Pólland breiðir út faðminn fyrir þau sem Rússar hrekja á brott

Stöðugur straumur úkra­ínsks flótta­fólks er enn yfir landa­mærin til Póllands. Sum segj­ast þó vita að Pólland geti ekki hýst mikið fleiri og ætla sér að halda lengra til vest­urs. Blaða­maður Kjarnans heim­sótti landamæra­bæ­inn Medyka á dög­unum.

Ein helsta landamæra­stöðin á milli Póllands og Úkraínu er í bænum Medyka, sem liggur á milli pólska bæj­ar­ins Przemysl og úkra­ínsku borg­ar­innar Lviv. Hálfgert ham­fara­á­stand ríkti á landa­mær­unum fyrstu dag­ana og vik­urnar eftir að inn­rás Rússa hófst. Það var lítið sem tók við þeim stríða straumi fólks sem yfir landa­mærin kom og flutn­ingar fólks frá Medyka og öðrum bæjum voru að nokkru leyti í höndum ein­stak­linga, íbúa Póllands og ann­arra Evr­ópu­ríkja, sem þustu af stað og sóttu fólk á sínum einka­bílum niður að landa­mær­unum.

Auk þess vant­aði sár­lega nauð­syn­legan varn­ing fyrir fólk sem var að koma yfir landa­mærin, margt hvert eftir erfitt ferða­lag þvert yfir Úkraínu. Það var brýn þörf fyrir hrein­læt­is­vörur, bleyjur og barna­mat, einna helst. Þegar blaða­maður Kjarnans kom til Medyka fyrir síð­ustu helgi var staðan þó orðin allt önnur.

Janek, rúm­lega tví­tugur pólskur náms­maður, sjálf­boða­liði og rúss­nesku­mæl­andi túlkur, sem var blaða­manni innan handar í för suður að landa­mær­unum, hafði verið þar ein­ungis viku fyrr að túlka fyrir flótta­fólk.

Hann sagði að þá hefði ringul­reiðin verið mun meiri, við­vera alþjóð­legra hjálp­ar­sam­taka minni og fólkið sem streymdi inn í Pólland að auki mun fleira. „Ég er mjög ánægður að sjá með hvernig skipu­lagið hérna er orðið,“ sagði Janek.

Þar sem fólk kemur fót­gang­andi yfir landa­mærin er búið að koma upp tjöldum hjálp­ar­sam­taka til beggja handa með­fram um 200 metra löngum gang­stíg. Þykkur mat­ar­ilmur lá yfir öllu svæð­inu. Bæði læknar og sál­fræð­ingar á vegum hjálp­ar­sam­taka eru til taks, fyrir þá sem á þurfa að halda. Pólsk síma­fyr­ir­tæki gefa SIM-kort með ókeypis gagna­magni.

Blaða­maður Kjarnans ræddi við nokkra ein­stak­linga sem höfðu verið að koma yfir landa­mærin eftir að hafa komið með rútum frá borg­inni Lviv. Þau höfðu þurft að bíða í nokkra klukku­tíma í bið­röðum Úkra­ínu­megin landamær­anna eftir því að kom­ast í gegn og voru fegin að vera komin yfir og ánægð með mót­tök­urnar.

Ákvað að koma sér frá Tsjernihív áður en allar leiðir lokuðust

Blaða­maður ræddi við tvær ungar konur sem áttu það sam­eig­in­legt að vera á leið frá Úkraínu til þess að sinna vinnu sinni frá öðrum stöðum. Anya er við­skipta­fræð­ingur frá Tsjern­i­hív, norðan við Kyiv. Heima­hérað hennar hefur verið vett­vangur tölu­verðra átaka und­an­farnar vikur og Anya ákvað að koma sér í burtu á meðan það væri enn mögu­legt.

„Ég fór til Lviv fyrir um fjórum dögum og eftir það var brú sem tengir Tsjern­i­hív við Kyiv sprengd upp. Svo ég komst í burtu. Við erum bara með þrjár brýr sem tengja okkur við Kyiv og tvær hafa þegar verið sprengdar og það er bara ein lest­ar­stöð og hún er ekki lengur virk. Það er ekki lengur hægt að kom­ast með lest í burtu,“ segir Anya, sem er á leið til Berlínar.

Anya frá Tsjernihív fékk boð um að koma til Berlínar að vinna fyrir fyrirtæki sem hún hefur starfað hjá í fjarvinnu.
Anya frá Tsjern­i­hív fékk boð um að koma til Berlínar að vinna fyrir fyr­ir­tæki sem hún hefur starfað hjá í fjar­vinnu.

„Ég er búin að vera að starfa í fjar­vinnu fyrir fyr­ir­tæki sem er með skrif­stofur í Berlín. Þau buðu mér að koma þangað og vinna,“ segir Anya, sem er við­skipta­fræð­ingur og starfar við grein­ingar.

Hún nefnir að henni þyki það ansi kald­hæðn­is­legt að vera nú á leið til Berlínar sem flótta­maður, en hún hafði ætlað sér að fara til borg­ar­innar í ferða­lag annað hvort í lok febr­úar eða mars. En svo hófst inn­rásin og allir draumar um ferða­lög og eðli­legt líf hurfu eins og hendi væri veifa.

Hún sér ekki fyrir sér að ílengj­ast í Berlín. Spurð hvort hún hygg­ist snúa aftur til Úkraínu er stríð­inu linnir svarar hún:

„Auðvitað! Við þurfum að end­ur­byggja bæina okkar og ég vil taka þátt í því.“

Rússarnir brenndu allt sem hún átti

Anastasía er um þrí­tugt og kemur frá Karkív. Hún er búin að missa flestar sínar ver­ald­legu eigur vegna inn­rás­ar­innar. „Rúss­arnir eyðilögðu íbúð­ina mína. Hún brann og við misstum allt sem við áttum. Þeir brenndu líka bíl­inn minn. En ég er með áætlun. Ég er í vinnu í Karkív og þau eru að færa okkur til Eist­lands.“

Hún var ein á ferð, eins og svo margar ungar konur sem streymdu yfir landa­mærin, en sagð­ist reyndar hafa eign­ast vin­konu í rút­unni að landa­mær­unum. „Ég er bara búin að þekkja hana í um það bil fimm mín­útur. En við erum samt vin­konur,“ segir hún og hlær.

Anastasía sagði ferð sína þvert yfir Úkraínu og til Lviv hafa gengið vel, það hefði þó verið gríð­ar­lega mikið af fólki í lest­inni, mun fleiri en henni væri ætlað að bera. En góður andi.

Eig­in­maður hennar varð eftir í Úkraínu og tekur þátt í bar­átt­unni gegn inn­rás­ar­liði Rússa.

„Hann er her­maður. Ég bara bið þess að hann lifi þetta af,“ segir Anastasía.

Fjölskylda og hundur á leið til Þýskalands

Blaða­maður ræddi með aðstoð túlks við fjöl­skyldu frá Odessa, þrjár systur á miðjum aldri ásamt börnum. Dóttir einnar kon­unnar, með lít­inn hund í fang­inu, hafði orð fyrir fjöl­skyld­unni til að byrja með og útskýrði að þau væru ein­ungis fyrst að yfir­gefa Úkraínu núna þar sem þau hefðu lítið við að vera.

Hún sjálf sagð­ist vinna við að dreifa barna­mat fyrir heild­sölu­fyr­ir­tæki og að hún hefði ekki farið úr landi fyrr en nú, þar sem hún vildi halda þeirri vinnu gang­andi eins lengi og hægt væri. En nú eru send­ingar af barna­matnum hættar að ber­ast til borg­ar­inar. Og engin vinna í boði.

Fjölskyldan frá Odessa sem ætlaði sér til Þýskalands.
Fjöl­skyldan frá Odessa sem ætl­aði sér til Þýska­lands.

Spurð hvort enn væru mörg unga­börn í Odessa sagð­ist hún vona ekki, þar sem það væri ekki mik­ill matur til skipt­anna fyrir yngstu börnin. „En sjálf­boða­liðar reyna að hjálpa til, þeir fara í vöru­hús og aka þaðan mat til mæðra sem ekki geta fætt börnin sín,“ segir hún.

Fjöl­skyldan var þreytt eftir langt og strangt ferða­lag frá Odessa, en lestar­ferðin til Lviv hafði tekið heila sextán tíma og þaðan héldu þau beint áfram för sinni að landa­mær­unum. Næst var stefnan sett þvert yfir Pólland, til Þýska­lands.

„Við vitum að það er ekki lengur neitt pláss í Póllandi, og Þjóð­verjar eru mjög hjálp­samir,“ sagði ein systr­anna. Hún sagð­ist vilja koma á fram­færi þakk­læti til Pólverja.

„Pól­verjar eru hetjur, við erum svo þakk­lát, við kyssum fætur ykkar,“ sagði hún.

Skóli orðinn að birgðastöð

Í landamæra­bænum Medyka hefur eðli­legt líf heima­manna umturn­ast á und­an­förnum vikum. Blaða­maður hélt þangað frá Varsjá ásamt tveimur sjálf­boða­liðum með skottið fullt af varn­ingi.

„Ef við ætlum að fara á annað borð þá verðum við að fylla bíl­inn. Nota allt plássið, annað er bara heimsku­legt,“ sagði Gaspard, 24 ára gam­all Par­ís­ar­búi, sem er búinn að vera við sjálf­boða­liða­störf í Póllandi og vest­ur­hluta Úkraínu und­an­farnar vikur.

Aðallega voru þetta bleyjur, svefn­pokar og barna­matur, sem Gaspard hlóð í skottið. Áður en haldið var að landamæra­stöð­inni afhenti hann send­ing­una í birgða­stöð sem búið er að koma upp í grunn­skól­anum í Medyka, í sam­starfi ýmissa hjálp­ar­sam­taka, slökkvi­liðs­ins og hér­aðs­yf­ir­valda.

Í porti á bak við skól­ann var fullt af vörum og inni í íþrótta­sal var enn meira af allskyns varn­ingi. Mat, lyfjum og lækn­inga­vörum. Mariusz, sjálf­boða­liði sem stýrði aðgerðum á svæð­inu, sagði að vör­urnar væru að mestu á leið­inni yfir til Úkraínu.

Mariusz hélt mörgum boltum á lofti í birgðastöð hjálparsamtaka í Medyka er blaðamann Kjarnans bar að garði.
Mariusz hélt mörgum boltum á lofti í birgða­stöð hjálp­ar­sam­taka í Medyka er blaða­mann Kjarnans bar að garði.

„Svona 90 til 95 pró­sent fer beint yfir landa­mærin,“ sagði Mariusz, en þörfin fyrir hjálp­ar­gögn á landa­mær­unum sjálfum hafði farið þverr­andi frá því sem var í upp­hafi. Vöru­bílar aka þess í stað nær stöðugt með varn­ing til Lviv í Úkraínu, hvaðan varn­ingnum er svo dreift víðar um landið með lestum og vöru­bílum.

„Nú höfum við nóg hér,“ sagði Mariusz og sagði svo við blaða­mann að það sem helst væri farið að vanta handan landamær­anna væri matur, end­ing­ar­góður matur til þess að senda til aust­ur­hluta Úkraínu.

„Pasta, dósa­matur, þurr­mjólk fyrir börnin,“ sagði Mariusz, áður en hann rauk í burtu til þess að taka á móti næstu send­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flóttamannamál

Mest lesið undanfarið ár