Segir Sjálfstæðisflokk stunda hundaflautupólitík gegn útlendingum

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, segir að mál­flutn­ingur ein­stak­linga innan Flokks fólks­ins um útlend­inga hafi ekki verið verri en mál­flutn­ingur ein­stak­linga innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þetta kemur fram í sjón­varps­þætti Kjarnans í kvöld.

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata segir að flokkur hennar hafi verið opinn fyrir því að skoða aðkomu Flokks fólks­ins að rík­is­stjórn­ar­myndun. Eftir að hafa átt sam­skipti við þing­menn hans þá sýn­ist henni að það væri vel talandi við flokk­inn. Það sem Píratar hafi sett helst fyrir sig voru útlend­inga­mál.

[links]Þetta kemur fram í sjón­varps­þætti Kjarn­ans sem sýndur er klukkan 21 á Hring­braut í kvöld. Þar eru Þór­hildur Sunna og Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, við­mæl­endur Þórðar Snæs Júl­í­us­son­ar, rit­stjóra Kjarn­ans. Umræðu­efnið er verð­andi rík­is­stjórn, þær stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður sem strönd­uðu í byrjun síð­ustu viku og kjör­tíma­bilið fram undan.

Þór­hildur Sunna segir að sér hafi stundum orðið um og ó við mál­flutn­ing ein­stak­linga innan Flokks fólks­ins gagn­vart útlend­ingum og fund­ist það erf­ið­asti hjall­inn til að klífa gagn­vart þeim. „En ef ég ber það saman við Sjálf­stæð­is­flokk­inn sem hefur haldið á dóms­mála­ráðu­neyt­inu í 30 ár og rekið mjög harða stefnu gagn­vart útlend­ingum, og á ekki í erf­ið­leikum með að tala niður til þeirra heldur og að nota það sem kall­ast hunda­flautupóli­tík gegn útlend­ingum hérna, þótt sumir séu ber­orð­ari en aðrir eins og til dæmis Ásmundur Frið­riks­son og Óli Björn Kárason, sem hefur talað um að nota stál­hnef­ann gegn útlend­ingum og hæl­is­leit­endum, þá finnst mér það ekki vera verra í sam­an­burði.“

[adspot]Hún og Logi eru sam­mála um að útlend­inga­mál verði fyr­ir­ferða­mikil á kom­andi kjör­tíma­bili. „Okkur vantar vinnu­afl. Okkur vantar fólk til að byggja upp meðal ann­ars hús­næði. Og við þurfum líka að taka ábyrgð meðal þjóða. Það er gríð­ar­lega stór hópur af fólki á flótta sem stendur. Við, vegna okkar land­fræði­legu stöðu, höfum verið frjáls frá því að taka ábyrgð í þessum mála­flokki,“ segir Þór­hildur Sunna.

Hægt er að sjá brot úr við­tal­inu við Þórhildi Sunnu í spil­ar­anum hér að ofan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið undanfarið ár