Ekki bjartsýnn á að næsta ríkisstjórn muni jafna lífskjör í landinu

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir leynd­ar­hyggju, frænd­hygli og sér­hags­muna­gæslu hafa ein­kennt Sjálf­stæð­is­flokk­inn und­an­farin ár. Það sé póli­tískt verk­efni að gera atlögu að því. Þetta kemur fram í sjón­varps­þætti Kjarnans í kvöld.

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir að sú rík­is­stjórn sem er í píp­unum, skipuð Vinstri grænum, Fram­sókn­ar­flokki og Sjálf­stæð­is­flokki, eigi eftir að gera margt gott. „Hún mun ná fram málum sem við hefðum líka getað gert í hinni rík­is­stjórn­inni, sem eru þessi brýnu verk­efni sem lúta að félags­legum stöð­ug­leika, byggja hér undir gott sam­fé­lag. Ég er því miður ekki bjart­sýnn á að hún muni jafna lífs­kjör lands­manna.“

[links]Þetta kemur fram í sjón­varps­þætti Kjarnans sem sýndur er klukkan 21 á Hring­braut í kvöld. Þar eru Logi og Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, við­mæl­endur Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, rit­stjóra Kjarnans. Umræðu­efnið er verð­andi rík­is­stjórn, þær stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður sem strönd­uðu í byrjun síð­ustu viku og kjör­tíma­bilið framundan.

Logi segir það bara annan hluta þess verk­efnis sem Íslend­ingar standi frammi fyrir, að ráð­ast í stór­tæka inn­viða­fjár­fest­ingu og sókn í mála­flokkum sem setið hafi á hak­anum. Hinn hlut­inn sé að gera atlögu að því að eign­ar­menn geti kom­ist hjá því að sýna sam­fé­lags­lega ábyrgð, Hvernig hægt sé að taka hags­muni flokks fram yfir hags­muni fólks­ins og hvernig sé hægti að moka undir sína stuðn­ings­menn og frændur. Allt þetta tengir Logi við Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

„Mér finnst hin seinni ár ýmis­legt hafa ein­kennt þennan flokk sem er vont fyrir Íslenskt sam­fé­lag. Það er rekið spill­ing­ar­mál hvert á fætur öðru. Leynd­ar­hyggja, frænd­hygli og ýmis­legt sem þarf að gera atlögu að í stjórn­málum.“

Hægt er að sjá brot úr við­tal­inu við Loga hér að ofan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár