Vinstri græn og Miðflokkurinn sterkust í Norðaustri

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Vinstri græn eru vin­sæl­ustu fram­boðin í öllum kjör­dæmum og eiga vísa menn á þing all­staðar. Mið­flokk­ur­inn er næst stærstur í Norð­aust­ur­kjör­dæmi.

Vinstri græn og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn deila yfir­ráðum í kjör­dæm­unum sex í aðdrag­anda Alþing­is­kosn­ing­anna 2017, miðað við kosn­inga­spá Baldurs Héð­ins­sonar og Kjarnans.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er vin­sælastur í þremur kjör­dæmum: Suð­ur­kjör­dæmi, Norð­vest­ur­kjör­dæmi og stærsta kjör­dæmi lands­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Vinstri græn eru vin­sælust í hinum kjör­dæm­unum: Norð­aust­ur­kjör­dæmi og Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum tveimur.

Mið­flokk­ur­inn er næst vin­sælastur í Norð­aust­ur­kjör­dæmi þar sem Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son reikn­ast með 100 pró­sent líkur á því að ná kjöri í þing­sæta­spánni.

Nánar má lesa um fram­kvæmd, for­sendur og aðferða­fræði kosn­inga­spár­innar í kosn­inga­mið­stöð Kjarnans.

Sjálfstæðisflokkurinn stærstur á landsvísu

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er stærsti flokkur lands­ins miðað við kosn­inga­spána með 23,8 pró­sent fylgi. Það er önnun kosn­inga­spáin í röð þar sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er stærstur. Vinstri græn, sem voru vin­sælasta fram­boðið framan af kosn­inga­bar­átt­unni eru næst stærst og eru nú með stuðn­ing 21,2 pró­sent kjós­enda.

Lík­leg­ast er að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fái 16 þing­menn kjörna í kosn­ing­unum, miðað við þing­sæta­spá á lands­vísu. Vinstri græn munu fá 15 þing­menn kjörna.

Sam­fylk­ingin er enn þriðja stærsta fram­boðið í aðdrag­anda kosn­ing­anna og er nú með 14,2 pró­sent stuðn­ing í kosn­inga­spánni. Raunar hafa engir flokkar sæta­skipti í kosn­inga­spánni nú miðað við stöð­una 23. októ­ber. Fylgi fram­boða breyt­ist hins vegar lít­il­lega.

Fyrir utan hreyf­ingar á fylgi Vinstri grænna er helst að merkja breyt­ingar á fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem tapar um hálfu pró­sentu­stigi, og aukn­ingu í stuðn­ingi við Viðreins um annað eins.

Meirihluti tveggja flokka ólíklegri

Eftir því sem nær dregur kosn­ingum verður það æ ólík­legra að hægt verði að mynda meiri­hluta á þingi með sam­an­lögðum þing­manna­fjölda tveggja flokka. Aðeins eru telj­andi mögu­leikar á að tveir stærstu flokk­arnir – Sjálf­stæð­is­flokkur og Vinstri græn – geti myndað stjórn. Kosn­inga­spáin metur lík­urnar á að slíkt geti orðið 32 pró­sent.

Þing­sæta­spáin verður til í 100.000 sýnd­ar­kosn­ingum þar sem nið­ur­stöður kosn­inga­spár­innar eru hafðar sem lík­leg­asta kosn­inga­út­koma. Vikmörk, skekkja á milli kjör­dæma og slíkt er notað til þess að áætla mis­mun­andi dreif­ingu atkvæða.

Líkur á sam­an­lögðum þing­manna­fjölda 26. októ­ber
ÞingmennDMDFMBDBDMBSMBDSMBSVBPSVPSVPVDVSV
>=410.000.000.000.000.000.130.000.030.000.000.000.00
>=400.000.000.000.000.000.200.000.060.000.000.010.00
>=390.000.000.000.000.000.290.000.100.010.000.010.00
>=380.000.000.000.000.000.390.000.160.010.000.020.00
>=370.000.000.000.000.000.500.010.240.020.000.040.00
>=360.000.000.000.010.000.610.020.340.040.000.070.00
>=350.000.000.000.020.000.710.030.450.080.000.120.00
>=340.000.010.000.030.000.800.060.560.130.000.180.00
>=330.000.010.000.060.000.870.100.670.200.000.270.00
>=320.000.030.000.100.000.920.170.770.290.000.380.01
>=310.010.050.000.160.000.950.250.840.390.000.490.02
>=300.020.090.000.240.000.980.350.900.510.000.620.04
>=290.040.140.010.340.010.990.460.940.620.000.730.07
>=280.070.220.010.460.020.990.580.970.730.010.820.11
>=270.110.310.030.580.031.000.690.980.820.020.890.19
>=260.180.420.060.690.061.000.780.990.880.050.940.28
>=250.280.540.100.780.111.000.861.000.930.090.970.40
>=240.390.660.170.860.171.000.921.000.960.150.990.53
>=230.520.760.260.920.261.000.951.000.980.240.990.65
>=220.650.840.380.950.371.000.981.000.990.351.000.76
>=210.760.900.500.980.491.000.991.001.000.471.000.85
>=200.850.950.630.990.611.001.001.001.000.601.000.91
>=190.910.970.750.990.721.001.001.001.000.711.000.96
>=180.950.990.841.000.811.001.001.001.000.811.000.98
>=170.980.990.911.000.881.001.001.001.000.891.000.99
>=160.991.000.951.000.931.001.001.001.000.931.001.00

Líkur á að sam­an­lagður þing­manna­fjöldi fram­boðs­lista nái meiri­hluta á þingi. Til að fá eins manns meiril­huta á Alþingi þarf sam­an­lagður fjöldi að vera 32 þing­menn. Rauða strikið í töfl­unni hér að neðan er sláin sem þarf að kom­ast yfir.

Í þrjú pró­sent til­vika þess­ara sýnd­ar­kosn­inga var hægt að mynda 32 manna meiri­hluta með sam­starfi Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Sam­fylk­ing­ar­innar. Vinstri græn og Sam­fylk­ingin gátu myndað meiri­hluta í einu pró­sent til­vika.

Það er þess vegna mun lík­legra að þrír eða fleiri flokkar verði að starfa saman í rík­is­stjórn, ef mynda á meiri­hluta­stjórn að kosn­ingum loknum. Þar eru mögu­leik­arnir fleiri en lík­urnar ekki hug­hreystandi fyrir for­ystu­menn flokka sem þurfa að berja saman stefnu­málum flokka eftir kosn­ingar.

Píratar, Sam­fylk­ingin og Vinstri græn gátu myndað meiri­hluta í 29 pró­sent til­vika sýnd­ar­kosn­ing­anna. Ef Fram­sókn­ar­flokknum var skipt inn fyrir Pírata urðu til­vikin 17 pró­sent. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Mið­flokk­ur­inn eiga svo 10 pró­sent líkur á því að geta mynda meiri­hluta miðað við þessa kosn­inga­spá.

Samstarf fjög­urra flokka er mun lík­legra til þess að ganga upp.

100.000 sýndarkosningar búa að baki

Þing­sæta­spáin er byggð á reikni­lík­ani Baldurs Héð­ins­sonar og Stefáns Inga Valdi­mars­sonar. Í stuttu máli er aðferða­fræðin sú að fylgi fram­boða í skoð­ana­könn­unum er talin lík­leg­asta nið­ur­staða kosn­inga að við­bættri óvissu sem byggir á sögu­legu frá­viki kann­ana frá kosn­inga­úr­slitum. Söguleg gögn sýna að fylgni er á milli þess að ofmeta/van­meta fylgi flokks í einu kjör­dæmi og að ofmeta/van­meta fylgi flokks­ins í öðrum kjör­dæmum. Frávikið frá lík­leg­ustu nið­ur­stöðu fyrir flokk er því ekki óháð milli kjör­dæma. Ef frá­vikið er nei­kvætt í einu kjör­dæmi fyrir ákveð­inn flokk aukast lík­urnar á að það sé sömu­leiðis nei­kvætt í öðrum kjör­dæmum.

Reikni­líkanið hermir 100.000 „sýnd­ar­kosn­ingar“ og úthlutar kjör­dæma- og jöfn­un­ar­sætum út frá nið­ur­stöð­unum. Líkur fram­bjóð­anda á að ná kjöri er þess vegna hlut­fall „sýnd­ar­kosn­inga“ þar sem fram­bjóð­and­inn nær kjöri.

Nánar má lesa um aðferða­fræði Kosn­inga­spár­innar í kosn­inga­mið­stöð Kjarnans.

Tökum ímyndað fram­boð X-list­ans í Norð­vest­ur­kjör­dæmi sem dæmi: Fram­boðið mælist með 20 pró­sent fylgi. Í flestum „sýnd­ar­kosn­ing­unum“ fær X-list­inn 2 þing­menn en þó kemur fyrir að fylgið í kjör­dæm­inu dreif­ist þannig að nið­ur­staðan er aðeins einn þing­maður. Sömu­leiðis kemur fyrir að X-list­inn fær þrjá þing­menn í kjör­dæm­inu og í örfáum til­vikum eru fjórir þing­menn í höfn.

Svona getur þú lesið í þingsætaspána.
Svona getur þú lesið í þing­sæta­spána.

Ef skoðað er í hversu mörgum „sýnd­ar­kosn­ingum“ hver fram­bjóð­andi komst inn sem hlut­fall af heild­ar­fjölda fást lík­urnar á að sá fram­bjóð­andi nái kjöri. Sem dæmi, hafi fram­bjóð­and­inn í 2. sæti X-list­ans í Norð­vest­ur­kjör­dæmi náð kjöri í 90.000 af 100.000 „sýnd­ar­kosn­ingum“ þá reikn­ast lík­urnar á því að hann nái kjöri í Alþing­is­kosn­ing­unum 90 pró­sent.

Skoð­ana­kann­anir í aðdrag­anda Alþing­is­kosn­inga 2009 og 2013 voru not­aðar til að sann­prófa þing­sæta­spánna, þar sem spáin er borin saman við end­an­lega úthlutun þing­sæta. Þing­sæta­spáin var jafn­framt birt í fyrsta sinn í aðdrag­anda Alþing­is­kosn­inga 2016.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið undanfarið ár