Á leið aftur til Úkraínu: „Fjölskyldur eiga að vera saman“

Þrátt fyrir að enn komi þús­undir flótta­manna frá Úkraínu til Póllands og ann­arra nágranna­landa á hverjum degi eru sumir að snúa aftur heim. „Fjöl­skyldur eiga að vera saman,“ sögðu mæðgur frá Dnipro við Kjarnann skömmu áður en þær héldu heim á leið.

Á lest­ar­stöð­inni í Przemysl, nærri landa­mærum Úkraínu, var nokkuð rólegt um að lit­ast er blaða­mann Kjarnans bar að garði síð­asta fimmtu­dag. Að minnsta kosti í sam­an­burði við hvernig það var vik­una áður og vik­una þar áður, svo ekki sé talað um vik­una þar áður, sagði pólskur sjálf­boða­liði á stöð­inni.

Um lest­ar­stöð­ina er þó stöð­ugur straumur flótta­fólks frá Úkraínu sem er á leið­inni lengra inn í Pólland, frá landamæra­bænum Medyka. Stræt­is­vagnar flytja fólk stöðugt frá landamæra­stöð­inni að lest­ar­stöð­inni í Przemysl, um tíu kíló­metra leið.

Lest­ar­stöðin er eilítið ein­stæð, en hún er sú eina í Póllandi sem getur tekið á móti lestum sem koma frá Úkraínu. Í Úkraínu eru lestar­tein­arnir nefni­lega breið­ari en þeir eru í Póllandi og eitt lest­ar­sporið í Przemysl er af úkra­ínsku gerð­inni.

Á fimmtu­dag var einmitt lest að fara til Úkraínu, alla leið til Kænu­garðs með við­komu í Lviv. Nokkrir tugir manna höfðu safn­ast saman í grennd við braut­ar­pall­inn er blaða­maður Kjarnans kom á stað­inn ásamt rúss­nesku- og úkra­ínsku­mæl­andi túlki.

Nær allt þetta fólk hafði flúið Úkraínu fyrir minna en mán­uði síðan og spurn­ingin sem var blaða­manni efst í huga var sú af hverju þau væru á leið­inni til baka. Fyrir því reynd­ust ýmsar ástæður.

Komin með nóg af evrópskri gestrisni

Breskur maður á miðjum aldri með fjöl­skyldu­tengsl til Úkraínu, sem vildi ekki láta nafns síns getið af því að öldruð móðir hans sem býr á Norð­ur­löndum mátti ekki kom­ast að því að hann væri á leið til Úkraínu - „..hún myndi deyja úr hræðslu“ - ræddi stutt­lega við blaða­mann á lest­ar­stöð­inni.

Hann var að fylgja fjöl­skyldu­með­limum, eig­in­konu bróður hans og tveimur börnum þeirra, aftur heim til Kænu­garðs, en hann hafði tekið á móti þeim í Póllandi í upp­hafi mars­mán­aðar. Bróðir hans er úkra­ínskur rík­is­borg­ari og mátti því ekki yfir­gefa landið með fjöl­skyldu sinni, frekar en aðrir karl­menn á aldr­inum 18-65 ára.

Fjöl­skyldan hefur, eins og raunar margir aðrir flótta­menn frá Úkraínu hafa lýst í umfjöll­unum fjöl­miðla und­an­farnar vikur, lent í miklum vand­ræðum með að fá vega­bréfs­á­ritun til Bret­lands. Það strandar ein­fald­lega á því að börnin hafa aldrei fengin útgefin vega­bréf.

„Við reyndum að kom­ast til Edin­borgar, þau sögðu að þetta ætti að vera voða ein­falt, vega­bréfs­á­ritun feng­ist við kom­una en þegar ég var búinn að kaupa mið­ana frá Póllandi til Edin­borgar höfn­uðu þau okkur og vís­uðu okkur á dyr. Síðan fórum við til Brussel og reyndum að fljúga þaðan til Bret­lands en það var sama sagan, okkur var sagt að við þyrftum vega­bréfs­á­ritun fyrir flugið,“ sagði mað­ur­inn.

„Það segja allir að það sé 5-10 daga bið eftir vega­bréfs­á­ritun. En þau urðu þreytt á að bíða, þessi litlu börn. Þau eru orðin þreytt á gest­risni Evrópu. Mesta gest­risnin er raunar hér í Póllandi. Þegar við fórum til Þýska­lands var tekið á móti okkur á lest­ar­stöð­inni í Berlín og okkur sagt að Berlín tæki ekki á móti fleiri flótta­mönnum. Og það var farið með okkur í flótta­manna­búðir í Hannover. Þau voru ekki hrifin af aðstæðum þar,“ segir hann og bendir á börnin, þriggja ára strák og um tíu ára gamla stúlku.

Spurður hvort hann væri kvíð­inn eða ótta­sleg­inn yfir lestar­ferð­inni til Kænu­garðs sagði hann svo vera.

„Bara eins og venju­legt er. Ef þú ert ekki smá hræddur ertu klikk­aður.“

Vill bara fara aftur heim

Blaða­maður ræddi með aðstoð túlks við Önnu, unga konu með heil­mikið af far­angri, sem var á leið­inni aftur til borg­ar­innar Odessa eftir rúm­lega tveggja vikna dvöl í Póllandi. „Ég er búin að búa þar lengi og langar að fara þangað aftur,“ sagði Anna, en í Odessa, sem er í suð­vest­ur­hluta Úkraínu, bíða hennar fjöl­skylda og vinir.

Anna var á leið aftur til Odessa eftir að hafa búið inni á fjölskyldu í Poznan í Póllandi undanfarnar vikur.
Anna var á leið aftur til Odessa eftir að hafa búið inni á fjöl­skyldu í Poznan í Póllandi und­an­farnar vikur.

„Ég kom til Póllands þegar stríðið braust út en mér líkar þetta ekki, ég vil fara aftur til míns heima­lands. Mig langar bara að vera með fjöl­skyldu minni, heima hjá mér,“ sagði Anna.

Hún var ein á ferð og hafði búið inni á fjöl­skyldu í borg­inni Poznan und­an­farnar vikur. Spurð hvað henni hafi ekki líkað í Póllandi svarar hún því til að það væri svo sem ekk­ert sér­stakt, landið væri ein­fald­lega ekki heim­ili hennar. Einnig hefur reyndar reynst ómögu­legt fyrir hana til þessa að fá útgefna kenni­tölu í pólska kerf­inu.

Anna seg­ist einnig trúa því að stríð­inu ljúki fyrr en seinna – allt verði komið í samt lag áður en langt um líði.

Framhaldsskólanemi ætlar að sækja föður sinn

Roma er ungur úkra­ínskur náms­maður, 17 ára gam­all. Hann er frá Dnipropetr­ovskaya-hér­aði í aust­ur­hluta lands­ins en hefur verið við nám í Poznan í Póllandi. Hann var einn á ferð og sagð­ist hafa fyr­ir­ætl­anir um að sækja föður sinn, færa honum nauð­syn­leg lyf og taka hann svo með sér aftur til Póllands.

Roma er 17 ára gamall úkraínskur framhaldsskólanemi sem stundar nám í Poznan í Póllandi.
Roma er 17 ára gam­all úkra­ínskur fram­halds­skóla­nemi sem stundar nám í Poznan í Póllandi.

Spurður, með hjálp rúss­nesku­mæl­andi túlks, hvort hann væri viss um að geta tekið föður sinn með sér til baka yfir landa­mærin sagð­ist Roma ein­fald­lega vona það besta.

Hvað ef það gengur ekki?

„Þá veit ég ekki…“ svar­aði Roma þá og bætti við að það þyrfti bara að koma í ljós. Sjálfur verður hann 18 ára í sept­em­ber og seg­ist vel vita af því að ef stríðið verði enn í gangi og hann íleng­ist í Úkraínu verði honum mögu­lega meinuð för til baka, eins og öðrum körlum á aldr­inum 18-65 ára.

Fjölskyldur eiga að vera saman

Ung móðir með lít­inn dreng í fang­inu og móðir hennar stóðu saman við lest­ar­stöð­ina. Blaða­maður Kjarnans gaf sig á tal við þær með hjálp túlks. Þær eru að snúa aftur til borg­ar­innar Dnipro, sem er aust­ar­lega í land­inu og ekki svo fjarri þeim svæðum þar sem Rússar hafa sótt fram á und­an­förnum vikum.

Spurðar hvort þær ótt­uð­ust ekk­ert að snúa aftur til baka sagði dóttirin að þær væru jú vissu­lega hræddar, en Dnipro væri heim­ili þeirra. Hún sagð­ist þakk­lát fyrir þá hjálp sem þau hefðu fengið í Póllandi und­an­farnar vikur.

„Við erum fjöl­skylda, við viljum öll fara heim. Fjöl­skyldur eiga að vera saman,“ sagði eldri konan. Hún sagði að stríðið hefði komið þeim algjör­lega í opna skjöldu og að hún fyndi, sama hvað hún reyndi, engar skýr­ingar á þeim hörm­ungum sem Pútín lætur nú ganga yfir Úkra­ínu­menn.

„Þeir sprengja borgirnar okkar, börn sitja í kjöllurunum. Ég skil ekki hvað er í gangi í höfðinu á þeim og af hverju [rússneskur almenningur] er eins og uppvakningar. Af hverju styðja þau þetta? Ég bara græt, ég næ ekki að átta mig á því,“ sagði eldri konan í samtali við Kjarnann.
„Þeir sprengja borg­irnar okkar, börn sitja í kjöll­ur­unum. Ég skil ekki hvað er í gangi í höfð­inu á þeim og af hverju [rúss­neskur almenn­ingur] er eins og upp­vakn­ingar. Af hverju styðja þau þetta? Ég bara græt, ég næ ekki að átta mig á því,“ sagði eldri konan í sam­tali við Kjarnann.

„Við erum rúss­nesku­mæl­andi. Allt lék í lyndi og nú ganga yfir hörm­ungar. Við vorum ekki að búast við neinu í lík­ingu við þetta. Afhverju? Hvað gerð­ist?“ spyr hún.

„Þeir [Rúss­arnir] segj­ast vera að bjarga okkur, en af hverju? Bjarga okkur frá hverjum? Ég skil þetta ekki. Við erum öll úkra­ínsk, við erum öll rúss­nesku­mæl­andi, við vorum að styðja hvort annað og við erum ekki með flokka­drætti á milli úkra­ínsku­mæl­andi og rúss­nesku­mæl­andi. Það eru svo líka Tatarar, Búlgarar og Tyrkir í Úkraínu,“ sagði eldri konan, sem var reið, ekki bara út í Pútín heldur líka almenn­ing í Rúss­landi.

„Þeir sprengja borg­irnar okkar, börn sitja í kjöll­ur­unum. Ég skil ekki hvað er í gangi í höfð­inu á þeim og af hverju [rúss­neskur almenn­ingur] er eins og upp­vakn­ingar. Af hverju styðja þau þetta? Ég bara græt, ég næ ekki að átta mig á því. Ég tala rúss­nesku eins og flestir í aust­ur­hlut­anum. Í Kyiv og vest­ur­hlut­anum eru flestir með úkra­ínsku að móð­ur­máli. Við ríf­umst aldrei yfir þessu. Þegar maður fer vestur spyrja þau ein­fald­lega, finnst þér betra að tala rúss­nesku eða úkra­ínsku? Og ég segi að við tölum bara það sem okkur hentar, því við skiljum öll bæði málin, úkra­ínsku og rúss­nesku.“

Að skjótast eftir nauðsynlegum pappírum

„Ég er á leið til Úkraínu til þess að sækja papp­íra svo ég geti haldið áfram að vinna hér í Póllandi,“ segir Anna, sem er frá Kyiv. Um skottúr verður að ræða og ein­ungis til borg­ar­innar Lviv, sem er um sjö­tíu kíló­metrum austan við landa­mærin, en þar ætl­aði hún að hitta konu sem ætl­aði að leggja upp í ferð til Kænu­garðs að sækja umrædda papp­íra fyrir hana.

Anna frá Kyiv var á leið til Lviv, en þar mun hún fá afhent nauðsynleg gögn til þess að geta haldið áfram störfum í Póllandi.
Anna frá Kyiv var á leið til Lviv, en þar mun hún fá afhent nauð­syn­leg gögn til þess að geta haldið áfram störfum í Póllandi.

Sjálf telur hún ekki öruggt að fara alla leið til Kænu­garðs sjálf að sækja papp­írana sem hún þarf að hafa í hönd­unum. „Mann­eskjan sem hjálp­aði mér er 31 árs kona og tekur smá fé fyrir þessa þjón­ustu. Reyndar frekar mikið fé, en hún tekur þessa áhættu fyrir pen­ing­inn.“

Anna komst frá Úkraínu ásamt eig­in­manni sínum og syni 5. mars og hafa þau komið sér fyrir í borg­inni Szczecin í vest­ur­hluta Póllands. Þar seg­ist hún vera með smá tengsla­net, en hún bjó um hríð og starf­aði í Póllandi en sneri aftur til Úkraínu fyrir sex árum síðan.

Um leið og stríð­inu linnir ætlar hún sér aftur heim, og á það raunar sam­eig­in­legt með öllum þeim flótta­mönnum frá Úkraínu sem Kjarninn hefur rætt við í Póllandi und­an­farna daga.

„Ég ætla mér að fara aftur til Kyiv. Þetta er móð­ur­landið mitt og Kyiv er mik­il­vægur staður fyrir mig. Ég hef prófað að búa erlendis en mér finnst það ekki eins. Ég vil vera frjáls og búa í mínu heima­landi og tala mitt eigið tungu­mál. Það skiptir allar mann­eskjur máli.“

Vestrænir hermenn slást í hópinn

Í Przemysl hefur dag­legt líf farið all­nokkuð úr skorðum und­an­farnar vikur vegna stríðs straums flótta­fólks frá Úkraínu, þó að örtröðin sé minni nú en hún hefur verið. Síðasta fimmtu­dag var nákvæm­lega mán­uður lið­inn frá því að inn­rás Rússa hófst og af því til­efni var skari pólsks fjöl­miðla­fólks sam­an­kom­inn við lest­ar­stöð­ina til þess að hlýða á ávarp stjórn­mála­konu frá hér­aðs­stjórn­inni, eins konar upp­lýs­inga­fund um stöðu mála.

Í bænum sá blaða­maður nokkrum vest­rænum mönnum bregða fyrir, í her­manna­klæðum. Þeir voru einnig á leið til Úkraínu, reiðu­búnir að berj­ast við hlið heima­manna gegn ágangi Rússa.

Konur og börn á leið heim til Úkraínu síðasta fimmtudag, auk nokkurra vestrænna hermanna.
Konur og börn á leið heim til Úkraínu síð­asta fimmtu­dag, auk nokk­urra vest­rænna her­manna.

Blaða­maður reyndi að gefa sig á tal við menn­ina á lest­ar­stöð­inni, en þeir voru banda­rískir, breskir og kanadískir, sam­kvæmt þeim merkjum sem þeir báru á sér.

„Helst ekki,“ svar­aði krafta­lega vax­inn Banda­ríkja­maður í felu­lit­unum, spurður hvort hann væri til í að spjalla við blaða­mann.

Vest­rænir sjálf­boða­liðar sem gefa kost á sér til þess að berj­ast við hlið heima­manna eru nú þegar ansi margir í Úkraínu, en sam­kvæmt nýlegum fréttum er þó allur gangur á því hversu mikla reynslu þeir hafa af hern­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár