Mynd: Samsett

Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn hnífjöfn

Meiri­hlut­inn í Reykja­vík myndi fá rétt undir helm­ing atkvæða ef kosið væri í dag. Sjálf­stæð­is­flokkur og Mið­flokkur bæta lít­il­lega við sig. Þetta er nið­ur­staða nýj­ustu kosn­inga­spár­innar.

Sam­fylk­ingin og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn eru með nán­ast sama fylgi í Reykja­vík sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Dr. Baldurs Héð­ins­sonar. Fylgi Sam­fylk­ingar mælist 28,7 pró­sent en fylgi Sjálf­stæð­is­flokks 28,3 pró­sent.

Þeir þrír flokkar sem sitja í meiri­hluta í borg­inni og eru í fram­boði í kosn­ing­unum í lok næsta mán­aðar mæl­ast sam­tals með 48,9 pró­sent fylgi sem myndi duga þeim til að ná meiri­hluta í borg­inni. 

Sá meiri­hluti er þó orð­inn mjög valtur í sessi.

Sjálfstæðisflokkur bætir við sig

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn bætir við sig fylgi á milli spá án þess að það skili honum fleiri borg­ar­full­trúum kjörnum. Þeir yrðu lík­ast til áfram sjö líkt og í síð­ustu spá. Mið­flokk­ur­inn, sem kynnti kosn­inga­á­herslur sínar í gær og hefur verið að fiska á svip­uðum miðum og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, bætir einnig við sig smá­vægi­legu fylgi án þess að það myndi duga til að ná inn fleiri borg­ar­full­trúum en odd­vit­anum Vigdísi Hauks­dóttur.

Fylgi framboða í Reykjavík samkvæmt kosningaspánni 27. apríl 2018.
Fylgi fram­boða í Reykja­vík sam­kvæmt kosn­inga­spánni 27. apríl 2018.

Vinstri græn og Sam­fylk­ingin tapa bæði smá­vægi­legu fylgi á milli spáa, en það er þó ekki mark­tæk sveifla. Þriðji maður Vinstri grænna inn í borg­ar­stjórn, Þor­steinn V. Ein­ars­son, er þó orð­inn mjög valtur í sessi. Þá er ólík­legt að átt­undi maður Sam­fylk­ing­ar­innar, Magnús Már Guð­munds­son næði inn við þessar aðstæður. Ef báðir myndu detta út þá myndi staðan í borg­inni, hvað varðar myndun næsta meiri­hluta, breyt­ast mjög.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, sem mælist með 3,3 pró­sent fylgi ætti að ná inn einum borg­ar­full­trúa. Ingvari Mar Jónssyni, odd­viti sínum á kostnað full­trúa Flokks fólks­ins, Kol­brúnar Bald­urs­dóttur, sem mæld­ist inni síð­ast. Pawel Bartozcek, annar maður á lista Við­reisnar, er áfram í dyra­gætt borg­ar­stjórnar eins og staðan er í dag.

Píratar virð­ast sigla mjög lygnan sjó og eru með nokkuð stöðugt tíu pró­sent fylgi.

Glænýju framboðin ekki að ná miklum árangri

Þrátt fyrir að allt stefni í að vel á annan tug fram­boða muni vera í fram­boði í höf­uð­borg­inni í lok maí þá virð­ast fæst þeirra vera að ná eyrum kjós­enda, að minnsta kosti enn sem komið er. Þeir þrír flokkar sem hafa komið nýir inn á sjón­ar­svið lands­mála á und­an­förnum árum: Viðreisn, Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins, eru einu nýju fram­boðin í Reykja­vík sem mæl­ast með mæl­an­legt fylgi. Oddviti Flokks fólks­ins, Kolbrún Bald­urs­dóttir, næði þó ekki inn eins og stendur. Sam­an­lagt fylgi þess­ara þriggja flokka mælist nú 16,1 pró­sent.

Þeir sem ætla að kjósa aðra en þá flokka sem þegar hafa verið nefndir hér til leiks eru nú 3,4 pró­sent kjós­enda, en 2,1 pró­sent þeirra sögð­ust ætla að gera það í síð­ustu kosn­inga­spá sem sýndi stöð­una eins og hún var 9. apríl. Taka verður fram að mörg þeirra fram­boða sem hafa boðað þátt­töku í kosn­ing­unum í vor eru ekki búin að kynna end­an­lega lista sína og sum hafa ekki lagt fram helstu kosn­inga­mál.

Þær kann­anir sem liggja til grund­vallar nýj­ustu kosn­inga­spánni (25. apríl) eru eft­ir­far­andi:

  • Þjóð­ar­púls Gallup 8. mars (vægi 20,7 pró­sent)
  • Þjóð­mála­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 21 - 27. mars. (vægi 25,4 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins og fretta­bla­did.is 9. apríl (vægi 21,7 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins og fretta­bla­did.is 25. apríl (vægi 32,2 pró­sent)

Hvað er kosn­inga­spá­in?

Fyrir hverjar kosn­ingar um allan heim birta fjöl­miðlar gríð­ar­legt magn af upp­lýs­ingum. Þessar upp­lýs­ingar eru oftar en ekki töl­fræði­legar, byggðar á skoð­ana­könn­unum þar sem fólk hefur verið spurt hvernig það upp­lifir stjórn­málin og hvað það getur ímyndað sér að kjósa. Stjórn­mála­fræð­ingar og fjöl­miðlar kepp­ast svo við að túlka nið­ur­stöð­urnar og veita almenn­ingi enn meiri upp­lýs­ingar um stöð­una í heimi stjórn­mál­anna.

Allar þessar kann­anir og allar mögu­legar túlk­anir á nið­ur­stöðum þeirra kunna að vera rugl­andi fyrir hinn almenna neyt­anda. Einn kannar skoð­anir fólks yfir ákveðið tíma­bil og annar kannar sömu skoð­anir á öðrum tíma og með öðrum aðferðum. Hvor könn­unin er nákvæm­ari? Hverri skal treysta betur? Svarið er oftar en ekki óljóst því vand­inn er að hinn almenni kjós­andi hefur ekki for­sendur til að meta áreið­an­leika hverrar könn­unar.

Þar kemur kosn­inga­spáin til sög­unnar.

Kosn­­inga­­spálíkan Bald­­urs Héð­ins­­sonar miðar að því að setja upp­­lýs­ing­­arnar sem skoð­ana­kann­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­inga. Nið­ur­stöður spálík­ans­ins eru svo birtar hér á Kjarn­anum reglu­lega í aðdrag­anda kosn­inga.

Ath.

Texti skýr­ing­ar­innar hefur verið upp­færður. Fyrir mis­tök var stuðst við eldri sæta­spá í upp­runa­lega text­anum. Honum hefur nú verið breytt. Beðist er afsök­unar á þessu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2018

Mest lesið undanfarið ár