Er fjórflokkurinn hruninn?

Tveir þriðju hlutar kjós­enda ætla að kjósa ein­hvern full­trúa fjór­flokks­ins í kosn­ingum eftir eina viku. Fjór­flokk­ur­inn hefur að jafn­aði fengið 87% í Alþing­is­kosn­ingum síðan 1963.

Í sögu­legu sam­hengi hafa það einkum verið fjórir flokkar sem deilt hafa völdum hér á landi. Þessir flokk­ar, sem oft­ast eru einu nafni kall­aðir „fjór­flokk­ur­inn“ eru jafn­framt grunn­ur­inn af því sem hefur ein­kennt íslenska flokka­skipan frá stofnun lýð­veld­is­ins.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur jafnan verið stærstur og yfir­leitt átt auð­velt með að taka Fram­sókn­ar­flokk­inn með sér í stjórn­ar­sam­starf. Ef kosn­inga­úr­slitin hafa hins vegar þótt Fram­sókn­ar­flokknum í vil hefur for­mað­ur­inn oft­ast hringt í kollega sinn í Val­höll. Ef mál­efna­á­grein­ingur kom upp milli þess­ara flokka varð oft stjórn­ar­kreppa.

Hinir flokk­arnir í fjór­flokknum eru tveir vinstri­flokk­ar. Saga þeirra er mun flókn­ari en saga Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins og hafa þeir gengið undir ýmsum nöfn­um. Síðan um alda­mótin hafa þessir flokkar heitið Sam­fylk­ingin og Vinstri hreyf­ingin - grænt fram­boð. Í öllum kosn­ingum og skoð­ana­könn­unum á síð­ari hluta 20. aldar og á fyrsta ára­tug þeirrar 21. hefur fjór­flokk­ur­inn vegið þyngst og átt hið póli­tíska svið út af fyrir sig, nema þegar fimmti auka­leik­ar­inn hefur troðið sér inn í sen­urnar og jafn­vel valdið nokkrum usla áður en áhorf­endur púa hann niður af svið­inu.

Á árunum sem liðin eru frá banka­hruni hafa æ fleiri fram­boð rutt sér inn á sviðið til þess að verða þessi fimmti leik­ari. Mörgum flokkum hefur mis­tek­ist að halda í stuðn­ing sinn eftir kosn­ingar og fallið af sviði stjórn­mál­anna. Önnur fram­boð hafa þá rutt sér fram á sviðið og gert sig gild­andi.

Fyrir kosn­ing­arnar í ár eru fimm „við­bót­ar­fram­boð“ við hinn hefð­bundna fjór­flokk. Eftir stærða­röð í kosn­inga­spánni eru það Píratar, Mið­flokk­ur­inn, Viðreisn, Flokkur fólks­ins og Björt fram­tíð. Önnur fram­boð sem ekki eru til­tekin í kosn­inga­spánni eru Alþýðu­fylk­ingin og Dögun.

Fjórflokkurinn ekki eins vinsæll

Á und­an­förnum ára­tugum hefur stuðn­ingur við fjór­flokk­inn, þe. einn af þessum fjórum fram­boðum, minnkað nokkuð. Í Alþing­is­kosn­ingum 1963 fékk fjór­flokk­ur­inn nærri því öll atkvæðin. Í Alþing­is­kosn­ingum það sem eftir lifði öld­inni fengu Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn yfir­leitt meira en helm­ing atkvæða.

Sam­tals voru flokk­arnir með tæp­lega 70 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 1963. Árið 1999 var það hlut­fall tæp­lega 60 pró­sent. Ára­tug síðar hlutu þessir flokkar ein­ungis 38,5 pró­sent atkvæða sam­an­lagt en fengu svo aftur meiri­hluta fjórum árum síð­ar. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Bjarni Bene­dikts­son hringd­ust þess vegna á eins og svo oft áður.

Í kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar sem gerð hefur verið í aðdrag­anda Alþing­is­kosn­ing­anna 28. októ­ber í ár, kemur í ljós að stuðn­ingur við fjór­flokk­inn svo­kall­aða virð­ist hafa vaxið á milli ára. Í kosn­ing­unum í fyrra fengu flokk­arnir fjórir 62,1 pró­sent atkvæða. Í kosn­inga­spánni ár hafa flokk­arnir haft sam­an­lagt á bil­inu 64 til 69 pró­sent stuðn­ing.

Hvert hefur restin farið?

Rann­sóknir hafa sýnt að á und­an­förnum árum hefur flokks­holl­usta á Íslandi minnkað. Það þýðir að færri sam­sama sig við ein­hvern einn stjórn­mála­flokk en gerðu áður. Fylgi stjórn­mála­flokka er þess vegna kvik­ara en það var áður, reiðu­búið til þess að styðja aðra flokka en þessa hefð­bundnu.

Um leið dreif­ist fylgið á fleiri stjórn­mála­öfl. Nú eru fimm stjórn­mála­flokkar til við­bótar við fjór­flokk­inn sem bjóða fram til Alþingis sem fá meira en tvö pró­sent stuðn­ing í kosn­inga­spánni. Fjögur við­bót­ar­fram­boð fengu meira en fimm pró­sent stuðn­ing í kosn­inga­spánni 18. októ­ber.

Hrun flokkakerfisins

Flokka­kerfið – sem við höfum hingað til kallað fjór­flokk­inn – virð­ist vera á und­an­haldi. Á fáeinum árum hafa vin­sældir rót­grónu stjórn­mála­flokk­anna fallið. Stuðn­ingur við þessa flokka hefur aldrei verið minni en í kosn­ing­unum 2016. Núna ári síðar er fylgi við Sjálf­stæð­is­flokk­inn í lægstu lægðum, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er klof­inn, Vinstri flokk­arnir mæl­ast með sam­tals 37 pró­sent stuðn­ing. Dreifing stuðn­ings­ins hefur sjaldan verið jafn jöfn.

Sam­an­burður á nið­ur­stöðum kosn­inga við kosn­inga­spána 18. októ­ber 2017 renna stoðum undir þá til­gátu að hið hefð­bundna flokka­kerfi sé að líða undir lok. Árið 1963 fengu flokk­arnir sem þá skip­uðu fjór­flokk­inn sam­tals 99,8 pró­sent atkvæða. Árið 1987, þegar einn vin­sæl­asti fimmti leik­ar­inn, Borg­ara­flokk­ur­inn, steig fram á sviðið hlaut fjór­flokk­ur­inn 74,6 pró­sent atkvæða. Í kosn­ing­unum árið 2009, fáeinum mán­uðum eftir banka­hrun­ið, hlaut fjór­flokk­ur­inn 90 pró­sent atkvæða. Sam­kvæmt kosn­inga­spánni í dag mun fjór­flokk­ur­inn hins vegar ein­ungis fá 66,2 pró­sent atkvæða.

Nýir flokkar hafa átt erfitt með að fóta sig í íslensku flokka­lands­lagi í lengri tíma en kannski tvö kjör­tíma­bil. Áhuga­vert er að líta á Pírata út frá þessu. Píra­ta­flokk­ur­inn var fyrst kjör­inn á þing í kosn­ing­unum 2013. Flokk­ur­inn fékk þá 5,1 pró­sent atkvæða og þrjá þing­menn. Í kosn­ing­unum í fyrra fengu Píratar svo 14,5 pró­sent atkvæða og 10 þing­menn kjörna.

Píratar fengu góða kosningu til Alþingis í fyrra. Fulltrúar flokksins brugðust skemmtilega við þegar fyrstu tölur bárust laugardagskvöldið 29. október 2016.
Píratar fengu góða kosn­ingu til Alþingis í fyrra. Full­trúar flokks­ins brugð­ust skemmti­lega við þegar fyrstu tölur bár­ust laug­ar­dags­kvöldið 29. októ­ber 2016.

Í kosn­inga­spánni eru Píratar nú með stuðn­ing um og yfir 10 pró­sent kjós­enda. Þetta verða þriðju þing­kosn­ing­arnar sem Píratar gefa kost á sér. Öll kjör­tíma­bilin sem flokk­ur­inn hefur setið hafa verið skert, svo það er erfitt að meta hvort „fimmta­flokks­á­hrifin“ eigi eftir að ná tökum á flokknum. Þangað til styður dæmið um Pírata þá kenn­ingu að fjór­flokka­kerfið sé á und­an­haldi.

Áhrifin virð­ast hins vegar hafa hel­tekið Bjarta fram­tíð sem hefur mælst með mjög lít­inn stuðn­ing und­an­farið. Björt fram­tíð var stofnuð árið 2012 og bauð fram í fyrsta sinn til Alþingis árið 2013, eins og Píratar. Björt fram­tíð fékk þá 8,6 pró­sent atkvæða og sex þing­menn. Í næstu kosn­ingum árið 2016 fékk flokk­ur­inn færri atkvæði, 7,2 pró­sent þeirra féllu til Bjartar fram­tíðar, og fyrir vikið fékk Björt fram­tíð aðeins fjóra þing­menn. Nú lítur allt út fyrir að flokk­ur­inn nái engum á þing.

Þessi umfjöllun er byggð á umfjöllun um fjór­flokk­inn sem gerð var í aðdrag­anda Alþing­is­kosn­ing­anna í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið undanfarið ár