stjórnar, sam­kvæmt frum­varp­inu, svo sem virð­is­auka­skattur á íslenskt rit­mál, tón­list og bækur, skatta­legt umhverfi fjöl­miðla og skatt­lagn­ing höf­und­ar­rétt­ar­greiðslna. Ekkert er hins vegar um útfærslur á þeim lækk­unum í frum­varp­inu né er greint frá hvenær þær eiga að taka gildi.

Í hvað er þá verið að eyða?

Fram­setn­ing á frum­varp­inu miðar öll við að sýna breyt­ingar á fram­lögum til mála­flokka á milli áranna 2017 og 2018, líkt og venja er. Þess vegna er erf­ið­ara að glöggva sig á hverjar breyt­ing­arnar eru á milli þess frum­varps sem Benedikt Jóhann­es­son lagði fram í sept­em­ber og þess sem Bjarni Bene­dikts­son kynnti í morgun. Útgjalda­aukn­ingin þar á milli er nefni­lega ekk­ert svo mikil í stóra sam­heng­inu. Líkt og áður sagði verða útgjöld aukin um 15 millj­arða króna.

Aukið er við fram­lög til heil­brigð­is­mála og nemur sú hækkun ríf­lega 21 millj­arði króna milli áran­anna 2017 og 2018. Það stóð þó alltaf til að auka fram­lög til mála­flokks­ins og þess sáust skýr merki í síð­asta fjár­laga­frum­varpi líka. Þá stóð til að sú aukn­ing yrði 13,5 millj­arðar króna. Þarna er stærsta við­bótin.

Framlög til mennta­mála hækka líka en þar er um mun lægri tölur að ræða. Framlög til fram­halds­skóla eru aukin um 400 millj­ónir króna og fram­lög til háskóla um einn millj­arð króna. Þá verða settar 450 millj­ónir króna í mál­tækni­verk­efni. Alls aukast fram­lög til mennta-, menn­ingar- og íþrótta­mála um 5,5 millj­arða króna milli fjár­laga 2017 og 2018. Sú aukn­ing sem er á milli þess fjár­laga­frum­varps sem lagt var fram í sept­em­ber og þess sem kynnt var í morgun er umtals­vert lægri.

Sam­göngu­mál og inn­viða­fjár­fest­ingar voru mikið rædd í aðdrag­anda kosn­inga. Framlag til sam­göngu­fram­kvæmda er þó ein­ungis 1,6 millj­örðum krónum hærra en fyrra frum­varp sagði til um, þrátt fyrir að um 15 millj­arða króna vanti til þess að sam­göngu­á­ætlun sé full­fjár­mögnuð.

Barna­bætur, vaxta­bætur og fæð­ing­ar­or­lofs­greiðslur verða allar jafn­háar og til stóð að þær yrðu í frum­varpi Bene­dikts Jóhanns­sonar í sept­em­ber.

En skuldastaðan, hver er hún?

Skuldir rík­is­sjóðs hafa hríð­lækkað á und­an­förnum árum. Þar skipta mestu ein­skiptis­tekjur á borð við miklar arð­greiðslur, t.d. úr bönkum, og stöð­ug­leika­fram­lögin sem kröfu­hafar föllnu bank­anna greiddu fyrir að fá að fara út úr íslensku höft­unum. Þegar skuld­irnar náðu hámarkai árið 2012 stóðu þær í um 1.500 millj­örðum króna. Skulda­staða í árs­lok 2017 nemur um 907 millj­örðum króna og stefnt er að því að skuldir lækki um 50 millj­arða króna á næsta ári.

Vaxta­greiðslur eru þó enn þungar. Ríkið áætlar að greiða alls 58 millj­arða króna í vexti á næsta ári og til við­bótar er áætlað að vextir vegna líf­eyr­is­skuld­bind­inga verði um 14 millj­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár