Tvö prósent fjölskyldna skiptu með sér tug milljarða söluhagnaði

3.682 fjöl­skyldur, tæp­lega tvö pró­sent fjöl­skyldna, fengu hagnað vegna hluta­bréfa­sölu í fyrra upp á 28,7 millj­arða króna. Tekjur vegna hluta­bréfa­sölu juk­ust um 38,3 pró­sent milli ára en fjöl­skyldum sem nutu slíks hagn­aðar fjölg­aði ein­ungis um 3,7 pró­sent.

Tekjur ein­stak­linga á Íslandi af arði námu 43,3 millj­örðum króna í fyrra. Þær juk­ust um 24,6 pró­sent milli ára og er arður nú orðin stærsti ein­staki liður fjár­magnstekja rík­is­sjóðs. Fjöldi þeirra sem töldu fram arð vegna árs­ins 2016 var 14.545 og fjölg­aði um 685 milli ára, eða um tæp­lega fimm pró­sent. Þetta kemur fram í frétt fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins um álagn­ingu opin­berra gjalda á ein­stak­linga 2017.

Sölu­hagn­aður jókst um 39,1 pró­sent milli ára þrátt fyrir að fjöl­skyldum sem töldu fram sölu­hagnað hafi ein­ungis fjölgað um 5,4 pró­sent. Það bendir til þess að fámennur hópur sé að taka til sín þorra þess arðs sem verður til í íslensku sam­fé­lagi.

Sölu­hagn­aður var alls 32,3 millj­arðar króna í fyrra og þar af nam sala hluta­bréfa 28,7 millj­örðum króna og hækk­aði um 38,3 pró­sent á milli ára. Á sama tíma fjölg­aði fjöl­skyldum sem telja fram sölu­hagnað vegna hluta­bréfa um ein­ungis 3,7 pró­sent í 3.682 alls. Fjöl­skyldur á Íslandi voru um 197 þús­und í fyrra. Það þýðir að tæp­lega tvö pró­sent fjöl­skyldna lands­ins greiði fjár­magnstekju­skatt vegna sölu­hagn­aðar á hluta­bréfum.

Hagtölur sýna að 86 pró­sent verð­bréfa, sem eru meðal ann­ars hluta­bréf, eru í eigu rík­asta tíu pró­sent Íslend­inga. Sam­an­dregið liggur því fyrir að nokkur þús­und Íslend­ingar, undir fimm pró­sent þjóð­ar­innar, tekur til sín nær allan sölu­hagnað vegna hluta­bréfa hér­lendis.

Eigið fé heimila jókst um 415 milljarða milli ára

Nettó­eign heim­ila lands­ins, sem skil­greind sem heild­ar­eignir þeirra að frá­dregnum heild­ar­skuldum, einnig kallað eigið fé, var sam­tals 3.194 millj­arðar króna í lok árs 2016. Það jókst um 415,2 millj­arða króna, eða 13,4 pró­sent á milli ára en ekki hafa verið birtar tölur um hvernig það nýja fé sem varð til skipt­ist á milli tekju- eða eigna­hópa sam­fé­lags­ins. Á verð­lagi þess árs námu nettó­eignir heim­ila lands­ins um 1.830 millj­örðum króna í árs­lok 2011. Frá þeim tíma hafa þær því auk­ist um 1.364 millj­arðar króna í krónum talið, eða um 74,5 pró­sent. Að teknu til­liti til verð­bólgu nemur raun­gild­is­auk­ing á nettó­eign heim­ila tæp­lega 1.100 millj­örðum króna, eða um 52 pró­sent.

Tölur Hagstofu Íslands fyrir árið 2015 sýndu þó að rík­asta tíund lands­manna átti um 64 pró­sent af öllu eigin fé hér­lendis í lok þess árs. Efn­uð­ustu 20 pró­sent lands­manna áttu 87 pró­sent af öllu eigin fé á sama tíma.

Tekjur vegna hlutabréfasölu jukust um 38,3 prósent

Tekjur vegna arð­greiðslna hafa auk­ist mjög á und­an­förnum árum. Árið 2012 námu þær 16,7 millj­örðum króna og hafa nálægt því þre­fald­ast í krónum talið síðan þá. Árið 2014 voru tekjur vegna arð­greiðslna tæp­lega 30 millj­arðar króna og árið 2015 34,8 millj­arðar króna. Þá var hagn­aður af sölu hluta­bréfa 20,8 millj­arðar króna og því ljóst að hann jókst um 7,9 millj­arða króna á milli ára, eða um 38,3 pró­sent. Sölu­hagn­að­ur­inn lækk­aði þó milli áranna 2014 og 2015 og var sú skýr­ing gefin í frétt fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins um álagn­ingu opin­berra gjalda fyrir árið 2016 að nokkrir ein­stak­lingar hefðu verið með „óvenju­lega háan sölu­hagnað“ á árinu 2014.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár