Mynd: 123rf.com

Hrunið: Lukkuriddarar og hrægammar

Fjöl­margir athafna­menn sáu sér leik á borði eftir hrunið til að eign­ast eignir á Íslandi á slikk. Nokkrir gengu mun lengra en aðrir í við­leitni sinni til að verða sér úti um skjót­feng­inn gróða.

Því fór fjarri að einu menn­irnir sem fjöl­menntu til Íslands við hrunið væru þeir sem gættu hags­muna kröfu­hafa. Mýmargir mis­árenni­legir ein­stak­lingar sem sáu tæki­færi á skjót­fengnum risa­gróða í hörm­ungum Íslend­inga flýttu sér einnig hingað og von­uð­ust til að geta nýtt sér ringul­reið­ina sem ríkti.

Helgina eftir setn­ingu neyð­ar­lag­anna í októ­ber 2008 lenti einka­flug­vél á Reykja­vík­ur­flug­velli. Um borð var Phillip Green, smá­vax­inn versl­un­ar­mó­gúll og einn rík­asti maður Bret­landseyja. Hann var kom­inn til lands­ins í einum til­gangi: Að kaupa skuldir Baugs Group á mjög lágu verði. Með það fyrir augum mætti hann á Kirkju­sand í höf­uð­stöðvar Glitnis, sem þá hafði verið tek­inn yfir af skila­nefnd. Með honum í för voru Jón Ásgeir Jóhann­es­son og eig­in­kona hans og við­skipta­fé­lagi, Ingi­björg Stefanía Pálma­dóttir. Jón Ásgeir og fjöl­skylda hans voru á þessum tíma aðal­eig­endur Baugs.

Green tókst að fá fund með umsjón­ar­mönnum þrota­bús­ins. Ingi­björg fór með honum inn á fund­inn en Jón Ásgeir, sem hafði þar til skömmu áður verið stærsti eig­andi Glitnis, bæði beint og óbeint, beið frammi á meðan. Það var ekki talið styrkja stöðu Green að hafa Jón Ásgeir með, enda hafði hann verið útmál­aður í opin­berri fjöl­miðla­um­ræðu sem einn þeirra sem settu Ísland á haus­inn.

Á fund­inum lagði Green fram til­boð um að kaupa allar skuldir Baugs við bank­ann á um fimm pró­sent af virði þeirra. Þegar til­boðið fékk litlar und­ir­tektir lét hann öllum illum látum og hót­aði að allir sem væru inni í her­berg­inu yrðu reknir. Hann gæti látið það ger­ast. Hann hót­aði einnig að tala við for­seta Íslands, Ólaf Ragnar Grímsson, ef til­boðið yrði ekki skoðað betur. Hvað for­set­inn átti að gera kom ekki fram.

Phillip Green er mjög umdeildur maður. Hann var einn þeirra sem reyndi að beita frekju og ofsa til að komast yfir eignir á Íslandi eftir hrun.
Phillip Green er mjög umdeildur maður. Hann var einn þeirra sem reyndi að beita frekju og ofsa til að kom­ast yfir eignir á Íslandi eftir hrun.

Green var á mik­illi hrað­ferð, enda beið einka­þotan eftir honum á vell­inum. Hann átt enn eftir að hitta aðra banka í sömu erinda­gjörðum, auk þess sem hann átti bók­aðan fund með Björg­vini G. Sig­urðs­syni, þáver­andi við­skipta­ráð­herra. Þess vegna gilti til­boð hans ein­ungis í nokkrar mín­útur. Meðan á lát­unum stóð sagði Ingi­björg ekk­ert, utan þess sem hún skaut því inn ann­ars lagið að þetta væri það eina sem hægt væri að gera. Fund­ar­höldin, ferðin og öll lætin voru þó til einskis. Green flaug af landi brott tóm­hentur og án þess að for­set­inn hlut­að­ist til um málið. Bank­arnir voru ekki til við­ræðu um að selja skuld­irnar frá sér. Sá hluti þeirra sem Green hafði mestan áhuga á voru þær skuldir sem Baugur og tengdir aðilar höfðu stofnað til við að kaupa erlend fyr­ir­tæki, mest megnis versl­ana­keðjur í Bret­landi. Fyrir utan þær hafði Baugs-sam­steypan einnig skuld­sett sig mikið vegna inn­lendra fjár­fest­inga.

Umboðsmenn erlendra fjárfesta

Green var ein­ungis sá fyrsti af mörgum sem mættu hingað til lands og ætl­uðu sér að hagn­ast stór­kost­lega á vanda­málum Íslend­inga á sem skemmstum tíma. Slíkir fjár­festar eru oft kenndir við hrægamma vegna áhersl­unnar á að kaupa eignir af fyr­ir­tækjum í vanda. Annars vegar eru það þeir sem eiga sjálfir mikið fé til að fram­kvæma þá gjörn­inga sem þeir bjóð­ast til og hafa jafn­vel gert slíkt oft áður.

Hins vegar er hægt að kalla þá lukku­ridd­ara. Munurinn á þeim og hræ­gömm­unum felst aðal­lega í því að lukku­ridd­ar­arnir voru flestir íslenskir ein­stak­lingar sem ætl­uðu að vera nokk­urs konar umboðs­menn fyrir erlenda fjár­festa. Lukku­ridd­ar­arnir áttu það sam­eig­in­legt að lofa upp í erm­ina á sér án þess að geta staðið við stóru orðin þegar á hólm­inn var komið.

Einn slíkur, íslenskur athafna­maður, kom á fund þrota­búa bank­anna ásamt konu í pels sem var sögð vera rúss­nesk greifynja. Maðurinn og við­skipta­fé­lagi hans fluttu mikla kynn­ingu fyrir for­svars­menn þrota­bú­anna á meðan greifynjan horfði á. Kynn­ingin gekk út á það hvernig hún, með allan sinn auð, gæti fjár­magnað hitt og þetta á Íslandi. Ekkert varð af fjár­fest­ingum greifynj­unnar.

Annað athafna­skáld kom á fund ýmissa aðila, meðal ann­ars Stein­gríms J. Sig­fús­sonar þáver­andi fjár­mála­ráð­herra, sem full­trúi við­skipta­manns frá Hong Kong. Sá átti að vera svo ríkur að Ísland hefði í raun getað afþakkað aðstoð Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins ef Hong Kong mað­ur­inn fengi að fjár­festa hér, sam­kvæmt þeirri kynn­ingu sem fjár­mála­ráðu­neytið fékk. „Hann átti bara að taka stöðu í Íslandi,“ sagði einn þeirra sem sat umrædda fundi.

Vildi kaupa Morgunblaðið

Hrægamm­arnir voru menn eins og áður­nefndur Phillip Green og Steve Cosser sem á sínum tíma reyndi að kaupa Morg­un­blaðið og lýsti yfir áhuga á ýmsum öðrum fjár­fest­ingum á Íslandi. Cosser, sem hafði að eigin sögn efn­ast ungur á því að selja tón­list til veit­inga­húsa og versl­ana, sagð­ist í við­tali við Morg­un­blaðið í jan­úar 2009 vera til­bú­inn að fjár­festa fyrir allt að tvo millj­arða evra á Íslandi.

Steve Cosser sagðist vilja kaupa Morgunblaðið og ætla að fjárfesta hérlendis fyrir allt að tvo milljarða evra.
Steve Cosser sagð­ist vilja kaupa Morg­un­blaðið og ætla að fjár­festa hér­lendis fyrir allt að tvo millj­arða evra.

Blaða­maður á Morg­un­blað­inu tók við­tal við Cosser á heim­ili hans í jan­úar 2009, skömmu áður en hann gerði form­legt til­boð í Árvakur, útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins. Cosser var ber­sýni­lega mjög efn­aður. Hann bjó á dýrasta stað í London í rík­mann­legu húsi.

Cosser mætti strax mik­illi tor­tryggni þegar hann dúkk­aði upp á Íslandi. Margir töldu hann starfa fyrir ein­hverja Íslend­inga sem væru að reyna að ná til baka eignum sem þeir hefðu misst við hrunið. Í þeim sam­sær­is­kenn­ingum var Cosser oft­ast tengdur við Björg­ólfs­feðga. Sjálfur eyddi hann þessum orðrómi í við­tal­inu við Morg­un­blaðið. Þar sagði hann: „Ég get full­vissað þig um að ég þekki ekki þennan Björg­ólfs­son. Ég gæti ekki einu sinni stafað nafnið! Sama gildir um aðra íslenska fjár­festa. Þá spyr fólk hvort við séum hákarlar sem bíðum eftir að hirða eignir á bruna­út­sölu. En saga okkar í fjár­málum sýnir það og sannar að við erum engir hákarlar“.

Þessar kenn­ingar um Cosser voru hæpnar. Hann hafði sjálfur efn­ast á fjár­fest­ingum og það væri ofar öllum skiln­ingi ef hann tæki allt i einu upp á því að vera leppur fyrir ein­hverja á Íslandi. Margir telja þeim mun lík­legra að Cosser hafi ætlað sér að nota Morg­un­blaðið til að liðka um fyrir öðrum við­skiptum. Hann var meðal ann­ars með hug­myndir um að kaupa stjórn­ar­bygg­ingar á Íslandi og leigja þær aftur stjórn­völdum, og hefur lík­lega gert sér grein fyrir að hann þyrfti mik­inn sann­fær­ing­ar­mátt til að fá þau kaup í gegn. Þá lýsti hann einnig yfir áhuga á að kaupa tón­listar- og ráð­stefnu­húsið, sem síðar fékk nafnið Harpa, áður en ríki og borg ákváðu að klára það verk­efni.

Cosser hefur ekki sést hér­lendis síðan árið 2009. Síðast þegar frétt­ist af honum var hann að fjár­festa í Afríku þar sem hann sagð­ist vera að blanda saman við­skiptum og mann­úð­ar­starfi.

Tilraun til samkomulags um að kaupa tekjustreymi Landsvirkjunnar

Nokkrir af stóru erlendu við­skipta­vinum bank­anna reyndu einnig að nýta sér aðstæður hér til að fá eignir út úr þrota­bú­unum á lágu verði. Þeir reyndu stundum að vera í sam­bandi við ráð­herra í rík­is­stjórn til að fá fundi og kynna sinn mál­stað. Um var að ræða erlenda aðila sem þekktu vel til á Íslandi.

Á tíma­bili reyndu banda­rískir aðilar, sem áður höfðu þefað af Íslandi, t.d. að gera sam­komu­lag um að kaupa tekju­streymi Lands­virkj­unar til 25 ára og greiða fyrir það háa fasta fjár­hæð.

Margir þess­ara aðila reyndu að kom­ast á fundi hjá ráða­mönnum íslensku þjóð­ar­innar. Stundum létu ráðu­neytin meira að segja Seðla­bank­ann gera for­sögu­at­hugun á þeim til að athuga hver við­skipta­saga aðil­anna væri og hvort þeir væru raun­veru­lega jafn umfangs­miklir fjár­festar og þeir létu í veðri vaka. Alls kyns aðilar í íslensku sam­fé­lagi komu fram fyrir hönd þess­ara aðila sem umboðs­menn. Oftast reynd­ist lítil inni­stæða fyrir þeim gíf­ur­yrðum um stór­kost­legan auð útlend­ing­anna sem látin voru falla.

Frétta­skýr­ingin byggir að hluta til á efni sem birt­ist áður í bók­inni Ísland ehf - Auðmenn og áhrif eftir hrun eftir Magnús Hall­dórs­son og Þórð Snæ Júl­í­us­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hrun

Mest lesið undanfarið ár