Engin sérfræðinganefnd um þriðja orkupakkann en samið um þinglok

Allar þrjár blokkir þings­ins telja sig hafa unnið sigra með því þing­loka­sam­komu­lagi sem liggur fyrir. Rík­is­stjórnin fékk nær öll sín mál í gegn og mun afgreiða orku­pakk­ann í ágúst.

Sam­komu­lag um þing­lok náð­ist loks í dag. Það gerð­ist eftir að saman náð­ist milli rík­is­stjórn­ar­flokk­anna og Mið­flokks­ins um hvernig haldið verður á frek­ari umfjöllun um þriðja orku­pakk­ann. Auk þess samd­ist um að fresta gild­is­töku frum­varps um inn­flutn­ing á hráu kjöti.

Orku­pakk­inn verður tek­inn fyrir sam­kvæmt umsaminni máls­með­ferð í ágúst og gild­is­taka afnáms á hömlur á inn­flutn­ing á frosnu kjöti mun frest­ast um tvo mán­uði.

Engin sérfræðinganefnd skipuð

Sam­komu­lagið er í meg­in­dráttum það sama og lá fyrir í lok síð­ustu viku, en sú breyt­ing er á að krafa Mið­flokks­ins um að skipa sér­fræð­inga­nefnd með full­trúum allra flokka til að fara yfir þriðja orku­pakk­ann, sem hluti þing­flokks Sjálf­stæð­is­manna gat ekki sætt sig við, var felld út.

Nú verður engin sér­fræð­inga­nefnd skipuð nema að Mið­flokk­ur­inn ákveði að skipa sína eigin.

Málið hefur leitt af sér mikil átök innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins og nokkrir þunga­vigt­ar­þing­menn og ráð­herrar hafa tekið mjög ein­arða afstöðu í því sem hefur ekki verið vin­sæl alls stað­ar. Þar ber helst að nefna Guð­laug Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra, Þór­dísi Kol­brúnu Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ur, ráð­herra ferða­mála-, iðn­að­ar-, nýsköp­unar og dóms­mála, og Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dótt­ur, for­mann utan­rík­is­mála­nefnd­ar.

Þau hafa öll lagt umtals­vert undir í stuðn­ingi sínum við fram­gang máls­ins á þingi, tekið erf­iða slagi og látið skoða það frá mörgum hliðum af allskyns sér­fræð­ingum. Hluti þing­flokks­ins gat því ekki sætt sig við það að gera ætti alla þá vinnu merk­ing­ar­lausa með því að skipa nýja nefnd til að fara yfir sömu hluti aftur. Það myndi draga úr trú­verð­ug­leika fer­ils­ins.

Heim­ildir Kjarnans herma að Birgir Ármanns­son, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks, og Bergþór Ólason, vara­for­maður þing­flokks Mið­flokks­ins, hafi unnið að lausn síð­ustu daga. Bergþór var lengi í Sjálf­stæð­is­flokknum og var um tíma aðstoð­ar­maður ráð­herra flokks­ins. Hann hefur því per­sónu­leg tengsl við marga þar inn­an­borðs sem geta liðkað fyrir lausn mála.

Í morgun voru flestir við­mæl­endur Kjarnans á þeirri skoðun að nið­ur­staða væri í aug­sýn og síð­degis var greint frá því að sam­komu­lag væri í höfn.

Samkvæmt því mun þing­störfum að öllum lík­indum ljúka í lok þess­arar viku og þing­menn þá kom­ast í sum­ar­frí.

Hverjir unnu?

Á fimmtu­dag lá fyrir sam­komu­lag milli fjög­urra stjórn­ar­and­stöðu­flokka og rík­is­stjórn­ar­innar um hvernig þing­lokum ætti að vera háttað. Innan þeirra flokka; Sam­fylk­ingar, Við­reisnar, Pírata og Flokks fólks­ins, var sú skoðun ráð­andi að það fælist ákveð­inn sigur í því að láta rík­is­stjórn­ina gera sér­stakt sam­komu­lag við Mið­flokk­inn. Með því væri það gert skýrt að hann væri hennar vanda­mál, ekki meiri­hluta stjórn­ar­and­stöð­unnar, sem vill lítið vita af Mið­flokknum. Lítið gekk þó hjá flokk­unum að stöðva það mál sem mest hafði verið lagt upp með að reyna að stöðva, frum­varp um sam­ein­ingu Seðla­banka Íslands og Fjár­mála­eft­ir­lits. Það frum­varp verður afgreitt. Líklegt er að hluti þing­manna Sam­fylk­ingar og Við­reisnar hið minnsta muni greiða atkvæði gegn því.

Sú staða sem kom upp í lok síð­ustu viku, þegar Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, héldu að sam­komu­lag væri í höfn, en að láta það svo stranda í þing­flokki Sjálf­stæð­is­flokks, var rík­is­stjórn­ar­flokk­unum erfið. Þeir leystu þó úr henni yfir helg­ina.

Við­mæl­endur innan stjórn­ar­liðs­ins telja að þeir geti hrósað ákveðnum sigri. Rík­is­stjórnin hafi fengið í gegn nær öll sín mál, utan Þjóð­ar­sjóðs sem þorri stjórn­ar­and­stöðu hafði sett sig upp á móti. Auk þess hafi náðst að semja um hvernig máls­með­ferð orku­pakka­máls­ins verði háttað í ágúst. Þá verði haldnir þrír fundir í utan­rík­is­mála­nefnd þar sem Mið­flokknum gefst kostur á að leggja fram nýjar upp­lýs­ingar. Síðan verði málið ein­fald­lega afgreitt áður en haust­þing verður sett í sept­em­ber. Enn sem komið er virð­ist and­staðan við málið vera bundin við níu þing­menn Mið­flokks­ins, tvo þing­menn Flokks fólks­ins og Jón Þór Ólafsson, þing­mann Pírata. Það er því nokkuð ljóst að málið verður að óbreyttu sam­þykkt með miklum meiri­hluta greiddra atkvæða.

Mið­flokk­ur­inn hefur hrósað sigri vegna þess að með for­dæma­lausu mál­þófi sínu, og síbreyti­legum kröfum í þing­lok­svið­ræðum, hafi honum tek­ist að taka til sín umtals­vert dag­skrár­vald og látið umræð­una snú­ast um sig. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, sagði við RÚV í dag að nú gæf­ist tæki­færi til að skoða orku­pakka­málið betur. „Þó að ein­hverjir Sjálf­stæð­is­menn hafi ekki viljað skipa þessa form­legu nefnd þá verður hægt að vinna í þessu í sumar og leggja nið­ur­stöð­urnar fyrir utan­rík­is­mála­nefnd, það er mjög jákvætt.“

Þau tvö mál sem hann samdi um frestun á njóta þó eftir sem áður yfir­burð­ar­stuðn­ings í þing­inu og verða afgreidd. Orku­pakka­málið á fram­halds­þingi í sum­ar­lok.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár