Mynd: Efling

Baráttan í borginni harðnar

Enn hafa ekki náðst samn­ingar milli Eflingar og Reykja­vík­ur­borgar og skella verk­föll á í Reykja­vík í dag. Ef ekki næst að semja fyrir 17. febr­úar næst­kom­andi skellur á ótíma­bundið verk­fall sem mun hafa víð­tæk áhrif.

Félagar stétt­ar­fé­lags­ins Eflingar sem starfa hjá Reykja­vík­ur­borg fara í þriðja verk­fallið klukkan 12:30 í dag og mun það standa til mið­nættis fimmtu­dag­inn næst­kom­andi ef ekki verður samið á þeim tíma. Um 1.850 manns í Eflingu starfa hjá borg­inni á um 129 starfs­stöðvum. Samn­inga­fundi í deil­unni var frestað í gær með stuttum fyr­ir­vara en Ástráður Har­alds­son, settur rík­is­sátta­semj­ari, sagði í sam­tali við frétta­stofu RÚV að fund­ar­höld hefðu ekki verið talin lík­leg til árang­urs. Ekki hefur verið boðað til nýs samn­inga­fundar.

Aðgerðir Eflingar í borg­inni hafa vakið hörð við­brögð og skapað umræðu um höfr­unga­hlaupið svo­kallað, lífs­kjara­samn­ing­ana sem und­ir­rit­aðir voru í fyrra og launa­mun milli ófag­lærðra og mennt­aðra. Kjara­bar­átta starfs­manna Reykja­vík­ur­borgar í Eflingu ýtir undir sam­ræður um það hvernig Íslend­ingar vilja hafa sam­fé­lagið sitt og þrátt fyrir að flestir séu sam­mála um að þeir sem minnst hafa milli hand­anna lifi sóma­sam­legu lífi á laun­unum þá er deilt hart um útfærsl­urnar og leiðir til þess að jafna kjör fólks.

Áhrif verkfallsins víðtæk

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Reykja­vík­ur­borg mun verk­fallið hafa áhrif á rúm­lega helm­ing leik­skóla­barna í borg­inni eða um 3.500 börn. Verk­fallið hefur einnig áhrif á 1.650 not­endur vel­ferð­ar­þjón­ustu borg­ar­innar auk þess sem sorp­hirða frest­ast í þeim hverfum þar sem tæm­ing á að fara fram sam­kvæmt sorp­hirðu­daga­tali.

Mest verða áhrif verk­falls­að­gerða Efl­ing­ar­fólks á leik­skól­ana auk mat­ar­þjón­ustu í grunn­skólum. Þeim börnum sem fá vistun í leik­skólum verður skipt upp í hópa, einn fyrir hádegi og annan eftir hádegi. Fyrirséð er, sam­kvæmt Reykja­vík­ur­borg, að mat­ar­þjón­usta í ein­hverjum grunn­skólum borg­ar­innar raskast og þurfa nem­endur þar að koma með nesti í skól­ann.

Fram kemur hjá borg­inni að vel­ferð­ar­svið hafi fengið und­an­þágur frá verk­falls­að­gerðum fyrir starfs­fólk Eflingar sem sinnir við­kvæm­ustu þjón­ust­unni sem snýr að umönnun fatl­aðs fólks, barna, aldr­aðra á hjúkr­un­ar­heim­ilum og í heima­húsum, barna og fólks sem þarf á neyð­ar­þjón­ustu að halda í gisti­skýlum. Eftir því sem verk­falls­tím­inn leng­ist muni það hafa meiri áhrif á þá sem njóta vel­ferð­ar­þjón­ustu frá borg­inni. Þrif á heim­ilum fatl­aðs fólks og aldr­aðra muni falla niður, sömu­leiðis aðstoð við böðun. Ekki verður hægt að kaupa mál­tíðir á félags­mið­stöðvum og þá verður dagdvöl aldr­aðs fólks í Þorra­seli lokuð á meðan verk­falli stendur.

Hjá Sorp­hirð­unni frest­ast þjón­usta en að auki er vetr­ar­þjón­ustu eins og hálku­vörnum og snjó­hreinsun ekki sinnt á meðan verk­fall stendur yfir. Þá er ekki hreinsað í kringum grennd­ar­stöðvar og ruslastampar ekki tæmdir.

Mest verða áhrif verkfallsaðgerða Eflingar á leikskólana auk matarþjónustu í grunnskólum.
Mest verða áhrif verk­falls­að­gerða Eflingar á leik­skól­ana auk mat­ar­þjón­ustu í grunn­skólum.

Stuðningur úr ýmsum áttum

Fyrirséð er að verk­föll hóps af þess­ari stærð­argráðu muni hafa gríð­ar­leg áhrif enda er það mark­miðið með slíkum aðgerðum. Þeir sem stutt hafa aðgerðir Eflingar eru meðal ann­ars Kennara­sam­band Ís­lands en það hvetur fé­lags­menn sína til að ganga ekki störf fé­lags­manna Eflingar. Í yfir­lýs­ingu á vef Kenn­ara­sam­bands­ins segir að það sé réttur vinn­andi stétta að hafa sjálf­stæðan samn­ings­rétt. Þá hefur BSRB lýst yfir stuðn­ingi við verk­falls­að­gerðir Eflingar en í til­kynn­ingu frá þeim kemur fram að sjálf­stæður samn­ings­réttur sé grund­vall­ar­réttur launa­fólks og verk­falls­rétt­ur­inn öfl­ug­asta vopnið í kjara­bar­átt­unni.

VR hefur einnig lýst yfir stuðn­ingi við bar­áttu Eflingar. Í stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu félags­ins kemur meðal ann­ars fram: „Lyk­il­at­riðið í kröfum Eflingar er leið­rétt­ing á kjörum lægst laun­uðu starfs­manna borg­ar­innar sem nú eru á launum sem duga ekki til fram­færslu. Að geta lifað með mann­legri reisn af launum sínum hlýtur að vera eitt grund­vallar mann­rétt­inda- og bar­áttu­mál verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar.”

Mið­stjórn Alþýðu­sam­bands Íslands hefur jafn­framt lýst yfir fullum stuðn­ingi við verk­falls­að­gerð­irnar. „Kjara­samn­ing­arnir sem gerðir voru fyrir ári síðan fólu í sér þá sýn að leið­rétta lægstu launin, jafna kjörin og auka almenn lífs­gæði. Verum trú þeirri sýn og þeirri veg­ferð! Mið­stjórn ASÍ hvetur félags­menn allra aðild­ar­sam­taka sinna og annað launa­fólk til að virða aðgerðir Eflingar og stuðla að því að verk­falls­brot verði ekki framin,“ sagði í til­kynn­ingu frá ASÍ í síð­ustu viku.

Stytting vinnuviku ekki nógu framarlega í umræðunni

Þó hafa ekki allir stutt aðferða­fræði Eflingar í borg­inni og má þar nefna þing­mann Pírata, Björn Leví Gunn­ars­son, en hann sagði á Facebook í síð­ustu viku að það væri him­inn og haf milli þess að styðja Eflingu og að styðja lág­launa­fólk. „Þetta tvennt er ekk­ert það sama, þó félags­menn Eflingar séu auð­vitað lág­launa­fólk, þá er það tvennt ólíkt; félagið og starf þess og félags­menn. Ég get alveg sagt að staðan núna sé afleið­ing ára­tuga af mis­heppn­uðum samn­inga­við­ræðum um kaup og kjör. Launin ættu að vera hærri en þau eru og vinnu­tím­inn styttri. Ég var til dæmis einu sinni í verk­falli í nokkrar mín­útur áður en samn­ingar náð­ust við leik­skóla­kenn­ara sem mér fannst ein­fald­lega lélegir. Leik­skóla­kenn­arar áttu mun hærri laun skilið en feng­ust í þeim samn­ingum,“ skrif­aði hann.

Hann telur að þær launa­kröfur sem nú sé verið að gera líti ágæt­lega út. Þó sé stytt­ing vinnu­viku ekki nógu fram­ar­lega í umræð­unni og sú stytt­ing sem hafi náðst í lífs­kjara­samn­ing­unum sé „drasl“. Hún hafi í raun verið til­færsla á pásum en ekki eig­in­leg stytt­ing vinnu­tíma.

Styður láglaunafólk en ekki Eflingu

Björn Leví telur að „áróð­urs­her­ferðin“ sem sé í gangi núna hjá Eflingu sé ekki eitt­hvað sem hann geti stutt. „Þar krist­all­ast kannski helst mun­ur­inn á því að ég styð lág­launa­fólk en ekki Eflingu. Á meðan ég vona að þau nái góðum samn­ingum þá get ég ekki stutt aðferð­ina.

Almennt séð þá helgar til­gang­ur­inn ekki með­alið. Vanda­málið er að í stjórn­málum þá er með­alið oft ansi beiskt, jafn­vel úldið, en fær að við­gang­ast í skjóli leynd­ar­hyggju og falsks „trún­aðar“. Það er sífellt verið að búa til vett­vang þar sem hægt er að draga fram öll vopnin; til­finn­ingarökin, útúr­snún­inga, hót­anir, ... allt saman,“ skrif­aði þing­mað­ur­inn. Hann gerir þó athuga­semd og segir að þarna sé hann almennt að tala um stjórn­mál en ekki núver­andi kjara­deilu. Það sé hins vegar margt sem hann sjái sem slær á þær nótur í umræð­unni. Þess vegna sé hann efins, ekki um kjara­bæt­urnar heldur um með­alið.

„Pólitísk taktík nýsósíalistanna“

Einar Kárason, rit­höf­undur og vara­þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, bland­aði sér einnig í málið í síð­ustu viku en hann skrif­aði á Facebook: „Í fyrra þegar kjara­samn­ingar voru lausir og allt stefndi í verk­föll voru komnir ofur­rót­tækir for­ingjar í Eflingu og VR og fleiri félög sem sögð­ust ætla í gler­hart og heimt­uðu 40 til 50 pró­sent hækkun. Sjálfur sat ég þá fáeinar vikur á þingi og fann þar mjög fyrir spenn­unni og óviss­unni; ef færi allt í verk­föll og ósveigj­an­legar kröfur yrði ástand mjög eld­fimt póli­tískt og sam­fé­lags­lega – sér­stak­lega voru stjórn­ar­þing­menn á nálum.“

Hann sagði að áður en nokkuð hafði farið af stað hefðu verið und­ir­rit­aðir „hóf­samir“ samn­ingar um lágar pró­sentur en betri lífs­kjör en þarna vísar hann í lífs­kjara­samn­ing­ana. „Og maður fékk á til­finn­ing­una að hinir ofur­rót­tæku hefðu bara lypp­ast niður. Síðan hafa lífs­kjara­samn­ing­arnir verið fyr­ir­myndin fyrir alla launa­hópa, þar til nú að í einu sveit­ar­fé­lagi lands­ins á að láta sverfa til stáls!“

Einar hélt áfram: „Þar á að vaða í hörð átök, stoppa leik­skóla og sorp­hirðu og sam­göngur og flest annað, ef ekki fást 40 pró­sent hækk­anir lægstu launa. Gott og vel, allt það fólk sem fengi þá hækkun er meira en vel að henni komið. En ein­hvern veg­inn blasir samt við að hér sér póli­tísk taktík nýsós­í­alist­anna í gangi. Og að hún sé þessi: Vöðum í vinstri­meiri­hlut­ann í Reykja­vík! Og sam­fylk­ing­ar­mann­inn sem þar er í for­ystu. Sýnum þá sem stéttsvik­ara og hat­urs­menn lág­launa­fólks, það mun skila okkur árangri í næstu kosn­ingum.“

Baráttufundur Eflingar 4. febrúar 2020
Bar­áttufundur Eflingar 4. febr­úar 2020

Höfrungahlaupið alræmda

Eftir að ljóst var að samn­inga­við­ræður Eflingar og Reykja­vík­ur­borgar myndu ekki bera árangur hófst upp umræða um höfr­unga­hlaupið svo­kallað, það er að ef einn hópur fær ákveðna launa­hækkun þá muni það hafa áhrif á kjara­samn­inga ann­arra hópa í sam­fé­lag­inu.

Viðar Þor­steins­son, fram­kvæmda­stjór­i Eflingar, svar­aði pæl­ingum um hvort launa­hækk­anir myndu valda slíku höfr­unga­hlaupi á Face­book-­síðu sinni í lok jan­úar. Hann sagði að slíkt myndi ger­ast þegar hópar á með­al­launum og háum launum tækju til sín launa­hækk­anir lægra laun­aðra hópa í pró­sentum og fengju þannig út hærri krónu­tölu­hækk­anir fyrir sig. Þannig leiddu hækk­anir lægstu launa ekki til breyttrar sam­setn­ingar á launa­stig­an­um, og ekki til jöfn­uð­ar.

„Höfr­unga­hlaup er ekki þegar lægstu laun eru hækkuð með stig­lækk­andi krónu­tölu­hækk­unum ein­göngu á neðsta bili launa­ska­l­ans. Það er hnit­miðuð aðgerð sem leiðir til auk­ins jöfn­uð­ar. Hún er and­stæðan við höfr­unga­hlaup. Í slíkri aðgerð er ekk­ert, hvorki pró­senta né krónu­tala, sem hærra laun­uðum hópum býðst að end­ur­taka,“ skrif­aði hann.

Þá telur hann að slíka aðgerð hjá einu stétt­ar­fé­lagi megi end­ur­taka hjá öðrum stétt­ar­fé­lögum með félags­menn á sömu launa­bil­um, án þess að það feli í sér höfr­unga­hlaup.

Rík krafa að meta menntun til launa

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri kom í Silfrið síð­ast­lið­inn sunnu­dag en þar sagði hann að launa­munur ófag­lærðra og háskóla­mennt­aðra yrði að vera til staðar, rík krafa væri um að menntun væri metin til launa í sam­fé­lag­inu. Því gæti borgin ekki fall­ist á launa­kröfur Eflingar.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri. Mynd: Birgir Þór Harðarson
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri. Mynd: Birgir Þór Harð­ar­son

Hann sagði í við­tal­inu að staðan væri ein­stak­lega erfið. „Ég hef miklar áhyggjur af henni. Hluti vand­ans er for­ystu­leysi. Það er eng­inn að útskýra hvað verka­lýðs­hreyf­ingin, vinnu­veit­endur og rík­is­stjórnin var að gera síð­asta vor. Hvað það felur í sér.“

Borg­ar­stjór­inn sagði enn fremur að hann gæti sagt hisp­urs­laust að sú nálgun að hækka lægstu laun í lífs­kjara­samn­ing­unum félli honum í geð. „Ég sé bara fram á það að ef ég myndi fram að ítr­ustu kröf­unum þá væru launin komin mjög nálægt háskóla­mennt­uðum hópum, eins og leik­skóla­kenn­urum, hjúkr­un­ar­fræð­ingum og fleirum, og það yrði aldrei friður um það. Það er líka rík krafa um það að meta menntun til launa.“

Láglaunakonurnar bera ábyrgð á öllu

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, skrif­aði aðsenda grein og birti á Kjarn­anum í aðdrag­anda verk­falls­að­gerða í síð­ustu viku. Þar sagði hún: „Aðeins tvennt hefði getað komið í veg fyrir verk­föll í borg­inni. Að við héldum áfram að halda kjafti og vinna eða að borg­ar­yf­ir­völd príl­uðu niður úr turn­inum sem þau dvelja í til að mæta kröfum okkar af rétt­læti og sann­girni.

Hið fyrra er sögu­legur ómögu­leiki á þess­ari stundu. Hið síð­ara greini­lega líka; hrörnun hug­sjóna jafn­að­ar­mennsk­unnar er svo langt gengin að jafn­að­ar­menn með ára­tuga reynslu af stjórn­málum geta talið sjálfum sér trú um að þeim komi kjara­mál ekki við.“

Sólveig Anna telur að allir þvoi hendur sínar af því að bera ábyrgð á afkomu lág­launa­kon­unnar á íslenskum vinnu­mark­aði. En hún skuli þó á end­anum bera ábyrgð á öllu. „Höfr­unga­hlaupi, verð­bólgu, geng­is­hruni; lág­laun­konan sem hræði­leg mara, ógæfa Íslands. Fram­kvæmd­ar­stjóri SA, stað­settur efst á hrúgu efn­is­legra gæða, brjálast. „Fram­ganga Efl­ingar eru svik við hags­muni yfir­gnæf­andi meiri­hluta þjóð­ar­inn­ar.“ Hags­munir yfir­gnæf­andi meiri­hluta þjóð­ar­innar eru að lág­launa­konan haldi áfram að sam­þykkja að hún sé einskis virði. Allt annað er van­virð­ing við Lífs­kjara­samn­ing­inn,“ skrif­aði hún.

Kröfurnar ná ekki fram að ganga gagnvart lærðum leikskólakennurum

Það má því ljóst vera að kjara­deilur Eflingar og Reykja­vík­ur­borgar eru í hnút. Harpa Ólafs­dóttir, for­maður samn­inga­nefndar Reykja­vík­ur­borgar, sagði í sam­tali við RÚV í síð­ustu viku að kröfur Eflingar myndu aldrei ná fram að ganga, til að mynda gagn­vart lærðum leik­skóla­kenn­urum. Hún sagði að það bæri svo­lítið í milli samn­ings­að­ila. „Ef við sjáum ómögu­leika í því að ganga frá kjara­samn­ingi við Eflingu út frá öðrum hópum þá stoðar verk­fall ekk­ert.“

Hún sagði að við­ræð­urnar strönd­uðu á því að Efling gerði kröfu um hækk­anir sem væru umfram lífs­kjara­samn­ing­inn. „Auk þess að þeir sem að eru á hærri launum – við getum nefnt stóra kvenna­hópa hjá okkur, leik­skóla­kenn­ara sem dæmi – þeir væru að fá 50 þús­und króna minni hækkun á sína taxta. Þetta er eitt­hvað sem við metum sem svo að myndi aldrei ná fram að ganga.“

Viðbrögð meirihlutans

Borg­ar­ráðs­full­trúar Sam­fylk­ing­ar­innar, Við­reisnar, Pírata og Vinstri grænna lögðu fram bókun um málið á fundi borg­ar­ráðs Reykja­víkur þann 30. jan­úar síð­ast­lið­inn. Í henni segir að umboð samn­inga­nefndar Reykja­víkur sé ótví­rætt. Ekkert kalli á breyt­ingu á því að samið sé um kaup og kjör ann­ars staðar en við samn­inga­borðið.

„Staðan er aug­ljós­lega við­kvæm en mik­il­vægt er að sú sam­staða haldi sem lífs­kjara­samn­ing­arnir stað­festu síð­asta vor. Samn­ing­arnir voru und­ir­rit­aðir af allri verka­lýðs­hreyf­ing­unni og Samtökum atvinnu­lífs­ins. Auk þess var í lífs­kjara­samn­ingnum sér­stök yfir­lýs­ing rík­is­stjórn­ar­innar um tekju­skatt, fæð­ing­ar­or­lof, barna­bætur, hús­næð­is­mál, líf­eyr­is­mál, félags­leg und­ir­boð, hag­stjórn, verð­lag og verð­trygg­ingu ásamt ein­földun reglu­verks og eft­ir­lits. Þá hefur lífs­kjara­samn­ing­ur­inn þau skýru ákvæði að lægstu laun hækki umfram önnur laun. Tilboð borg­ar­innar í öllum við­ræðum hafa end­ur­speglað áherslur lífs­kjara­samn­ing­ana enda hafa öll verka­lýðs­fé­lög lands­ins sem lokið hafa samn­ingum, samið á grunni þeirra, bæði við und­ir­ritun og í þeirri samn­inga­lotu sem nú stendur yfir,“ segir í bókun meiri­hlut­ans.

Efling gerði athuga­semdir við yfir­lýs­ing­una á vef­síðu sinni í byrjun febr­úar. „Efling vill benda á að það sam­þykki sem félags­menn Eflingar á almennum vinnu­mark­aði gáfu við kjara­samn­ingi Eflingar og SA með atkvæða­greiðslu í apríl 2019 felur ekki í sér sam­þykki á einu eða neinu fyrir hönd félags­manna Eflingar sem starfa hjá Reykja­vík­ur­borg. Efl­ing­ar­fé­lagar hjá borg­inni starfa undir eigin kjara­samn­ingi og hafa sjálf­stætt samn­ings­um­boð sem varið er af lögum og stjórn­ar­skrá. Þeir greiddu ekki atkvæði um samn­ing á almennum vinnu­mark­aði og komu ekki að gerð hans. Und­ir­ritun kjara­samn­ings á almennum vinnu­mark­aði fyrir tæpu ári bindur því ekki hendur samn­inga­nefndar Eflingar gagn­vart Reykja­vík­ur­borg. Efling óskar þess að samn­ings­um­boð félags­manna sé virt,“ segir á vef Eflingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið undanfarið ár