Aðgerðarhópur settur á fót vegna neyðarástands á húsnæðismarkaði

Aðgerða­hópur fjög­urra ráð­herra á að skil­greina hvernig bregð­ast eigi við neyð­ar­á­standi á íslenskum hús­næð­is­mark­aði. Hann mun skila nið­ur­stöðu innan mán­aðar. Stofn­fram­lög inn í almenna íbúða­kerfið verða allt að tvö­földuð úr 1,5 millj­arði í þrjá millj­arða.

Rík­is­stjórnin sam­þykkti í morgun að setja á fót sér­stakan aðgerð­ar­hóp fjög­urra ráð­herra til að taka saman yfir­lit yfir þær aðgerðir sem rík­is­stjórnin getur ráð­ist í til þess að ýta frekar undir bygg­ingu lít­illa og hag­kvæmra íbúða. Aðgerð­ar­hóp­ur­inn mun einnig skil­greina hvernig hægt verði að ná utan um þann fram­boðs­skort á íbúðum sem er á íslenskum hús­næð­is­mark­aði.

Á sama tíma sam­þykkti rík­is­stjórnin aðgerðir í hús­næð­is­málum í tengslum við end­ur­skoðun for­sendna kjara­samn­inga sem eru upp­segj­an­legir um næstu mán­aða­mót, en ASÍ hefur sagt að for­sendur kjara­samn­inga séu að óbreyttu brostnar, meðal ann­ars vegna þess að ekki hafi verið staðið við aðgerðir í hús­næð­is­málum. Samþykkt var að tvö­falda það fjár­magn sem setja á í stofn­styrki inn í almenna íbúða­kerfið. Í stað þess að það verði 1,5 millj­arður króna munu allt að þrír millj­arðar króna fara í stofn­fram­lög í mála­flokknum á þessu ári.

Vinnunni á að ljúka innan mánaðar

Þor­steinn Víglunds­son, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, segir að gert sé ráð fyrir að reynt verði að ljúka vinnu aðgerð­ar­hóps ráð­herr­anna fjög­urra hratt. Hann vill sjá meg­in­nið­ur­stöður úr vinnu hóps­ins innan mán­aðar. „Markmið hóps­ins er að draga saman það efni sem þegar hefur verið unnið um fast­eigna­mark­að­inn og helstu til­lögur og setja upp aðgerð­ar­á­ætlun. Við erum að horfa fram á veg­inn og hvernig sé hægt að tryggja að hér verði nægj­an­legt fram­boð af litlum hag­kvæmum íbúðum sem eru hent­ugar fyrir ungt fólk. Það er auð­vitað þar sem skó­inn kreppir hvað mest. Það er þegar búið að byggja mjög mikið af stórum íbúðum sem henta fólki yfir fimm­tugt. Dýrar íbúðir sem fólk er jafn­vel að minnka við sig til að fara inn í. En þessa flóru vantar algjör­lega inn á mark­að­inn.“

Aðspurður hvort rík­is­stjórnin sé með þessu að gang­ast við því að það ríki neyð­ar­á­stand á íslenskum hús­næð­is­mark­aði segir Þor­steinn að það sé ekki umflúið að horfa á ástandið nákvæm­lega þeim augum. „Þarna er veru­legur skortur á hús­næði inn á mark­að­inn. Það er allt of lítið sam­ráð og sam­starf milli sveit­ar­fé­laga og of lítið yfir­lit yfir það sem er í píp­unum á næstu árum. Þetta verðum við að taka sam­eig­in­lega utan um. Ríkið horfir til þess sem það getur gert til þess að liðka fyrir í skipu­lags­lög­gjöf­inni, bygg­ing­ar­reglu­gerðum og bættri sam­an­tekt á fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingum, sem Íbúða­lána­sjóði hefur verið falið að gera. Síðan er hægt að horfa til stuðn­ings­nets­ins sem við erum með inn á fast­eigna­mark­að­inn. Við höfum verið gagn­rýnd fyrir það þegar kemur að vaxta- og hús­næð­is­bótum að þeim sé of þunnt smurt út. Þ.e. að bætur greið­ist of hátt upp tekju­stig­ann og með því sé bóta­kerfið frekar að lyfta upp verði frekar en að styðja við ákveðna tekju­hópa. Það er auð­vitað ekki skyn­sam­legur opin­ber stuðn­ingur og við ættum að geta beint þessum stuðn­ingi betur að þeim hópum sem þurfa á þeim að halda.“

Vantar miklu meira samstarf

Þor­steinn segir að íslenskt sam­fé­lag sé að glíma við fjöl­þættan vanda á hús­næð­is­mark­aði sem hafi því miður verið algjör­lega fyr­ir­sjá­an­legur. Fyrir hafi legið í rúman ald­ar­fjórð­ung að mjög stórir fæð­ing­ar­ár­gangar væru að koma inn á mark­að­inn á þessum tíma og að nettó aðfluttum myndi auk þess fjölga mikið. Það vantar ein­fald­lega meira fram­boð af íbúðum og lóðir undir þær. Það hefur tekið lengri tíma að koma þétt­ing­ar­verk­efnum af stað heldur en gert var ráð fyrir. Það vantar miklu meira sam­starf á milli sveit­ar­fé­lag­anna ef það eiga að vera byggðar 1400 íbúðir á ári á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þau þurfa að taka utan um það hvernig þau ætla að tryggja það fram­boð ár eftir ár. Svo á eftir að takast á við upp­safn­aða þörf.“

Í píp­unum er að ráð­herr­ann setj­ist yfir þessi mál með sveit­ar­fé­lög­unum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til að ráða fram úr því hvernig hægt sé að ná utan um þennan bráða­vanda. Þar geti ríkið til dæmis komið að hvað varðar breyt­ingar á umgjörð mark­að­ar­ins. „Skipu­lags­lög­gjöfin virð­ist vera mjög snúin og tíma­frek, það er spurn­ing hvort að það sé hægt að ein­falda hana að ein­hverju leyti án þess að hags­munum íbúa sé fórnað. Það er bygg­ing­ar­reglu­gerð sem verið er að vísa í að sé enn og íþyngj­andi, sér­stak­lega þegar kemur að bygg­ingu lít­illa íbúða. Það er alveg klárt að það hvernig sveit­ar­fé­lögin verð­leggja lóðir virð­ist ýta undir bygg­ingu stærri íbúða frekar en minni. Við þurfum að snúa þessum hvötum við þannig að það sé meiri hvati til að byggja lítið. Við erum að byggja hærra hlut­fall af íbúðum yfir 100 fer­metrum nú en við vorum að gera fyrir tíu árum síðan.“

Mikill skortur er á íbúðum á höfuðborgarsvæðinu og neyðarástand ríkir á húsnæðismarkaði.
Mikill skortur er á íbúðum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og neyð­ar­á­stand ríkir á hús­næð­is­mark­aði.

Þor­steinn segir að ef það eigi að leggja svona mikla áherslu á þétt­ingu byggðar, sem sé á allan hátt skyn­sam­leg aðgerð út frá land­nýt­ingu, umhverf­is­legu sam­hengi og skemmti­legri borg­ar­brag, þá verði að ein­falda ferlið í kringum þétt­ing­ar­verk­efnin. „Í dag eru þau of tíma­frek. Þau taka fleiri fleiri ár. Svo er sjálf­stætt vanda­mál að það sé verið að selja reit­ina á milli manna áður en það er byggt á þeim. Það mætti alveg skoða hvort það eigi að vera bygg­ing­ar­kvaðir á þessum reitum. Að það verði að hefja fram­kvæmdir innan til­skil­ins tíma að því gefnu að öll leyfi séu fyrir hendi þannig að menn geti ekki bara verið að leika leik­inn að bíða með verk­efnið á teikni­borð­inu, bíða eftir að verðið hækki og selja það svo ein­hverjum öðrum sem ætlar að leika sama leik­inn.“ Þor­steinn segir að flest að þessum þáttum hafi hann þegar rætt við Dag B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóra Reykja­víkur.

Allt að tvöfalda stofnframlög

Þegar kjara­samn­ingar náð­ust milli ASÍ og Samtaka atvinnu­lífs­ins árið 2015 þurfti aðkomu rík­is­ins að þeim. Á meðal þess sem þar var kveðið á um voru aðgerðir stjórn­valda í hús­næð­is­málum. Um kom­andi mán­aða­mót mun for­sendu­nefnd ASÍ og Samtaka atvinnu­lífs­ins kveða upp um hvort for­sendur kjara­samn­inga séu brostnar eða ekki. Á fundi sem for­svars­menn ASÍ héldu með ráð­herrum úr rík­is­stjórn­inni fyrr í þess­ari viku var kallað skýrt eftir efndum í hús­næð­is­málum. Ekkert væri fyr­ir­sjá­an­legt um slíkar í fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar né fjár­lögum árs­ins 2017.

Málið var rætt á fundi rík­is­stjórn­ar­innar í morgun og Þor­steinn segir að sam­þykkt hafi verið að tvö­falda stofn­fram­lög úr rík­is­sjóði inn í þennan mála­flokk. „Á fjár­lögum árs­ins 2017 eru 1.500 millj­ónir merktar til stofn­styrkja inn í almenna íbúð­ar­kerfið. Við munum tryggja allt að 1.500 millj­ónum króna til við­bótar inn í það kerfi. Það var sam­þykkt í rík­is­stjórn í dag þannig að þetta verða allt að þrír millj­arðar króna sem fara í stofn­fram­lög inn í þennan mála­flokk á þessu ári.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár