Afglöp Rauða krossins draga dilk á eftir sér

Eftir mis­tök hjá lög­fræð­ingi Rauða kross­ins gefst Nargizu Salimova ekki tæki­færi til að kæra úrskurð Útlend­inga­stofn­unar en hún sótti um alþjóð­lega vernd á Íslandi í sept­em­ber síð­ast­liðnum.

Nargiza Salimova kom til lands­ins fyrir rúmum átta mán­uðum síðan eftir að hafa ferð­ast langa leið frá heima­land­inu Kirgistan. Þjóðerni hennar er Uygur og til­heyrir hún því minni­hluta­hópi þar. Eftir að eig­in­maður hennar hvarf spor­laust fyrir um ári síðan flúði hún frá Kirgistan og end­aði á Íslandi.

Hún kom til Íslands með aðstoð smygl­ara og án vit­neskju um hvert hún væri að fara. Hún sótti um hæli á Íslandi þann 20. sept­em­ber síð­ast­lið­inn og hófst þar með ferli hennar í kerf­inu sem mun taka enda þriðju­dag­inn 12. júní ef ekk­ert verður að gert. Þá verður henni vísað úr landi til Litháen eftir að láð­ist að kæra mál hennar til kæru­nefndar útlend­inga­mála á til­teknum tíma vegna anna hjá lög­fræð­ingi sem henni var úthlutað hjá Rauða kross­inum. Henni var aldrei gert grein fyrir mis­tök­unum.

Veit ekkert um afdrif eiginmannsins

Nargiza er fædd 1978 og verður hún því fer­tug á árinu. Hún ólst upp sem fyrr segir í Kirgistan en fyrir rúm­lega ári síðan hvarf eig­in­maður hennar eftir vinnu einn dag­inn. Eftir það hófst atburða­rás þar sem hún flutti til föður síns með börnin tvö sem eru fimmtán og sautján ára gömul.

„Ég hafði aldrei val með að flýja heim­ili mitt og koma hingað,“ segir Nargiza. Átökin í heima­land­inu hafa farið versn­andi, að hennar sögn, og segir hún að ekki sé vært þar sem Uyguri. Hún segir að ástandið sé hættu­legt fyrir fólk eins og hana og þess vegna hafi hún flúið. Hún hafi orðið fyrir ofsóknum og upp­lifði hún sig óör­ugga. Hún ítrekar að það hafi ekki verið val, heldur hafi hendur hennar verið bundnar. „Kannski er eig­in­maður minn ekki á lífi, ég bara veit það ekki,“ bætir hún við. Hún telur að honum hafi verið rænt vegna upp­runa síns. Eig­in­maður hennar er ekki rík­is­borg­ari í Kirgistan en hann er Uyguri fæddur í Kína.

Kirgísk stjórnvöld fylgjast grannt með Uygurum

Uygurar eru evr­a­sískt þjóð­ar­brot sem er skylt Tyrkjum en 80 pró­sent þeirra búa í sjálf­stjórn­ar­hér­að­inu Xinjiang í Vestur-Kína. Þeir eru að stærstum hluta múslimar og hafa kín­versk stjórn­völd lengi haft horn í síðu þeirra. Samkvæmt sam­tök­unum Amnesty International hafa Uygurar mátt þola pynt­ingar, manns­hvörf og jafn­vel aftökur af hendi kín­verskra stjórn­valda frá því á níunda ára­tugnum og sér­stak­lega hat­rammar erjur hafa átt sér stað milli Uygura og Kínverja af Han-upp­runa síð­ast­lið­inn ára­tug. Sem dæmi um þetta má nefna fjöldamorð sem kín­verski her­inn framdi í júlí árið 2009 þar sem 156 manns voru drepin og eitt þús­und manns særð­ust, 80 pró­sent af þeim Uygurar, auk þess sem sam­tökin Human Rights Watch greindu frá því í sept­em­ber árið 2017 að kín­versk stjórn­völd hefðu sent tugi þús­unda Uygura í end­ur­mennt­un­ar­búðir.

Inn­flutn­ingur Uygura inn í Kirgistan frá Xinjiang hófst á sjötta ára­tug tutt­ug­ustu ald­ar­innar og eru þeir rétt tæp 50.000 tals­ins þar sam­kvæmt mann­tal­inu 2009, eða um 0,01 pró­sent íbúa lands­ins. Kirgísk stjórn­völd fylgj­ast grannt með þessu fámenna þjóð­ar­broti en það gera þau, sam­kvæmt Steve Swerdlow hjá Human Rights Watch, með per­sónunjósnum um Uygura, ströngu landamæra­eft­ir­liti við Xinjiang og upp­lýs­inga­söfnun um aðgerð­ar­sinna á meðal Uygura.

Veit ekki hvernig hún endaði hér – úrræðalaus og hrædd

Eftir hvarf eig­in­manns­ins fór Nargiza á lög­reglu­stöð í heima­bænum á hverjum degi til að grennsl­ast fyrir um afdrif hans og til að fá upp­lýs­ingar og hjálp frá yfir­völdum. Hún segir að lítið hafi verið um svör og þvert á móti hafi lög­reglan áreitt hana og yfir­heyrt börnin hennar. Úr varð að hún flúði til nágranna­rík­is­ins Kasakstan og dvaldi þar í þrjá mán­uði. Henni var ekki vært þar og var þá för­inni heitið til Litháen með nokkrum við­komu­stöðum. Að lokum end­aði hún á Íslandi. „Ég hrein­lega veit ekki hvernig ég komst hingað. Ég vissi lítið um Ísland, enda kom ég bara á peys­unni beint í kuld­ann,“ segir hún.

Við kom­una til Íslands dvaldi hún á hót­eli og seg­ist hún hafa verið algjör­lega úrræða­laus og hrædd. Smygl­ar­inn sem kom henni til lands­ins hafði tekið vega­bréfið hennar en hann lét sig hverfa stuttu eftir kom­una hingað, að hennar sögn. Hún tók þá ákvörðun að fara í Útlend­inga­eft­ir­litið og leita sér hjálpar og þá byrj­uðu hjólin að snú­ast. Hún sótti um hæli og í kjöl­farið fékk hún her­bergi sem vist­ar­verur og síðar litla íbúð.

Nargiza Salimova
Nargiza Salimova

Þjáist af miklum kvíða

Börn Nargizu dvelja nú hjá föður hennar á heim­ili hans í Kirgistan en móðir hennar er látin. Hún hefur áhyggjur af þeim og langar hana að sam­eina fjöl­skyld­una. Hún talar við þau á hverjum degi og hennar helsta ósk er að fá tæki­færi til að byggja upp nýtt líf á Íslandi. Hún vill senda eftir börn­unum og búa þeim heim­ili hér.

Dvölin fjarri fjöl­skyld­unni hefur reynt mikið á Nargizu og þjá­ist hún að miklum kvíða og van­líðan en slíkt er ekki óal­gengt hjá konum í þess­ari stöðu. Í grein­ar­gerð til Útlend­inga­stofn­unar vegna umsóknar hennar um alþjóð­lega vernd kemur fram að hún sé metin í ein­stak­lega við­kvæmri stöðu en hún upp­lifir kvíða­köst eftir reynslu sína, fær martraðir og finnur fyrir mik­illi streitu. Jafn­framt segir í grein­ar­gerð­inni að konur og stúlkur séu gjarnan taldar sér­stak­lega við­kvæmur hópur sem hafi færri tæki­færi, úrræði, völd og áhrif en karl­menn vegna sam­fé­lags­legrar stöðu sinnar.

Mig langar að vera með krökk­unum mínum. Ég vil ekk­ert annað.

Kæra send inn 4 dögum of seint

Mál Nargizu hjá Rauða kross­inum var ekki með­höndlað sem skyldi en þegar kom að því að kæra nið­ur­stöðu Útlend­inga­stofn­unar til kæru­nefndar útlend­inga­mála þá fórst það fyrir hjá lög­fræð­ingi hjálp­ar­stofn­un­ar­innar. Nargiza skilur ekki íslensku og var henni aldrei greint frá mis­tök­unum þar til íslenskir vinir hennar fóru að grennsl­ast fyrir um málið. Þá kom í ljós að vegna „per­sónu­legra ástæðna“ tals­manns Nargizu, sem var lög­fræð­ingur hennar hjá Rauða kross­inum, hafi verið komið í veg fyrir að ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar yrði kærð innan kæru­frests.

Samkvæmt gögnum sem Kjarninn hefur undir höndum barst kæra Nargizu fjórum dögum of seint. Eftir að úrskurður Útlend­inga­stofn­unar liggur fyrir þá hefur umsækj­andi 15 daga til að kæra nið­ur­stöð­una. Nargiza greindi lög­fræð­ingi Rauða kross­ins frá því innan þess tímara­mma að hún vildi kæra úrskurð­inn til kæru­nefndar en í þessu til­felli var sú skýr­ing gefin að vegna per­sónu­legra aðstæðna tals­manns, sem sagt mikið álag og nokk­urra daga frí, hafi ákvörð­unin ekki verið kærð innan kæru­frests.

Ekki afsakanlegt að kæran hafi borist of seint

Í stjórn­sýslu­lögum segir að hafi kæra borist að liðnum kæru­fresti skuli vísa henni frá nema afsak­an­legt telj­ist að kæran hafi ekki borist fyrr eða veiga­miklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til með­ferðar.

Tals­maður Nargizu fór þess á leit við nefnd­ina að litið yrði til bágrar and­legrar heilsu kær­anda og hags­muna hennar af því að fá málið sitt tekið til með­ferðar hjá nefnd­inni. Hún hafi verið ein á ferð, átt erfitt síð­ustu mán­uði og fundið fyrir ýmsum lík­am­legum ein­kennum sem orsak­ist að öllum lík­indum af álagi og stressi.

Þann 20. mars síð­ast­lið­inn vís­aði kæru­nefnd útlend­inga­mála kæru Nargizu á ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar frá. Taldi nefndin að ekki væri afsak­an­legt að kæran hefði ekki borist innan þess tímara­mma sem lögin áskilja. Jafn­framt taldi nefndin þær ástæður sem kær­and­inn bar fyrir sig ekki telj­ast veiga­miklar í skiln­ingi stjórn­sýslu­laga.

Nargiza er nú komin með annan lög­fræð­ing sem vinnur í því að kæra hennar verði end­ur­skoðuð áður en henni verður vísað úr landi næst­kom­andi þriðju­dag.

Hrikalega sorglegt

Atli Viðar Thorsten­sen, sviðs­stjóri á hjálpar- og mann­úð­ar­sviði hjá Rauða kross­inum, segir að um mann­leg mis­tök hafi verið að ræða. „Hjá okkur eru skýrir ferlar og reglur,“ segir hann og bætir því við að mik­ill fjöldi mála fari í gegnum Rauða kross­inn á ári hverju. Hann tekur það fram að þrátt fyrir fjölda mála eigi mis­tök sem þessi ekki að eiga sér stað.

„Þetta er hrika­lega sorg­legt, við erum miður okkar,“ segir hann. Þrjú teymi eru starf­andi í mála­flokknum og eru teym­is­stjórar yfir hverju og einu. Síðan er sviðs­stjóri yfir öllu saman. Teym­is­stjórar lesa yfir gögn og leið­beina starfs­mönnum og segir Atli Viðar að regl­urnar séu mjög nákvæmar. Eftir þetta atvik hafi verk­ferlum þó verið breytt og nú sé farið enn betur yfir gögn tengd málum umsækj­enda um alþjóð­lega vernd. „Við eigum okkar engar máls­bætur,“ segir hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið undanfarið ár