Í Reykjavík eru félagslegar íbúðir 5,3 prósent allra íbúða – Í Garðabæ eru þær 0,7 prósent

Áfram sem áður er Reykja­vík­ur­borg, og skatt­greið­endur sem í henni búa, í sér­flokki þegar kemur að því að bjóða upp á félags­legt hús­næði. Þrjár af hverjum fjórum slíkum íbúðum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru þar á meðan að eitt pró­sent þeirra er í Garðabæ.

Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru 4.016 íbúðir sem skil­greindar eru sem félags­legar. Meg­in­þorri þeirra, alls 2.969 íbúðir, eru í höf­uð­borg­inni Reykja­vík, eða 74 pró­sent allra félags­legra íbúða. Það sveit­ar­fé­lag sem kemur næst í því að draga þennan vagn á svæð­inu er Kópa­vogur með 477 íbúðir og þar á eftir Hafn­ar­fjörður með 334 íbúðir. Verst standa Sel­tjarn­ar­nes, með 44 félags­legar íbúðir, og Garðabær, með 43, sig. Mos­fells­bær kemur þarna á milli með 149 félags­legar íbúðir.

Þetta má lesa út úr svari Sigurðar Inga Jóhanns­sonar inn­við­a­ráð­herra við fyr­ir­spurn Björns Leví Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírata, um fjölda félags­legra íbúða sem birt var í gær. Upp­lýs­ingar um fjölda félags­legra íbúða eru sóttar í hús­næð­is­á­ætlun sveit­ar­fé­laga sem skilað er til Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar.

Um er að ræða félags­legt leigu­hús­næði í eigu sveit­ar­fé­lags eða hús­næði sem sveit­ar­fé­lag fram­leigir til skjól­stæð­inga félags­þjón­ustu, leigu­hús­næði fyrir eldri borg­ara og sér­tæk búsetu­úr­ræði.

Einungis 0,67 prósent íbúa í Garðabæ

Myndin af því hvernig skatt­greið­endur sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sinna félags­legri þörf fyrir hús­næði með útsvars- og fast­eigna­skatts­greiðslum sínum með mis­mun­andi hætti verður enn skýr­ari þegar horft er á félags­legar íbúðir sem hlut­fall af heild­ar­fjölda íbúða í hverju sveit­ar­fé­lagi fyrir sig.

Í Reykja­vík eru slíkar íbúðir 5,26 pró­sent allra íbúða. Í Kópavogi, Hafn­ar­firði og Mos­fellsbæ eru þær yfir þrjú pró­sent. Tvö sveit­ar­fé­lög skera sig áfram sem áður út. Einungis 2,54 pró­sent íbúða á Sel­tjarn­ar­nesi eru félags­legar. Í Garðabæ eru þær hlut­falls­lega enn færri, eða 0,67 pró­sent. Ekkert annað sveit­ar­fé­lag á land­inu sem hefur yfir eitt þús­und íbúðir innan sinna vébanda er með svo lágt hlut­fall allra íbúða helg­aðar félags­lega kerf­inu, en í Garðabæ eru alls 6.447 íbúðir.

Almennar íbúðir fyrir tekjulága

Til við­bótar við ofan­greindar upp­lýs­ingar svar­aði Sigurður Ingi því hversu margar almennar íbúðir hafa verið byggðar í sveit­ar­fé­lögum lands­ins. Lög um bygg­ingu slíkra íbúða voru sam­­þykkt sum­­­arið 2016. Hið nýja íbúða­­­kerfi er til­­­raun til að end­­­ur­reisa ein­hvern vísi að rík­is­rekna félags­­­­­lega hús­næð­is­­­kerf­inu sem var aflagt undir lok síð­­­­­ustu aldar með þeim afleið­ingum að félags­­­­­legum íbúðum fækk­­­aði um helm­ing milli áranna 1998 og 2017.

Mark­mið þeirra laga var að bæta hús­næð­is­ör­yggi þeirra sem eru undir ákveðnum tekju- og eign­­ar­­mörkum með því að auka aðgengi að öruggu og við­eig­andi leig­u­hús­næði. Þannig yrði stuðlað að því að hús­næð­is­­kostn­aður sé í sam­ræmi við greiðslu­­getu þeirra sem leigja hús­næðið og fari að jafn­­aði ekki yfir 25 pró­­sent af tekjum þeirra.

Lögin byggðu á yfir­­lýs­ingu sem þáver­andi rík­­is­­stjórn Sig­­mundar Dav­­íðs Gunn­laugs­­sonar gaf út í tengslum við kjara­­samn­inga sem voru und­ir­­rit­aðir í maí 2015. Í henni var gert ráð fyrir að 2.300 íbúðir yrðu byggðar á árunum 2015 til 2018.

Lengri tíma tók hins vegar að klára lögin og fyrstu úthlut­­anir á grund­velli þeirra fóru ekki fram fyrr en á árinu 2016.

Um 90 prósent almennra íbúða á höfuðborgarsvæðinu í Reykjavík

Íbúð­­irnar sem hafa fengið stofn­fram­lög eru ætl­­aðar fyrir allskyns hópa sem eru með lágar tekj­­ur. Þar ber fyrst að nefna þá félags­­hópa sem eru undir skil­­greindum tekju- og eign­­ar­við­mið­­um.

Stór hluti þess­­arar upp­­­bygg­ing­­ar, sem er afar umfangs­­mik­il, er á vegum Bjargs íbúða­­fé­lags, sem var stofnað af ASÍ og BSRB fyrir nokkrum árum síð­­an, og er rekið án hagn­að­­ar­­mark­miða.

Ýmsar íbúðir sem eru ekki innan almenna íbúða­kerf­is­ins eða eru ekki í eigu sveit­ar­fé­laga falla þó ekki undir þessa upp­taln­ingu líkt og allar íbúðir Félags­stofn­unar stúd­enta og hluti íbúða Bygg­ing­ar­fé­lags náms­manna, hluti íbúða Brynju – Hússjóðs ÖBÍ, íbúðir Leigu­fé­lags­ins Bríetar og fleiri.

Almenna ibúða­kerfið er fjár­­­magnað þannig að ríkið veitir stofn­fram­lag sem nemur 18 pró­­sent af stofn­virði almennra íbúða. Stofn­virði er kostn­að­­ar­verð íbúð­­ar­inn­­ar, sama hvort það er við bygg­ingu hennar eða vegna kaupa á henni.

Reykja­vík hefur tekið á sig meg­in­þorra ábyrgðar á upp­bygg­ingu á almenna íbúð­ar­kerf­inu fyrir lág­tekju­fólk sem eru í vand­ræðum með að taka þátt á hefð­bundnum íbúða­mark­að­i. Alls 89,4 pró­sent allra almennra íbúða sem hafa risið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á und­an­förnum árum eru í Reykja­vík.

Það er ekki án kostn­aðar fyrir höf­uð­borg­ina, eða íbúa henn­ar, sem greiða fyrir rekst­ur­inn með útsvari og fast­eigna­gjöld­um. Sveit­­ar­­fé­lög veita nefni­lega 12 til 16 pró­­sent stofn­fram­lag til verk­efn­anna. Þau geta falist í beinu fjár­­fram­lagi en eru oftar en ekki í formi úthlut­unar á lóðum eða lækk­­unar eða nið­­ur­­fell­ingar á gjöldum sem þyrfti ann­­ars að greiða til sveit­­ar­­fé­lags­ins.

Fleiri almennar íbúðir í útjaðrinum en í Kraganum

Reykja­vík­­­ur­­borg hefur meðal ann­­ars úthlutað Bjargi íbúð­­ar­­fé­lagi lóðir undir mörg hund­ruð íbúðir á stöðum eins í Úlf­­arsár­dal, Bryggju­hverf­inu og Hraun­bæ, en líka á þétt­ing­areitum í gamla hluta borg­­ar­innar á borð við Kirkju­sand, Voga­­byggð og Skerja­­byggð.

Í svari Sigurðar Inga kemur fram að alls 446 almennar leigu­í­búðir fyrir tekju‐ og eigna­lága hafi risið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Alls 399 þeirra eru í Reykja­vík. Í Garðabæ hafa risið 22 slíkar íbúðir, 15 í Kópavogi og tíu í Hafn­ar­firði. Ekki ein ein­asta almenna leigu­í­búð hefur risið í Mos­fellsbæ eða á Sel­tjarn­ar­nesi enn sem komið er.

Athygli vekur að þrjú sveit­ar­fé­lög fyrir utan höf­uð­borg­ar­svæðið hafa byggt meira magn af almennum íbúðum en öll sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, utan Reykja­víkur. Þar fer Akranes fremst í flokki með 51 almenna íbúð og annað sveit­ar­fé­lag á suð­vest­ur­horn­inu, Árborg, er með 28 slíkar íbúðir innan sinna vébanda. Á Akranesi, þar sem búa 7.810 manns, eru því fleiri almennar íbúðir en í Kraganum svo­kall­aða, öllum öðrum sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins utan Reykja­víkur, þar sem búa 105.570 manns.

Í höf­uð­stað Norð­ur­lands, Akureyri, hefur svo verið byggð 31 almenn íbúð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár