Öryggisventillinn

Frumvarp um þjóð­ar­sjóð, sem ávaxtar ávinn­ing íslenska rík­is­ins af orku­auð­lindum, er komið fram og í með­ferð á þingi. Málið er umdeilt, og ekki ein­hugur um það hjá stjórn­ar­flokk­unum.

Í frum­varpi Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er gert ráð fyrir því að sjóð­ur­inn verði fjár­magn­aður með fjár­magni sem kemur frá orku­auð­lindum á for­ræði rík­is­ins.

Það eru arð­greiðslur Lands­virkj­unar en fyr­ir­sjá­an­legt er að þær muni hækka veru­lega á næst­unni, eftir nokkuð langt tíma­bil skulda­nið­ur­greiðslu í kjöl­far mik­illa fram­kvæmda. Það ber hæst lang­sam­lega stærsta eign Lands­virkj­unar, Kára­hnjúka­virkjun, sem sér álveri Alcoa á Reyð­ar­firði fyrir raf­magni. Um 35 pró­sent allra tekna Lands­virkj­unar, árið 2017, kom frá Alcoa. Sam­an­lagt standa álverin þrjú, Norðurál, Rio Tinto Alcan og Alcoa undir 71 pró­sent af tekjum Lands­virkj­unar, en aðrar tekjur koma frá öðrum heild­sölu­kaup­endum. Fyr­ir­tækin Elcem og Becromal standa sam­tals undir um 11 pró­sent af tekjum.

Mjólkurkúin Landsvirkjun

Árið 2017 námu heild­ar­tekjur Lands­virkj­unar 483 millj­ónum Banda­ríkja­dala eða tæp­lega 58 millj­örðum króna miðað við núver­andi gengi. Heild­ar­eignir fyr­ir­tæk­is­ins námu í loks árs 4,5 millj­örðum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 540 millj­örðum króna. Skuldir voru á sama tíma um 2,4 millj­arðar Banda­ríkja­dala, eða sem nemur 288 millj­örðum króna. Eig­in­fjár­hlut­fallið var 45 pró­sent í lok árs­ins og nam um tveimur millj­örðum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 240 millj­örðum króna.

Fyr­ir­sjá­an­legt er að það fari hækk­andi á næst­unni, en arður Lands­virkj­unar til rík­is­ins vegna árs­ins 2017 var 1,5 millj­arður króna og nam hagn­að­ur­inn 108 millj­ónum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 13 millj­örðum króna.

Á aðal­fundi Lands­virkj­unar í apríl í fyrra kom fram í máli Harðar Arn­ar­sonar, for­stjóra, að Lands­virkjun ætti að geta greitt um 110 millj­arða króna til rík­is­ins á árunum 2020 til 2026, miðað við þáver­andi gengi krónu gagn­vart Banda­ríkja­dal, og fyr­ir­sjá­an­legar for­sendur í rekstri.

Þjóðarsjóður getur stækkað hratt

Tíma­punkt­ur­inn fyrir stofnun Þjóð­ar­sjóðs er ekki til­viljun heldur rök­réttur sé horft efna­hags Lands­virkj­unar og hvernig arð­greiðslur fyr­ir­tæk­is­ins til rík­is­ins munu stig­magn­ast á næstu árum. Á til­tölu­lega skömmum tíma, ein­ungis 10 til 20 árum, geta heild­ar­eignir Þjóð­ar­sjóðs­ins farið í allt að tæp­lega 400 millj­arða króna, miðað við 3,5 pró­sent ávöxtun á ári.

Fyrir 350 þús­und manna þjóð á eyju í Norður-Atlands­hafi þá má líkja þessu við nýtt upp­haf. Þetta eru veru­legar fjár­hæðir sem munu safn­ast í sjóð­inn og aug­ljóst er að kom­andi kyn­slóðir gætu notið góðs af honum.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, er sá sem leggur fram frumvarp um Þjóðarsjóð. Mynd: Bára Huld Beck
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, er sá sem leggur fram frum­varp um Þjóð­ar­sjóð. Mynd: Bára Huld Beck

Upp í hug­ann koma strax hápóli­tískar spurn­ingar: Er þetta rétt notkun á fjár­magn­inu? Ætti frekar að nota það í opin­berar fram­kvæmdir? Munu stjórn­mála­menn geta teygt sig í sjóð­inn ef þeir vilja?

Nýlegar yfir­lýs­ingar Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, sam­göngu­ráð­herra og for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, sýna glögg­lega að það sé ekki ein­hugur meðal rík­is­stjórn­ar­flokk­anna um það hvernig eigi að ráð­stafa þeim fjár­munum sem koma munu frá Lands­virkjun á næstu árum. Sigurður Ingi nefndi að hægt væri að nýta arð­greiðslur frá Lands­virkjun til að fjár­magna tug millj­arða vega­fram­kvæmdir, fremur að horfa til veggjalda. Þetta sam­ræm­ist ekki áformum um að safna arð­greiðslum Lands­virkj­unar í Þjóð­ar­sjóð. Sáttmáli rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra er ekki skýr í nákvæm­is­at­riðum, hvað hlut­verk Þjóð­ar­sjóðs varðar. Í sátt­mál­anum segir: „Þjóð­ar­sjóður verður stofn­aður utan um arð af auð­lindum lands­ins og byrjað á orku­auð­lind­inni. Hlutverk sjóðs­ins verður að byggja upp við­nám til að mæta fjár­hags­legum áföllum. Afmark­aður hluti ráð­stöf­un­ar­fjár sjóðs­ins verður not­aður til að efla nýsköpun og styðja við vöxt og þroska sprota­fyr­ir­tækja. Með því verður fræjum sáð til efl­ingar nýrra vel laun­aðra starfa í fram­tíð­inni. Einnig verður hluti nýttur til átaks í upp­bygg­ingu hjúkr­un­ar­rýma fyrir elstu kyn­slóð­ina.“

Þetta orða­lag ber með sér að hlut­verk hins óstofn­aða Þjóð­ar­sjóðs hafði ekki verið full­mótað þegar rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Fram­sókn­ar­flokks­ins og Vinstri grænna var mynduð.

Frumvarp Bjarna Bene­dikts­sonar sýnir hins vegar að horft er fyrst og fremst til þess að sjóð­ur­inn verði nýttur til mót­væg­is­að­gerða í áföllum í efna­hags­málum þjóð­ar­innar. Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu er meðal ann­ars vitnað til Skaft­ár­elda og Móðu­harð­inda (1783 til 1785), Eyja­goss­ins (1973) og vist­kerf­is­brests, eins og þegar síldin hvarf (1969), sem dæma um þar sem Þjóð­ar­sjóð­ur­inn gæti komið að góðum notum við end­ur­reisn. „Um gæti verið að ræða áföll sem rík­is­sjóður hefði að óbreyttu ekki nægi­legan fjár­hags­legan styrk til að mæta án þess að það leiddi til veru­legra sam­tíma­á­hrifa á vel­ferð þegn­anna vegna skertrar starf­semi hins opin­bera eða hefði í för með sér skulda­byrði sem yrði þung­bær um langa hríð. Þannig er í frum­varp­inu gengið út frá lang­tíma­sjón­ar­miðum um upp­bygg­ingu á mjög burð­ugum sjóði sem geti tek­ist á við afleið­ingar af stórum, ófyr­ir­séðum og fátíðum áföllum á opin­ber fjár­mál, fremur en að sjóð­ur­inn sjálfur fjár­magni bein­línis bætur vegna t.d. tjóns til­tek­inna atvinnu­greina eða hópa,“ segir í grein­ar­gerð með frum­varp­inu.

Mismunandi rekstrarfyrirkomulag

Í frum­varp­inu er lagt til að farin verði sú leið við rekstur sjóðs­ins, að honum verði útvi­stað til fyr­ir­tækis sem sér­hæfir sig í eigna­stýr­ingu. Í frum­varp­inu segir: „Stjórn sjóðs­ins skal með samn­ingi fela aðila með við­hlít­andi sér­þekk­ingu á erlendum fjár­mála­mörk­uðum að ann­ast vörslu sjóðs­ins, ávöxtun og dag­legan rekstur, þar á meðal fjár­fest­ingar. Í samn­ingi skal mæla fyrir um greiðslur fyrir verk­efni sem við­kom­andi umsýslu­að­ila er falið að ann­ast, heim­ildir hans og skyldur, svo sem á sviði eigna­stýr­ingar, innra eft­ir­lits og reglu­legrar upp­lýs­inga­gjafar til stjórnar um rekstur og fjár­fest­ingar.

Aðrar leiðir eru einnig mögu­legar. Þær eru meðal ann­ars, að það setja sjálf­stæða stjórn, sem heyrir undir Seðla­banka Íslands og fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið, sem sinni sjóð­stýr­ingu og fjár­fest­ingu. Norðmenn hafa farið þessa leið með norska olíu­sjóð­inn, sem ávaxtar ávinn­ing­inn af nýt­ingu olíu­auð­linda í norskri lög­sögu. Sjóð­ur­inn er sjálf­stæður í stefnu sinni, en heyrir engu að síður undir Seðla­banka Noregs. Hann sinnir síðan til­kynn­ing­ar­skyldu til fjár­mála­ráð­herra Noregs.

23 milljónir á hvern íbúa

Olíu­sjóður Norð­manna er nú orð­inn upp á meira en eitt þús­und millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 120 þús­und millj­örðum króna. Það er upp­hæð sem nemur 23 millj­ónum króna á hvern Norðmann, sem eru 5,2 millj­ónir. Til sam­an­burðar nema heild­ar­eignir íslenskra líf­eyr­is­sjóða um 4.300 millj­örðum, eða sem nemur um 12,2 millj­ónum á hvern íbúa. Sjóð­ur­inn á um þessar mundir 1,3 pró­sent af öllum skráðum hluta­bréfum í heim­inum, en sjóð­ur­inn er að mestu geymdur í skráðum verð­bréfum.

Til við­bótar eru Norðmenn síðan með sitt líf­eyr­is­kerfi, þannig að olíu­sjóð­ur­inn er hrein við­bót við þeirra hefð­bundna opin­bera kerfi. Mikil sjóð­söfnun þeirra hefur gert Noreg að einu rík­asta landi í heimi og samt er þar eng­inn olíg­arki, eins og þekk­ist í nær öllum öðrum olíu­fram­leiðslu­ríkjum. Fyr­ir­komu­lag Norð­manna hefur sannað sig vel, og sagði Yngve Slyngstad, sjóðs­stjóri norska olíu­sjóðs­ins, í við­tali við Bloomberg 2. febr­úar síð­ast­lið­inn, að sjóð­ur­inn hefur skipt miklu máli fyrir Noreg í fjár­málakrepp­unni 2007 til 2009. Þegar nær allir fjár­mála­mark­aðir heims­ins gengu í gegnum mik­inn hreins­un­ar­eld, með til­heyr­andi verð­falli og erf­ið­leikum, þá sigldi Noregur fremur lygnan sjó miðað við flest önnur ríki, og eng­inn efað­ist um að norskir bankar, helstu fyr­ir­tæki Noregs eða norska ríkið, gætu staðið við sínar skuld­bind­ingar. Einn helsti ávinn­ingur almenn­ings í Noregi af norska olíu­sjóðnum er traustið sem hann færir norska hag­kerf­inu, með til­heyr­andi jákvæðum áhrifum á lána­kjör og aðgang að lánsfé.

Má aldrei skulda meira en einn tíunda af eignum

Samkvæmt frum­varp­inu verður fjár­fest­ing­ar­stefna sjóðs­ins nokkuð niður njörvuð. Þó er ákveð­inn sveigj­an­leiki innan hennar, sem á að tryggja rétta áhættu­dreif­ingu. Í frum­varp­inu er gert ráð fyrir að sjóðnum verði heim­ilt að fjár­festa í skráðum mark­aðs­verð­bréfum, svo sem hluta­bréfum, víxlum og skulda­bréfum, fjár­fest­ing­ar­sam­lögum sem fjár­festa í hlutafé og skuldum fyr­ir­tækja sem ekki eru skráð á verð­bréfa­mark­aði, og sjóðum, fjár­fest­ing­ar­sam­lögum og afleiðum tengdum fyrr­greindum fjár­mála­af­urðum sem og inn­lánum í bönkum.

Sjóð­ur­inn mun ekki geta tekið lán, eins og gefur að skilja, nema þá til að mæta sveiflum í greiðslu­streymi sínu. Heild­ar­upp­hæð lán­tök­unnar má aldrei nema meiru en einum tíunda af heild­ar­eignum sjóðs­ins. Þá má ekki taka lán með útgáfu og sölu á skulda­bréfum og öðrum end­ur­greið­an­legum skulda­við­ur­kenn­ingum til almenn­ings. Sjóðnum er heim­ilt að lána mark­aðs­verð­bréf í eigu sinni til fag­fjár­festa honum til tekju­öfl­unar. Í Frum­varp­inu er lögð áhersla á að sjóð­ur­inn eigi að vera gagn­sær í sinni starf­semi. Á þriggja mán­aða fresti eru skýrslu skilað til fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um hvernig gangi að ávaxta eignir sjóðs­ins og hvernig áhættu­dreif­ingin er í eigna­safn­inu.

Freistnivandi stjórnmálamanna

Eins og áður sagði er ekki ein­hugur meðal stjórn­ar­flokk­anna um Þjóð­ar­sjóð­inn, eins og orð Sigurðar Inga um hvernig megi nýta arð­greiðslur Lands­virkj­unar eru til marks um. Ágrein­ing­ur­inn er þó ekki bund­inn við að það eigi að stofna sjóð­inn, heldur hvernig eigi að skipu­leggja hann og hvenær á að byrja að safna í hann fjár­munum.

Sé horft til reynslu Norð­manna - sem meðal ann­ars er til umfjöll­unar í grein­ar­gerð með frum­varp­inu um Þjóð­ar­sjóð­inn - þá er eitt það mik­il­væg­asta við rekstur sjóðs­ins, að koma í veg fyrir að stjórn­mála­menn geti nýtt sjóð­inn til gælu­verk­efna. Þetta er freistni­vand­inn, sem glíma þarf við. Í Noregi hafa oft komið upp mál, þar sem stjórn­mála­menn hafa horft til þess að nýta olíu­sjóð­inn til verk­efna, en sjálf­stæði hans og góð stofna­naum­gjörð kemur í veg fyrir að slíkt geti gerst. Innan heim­ilda er þó hægt, í ákveðnum til­vikum, að nýta hluta af inn­streym­inu í sjóð­inn til ann­arra verk­efna, enda er olíu­sjóð­ur­inn risa­vax­inn og pen­ing­arnir þar miklir í sam­hengi við hefð­bundin verk­efni.

Norðmenn hafa þó þegar ákveðið að nýta hlut af olíu­sjóðnum, innan við 0,5 pró­sent af honum, í umfangs­mikla inn­viða­upp­bygg­ingu í land­inu, sem nú þegar er farin í gang. Áætlunin gerir ráð fyrir upp­bygg­ingu yfir 10 ára tíma­bil og verður varið til hennar meira en 15 þús­und millj­örðum íslenskra króna, og nær hún til sam­göngu­mann­virkja og fjar­skipta­kerfa, ekki síst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár